Helgarpósturinn - 29.04.1983, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 29.04.1983, Blaðsíða 15
15 Föstudagur 29, apríl 1983 það hvort Kjartan Ólafsson kæmist inn eða ekki — en eins og menn muna vantaði hann aðeins tíu at- kvæði til að ná kjöri í kosningunum 1978.... 5. maí næstkomandi verður /"J síðar minnst í sögunni sem S merkilegs dags. Þá ætlar Guðlaugur Ottarsson gítarleikari úr Þeysurum að opna hljómplötu- stúdíó ásamt fleiri mönnum, og verður húsnæðið jafnframt notað sem rannsóknarstöð í Reichískum fræðum. Sama dag ætlar Gunnar Vilhelmsson ljósmyndari að opna ljósmyndastúdíóið Kím, en fyrir nokkrum árum gaf Gunnar út sam- nefnt tímarit.... borg. Strax á eftir leika svo Grýl- urnar í Höfn. Þá hefur danskt hljómplötufyrirtæki sýnt áhuga á að gefa út plötu með tónlistinni úr Rokk í Reykjavík og vinsælasti rokkþáttur danska útvarpsins Rocknyt hefur leikið íslenskt rokk undanfarið. Þar var m.a. viðtal um daginn við rokkkónginn Bubba.... Díslenskar kvikmyndir gera það líka gott erlendis einsog margoft hefur komið fram hér í blaðinu. Þó hefur hróður þeirra trúlega aldrei borist jafn langt og nú. Tveimur íslenskum kvikmyndaleikstjórum, Ágúst Guðmundssyni og Hrafni Gunn- laugssyni hefur nefnilega verið boðið alla leið til Kína á alþjóðlega kvikmyndahátíð sem þar verður haldin í október. Hátíð þessi sem haldin verður í þremur stærstu borgum Kína hefur falast eftir sýn- ingum á Útlaganum og Okkar á milli.... Stundarfriður Guðmundar f J Steinssonar verður frum S sýndur í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi um næstu helgi. í Kaupmannahöfn verður verkið sýnt í Konunglega Ieikhúsinu á ný- legu sviði, sem kennt er við Grá- bræðurna. Danir tefla fram góðum leikurum í uppfærslu sinni og má þar nefna Karin Nellemose sem leikur ömmuna,og piltinn sem lék á móti Lilju Þórisdóttur í Hildi. Hann leikur soninn. Frumsýningin verður 6. mai. Daginn eftir verður leikritið síðan frumsýnt á litla sviði Dramaten leikhússins í Stokkhólmi undir stjórn Staffan Roos, sem hef- ur starfað þar lengi. Þar eru einnig stórleikarar á ferðinni. Hin þekkta kvikmyndaleikkona Harriet And- erson fer með hlutverk móðurinnar, Svend Lindberg leikur föðurinn og ömmuna leikur Sif Ruud. Hún er kosningaskrifstofunnar á Egils- stöðum dauðaleit að kjósanda sem vitað var að ekki kæmist á kjörstað fyrir austan. Eftir margar símhring- ingar tókst að hafa upp á honum og svo vildi til, að flugvél hafði verið pöntuð frá Reykjavík til að flytja tvö utankjörfundaratkvæði austur, og komst kjósandinn með henni á kjörstað í tæka tíð. Ekki tókst eins vel til hjá Vestfirðingum. Þar vestra hafði verið pöntuð flugvél frá Reykjavík með þrjú utankjörfund- aratkvæði, og hún lenti á ísafirði þegar klukkuna vantaði fimm mín- útur í ellefu. Tvær mínútur yfir ell- efu bönkuðu þeir uppá á kjörstað, en þegar ekki var opnað með það sama hurfu þeir frá og skiluðu at- kvæðunum á kosningaskrifstofu G-listans. Þaðan var farið með at- kvæðin í skyndi á kjörstað, en þá var klukkan orðin of margt og yfir- kjörstjórn taldi ekki fært að taka við þeim. En Vestfirðingar gátu huggað sig við það eftir að úrslit í kosningunum voru kunn, að þessi þrjú atkvæði réðu ekki úrslitum um Áhrifa mýndbandanna gætir víða. Við heyrum, að norður ’ á Ólafsfirði hafi menn óskað eftir því við Alþýðusamband ís- lands, að þeir fengju Óskar Vig- fússon, forseta Sjómannasam- bandsins,til að flytja ræðu á mynd- band. Myndbandið átti síðan að spila í myndbandakerfi þeirra Ólafsfirðinga fyrsta maí, og var reiknað með því, að um þúsund manns myndu hlýða á ræðu for- setans, samkvæmt reynslunni af myndbandavenjum Ólafsfirðinga. Það eru margfalt fleiri en bjartsýn- ustu verkalýðsleiðtogar geta 'eikn- að með að sæktu fund á hátíðisdegi verkalýðsins þar í bæ hefði Óskar komið norður í eigin persónu.... gömul prímadonna þeirra sænskra og hefur m.a. leikið nokkuð í sjón- varpi, m.a. lék hún í sjónvarpsleik- riti, sem nýlega var sýnt hér og sagði frá gamalli konu, sem fór til Ameríku. Guðmundur Steinsson hefur dvalið í Danmörku að undan- förnu og hefur hann fylgst með gangi mála á báðum stöðum og er að sögn ánægður... r'l Úr blaðaheiminum á Akur- /1 eyri heyrum við, að Gísli S < Sigurgeirsson blaðamaður DV fyrir norðan muni innan skamms koma sér fyrir á ritstjórn- arskrifstofum Dags, þar sem hann á að taka að sér starf fréttastjóra. Nokkrar breytingar eru einnig í uppsiglingu hjá Islendingi, en þar hefur starfsmönnum blaðsins, tveim að tölu, verið sagt upp störf- um og ganga þeir út um næstu mánaðamót. Nokkur óánægja hef- ur verið með blaðið að undanförnu og ekki víst, að það komi út aftur alveg á næstunni.... v , f ótt samdráttur sé yfirvof- / J andiígerðíslenskssjónvarps- efnis á næstunni er hún þó ekki alveg úr sögunni. Þannig mun sjónvarpið ætla að fylgja þeirri hefð nú sem oftast fyrr að hafa vænan íslenskan skemmtiþátt á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Hann er núna í undirbúningi, og heyrum við að umsjónarmaður verði Valgeir Guðjónsson, Stuð- maður með meiru, en dagskrár- gerðin verði í höndum Elínar Þóru Friðfinnsdóttur.... r<l Veglega sagði Morgunblaðið f'\ frá skiptunum á Karnabæ Si í vikunni, þar sem svo rnikil áhersla var lögð á skiptin milli Guðlaugs Bergmann og bræðranna Hauks og Péturs Björnssona. Lík- lega var heldur fljótt sagt frá skipt- unum því enn hefur ekki verið skrifað undir skiptasamninginn, sem felur í sér að bræðurnir fá hús- eignina að Fosshálsi en Guðlaugur fær fyrirtækið. Samningurinn var tilbúinn til undirritunar um síðustu helgi en þá hljóp einhver snurða á þráðinn enda samstarf löngum erf- itt... Fyrirtækið Frjálst framtak f J hefur verið nokkuð í um- ■S' ræðunni vegna umdeildrar SÁÁ-söfnunar. Einhver upplausn er sögð ríkja meðal starfsfólks á skrifstofum fyrirtækisins og nú heyrum við að tiltölulega nýráðinn sölustjóri þess sem kynntur var í blöðum, Sveinn Sveinsson, sé að hætta... Það eru fleiri íslenskar /" J hljómsveitir sem eiga þess S kost að „meika það“ erlendis en Mezzoforte. Þannig fer mikið fyrir íslensku rokki í Danntörku um þessar mundir. Um hvítasunnuna verður væntanlega frumsýnd í kvikmyndahúsinu Vester Vov Vov í Kaupmannahöfn myndin Rokk í Reykjavík og um svipað leyti mun hljómsveitin Ego með Bubba Mort- hens í fararbroddi troða upp þar í Kvikmyndaklúbbur til sölu Fjalakötturinn, kvikmyndaklúbbur fram- haldsskólanenia,er til sölu. Um er aö ræöa allar eignir klúbbsins. Þar á meöal: Kvik- myndablaöiö ásamt Iager, ný sýningarvél ERNEMANN-12S-35/16 mm. Tvær 16 mm kvikmyndatökuvélar,nýtt sýningartjald,kvik- myndasafn (30-40 myndir). Bóka-og blaöasafn,vélrúlla og splæsari,seg- ulband og magnari auk ýmissa fylgihluta. Heildartilboö eöa tilboö í einstaka hluti ósk- ast sent til Félagsstofnunar stúdenta PO. BOX 21 Reykjavík, fyrir föstudaginn 6. maí. Nánari upplýsingar fást hjá Barða Váldi- marssyni í síma 46781 eöa Önnu Kristínu Traustad. í síma 15918. Garðabær Blaðburðarbörn vantar víðsvegar um Garöabæ fyrir Alþýðubl, Þjóðviljann og Tímann. Upplýsingar í síma 42747 eftir kl. 5. Umboðsmaður. RENNILOKAR Rennilokar 10 kg og 25 kg 2"-12" Kúlulokar ryðfríir og messing 1/2"-3" Messinglokar 1/2"-3" Spjaldlokar og einstreymislokar í mörgum stærðum. (§) INNKAUP HE ÆGISGÖTU 7. REYKJAVlK SlMI 22000 Straxí f/ista flol<ld Þann 4. maí verða dregn- ir út vinningar að verð- mæti 2.921.000 krónur. 1 vinningur til íbúðarkaupa á 400 þús. kr. 10 bifreiðavinningar á 75 þús. kr. hver. 25 ferðavinningar á 25 þús. kr. hver. 50 húsbúnaðarvinningar á 7.500 kr. hver og 514 húsbúnaðarvinningar á 1.500 kr. hver. MIÐI ER MÖGULEIKI Sala og endurnýjun stendur yfir HAPPDRÆTTI 83-84

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.