Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 29.04.1983, Qupperneq 20

Helgarpósturinn - 29.04.1983, Qupperneq 20
10% Hallvarður Þórsson: ikk ef tón- leikar heppnast vel“ Fðsludagur 29. apn'M983 ,rjnri 9 og ég var stoltur af því að vinna fyrir þá“. — Erfitt? „Mjög erfitt“. Á sveitaböllunum þurfti Pétur að standa i dyravörslunni og afhenda 5-600 manns miða inn og út úr húsinu, og hann segir, að hann hafi þótt harður við dyrnar. Enginn liafi kom- ist framhjá honum án þess að borga. „En það er athyglisvert, að eftir tíu ára starf hafði ég aldrei verið laminn, sem þýðir, að ég hef beitt töluverðri sálfræði". Einu sinni munaði þó kannski ekki miklu. Pétur hélt ball í nýju samkomuhúsi austur í sveitum, nánar tiltekið niður við sjó. Að venju stóð Pétur i dyrunum og krafði menn um miða. Þar var þó einn fýr, sem vildi bara labba út og inn eins og honum þóknaðist. Pétur benti manninum hins vegar á, að hann væri með húsið á leigu og allir þyrftu að borga sig inn. Heimamaðurinn gaf sig samt ekki. Þá komu nokkrir sveitungar hans aðvífandi og tókst þeim að lempa kauða. Síðar sögðu þeir Pétri,.að maður þessi væri hættulegur slags- málahundur. — Verða menn ríkir af þessu? „Nei, en ef maður á stóra fjölskyldu og konan vinnur ekki úti, og maður er að koma sér upp húsi, veitir ekki af tvöfaldri vinnu“. — Þú hefur verið í þessu í rúmlega þrjátíu ár, ætlarðu að vera önnur þrjátíu? „Ég er að verða sextugur og hlýt að fara að hætta þessu“. En Pétur er ekki hættur enn og þeir sem vilja fá upplýsingar um hljómsveitir á einum stað, ættu bara að slá á þráðinn til hans. er hver að baki nema sér umboðsmann eigi. getur fyrsta boðorð skemmtanaiðnaðarmanna hljómað. En fremur á það ntí við úífi hinum stóra heimi, þar sem framavonir listamanna geta oltið á því að vera undir styrkri stjórn. Enda umboðsmaðurinn þar sveipaður dýrðarljóma, jafn- vel dáður og dýrkaður. Og svo er hann líka rikur, stundum kallaður mister ten pörsent. Kslensl umboðsmenn eru lika til, þótt enginn þeirra sé gildur á við gild- ustu erienda kolíega. Aðstæður eru líka aðrar, allt miklu smærra í sniðum. Þeir eru fáir í íslenskri umboðsmannastétt, sem eru gamlir í hettunni. Nú munu að- eins tveir einstaklingar annast slík störf, sem hafa verulega reynslu í þeim efnum; Pétur Guðjónsson rakari og Ámundi Ámundason. Aðrir skjóta upp kollinum og staldra við í stuttan tíma, taka að sér eitt og eitt verkefni. hefur Félag íslenskra Hljóðfæraleikara lengi rekið ráðningarskrifstofu og nú eru SÁTT að hrinda einni slíkri af stað. _„ „ á eftir verður spjallað stuttlega við nokkra einstaklinga, sem standa í um- ’bofomennsku.og þeir spurðir um starfið. Þessir menn eru Pétur Guðjónsson, sem hef- ur manna lengst stundað þetta, eða í rúm þrjátíu ár, Einar Örn Benediktsson og Hall- varður Þórsson. Hinir tveir síðarnefndu eru ungir i faginu og óvíst að þeir endist eins lengi og Pétur. En tíminn mun skera úr um það. „rietta er eins og útgerð“ — segir Pétur Guðjónsson rakari og umboðsmaður .,Ég lýg engu ef ég segi, aö ég hafi byrjað í kringum 1950“. Pétur Guðjónsson rakari hefur því stundað umboðsmennsku fyrir hljómsveitir í rúmlega 30 ár, og geri aðrir betur. „Ég datt þannig inn í þetta, að ég var fyrr- Pétur með hljómsveit Björns R. Einarssonar og var myndin tekin í kringum 1950. verandi trommari í tríói og ég var líka dansari og þekkti því inn á þetta“, heldur Pétur áfram. Fyrsta hljómsveitin, sem Pétur tók að sér, var átta manna band Björns R. Einarssonar; „athyglisverð hljómsveit, sem spilaði mikið af nótum“, og á böllum hjá henni mátti heyra dúndrandi Straussvalsa. „Við fórum um landið og héldum hljóm- leika og dansleiki og sennilega er þetta eins í dag, að þénustan var ekki mikil. Ég sá um all- an tilkostnað við hljómsveitina og afgangur- inn var ekki voðalegur“. Árið 1952 tók Pétur við umboðsmennsku fyrir KK-sextettinn og var með þeim í tíu ár, exklúsíft, eins og það heitir; þ.e. hann var ekki með aðra hljómsveit á sínum snærum. — Hvað gerir umboðsmaðurinn? „Umboðsmannastarfið er töluvert ábyrgð- arstarf. Hann skipuleggur kannski tuttugu og fimm daga ferðalag um landið og það þarf að taka stóru staðina á réttum dögum. Það hvílir á honum sú ábyrgð að sjá um ballið. Hann sér um miðasöluna og gerir síðan upp. Þetta er eins og útgerð". Þetta var á þeim tíma er Pétur var með að- eins eina hljómsveit á sinni könnu og fylgdi henni eftir hvert sem hún fór. Nú er hann hins vegar með umboð fyrir margar hljómsveitir og hann er sá aðili, sem getur sagt til um geeði hverrar hljómsveitar fyrir sig. Þá setur Pétur upp sama verð fyrir allar hljómsveitir, sem hann er með, og því getur ekki verið um nein undirboð að ræða. „Umboðsmaðurinn er það afl, sem gefur þeim styrk til þess að láta ekki draga sig niður í verði“, segir Pétur. Hann ber hljómsveitarmönnum líka vel söguna: „Ég hef mjög góða reynslu af starfinu. Ég á ekki eyri hjá einum einasta hljóðfæraleik- ara“, segir hann. En hér er hann að tala um það þegar tónlistarmennirnir innheimta vinnulaunin sjálfir og greiða síðan umboðs- manninum eftir á. — Er þetta skemmtilegt? „Ég hafði gaman af þessu vegna þess, að þetta voru góðir hljóðfæraleikarar og félagar Grýlurnar á Melarokki, sem Hallvarður stóð fyrir síðasta sumar. Hallvarður Þórsson hefur stundað um- boðsstörf í tvö ár. Hann datt inn í starfið fyrir tilviljun. „Eg var atvinnulaus um vorið og fylgdist með smáauglýsingum dagblaðanna og þar var eitt sinn óskað eftir manni í þetta starf“, segir hann. Hljómsveitin sem leitaði sér að umboðs- manni var Spilafíflin. Hallvarður var boðað- ur á æfingu og leist honum vel á. Fyrsta verk .hans var svo að koma Spilafíflunum á tón- leika í Laugardalshöll. Hann hefur svo síðar starfað með Utangarðsmönnum, Bodies og Egó. — Hvað gerir umboðsmaðurinn? „Ef hann starfar með hljómsveit er aðal- málið að gera veg hennar sem allra mestan og koma tónlist hennar á framfæri hvar sem er. Hann verður að byggja upp stérkt nafn og það hefst með stanslausu veseni. Það verður að sjá um að blöðin standi sig í sínu og geri þetta á- berandi“. Ég hef einbeitt mér að tónleikum og svo verður áfram. í sumar mun ég flytja inn er- lendar hljómsveitir", segir Hallvarður. Þegar hafa náðst samningar um komu Siouxie and the Banchees og samningaviðræður standa yfir við Dance Society og fleiri. — Er þetta skemmtilegt starf? „Það er alltaf ákveðið kikk ef tónleikar heppnast vel og allir eru ánægðir. Og því stærri, sem tónleikarnir eru.þeim mun meira verður kikkið“. — En er þetta erfitt? „Þetta getur verið leiðindastress. Það er oft

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.