Helgarpósturinn - 06.05.1983, Side 20

Helgarpósturinn - 06.05.1983, Side 20
20 Föstudagur 6. maí 1983 hle/gai---- Zposturinn Sundrungin í Rithöfundasambandi íslands grefur undan sameiginlegri hagsmunabaráttu: Stílvopnin kvödd? Texti: Ingólfur Margeirsson 0 Aðalfundi Rithöfundasambands íslands sem haldinn var í Norræna húsinu sl. laugardag 30. apríl, var skotið á frest til framhaldsaðalfundar 15. maí, eftir miklar þrætur og málaþóf. Fundurinn var ekki talinn lög- mætur vegna ónógrar þátttöku félaga. Minnst þriðjungur félagsmanna verður aþ sitja aðalfund en Rithöfundasambandið telur nú 192 félaga. 0 En deilurnar eru fleiri. Störf stjórnarinnar hafa verið gagnrýnd og hún sökuð um að gæta illa hagsmuna félagsmanna. Pólitískar deilur hafa einnig geisað í Rithöfundasambandinu og gengu 21 félagi úr samtökun- um fyrirtæpu ári í mótmælaskyni við ,,valdníðslu vinstri manna“ einsog einn þeirra komast að orði í viðtali við Helgarpóstinn. • Margt bendir til þess að rithöfundar hafi slíðrað stílvopnin en brugðið öðrum vopnum. Helgarpósturinn hefur skyggnst undir yfirborð þessara deilna og rætt við ýmsa rithöfunda um ofangreindar þrætur og um hags- munamál rithöfunda. Rithöfundasambandið var stofnað 1957 sem sameiginlegt hagsmunafélag Rit- höfundafélags íslands og félags íslenskra rit- höfunda. Það var þó fyrst árið 1974 að Rit- höfundasambandið var sjálfstætt félag með einstaklingsbundinni inntöku félaga þótt hin félögin tvö hafi starfað áfram að nafninu til. Inntaka nýrra félaga er ákveðin í lögum Rithöfundasambandsins en þar segir í 4. gr. 2. málsgr. að „félagar geti orðið: 1) höfundar sem birt hafa tvö bókmenntaverk sem hafa listrænt og/eða fagurfræðilegt gildi.“ Síðar hafa „viðurkenndir þýðendur" bæst í félaga- tölu Rithöfundasambandsins, þótt sú inntaka hafi mætt töluverðri andstöðu innan sam- bandsins. Á aðalfundinum s.l. laugardag lá fyrir tillaga um lagabreytingu frá formann- inum Nirði P. Njarðvík þar sem segir að félag- ar geti einnig orðið „höfundar sem hafa birt tvö fræðirit er teljast hafa ótvírætt fræðslu- gildi.“ Um þessa lagabreytingu stóð mikill styrr. Bókmenntir eöa sandgræösla Njörður P. Njarðvík sagði í viðtali við Helgarpóstinn að sér hafi verið ljóst að inn- taka höfunda kennslubóka og fræðirita mundi mæta andstöðu innan Rithöfunda- sambandsins. — Það eru nokkrir félagar sem álíta að Rit- höfundasambandið eigi að vera fámenn „elítusamtökj* sagði Njörður. Hins vegar tel ég að hugtakið rithöfundur sé víðara en rit- snillingur og það séu hagsmunir allra að sam- tökin séu stór. Hins vegar telja sumir félags- menn að sambandið eigi að vera þröngt og jafnvel enn þrengra en það er nú. Ég tel aftur á móti að samstaða styrki okkur. Það er síður en svo æskilegt að höfundar séu dreifðir í mörgum félögum. Þátttaka höfunda fræði- rita og kennslubóka styrkir Rithöfundasam- bandið í öllum samningum þess við útgáfu- aðila. Samtök rithöfunda á öðrum Norður- löndum hafa veitt höfundum kennslubóka og fræðirita inngöngu án þess að það hafi valdið vandkvæðum. Njörður sagði ennfremur, að eftir við- brögðum fundarmanna að dæma, sé það minnihluti félaga sem er andsnúinn aðild fræðirithöfunda. — Þetta er ekkert kappsmál okkar, sagði Njörður, það hafa einfaldlega komið fram óskir fræðimanna um inngöngu í Rit- höfundasambandið og stjórnin hefur lagt málið fyrir aðalfund. Þegar Helgarpósturinn innti Njörð álits á þrætunum á aðalfundinum svaraði hann: „Félagar Rithöfundasambandsins hafa mál- frelsi“ Thor Vilhjálmsson rithöfundur er einn þeirra sem hafa gagnrýnt hugsanlega inntöku hinna nýju félaga. — Ég veit ekki hvernig fer ef Rithöfunda- samband íslands er gert að sundurleitum fjöldasamtökum miklu frekar en orðið er. Það er bara talað um að bækur þessara vænt- anlegu félaga skuli hafa fræðslugildi, en það er ansi teygjanlegt. Það opnar leiðina fyrir svo margvíslegu fólki, t.d. þeim sem taka saman kennslubækur i algebru, lógaritma, sand- græðslu eða læknisfræði. Þetta stuðlar að því að gera sambandið að allt of víðtækum fjöldasamtökum sem hugsa ekki lengur um að bæta hag þessara manna sem fást við að skrifa bókmenntir. Ég hef þó ekkert á móti þessum fræðimönnum, síður en svo. Á sum- um þeirra hef ég mætur. En ég held að það sé eðlilegra að þeir hafi sín eigin hagsmunafélög af ýmsu tagi eftir þeirra vettvangi, því hags- munir okkar eru ólíkir. Það er t.d. til Félag ískenskra fræða sem er eðlilegur vettvangur margra þeirra. Auk þess er Bandalag háskóla- manna, ýmiss konar kennarafélög, og fleira. Thor telur einnig að slælega sé staðið að hagsmunum starfandi rithöfunda: — Gæslan á hagsmunum okkar er nógu slæm eins og stendur þótt ekki sé farið að færa Rithöfundasambandið enn fjær okkur. Sérstaklega gildir þetta um okkur hina fáu sem höfum ekkert annað starf. Það ætti fyrst og fremst að stefna að því að einhverjum mönnum sé fært að lifa eingöngu af bók- menntastörfum í þessu landi. Ekki keppnisféiag Guðrún Helgadóttir stjórnaði síðasta aðal- fundi Rithöfundasambandsins. Helgar- pósturinn innti hana nán’ar eftir fundinum. — Fundurinn samþykkti skýrslu stjórnar og gjaldkera, sagði Guðrún, en fleiri mál voru ekki afgreidd á fundinum þar eð efasemdir komu upp um lögmæti hans vegna ónógrar þátttöku félagsmanna, og aðalfundi skotið á frest um tvær vikur. Guðrún taldi aðfinnslurnar um ólögmæti fundarins vera „tóma vitleysuý þar sem fundarmenn hafi verið rúmlega 40. í Rit- höfundasambandinu eru 192 félagar. Hún sagði að andstaðan við inngöngu fræðimanna veikti stöðu sambandsins og væri „innri ólukka“ sem sundraði félögum. Guðrún sagði ennfremur að umræðan á fundum Rit- höfundasambandsins snerist of mikið um meting og persónulegar þrætur i stað þess að Njörður: „Hugtakið rithöfundur er víðara en ritsnillingur“. Guðrún: „Rithöfundasambandið er ekki keppnisfélag". Guðbergur: „Fundir Rithöfundasambandsins eru leiðinlegir og ómenningarlegir“. Hörður: „Ágreiningurinn um aðild okkar kemur mér á óvart“. Indriði: „Við höfum mótmælt alræðisað- ferðum vinstri aflanría í Rithöfunda- sambandinu".

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.