Helgarpósturinn - 02.06.1983, Side 8
8
sÝniii;|arsalir
Safn Ásmundar
Sveinssonar:
Yfirlitssýning á höggmyndum meist-
arans. Opið alla daga kl. 14-17. Lokað
mánudaga. Ókeypis aðgangur.
Þrastalundur:
Sigurpáll A. ísfjörð sýnir vatnslita-
myndir og olíuverk úr Grímsnesi og
nágrenni. Sýningin stendur til 5. júní.
Listasafn ASÍ:
Lokað í júnf.
Gallerí
Langbrók:
Langbrókarmunir til sýnis og sölu.
Opið virka daga kl. 12-18.
Norræna
húsið:
Yfirlitssýning á verkum Sven Hav-
steen Mikkelsen I kjallara. Opiö kl.
14-19 til 12. júní. í anddyri stendur yfir
sýning á Ijósmyndum og blaðaúr-
klippum tengdum Scandinavia To-
day. Opið kl. 9-19.
Bogasalur:
Myndir úr íslandsleiðöngrum og
fleira nýtt. Opið alla daga kl. 13.30-16.
Sýningin stendur út ágúst.
Mokka:
Pétur Stefánsson sýnir olíumyndir á
pappa. Opiö virka daga kl. 9.30—23.
30 og sunnudaga kl. 14—2330.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Opið miövikudaga og sunnudaga kl.
13.30—16. Stórfenglegar höggmynd-
ir.
Listmunahúsið:
Bragi Ásgeirsson sýnir gamlar og nýj-
ar grafikmyndir. Sýningunni iýkur á
sunnudag.Opiðkl. 10—18virkadaga
og 14—18 um helgina.
Nýlistasafniö:
Árni Ingólfsson sýnir myndverk og
lýkur sýningunni á sunnudag. Opiö
kl. 16—20 virka daga og 14—22 um
helgina.
Kjarvalsstaðir:
Ljósmyndafélagiö Hugmynd sýnir
Ijósmyndir til 12. júní. Richard Valtin-
gojer opnar grafíksýningu á laugar-
dag kl. 15 og stendur hún til 12. júní.
Opið daglega kl. 14—22.
Flensborgarskóli:
Ungir hafnfirskir myndlistarmenn
sýna verk sfn í tilefni 75 ára afmælis
bæjarins. Opið kl. 17—23 virka daga
og 14—23 um helgar. Lýkur 6. júni. Til
hamingju!
Ásmundarsalur:
Eva Benjamínsdóttir sýnir myndverk
til sunnudagskvölds. Opiö virka daga
kl. 16—22 og 14—22 um helgina.
Ásgrímssafn:
Búið að opna. Opiö daglega kl.
13.30—18 nema mánudaga. Til
ágústloka. Strætó 10 frá Hlemmi.
leikbiís
Þjóðleikhúsið:
Föstudagur: Litli minn, hvað nú?
Gestaleikur frá Folketeatret í Kaup-
mannahöfn.
Laugardagur: Litli minn, hvaö nú?
Sunnudagur: Cavalleria Rusticana
og Fröken Júlia.
Þrjár sýningar eftir.
Leikfélag
Reykajvíkur:
Föstudagur: Guðrún eftir Þórunni
Sigurðardóttur. Næst síðasta sinn.
Laugardagur: Skilnaður eftir Kjartan
Ragnarsson. Siðasta sinn.
Sunnudagur: Úr lifi ánamaðkanna
eftir Enquist.
Alþýðuleikhúsið:
Neðanjarðarlestin eftir Imamu Amiri
Baraki. Sýningar í Félagsstofnun stú-
denta á laugardag, mánudag og
fimmtudag kl. 21.
Nemendaleikhúsið:
Mlðjaröarför Sigurðar Pálssonar
veröur sýnd fimmtudag 2. júni kl.
20.30 I Lindarbæ.
Félagsstofnun
stúdenta:
Listatrimmið heldur áfram. Á sunnu-
dagskvöld verður upplestur skálda og
performans. Einar Ólafsson, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Elísabet Þor-
geirsdóttir og Sjón. Auk þess blæs
Blásarakvintett Reykjavfkur nokkra
tóna. Komið i trimmið.
Fimmtudagur 2. júní 1983
_f~lelgai-
-Pösturinn^
— segir Einar Ölafs-
son um nýja ljóðabók
sína
„Ætli ég yrki ekki aöallega um „Hann hefur það“, segir Einar.
ástina og byltinguna. Eg er alltaf
meira og minna ástfanginn og mér
sýnist aö ástin gangi ekki upp nema
ég geri byltingu og byltingin gengur
ekki upp nema með ástinni. Þetta
helst í hendur“.
Þannig lýsir Einar Ólafsson
skáld nýrri Ijóðabók sinni „Augu
viö gangstétt“, sem Mál og menning
gaf út fyrir skömmu.
„Augu við gangstétt“ er fimmta
bók Einars. Sú fyrsta kom út hjá
Helgafelli í upphafi síðasta áratug-
ar og í kjölfarið fylgdu þrjár fjölrit-
aðar bækur, sem fór ekki mikið fyr-
ir, sú síðasta 1974 í samvinnu við
Dag Sigurðsson.
„Ég var eitt af þessum fjölritun-
arskáldum", segir Einar. Síðan 1974
hefur hann svo einungis birt ljóð
eftir sig í ýmsum tímaritum.
Einar hefur alltaf haft mjög fast-
mótaðar og ákveðnar skoðanir á
pólitíkinni og segir hann, að ljóðin
fari ekki varhluta af því. Þau séu þó
ekki predikanir.
„Þó að ég hafi fengist við það í
bland, þá held ég, að mér takist ekki
vel upp við að predika. Ljóðformið
er ekki gott til slíks“, segir hann.
En hafa ljóð Einars breyst eitt-
hvað á þeim tæpu tíu árum, sem
hann hefur ekki sent frá sér bók?
„Það hafa ekki orðið neinar rót-
tækar breytingar. Grunntónninn er
sá sami og þegar ég fór fyrst að
birta ljóð um 1970“.
Einar hefur, eins og svo mörg
önnur ung skáld, staðið í töluverð-
um ljóðaupplestri á opinberum
samkomum og heldur því áfram um
þessa helgi. Hann er því spurður
hvort svona upplestur hafi eitthvað
að segja.
„Það er mjög gaman að lesa upp
ljóð fyrir áheyrendur, því ljóð er oft
stílað upp á hljóminn. Og hann
skiptir oft heilmiklu máli, þegar ég
yrki“.
— Nú virðist Ijóðið hafa dalað
töluvert á undanförnum árum, hver
er skýring þín sem ljóðskálds á því?
„Eg held að það sé fyrst og fremst
vegna þess, að það er svo margt
annað, sem keppir við ljóðið. Það
má sín ekki mikils við hliðina á
poppinu, sjónvarpinu og kvik-
myndum.
En svo er það spurning hversu
mikið ljóðið hefur dalað. Eg vinn á
bókasafni og það er lítið lánað út af
ljóðabókum, en það eru margir sem
fást við að yrkja, þó að ljóðið skipi
ekki sama sess og áður. Ljóðið er
mjög gott tjáningarform, og það
kemur til með að lifa“.
Ekki vill Einar meina, að skáld í
dag séu endilega verri en áður.
„Hins vegar koma fram miklu
fleiri vond skáld, því það er mjög
auðvelt að gefa út bók. Ég hef verið
að skoða hundruð ljóðabóka síð-
asta áratugar og þar er mikið af lé-
legum skáldum, en þar eru líka
mörg mjög góð, og ekkert verri en
eldri skáldin“.
— Ertu með aðra bók i smíðum?
„Ég er alltaf með aðra bók í
smíðum. Það hefur safnast upp hjá
mér búnki, sem ég hefði áhuga á að
gefa út, en það gengur hægt fyrir
sig. Það er algengt að það líði ár frá
því höfundur fer með handrit til út-
gefanda og þar til það kemur út.
Miðað við það er ekki von á neinu
frá mér fyrr en um næstu jól eða á
næstu páskabókavertíð", segir Ein-
ar Ólafsson.
Jónsdóttur — hefði verið gefin út
fyrir jólin í fyrra á vegum Gimsteins
og selst upp. Magnús keypti útgáfu-
réttinn og hefur nú sett plötuna á
markað að nýju ásamt Ungmenna-
félagi íslands. Á plötunni syngja
auk Magnússþau Pálmi Gunnars-
son, Jóhann Helgason og Ellen
Kristjánsdóttir.
— Ég er að vinna að sérstakri
nótnabók sem inniheldur lögin á
plötunni en auk þeirra verða einnig
lög og textar Álfaplötunnar, sagði
Magnús við Helgarpóstinn. Bókin
kemur út í haust.
— Hvað með fyrirhugaða rokk-
plötu?
Magnús Þór stendur í stríöu:
Endurútgáfa á
Draumnum og vænt-
anleg rokkplata
Magnús Þór Sigmundsson tón-
listarmaður stendur í ströngu þessa
dagana. Plata hans „Draumur
aldamótabarnsins“ sem út kom fyr-
ir jólin og seldist þegar upp, er á
leiðinni á markað aftur og í þetta
skipti gefur nýstofnuð plötuútgáfa
Magnúsar ÞEL út hljómskífuna.
Þá er Magnús að undirbúa upptöku
á nýrri, stórri rokkplötu.
Magnús tjáði Helgarpóstinum
að „Draumur aldamótabarnsins“
— lög Magnúsar við Ijóð Margrétar
— Ég gerði prufuupptökur með
Björgvini Gíslasyni og fleirum og
sendi út til Englands og þær fengu
þar góðar og uppörvandi móttökur.
Ég er því á leið í stúdíó með nokkr-
um músíköntum. Ég hef verið að
vinna í henni í hálft annað ár, sem
alla tónlistina og suma textana.
Hinn textahöfundurinn er góðvinur
minn breskur, John Connors að
nafni. Allir textarnir eru á ensku,
sagði Magnús Þór Sigmundsson að
lokum.
Einar Olafsson við bókabílinn:
Lítið lánað út af ljóðabókum, en
margir yrkja.
Nýjar myndir í Bíóhöllina:
Anna Björns
og David Bowie
— hvort í sínu lagi
Anna Björns er væntanleg á hvíta
tjaldið í Bíóhöllinni, einhvern tima
á næstu' vikum eða mánuðum.
Myndin er splunkuný og heitir Flip
Out. Sögusviðið er áramótagilli í
Bandaríkjunum og er ekki að efa
að þar er mikið fjör. Og ekki er að-
almótleikari Önnu af verri endan-
um, sjálfur Malcolm McDowell,
sem allir þekkja úr Clockwork Or-
ange, og nú síðast úr Cat People.
Flip Out er ein þeirra fjölmörgu
mynda, sem Árni Samúelsson bíó-
stjóri í Bíóhöllinni festi kaup á í
Cannes á dögunum.
Önnur mynd, sem á vafalaust eft-
ir að vekja mikla athygli er nýjasta
mynd Japanans Nagisa Oshima,
þess hins sama og gerði Veldi til-
finninganna, sem íslendingar voru
ekki nógu þroskaðir kynferðislega
til að sjá. Nýja myndin heitir Gleði-
leg jól, herra Lawrence, og gerist í
Japan á striðsárunum og fjallar um
erlendan stríðsfanga, sem leikinn er
af þeim góða manni David Bowie.
Hann þykir vinna hér umtalsverðan
leiksigur.
Þá festi Árni Samúelsson kaup á
þrem myndum eftir sjálfan Francis
Ford Coppola. Þar skal fyrsta telja
One from the Heart, sem vakti
mikla athygli á síðasta ári, þótt ekki
væru allir sammála um gæði henn-
ar. Önnur er Outsiders, sem var
frumsýnd fyrir stuttu í Bandaríkj-
unum og sú þriðja er Rumble Fish,
sem enn er í töku.
Sergio Leone, spaghettileikstjór-
inn sterki, er mættur aftur til leiks
með kvikmyndina Once Upon a
Time in America, sem er vestri með
Robert DeNiro í aðalhlutverkinu og
spannar yfir 30—40 ár. Munu sjálf-
sagt margir bíða þeirrar myndar
með mikilli óþreyju.
Misunderstood heitir svo ný
mynd Jerry Schatzberg með þeim
Gene Hackman og Henry Thomas
(úr ET) í aðalhlutverkunum. Table
for Five eftir Robert Lieberman er
með John Voight í fremstu víglínu
og A Rumour of War eftir Richard
Hefron er með þeim Brad Davis og
Michael Ö‘Keefe. Og aðdáendur
National Lampoon’s Animal
House fá sinn skerf, því framhalds-
myndin Class Reunion er væntan-
leg. Þeirri mynd er stjórnað af
Michael Miller.
Loks skal getið tveggja mynda,
sem eru enn á vinnslustigi. Segöu
aldrei aftur aldrei heitir nýjasta
myndin um spíónann James Bond
og í þetta sinn er það enginn annar
en Sean Connery sem klæðist
skrápi hans. Skemmtileg upprifjun
fyrir elstu Bondaðdáendurna.
Never Ending Story heitir svo
mynd, sem leikstjórinn Wolfgang
Petersen er að filma þessa dagana,
en Petersen þessi gerði þá frægu
kafbátamynd Das Boot, sem sýnd
var hér fyrir nokkrum mánuðum.
Sem sagt: sitt af hverju tagi.