Helgarpósturinn - 22.09.1983, Blaðsíða 23
mtudagur 22. september 1983
Allir ráðherrar núverandi
I ríkisstjórnar tala nú fjálg-
y lega um aðhald og sparnað og
gera kröfur til almennings um að
herða sultarólina; er nánast sem
stirni á geislabauginn umhverfis
höfuð ráðherranna. En hér er dæmi
um dálítinn tvískinnung. Alexand-
er Stefánsson félagsmálaráðherra
sem nú baslar við að afla fjár vegna
vandræða húsbyggjenda m.a. lét
það verða eitt af sínum fyrstu verk-
um í ráðuneytinu að hafna gamla
ráðherrabílnum hans Svavars
Gestssonar og láta kaupa nýjan
jeppa fyrir u.þ.b. milljón krónur.
Gamli billinn var sendur til Jóns
Helgasonar landbúnaðarráðherra
ásamt gamla bílstjóranum, því
Alexander gerði sér lítið fyrir og réð
nýjan bílstjóra, sem sagan segir að
hafi verið kosningasmali hans. Er
þetta hrein fjölgun bílstjóra og því
útgjaldaauki á krepputímunum.
Þess má þó geta að „gamli“ Blazer-
inn hans Ragnars Arnalds var seld-
ur, og má af þessu sjá að ekki er
slegið slöku við í neyslukapphlaupi
ráðuneytanna...-.
Spáni um daginn: „Það er mörgu á
þig logið. Það er leitt fyrir þá sem
ljúga, og skrifast á þeirra reikning í
lífsuppgjörinu, en ekki þinn“. En ég
er hrifnæmur. Ég held að allir lista-
menn séu það. Það er undirrótin að
sköpun þeirra og Iisttúlkun“.
Listfengi Ingólfs Guðbrandsson-
ar verður ekki dregið í efa. Tónlistin
hefur skipað jafn stóran ef ekki
stærri sess í lífi hans en viðskiptin.
Hann stundaði nám við tónlistar-
háskólann í Köln 1954—1955, var
námsstjóri í tónlistarfræðslu hér á
landi 1956—1963.
í því embætti fannst honum
hann hafa „bundnar hendur“.
Helgi Þorláksson skólastjóri segir
þó, að þrátt fyrir að Ingólfur hafi
ekki fengið miklu áorkað í þessu
embætti, þá hafi hann a.m.k. getað
„plægt akurinn fyrir þá sem á eftir
komu“.
Meðan Ingólfur var námsstjóri,
notaði hann tíma sinn til að byggja
upp Pólýfónkórinn. Kjarni þess
kórs voru gamlir nemendur Ingólfs
úr Laugarnesskólakórnum og kór
sem hann stjórnaði í Barnamúsik-
skólanum, þar sem hann var skóla-
stjóri í tvö ár. Þetta starf fór að bera
ríkulegan ávöxt.
„Fleiri hundruð manns hafa ver-
ið í Pólýfónkórnum og þátttaka í
kórnum hefur haft gífurleg áhrif á
það fólk, aukið skilning þess á tón-
list. Kórinn hefur verið okkur meira
virði en Ingólfur kannski gerir sér
grein fyrir sjálfur", segir Kristinn
Sigurjónsson, sem hefur sungið í
kórnum og setið í stjórn hans. „Ég
hélt stundum að hann væri klikkað-
ur að ætla sér sumt af því sem gert
hefur verið. Kórfélagar undruðust
það oft, að hann náði miklu meira
út úr fólki en það taldi sig geta.
Þessi hæfileiki er aðeins örfáum
gefinn. Hann er einn mesti lista-
maður landsins. Ég er þakklátur
fyrir að hafa kynnst honum“, segir
Kristinn.
Aðrir eru ekki jafn hrifnir.
„Manni finnst hann aldrei fara
troðnar slóðir“, segir einn söngvari
af gamla skólanum. „Þetta er leið-
inlegt frá professional sjónarmiði.
Það er alltaf þessi bægslagangur og
tilstand í kringum allt sem hann
gerir, þessi undirtónn af minni-
hjá góðum amatörum. Það er
skelfilegt að sjá hann stjórna. En
það er merkilegt hvað hann nær
miklu út úr söngvurunum", segir
þessi söngvari.
Kristinn Sigmundsson segir að
Ingólfur hafi haft mikið að segja
fyrir sig sem söngvara, hann hafi
veitt sér tónlistarlegt uppeldi, sem
hann sé þakklátur fyrir. „Ef Ingólf-
ur hættir, þá hættir kórinn líka að
vera til. Það kemur enginn í staðinn
fyrir hann“, segir Kristinn.
En rétt eins og Ingólfur þáði
vöggugjafir af sínum foreldrum
hafa hans börn erft sitthvað af
hæfileikum föðurins. Þannig hafa
fjórar dætur hans og Ingu Þorgeirs-
dóttur lagt út á tónlistarbrautina.
Þorgerður Ingólfsdóttir hefur fetað
hvað fastast í fótspor föður síns og
leitt annan kór í fremstu röð ís-
lenskra kóra: Hamrahlíðarkórinn.
Rut og Inga Rós Ingólfsdætur leika
í Sinfóníuhljómsveit íslands og
Unnur María hefur einnig Iagt tón-
listina fyrir sig.
Ingólfur Guðbrandsson hafði í
hvggju að leggja Pólýfónkórinn
niður fyrir fimm árum en hann var
taíinn af því. „Það eru ekki fyrir-
sjáanleg nein kaflaskipti hjá mér
núna“, segir hann. „Ég berst áfram
þessari baráttu. Ég er sáttur við líf-
ið, heilsuhraustur og ég er aftur tek-
inn til við heilsurækt. Ég er að fara
suður á völl núna að rabba við síð-
ustu farþegana til Portúgal í sumar.
Ég ætla að taka nokkrar myndir
líka. Ég er bara mjög hress og
ánægður“.
Gœði og verð
sem koma á óvart!
r*'l í Munchen er nú 149.
í 1 októberfest þeirra Bæjara
S hafið með pomp og prakt.
Svo skemmlilega vill til að íslenska
hljómsveitin Mezzoforte mun troða
upp meðan á hátíðinni stendur í
höfuðborg Bæjaralands, nánar til-
tekið á morgun föstudag. Verða
tónleikar þeirra haldnir í tónleika-
skemmunni Alabamahalle. Miin-.
chen er fyrsti viðkomustaðurinn á
hljómleikaferð Mezzoforte um
V-Þýskaland og hyggjast þeir gera
stans í sjö öðrum þýskum borgum.
Þá munu þeir koma fram í eigin
sjónvarpsþætti sem gerður var í
Englandi en verður sýndur um
gervallt Þýskaland. Þess má að end-
ingu geta að íslenskum sjónvarps-
áhorfendum gefst kostur á að berja
piltana í Mezzoforte augum í sjón-
varpsþætti sem tekinnverður upp
hér á landi í byrjun nóvember....
Nærmynd 5
tíma aflögu í annað hvorki í fyrir-
tækið né kórinn. Þessar sögur eru
yfirleitt sagðar af fólki sem þekkir
ekki Ingólf".
Um kvennamál sín almennt hafði
Ingólfur þetta að segja: „Hvað er líf
án ástar. Það er eins og sólarlaus
dagur. En mín ástamál eru mitt
einkamál. Ég held að konum hafi
yfirleitt ekki leiðst í návist minni.
En veistu um einhverja sem hefur
þurft að vérjast mér? Ég get ekki
tekið þetta slúður nærri mér.
Mannorðsþjófnaður er víst ekki
refsiverður glæpur hér á landi, en
hefur þú hitt einhvern, sem þekkir
mig og talar illa um mig? Ég hef
reynt að gera mikið fyrir marga og
aldrei lagt stein í götu fólks, en það
er þessi öfund og rætni og þetta illa
umtal sem er svo ofarlega í íslend-
ingum. Þetta er eitt af leiðinda-
brennimerkjum smáborgaraþjóð-
félagsins. Það er eins og að þeir sem
ekki lifa ævintýrin sjálfir þurfi líka
að hafa eitthvað sér til skemmtunar.
Mér þykir samt vænt um þetta fólk,
ég fyrirgef því og vorkenni því. Einn
viðskiptavinur minn sagði niðri á
máttarkennd sem er svo algengur
Sigurðar Hákonarsonar
láttu nú loksins verða af því
skelltu þér í dans
kennum alla almenna dansa
óþvingað og hressilegt andrúmsloft
innritun og allar nánari upplýsingar
daglega frá kl. 10-19
V
BARNA-UNGLINGA OG FULLORÐINSKENNSLA