Helgarpósturinn - 29.09.1983, Page 9

Helgarpósturinn - 29.09.1983, Page 9
9 1^1 b! __ irinn F'mmtudagur 29. september 1983 Sýning Ingunnar Benediktsdóttur í Norraena húsinu — að vinna við gler og skapa listaverk úr því hér hlýtur að vera fram úr hófi heill- andi, vegna þess hvað glerið er hér algengt í óeiginlegri mynd, segir Guð- bergur m.a. í umsögn sinni. Gler er ekki aðeins efni sem hægt er að sjá í gegnum, heldur er það líka efni sem speglar. Gler er afar andlegt efni. í hinu gagnsæja gleri er einhvern veginn eilífðin. En í speglinum er guðdómurinn, vegna þess að maðurinn getur séð sjálfan sig í honum og svo virðist sem spegillinn sjái ekki manninn þótt mynd hans sé í honum. Börn hafa það gjarna á tilfinn- ingunni að eilífðin sé í klakanum, að í honum leynist endaleysið, vegna þess að hann erefnisemer jafnframtannaðefni. Og þetta efni hindrar hvorkisjóninané hug arflugið. Gott er að hugsa and- spænis gleri og klaka. í glerinu er hvort tveggja, hindrun og hindrunarleysi. Glerið vekur ógurlegan fögnuð en um leið endalausa sorg, vegna þess að það hindrar þótt í því virðist vera eintóm víðátta og efnisleysi. Gler vekur þess vegna gríðarlega heift. Fátt er jafn heillandi og það að brjóta rúðu eða gler almennt. Glerið er þá áþekkt dauðanum. Brotið gler verður brotið um aldur og ævi. Þótt það sé límt á ný með lími sem límir allt, límir það ekki brotin sem fóru um hugann þegar efnið brotnaði. Flestum er kunn sú gríðarlega kvöl sem vaknaði við það að kær hlutur brotnaði, og það að búa við hann límdan: hvað það er hræðilegt og letjandi að umgangast límda hluti. Flestu í fari mannsins er hægt að líkja við gler. Einmitt þess vegna þykir börn- um, og jafnvel fullorðnum líka, gaman eða ævintýraríkt að brjóta rúður, einkum í gömlum auðum húsum, heyra hvernig glerið hryn- ur með undarlegri tónlist. Um leið er veðrunum hleypt inn í húsið og ekkert biður þess nema eyðilegg- ing og dauði. Að vinna við gler og skapa lista- verk úr því hér hlýtur að vera fram úr hófi heillandi, vegna þess hvað glerið er hér algengt í óeiginlegri mynd. í flestum íslendingum er glersál, brothætt, gagnsæ, og hún sendir frá sér veikan hljóm þegar hún brotnar. Sálin í okkur brestur ekki með háum hvelli. Hún er frá- leitt i munninum á okkur. Og loftið hér er svo tært og út- sýnið mikið, einkum á haustin, að endaleysið i glerformi virðist hvelfast yfir landinu. Viðnámið er hætt að vera til, hugurinn mætir engri mótstöðu, efnið er horfið úr efnisheiminum. Þess vegna er svo hjákátlegt að hlusta á landsmenn, en einkum þó að lesa dagblöðin sem þrefa látlaust um efnahag sem þau hafa ekkert vit á. Enda er slikt þref ekki raunverulega i eðli íslendingsins sem er andlegs eðlis. En samleikur auðvalds og afbak- aðs sósíalisma hefur breytt munni manna í þvaðrandi peningabauk nirfils. Síðan kemur veturinn og breyt- ir öllum vötnum í gler. Og í vetrar- glerinu eru óteljandi myndir. Til þess geta glerlistamenn leitað en- dalaust. Og ekki ætti að skorta glugga til að láta í „frumlegar" rúður, rúður í líkingu við högg- myndir, þykkar rúður líkar frost- bólgu, áþekkar svelli þar sem í haf a. frostnað hinir ólíklegustu hlutir. En gluggar nútímans mega ekki líkjast kirkjugluggum, gler- listin \erður að leysa sig frá þeim anda „vínbaraskreytinga“sem þjá- ir hana. Svo ekki sé minnst á þá hörmung sem hefur fylgt glerlist nútímans og á rót sína að rekja til hóruhúsaskreytinga í bandarísk- um kvikmyndum og eru allar í Nýja stílnum frá því um aldamót- in. Nýi stíllinn spratt að mestu upp úr kenningum Ruskins og Willi- ams Morris um að vega með handverki gegn iðnframleiðslu; listin átti að taka náttúruna sér til fyrirmyndar, einkum jurtir, fléttu vefs og grasa. Slíka fléttu sáum við á gólflista í salnum á Kjarvals- stöðum, á sýningu Hagsmuna- samtaka myndlistarmanna um daginn og var hún þar notuð i táknrænni merkingu: sameinandi afl. Nýi stíllinn hafði líka rík áhrif á glerlist, skartgripagerð, líkt og á verk Lalique, þar sem hið ódýra gler hlaut gildi dýrmætustu gim- steina. Óm af öllu þessu er hægt að heyra í íslenskri glerlist, hjá Leifi Breiðfjörð, einkum í glerlistaverk- um hans, ekki í gluggum, hjá Brynhildi Þorgeirsdóttur, Ing- unni Benediktsdóttur sem nú sýn- ir í Norræna húsinu, og hjá Borg- hildi Óskarsdóttur, en list hennar eða hönnun er þó fremur í ætt við tákn eða með „vitsmunalegu“ ívafi; Nyi stíllinn breski leitaði síðan að útrás í breskri hönnun sem kennd er við Curwen studio. Því miður eigum við ekkert samein- andi afl heldur barnalega úlfúð, og því leita íslenskir listamenn í formleit sinni út fyrir landstein- ana. Hér ríkja engar ólíkar skoð- anir innan listanna, engin vits- munaleg átök eða frumstæðir kraftar takast á. Listin og þá list- sköpunin um leið hefur að mestu lent í höndum linra barna betri- borgaranna. í stað þess að fara í hundana hella þeir sér út í listirn- ar. Sálfræðingarnir á geðveikra- hælunum útskrifa líka sæg af li- stamönnum á hverju ári. Öllum li- num er beint inn á „listabrautina“ í leit að sjáfsvitund. Ef foreldrar lenda í vandræðum með „við- kvæm“ börn sín þá er þeim strax beint inn á listabrautina. „Nú geta allir málað“, sagði auglýsingin þegar plast-satín-gúmímálningin kom fyrst á markaðinn. Og auðvitað hafði Hörpusilkið rétt fyrir sér. Verst er að Ingunn Benedikts- dóttir sem sýnir nú í hinn hálf- gerða Norræna líkhúsi skuli ekki hafa búið til glerlíkkistu og lagt húsið í hana, enda virðist það sofa löngum þyrnirósarsvefni á and- lega sviðinu, þótt því stjórni kona sem áður veitti líklega forstöðu hinni miklu menningarstofnun í Finnlandi sem mig minnir að heiti Hænuhanahólmurinn. Mér er sagt að Norræna líkhús- ið fái engar fjárveitingar, allar norrænar fjárveitingar fari nú í það að styrkja indíána í Suður- Ameríku til að fara í vettvangs- kannanir inn í frumskóginn, und- ir leiðsögn skandinavískra félags- meðvitaðra náttúruverndar- manna. er enn í fullu fjöri. Kynnt? ókynnt? Þú mátt velja. 9.05 Leitin að vagnhjóli. Væntaniega steinaldarfrásögn. Varþað kannski fyrr? Guðrún Jónsdóttir hefur lestur eigin þýðingar á barnasögu. Afleiö- ingar bombunnar. 10.35 Það er svo margt aö minnast á. Eöa: Hve grænn varstu dalur og nú er hún Reykjavík stekkur. Torfi Jónsson fer i minnisleik. 14.00 Katrin trá Bóra. Hún var ekki að slóra. Hún Clara Schreiber, þegar hún schreibaöi þessa sögu. 19.50 Við stokkinn. Þó ekki gapastokk- inn, heldur hinn. Anna Kr. Brynjúlfs- dóttir segir hughreystandi sögur. 20.45 Skáldkona frá Vesturbotni. Skál i botn. Hjörtur Pálsson og sænska skáldkonan Sara Lidman. Endur- tekiö efni. 21.30 Kór Lögmannshlíðarkirkju. Lög- hlýöinn kór þaö. Og svo syngur hann á tónleikum. Fyrir noröan. Margt skemmtilegt. Laugardagur 1. október 8.20 Morguntónleikar. Hver grefillinn! Rosalegt. Hann Grevillus er meðal stjórnendanna. Upp,upp min sál. Ég læt slmann vekja mig. 10.25 Óskalög sjúklinga. Veivakandi og friskur. Lóa meö hafragrautnum og súrmjólkinni Guðjónsdóttir kynnir vonsælustu lögin, vinur í raun og svoleiðis. 11.20 Sumarsnældan. Sverrir Guðjóns- son er kominn með skegg. Hann er oröinn fulloröinn. Ég man svo vel eftir honum þegar hann var tólf. 15.00 Um nónbil í garðinum. Hafsteinn Hafliðason garðyrkjupoppari ham- ast í arfanum. 16.20 Ég, þið, hin. Náungakærleikur og félagsleg umhyggja. Eru það yrkis- efni unga mannsins, Jóns Tryggva Þórssonar.sem hér les eigin kveö- skap? 16.25 Þriggja sókna túr. Nýsieginn og bakaður alþingismaöurinn og viö- talasmiöurinn víökunni ræðir við Eyjaguttann meö undrahattinn. Skyldu þeir ræöa sjóinn? 19.35 Óskastund. Séra Heimir Steinsson dreifir óskastundum sínum um víö- an völl. Bjartsýni er betri en meöal- hóf. 00.05 Fréttir. Dagskrárlok. Nú sígur svefninn sælar sálir áhá.... Sunnudagur 2. október 10.25 Út og suður. Enn fer einhver út að suöa, ekki er það Friðrik Páll. Skemmtilegir feröaþættir. 11.00 Messa. Nú er þaö Garðakirkja. Er hún i Garöariki? 13.30 Sporbrautin. Allttekurenda. Spor- brautin líka. Hún fer nú af braut. Örn Ingi og Óli Torfa i síðasta sinn. 16.25 Þessir dagar. Ójá, þessir dagar. Þreytandi. Skáldið Bjarni Halldórs- son. 16.30 Væöing. Siguröur Á. Friöþjófsson rithöfundur les eigin smásögu. Smásaga. 18.00 Það var og. Þráinn nýbúinn aö frumsýna, hress og kátur. Til ham- ingju. 20.35 Handknattleikslýsing. Hemmi Gunn segir frá glimu Víkings og Kolbotten I Höllinni. Hvoru liöinu tekst aö sigra? 21.15 Merkar hljóðritanir. Tæpast merki- legt þaö. 23.00 Djass. Harlem 2. þáttur. Jón Múli Árnason frá Múla segir frá 150 ára gömlu ferðalagi. Hressari en nokkru sinni. llíÓÍII ★ ★★★ framúrskarandi ★ ★ ★ ág*t ★ ★ góð ★ þolanleg 0 léleg Bíóhöllin: Get Crazy (Vertu klikk). Bandarísk kvikmynd, árgerð 1983. Leikendur. Malcolm McDowell, Anna Björns- dóttir, Allen Goorwitz. Leikstjóri: Allan Arkush. Söguþráðurinn og útfærslan á hon- um er kvikmyndalegt rugl. Ágúst Guömundsson og Stuðmenn gætu kennt aöstandendum Get Crazy ým- islegt um þaö hvernig kvikmynda á rokk og gleði. — GA Laumuspil (They All Laughed). Bandarísk kvikmynd, árgerð 1982. Leikendur: Audrey Hepburn, Ben Gazzarra, John Ritter. Leikstjóri: Peter Bogdanovic. Létt grínmynd um kynduga náunga sem stofna leynifélag til að komast aö því hvort eiginkonurnar haldi fram hjá þeim. Slíkt getur aldrei gengiö grin- laust. Svartskeggur. Disney-mynd fyrir bróðurpart fjölskyldunnar. Utangarðsdrengir. (The Outsiders). Bandarísk. Árgerð 1983. Handrit: Kathleen Knutsen Rowell eftir bók S.E. Hinton. Kvikmyndataka: Stephen H. Burum. Tónlist: Carm- *en Coppola (faðir leikstjórans). Leikendur: C. Thomas Howell, Ralph Macchio, Matt Dillon o.fl. Leikstjóri: Francis Ford Coppola. Þetta er spennandi strákasaga með slagsmálum, sorg, hetjudáðum og dauöa. Og svo auðvitað stelpum, þeim miklu örlagavöldum. *** — LÝÓ. Allt á floti. (Take this Job and Shove it). Bandarísk kvikmynd. Árgerð 1982. Aðalhlutverk: Robert Heys, Barbara Hershey, David Keith, Art Carney, Eddie Albert. Leikstjóri: Gus Trikonis. Þessi grinmynd fjallar um bjórbrugg- ara og lögmál frjálsrar samkeppni hiö vestra. Sú göldrótta. (Bedknotes and Broomsticks) Walt Disney mynd. Aðalhlutverk: Angela Lansbury og Roddy McDowell. Lelkstjóri: Robert Stevenson. í þessari er einn sá mesti kappleikur sem sést hefur lengi. Myndin er bæöi leikin og teiknuð. Bekkjarklfkan. (National Lampoons Class Reuníon). Bandarísk, árgerð 1983. Leikendur: Gerrit Graham, Stephen Furst, Fred McCarren. Leikstjóri: Michael Miller. Þessi mynd er framhald Delta klik- unnar sem sýnd var hér fyrir nokkrum árum. Nú á klikan 10 ára afmæli og taka þá hinir fyndnustu hlutir að ger- ast. Regnboginn: Spanskflugan (Spanish Fly). Bresk gamánmynd. Leikendur: Leslie Philips, Terry-Thomas. Bráöskemmtilega skemmtileg háös- mynd, tekin á Spáni. Meistari skops- ins mættur i slaginn. Átökin um auöhringinn (Bloodline). Bandarísk kvikmynd. Leikendur: Audrey Hepburn, Ben Gazzara, James Mason. Leikstjóri: Terence Young. Hepburn ieikur táningsstúlku, orðin fertug. Annað er eftir því. Peningar, ekkert nema peningar. Fæða guðanna (Food for the Gods). Bandarísk kvikmynd. Leikendur: Ida Lupino og fleiri. Fantasia um efni sem stækkar allt, jafnvel rottur. Beastmaster. Ny bandarísk kvik- mynd. Leikendur: Marc Singer, Tanya Roberts, Rip Torn. Leikstjóri: Don Coscarelli. Ekta ævintýramynd. Galdrar. Æöstu- prestar. Hraustur ungur maöur, leik- inn af hinum karlmannlega Marc Singer, fæöist úr beljukviði, en er fneö arnaraugu. Æöstuprestar....? Annar dans (Andra dansen). Sænsk kvikmynd, árgerð 1982. Handrit: Lars Lundholm. Leikend- ur: Kim Anderzon, Lisa Hugoson, Siguröur Sigurjónsson, Tommy Johnson. Leikstjóri: Lárus Ýmir Óskarsson. * * * i myndinni ríkir sterk Ijóöræn skynjun og umfram allt er hún uppfull af skemmtilegheitum. Lárus Ýmir sýnir umtalsverðan listrænan þroska, fyrir utan tæknilegt vald á miðlimum. — ÁÞ Rauðliðar (Reds) Bandarisk, árgerð 1981. Handrit: Trevor Griffith, Warr- en Beatty. Aðalhlutverk: Warren Beatty, Diane Keaton, Jack Nichol- son, Maureen Stapleton. ...Beatty hefur óneitanlega unniö verulegt leikstjórnarafrek meö vold- ugum sviðsetningum á viöamikilli sögu. * * * — ÁÞ. Nýja bíó: Nýtt lif. islensk kvikmynd, árgerð 1983. Leikendur: Eggert Þorleifs- son, Karl Ágúst Úlfsson o.fl. Hand- rit og leikstjórn: Þráinn Bertelsson. Nýjasta íslenska myndin. Um tvo hressa stráka sem halda til Eyja i leit aö nýju lifi. Ævintýri viö hvern þorsk. Frumsýnd á föstudag. Háskólabíó: *** Tess. Bresk-frönsk, árgerö 1980. Handrit: Gérard Brach og fleiri. Leikendur: Nastassia Kinski, Peter Fieth, Leigh Lawson, John Collin. Leikstjóri: Roman Polanski. Fyrst og fremst mynd sem gleður augaö. Hver rammi myndatökunnar, lýsing, búningar og leiktjöld eru sem sjálfs.tætt málverk. — im Countryman (Sveitalubbinn). Bresk, árgerð 1982. Leikendur: Countryman o.fl. Leikstjóri: Dickie Jobson. Tónlist Marleys undir mynd um nátt- úrubörn á Jamaica, þar sem flugvél meö Cia-manni hrapar. Samspil tón- listar, náttúru og manns. Bíóbær: Polyester. Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Divine, Tab Hunter. Leikstjóri: John Waters. Ilmandi gamanmynd um offitu og sambúðarvandamál i hjónabandi. Fyrsta mynd sinnar tegundar. Komiö og finnið alla góöu heimilislyktina. Undrahundurinn. Barnamynd um furðulegan hund, ekki óöan. Barna- sýningar á laugardag og sunnudag. Tónabíó: ** Svarti folinn (The Black Stallion). Bandarísk, árgerð 1980. Leikendur: Kelly Reno, Terl Carr, Mickey Rooney. Leikstjóri: Caroll Ballard. Þetta er nokkuö skemmtileg mynd. Strákurinn er góður, sömuleiðis hest- urinn og Mickey Rooney. Helst mætti finna aö einhvers konar taugaveiklun, sem gætir í klippingunni. - LÝÓ Laugarásbíó: The Thing. Nýleg bandarisk kvik- mynd. Aðalhlutverk: Kurt Russell, A. Wilford Brimley, T.K. Carter. Leikstjóri: John Carpenter. Frækilegur leiðangur til Suöurheim- skautslandsins. Þeir eru ekki einir. Þaö er annar. Auk hans kemur við sögu isaldarskrimsl sem fer hund úr hundi. Stjörnubíó: Hinn ódauðlegi (Silent Rage). Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Chuck Norris. Spennandi karatemynd fyrir áhuga- menn. Gandhi. Bresk-indversk kvikmynd. Árgerð 1983. Handrit: John Brlley. . Lelkendur: Ben Kingsley, Candlce Bergen, Edward Fox, John Gielgud, Trevor Howard, John Mills, Martin Sheen. Leikstjóri: Richard Atten- borough. *** „Prýöiskvikmynd sem er löng, en ekki leiðinleg. Merkilegur hluti sam- tímasögunnar, sem er fegrun, ekki lygi. Óvægin sjálfsgagnrýni Breta, sem gerir þeim mögulegt aö liöa bet- ur á eftir, eins og katólikka, sem er ný- búinn aö skrifta." — LÝÓ. Tootsie. Bandarfsk kvikmynd, ár- gerð 1983. Lelkendur: Dustin Hoff- man, Jessica Lange, Terry Garr, Charles Durning. Leikstjóri: Sidney Pollack. Dustin Hoffman fer á kostum I aöalhlutverkinu og sýnir afburða- takta sem gamanleikari. Tootsie er ó- svikin skemmtimynd. Maður hlær oft og hefur lítið gleöitár i auga þegar upp er staðið. * * * — LÝÓ Nýja bíó: *** Poltergeist. Bandarísk, árgerð 1982. Handrit Steven Spielberg, Michael Grais, Mark Victor. Leik- stjóri: Tobe Hooper. Aðalhlutverk: Jobeth Williams, Craig T. Nelson, Beatrice Straight. ...þeir keyra hryllinginn áfram með sívaxandi þunga og yfirburða tækni, sem lauslega dregnar persónur og nokkur væmni ná ekki aö eyöileggja." — AÞ. Austurbæjarbíó: Leyndardómurinn (Sphinx). Banda- risk, árgerð 1982. Leikendur: Les- ley-Anne Down, Frank Langella, John Gielgud. Fornminjaleiðangur i Egyptalandi og ýmislegt kemur á óvart. Gettu hvaö. MÍR-salurinn: Á sunnudag kl. 16 veröa sýndar þrjár stuttar myndir um ferðalög Islendinga til Sovét. Elsta myndin er frá 1954 og sjást þar nokkrir þjóökunnir landar. Siðan er mynd frá heimsókn þing- manna fyrir nokkrum árum og loks frá heimsókn Geirs Hallgrimssonar er hann var forsætisráðherra. Kvikmyndaklúbbur Alliance Francaise: Klaustrið i Parma (La chartreuse de Parme). Frönsk kvikmynd, árgerð 1947. Leikendur: Gérard Philippe, Maria Casares. Leikstjóri: Christ- ian-Jacque. Eftir frægri skáldsögu Stendahls. Sýnd i Regnboganum 29. sept. og 5. og 6. okt. kl. 20.30.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.