Helgarpósturinn - 29.09.1983, Side 12
12
Fimmtudagur 29
„Ef við skoðum söguna sjáum við að flest
leikrit eru skrifuð af körlum og þau lýsa heim-
inum frá sjónarhóli karla. Það eru mjög fáar
konur sem hafa skrifað klassísk leikrit, það er
helst á síðustu árum sem þær hafa sent frá sér
leikverk. Þari við bætist að um 80% af leik-
hlutverkum eru karlhlutverk, en 60% af
íslensku leikarastéttinni eru konur. Leikritin
sýna allt of einhæfa mynd. Að mínum dómi á
leikhúsið að vera spegill samtímans og það
dugar ekki að láta karlana eina um að lýsa til-
finningum kvenna, þó að margir og merkileg-
ir höfundar hafi auðvitað gert það vel. Við
viljum örva konur til að skrifa leikrit og semja
tónlist. Þó að sumir karlar segi reyndar að
konur geti■ ekki skrifað laglínu, trúi ég því
ekki.
Við viljum stuðla að því að listakonur úr
mismunandi greinum vinni saman og síðan
ætlum við leikkonurnar að koma verkinu á
framfæri á okkar hátt.
Ég fór fyrst að hugsa um kvennaleikhús
fyrir nokkrum árum þegar ég vann í leikhúsi
úti í Bretlandi, nánar tiltekið í Cardiff. Þá
kom þangað 50 kvenna leikhópur sem kallar
sig Spiderwomen frá Bandaríkjunum. Það
gustaði um leikhúsið við komu þeirra. Svo fór
ég að ræða þetta við Sólveigu Halldórsdóttur
leikkonu, en við höfum unnið mikið saman,
bæði hér heima og í Bretlandi. Kvennaleikhús
er nokkuð sem ég hef ætlað mér að setja á
stofn lengi og nú er loksins komið að fram-
kvæmdum".
Þið eruð komnar af stað og búnar að fá
höfund til að skrifa fyrir ykkur?
„Já, Nína Björk Árnadóttir situr þessa dag-
ana við að ganga frá leikriti sem er skrifað sér-
staklega fyrir okkur. Það byggist að nokkru
leyti á ljóðabálki sem birtist í síðustu bók
hénnar Svörtum hesti í myrkri. Við fórum
þannig að, að ég kom að máli við Nínu og gaf
henni upp lista yfir fimm leikkonur sem mig
langaði að vinna með. Afraksturinn er að
koma í ljós. Við erum að leita að húsnæði,
eins og allir þeir sem reyna fyrir sér með leik-
hópa. Við fáum inni í Gerðubergi og Félags-
stofnun stúdenta. Við hugsum okkur að Ieita
samstarfs við kvenfélögin og byggja sýning-
una þannig upp að hægt sé að ferðast með
hana“. .... .
Þá kemur þessi klassíska spurning hvernig
þið ætlið að fjármagna fyrirtækið?
„Við gerum okkur vonir um að fá styrk af því
fé sem ætlað er leikhópum og stefnum að því
að geta greitt laun“.
í gegnum árin hafa leikhópar komið og far-
ið. Þeir detta upp fyrir ýmissa hiuta vegna og
aðrir koma í staðinn. Hefurðu einhverja
ástæðu til að halda að kvennaleikhús eigi
langt líf fyrir höndum?
„Það verður framtíðin að leiða í ljós. Við
erum að koma í framkvæmd draum sem lengi
hefur búið með okkur sumtim og það er alltaf
þess virði að reyna. Á meðan slíkir hópar
spretta upp er leikhúsið með lífsmarki, það er
nauðsynlegt að leita stöðugt nýrra leiða og
nýrra forma. Ég vil taka það fram að við erum
ekki að stofna leikhús til höfuðs stofnana-
leikhúsunum, frekar að víkka út það leikstarf
sem hér fer fram. Það ættu ýmis form að geta
þrifist hlið við hlið. Slík leikhús geta tekið upp
verk sem ekki passa stofnanaleikhúsunum,
t.d. hefur Stúdentaleikhúsið sýnt verk og dag-
skrár sem annars færu ekki á fjalirnar“.
Stúdentaleikhúsiö vel á minnst. Þú áttir
hlut að fyrstu stóru sýningu þess merka leik-
húss sem hefur haldið lífinu í listelskum í
rigningatíðinni í sumar. Hvernig var að vinna
að „Bent“ og hvernig vinnur þú yfirleitt sem
leikstjóri?
„Ég byrja á því að lesa leikritið rækilega og
geri mér hugmyndir um hvað ég vil fá út úr
verkinu. Síðan er að finna rétta fólkið í hlut-
verkin. Við lesum verkið saman og „analyser-
um“ það, en það verður að viðurkennast að ég
er ekki mjög snjöll í slíku. Ég vinn út frá til-
finningum mínum og held áfram þar til ég fæ
það út sem ég vil fá. í sýningu Stúdentaleik-
hússins á Bent, kynnti ég mér nasismann. Hér
er biblían mín í þeim fræðum The Rise and
Fall og the third Reich. Það var mjög
skemmtilegt að vínna þessa sýningu með þess-
urn stór'a 50 manna hóp. Þarna var aðeins
einn lærður leikari, hitt var allt áhugafólk,
næstum því eintómir karlmenn. Ég vildi eiga
hlut að því að koma Stúdentaleikhúsinu af
stað og það verður ekki annað sagt en að það
hafi tekist. Það er fullt af lífi. Ég sá Beckett-
sýninguna nánast þá sömu og Stúdentaleik-
húsið setti upp úti í Bretlandi undir stjórn
Becketts sjálfs. Þar gengu áhorfendur út, en
hér var uppselt á allar sýningar og öllum
fannst ofsagaman. Það er gaman að velta fyr-
ir sér hvers vegna svona hlutir gerast. Hér er
fólk tilbúið til að koma á sýningar, sumir bara
fyrir forvitnis sakir. Hvers vegna skyldi það
ekki gilda lika um kvennaleikhús sem hefur
margt að segja?“
Við höfum alveg sleppt ættfræðinni og
uppruna þínum og best að við höldum okkur
við þá stefnu, en hvað um feril þinn? Hvernig
kom það til að þú snérir þér að leiklistinni?
Ég tilheyri þeirri kynslóð leikhúsfólks sem
ekki átti í neinn leiklistarskóla að venda. Þeir
JÍBlg jai--
„pústurinn
1983
Heiprpðsl:
infli
Bjarna
voru dottnir upp fyrir þegar ég var að velta
fyrir mér framtíðinni.
Upphaflega langaði mig til að verða málari,
en ég komst fljótt að raun um takmarkaða
hæfileika mína á því sviði. Ég held að það hafi,
verið 1967 sem neistinn kviknaði. Þá kom
Odinleikhúsið frá Holsterbro í Danmörku
hingað, mér fannst það alveg stórkostlegt og
ég man að ég gekk út af sýningunni full gleði
yfir því að svona nokkuð væri til, list eins og
þau voru að túlka. Sýning þeirra höfðaði
beint til tilfinninganna. Eg fór til Kaup-
mannahafnar að læra leiktjaldagerð eftir
þetta og þar tók ég þátt í að stofna leikhóp
með íslendingum sem bjuggu þar. Þá voru í
borginni t.d. Helga Hjörvar sem nú er skóla-
stjóri Leiklistarskóla Islands, Ólafur Haukur
Símonarson rithöfundur, Signý Pálsdóttir
leikhússtjóri á Akureyri o.fl. Þarna voru ýmis
fræ að spíra. Við settum upp leikrit og sýnd-
um í Jónshúsi. Þar með var bakterían alvar-
lega komin á kreik. Síðan kom ég heim og átti
hlut að öðrum leikhópi, þá sýndum við t.d.
Jóðlíf eftir Odd Björnsson sem síðar var sýnt
í sjónvarpi. Svo lá leiðin í nám til Bretlands.
Þar var ég um skeið við vinnu sem lærlingur
í Shakespeartilraunaleikhúsi sem ferðaðist
um Evrópu. Síðan vann ég með eiginmanni
mínum fyrrverandi í Cardiff og víðar að upp-
setningum og leik, en það var auðvitað hann
sem fékk kredit fyrir þau störf. Á þessum
árum vorum við að gera tilraunir með hreyfi-
leikhús. Við tókum ýmis klassísk leikrit t.d.
Shakespeare og reyndum að túlka þau á nýjan
hátt með hreyfingum, dansi og svo textanum.
Við vildum brjóta upp formið og leita nýrra
leiða til að túlka textann, en með árunum varð
textinn æ mikilvægari. Um tíma bjuggum við
hér heima og settum þá upp Fröken Júlíu eftir
Strindberg. Okkur var boðið til Bretlands og
á listahátíðina i Bergamo á ítaliu með Júlíu og
í kjölfar þeirra sýninga var okkur boðinn
styrkur við leikhúsið í Cardiff og við fengum
Texil: Mrlslfn Ásigelrsdðiiir
M
er ekki
ai
piata áhc
Bjallan hringir tvisvar. Meða
til dyra, horfi ég á umhverfið af
Lindargötuna. Það er hérna fyr
vill skipuleggja blokkabyggð.
Þórarinsson tónskáld hleypir m
kona kemur hlaupandi niður sti
að hitta. Leifur fer eitthvað út
ekki alvarlegt viðtal. Við setju
kaffi, bleksterkt með heitri mj
hægt að byrja. Mér hefur borist
kvennaleikhús ásamt fleiri leikl
þau áform.