Helgarpósturinn - 29.09.1983, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 29.09.1983, Blaðsíða 24
24 r»l Hilmar Hélgason situr ekki f J auðum höndum þessa dag- •J' ana. Fyrirtækið Sölusamtök- in sem hann á í kompaníi við Ásgeir Hannes pylsusalá Eiríksson hefur nú krækt sér í umboð á sérstöku efni í pilluformi sem drýgir elds neyti véla um 10%. Pillan fræga er framleidd af Bell Laboratories í Bandaríkjunum og er Hilmar ný- kominnþaðan þar semhanntryggði sér umboðið fyrir ísland — og öll Norðurlönd. Hilmar tók með sér til USA íslenskan sérfræðing í diesei- vélum sem þrautreyndi ágæti pill- unnar, því áform Sölusamtakanna er ekki aðeins að pilluna megi nota í bensíntanka bifreiða heidur einnig í dieselvélar og vélar sem brenna svartolíu, m.ö.o. að koma skipaflot- anum á pilluna. Banaaríska fyrir- tækið heitir Hilmari 2.5 milljón dollara tryggingu fyrir skemmdum á vélum af völdum eldsneytispiil- unnar... % 1 Hilmar ferðast ekki aðeins f~ J um Bandaríkin þessa dagana. y Hann er einnig nýkominn úr mikilli Norðurlandareisu þar sem hann lagði drögin að söluneti blómafræfla í Skandinavíu. Sölu- samtökin eru nefnilega með umboð fyrir öll Norðurlöndin og hyggjast nú selja blómafræfla eftir sama sölumannakerfi og hérlendis. Nú er að sjá hvort Skandinavar taki jafn vel í fræflana eins og íslendingar, því við étum 10 sinnurn meira af blómafræflum en Bandaríkja- menn, miðáð við höfðatöiu.:. f Það eru fleiri en Steingrímur Hcrmannsson sem kaupa undir sig „litla jeppa“. Á dögunum var keypt eitt stykki jeppi, ekki af lakari sortinni, undir forstjóra Mjólkursamsölunnar. Samsalan borgaði og fjárfesti í ieið- inni í öðrum bíl, sem er til brúks fyrir yfirverkstjóra Mjólkursam- sölunnar. Ólygnir segja að einlabíl- ar í eigu Mjólkursamsölunnar en til notkunar fyrir yfirmenn séu sextán talsins... r« '<i I haust mun væntanleg á f J markaðinn hljómplata sem J hefur að geyma lög eftir dr. Gunnar Thoroddsen en sem kunn- ugt er var hann ágætur lagasmiður og hljóðfæraleikari. í fyrstu var ætlunin að fá Róbert Arnfinnsson til þess að syngja inn á plötuna, en hætt var við það og mun hófanna hafa verið leitað við Sigríði Ellu Magnúsdóttur og Kristin Sig- mundsson. Þá munu þeir Gunnar Thoroddsen og Ólafur Ragnarsson hafa verið byrjaðir á annarri sam- talsbók sem koma átti út fyrir jólin. Þar mun einkum hafa verið fjallað um átökin í Sjálfstæðisflokknum og stjórnarmyndunina, svo og stjórnarsamstarfið. Óvíst mun hvort af útgáfu bókarinnar verður Fimmtudagur 29. september 1983 _Helgai--- _pðsturinn Sitthvað forvitnilegt er að I frétta af vetrardagskrá sjón- yl varpsins. — Af innlendu frétta- og fræðsluefni er það að segja að 9. október verður sýndur. þáttur sem nefnist Land í mótun, hinn síðasti í myndaflokknum um náttúru íslands sem íslenska sjón- varpið lét gera. — Seint í nóvember hefur að öllum líkindum göngu sína nýr þáttur í sjónvarpinu og er ætlað að heita Úr menningarlífinu - eða eitthvað þvíumlíkt. Útvarpsráð á þó eftir að ganga frá því máli. Þættinum yrði ekki ætlað að koma inn á svið Gluggans, þar sem listir sitja í fyrirrúmi, heldur skal hér fjallað um menningarlífið á breið- um grundvelli: um tunguna, heimilismenningu, móralinn i land- inu o.s.frv. Það er Sigurður Gríms- son sem á að sjá um þennan þátt, ef af verður.. V 1 Ráðherrar og bílar hafa, auk 1 Labradorhundahættunn'ar, y verið eitt helsta fréttaefni sl. viku. Við megum til með að bæta um betur. í sumar brá Sverrir vegna fráfalis dr. Gunnars. Þess má einnig geta að dr. Gunnar mun hafa unnið að gerð bókar um mælskulist og ræðumennsku að undanförnu.... V 1 Þeir vinsælu skemmtikraftar f~J Jörundur Guðmundsson og y Laddi (Þorhallur Sigurðsson) sem s.l. vetur skemmtu gestum Þórscafés með Þórskabarett svo- kölluðum munu í vetur flytja sig um set og verða með kabarett á Hótel Sögu eftir áramót. Þeir hafa fengið til liðs við sig tvo unga leik- ara, Pálma Gestsson og Orn Árna- son, sem báðir hafa leikið með Revíuleikhúsinu í Gamia bíói. Ný hljómsveit mun þá taka við af Ragga Bjarna og félögum sem lengi hafa verið sem hluti af innrétt- ingunni í Súlnasalnum og mun Magnús Kjartansson stjórna henni. Forráðamenn Þórscafés leita hins vegar núna að öðrum skemmti- kröftum til að taka við Þórskaba- rett.... Herntannsson iðnaðarráðherra sér í veiðitúr. I túrinn var fenginn vænn Range Rover-jeppi á bílaleigu. Sagt er að hann hafi kostað litlar 25.000 krónur i þrjá sólarhringa. Þegar maður nokkur spurði bilaleiguna hvort ráðherrann hefði borgað úr eigin vasa eða hvort allt hafi farið á reikning ríkisins,var svarið: Ja, hvað heldur þú?... 771! Kaupmannasamtökin efndu f I til fundar s.l. miðvikudag y með Davíð Oddssyni borgar- stjóra. Þar voru til umræðu lóða- mál í nýja miðbænum, en sem kunnugt er vill Hagkaup fá að reisa þar gríðarmikinn stórmarkað. Á fundinum gerðust þau tíðindi að kaupmenn samþykktu ályktun þar sem farið var fram á frestun lóðaút- hlutunar, en Davíðsmenn leggja kapp á að afgreiða málið. Kaup- menn bentu á mikinn umferðar- þunga sem myndi skapast á svæð- inu og það að iítil þörf væri á stór- markaði á þessurn stað, auk þess sem kanna þarf kostnað. Þá kom einnig fram að hentugra væri að stórmarkaðir væru í útjaðri borgar- innar og var t.d. bent á Ártúnsholt- ið. Umsókn Hagkaups er til um- fjöllunar í skipulagsnefnd og bend- ir allt til þess að fyrirtækið fái Ióð- ina nema Sjálfstæðismenn taki sig til og virði vilja kaupmanna sem reyna að vernda hag sinna manna gegn þessum stóru... Vangaveltur eru um það f J innan Sjálfstæðisflokksins að Geir Hallgrímsson, formaður og utanríkisráðherra,- muni ekki taka við þingsæti sem varamaður Ellerts Schram. Hann muni aðeins sitja þing sem ráðherra en sæti Ellerts taki Guðmundur H. Garðarsson .... Hjörtur Pálsson, dagskrár- f~ 1 stjóri útvarps, hefur um y ársskeið verið í leyfi frá störf- um og hefur í hans sæti setið Ingi- björg Þorbergs. Núna um mánaða- mótin snýr Hjörtur hins vegar aftur og tekur upp þráðinn við Skúla- götuna.... rf Heyrsthefuraðhópuráhuga- f~ I samra bifreiðaeigenda sé nú y að kanna möguleika á stofn- un nýs hagsmunafélags bifreiðaeig- enda. Telja viðkomandi að félags- starf í FÍB sé heldur betur í lægð um þessar mundir og félagið hafi nán- ast ekkert gert síðan efnt var til flautukonsertsins fræga-annað en að stofna ferðaskrifstofu,þótt tölu- vert væri til af slíku fyrir. Segja við- komandi að eina lífsmarkið með FÍB sé útgáfa Öku-Þórs, en lög fé- lagsins séu hins vegar þannig að þau tryggi fámennum hópi manna völd í félaginu sem séu nánast óhnekkj- anleg,vilji þeir sitja. Einhver órói mun annars innan FÍB um þessar mundir og mun framkvæmdastjóri félagsins, Hafsteinn Villielmsson, hafa látið af störfum en Hafsteinn var jafnframt framkvæmdastjóri ferðaskrifstofu félagsins. Hefur enginn verið ráðinn í hans stað, a.m.k. ekki enn.... fT'f Á annan í jólum verður I væntanlega mikið meein- y prógramm: Skaftáreldar. Umsjón hafa þeir Ómar Ragnars- son og Magnús Bjarnfreðsson, gamalreyndir sjónvarpshaukar. Þátturinn mun spanna bæði sögu- legt og náttúrufræðilegt svið, og er sagt að Magnús sé þar meiri í byggðum, en Ómar í óbyggðum... Helsti ráðgjafi við gerð þáttanna var Sigurður heitinn Þórarinsson jarðfræðingur, en fráfall hans breytti miklu um alla framvindu þeirra. Þó verður eflaust athyglis- vert að sjá viðtal við hann sem var tekið inni í Lakagígum þar sem hann segir sögu Skaftárelda frá jarðfræðilegu sjónarmiði,- — Ára- mótaskaupið á gamlárskvöld verð- ur ef að líkum lætur með svipuðu sniði og síðast og í umsjá sömu aðila; en það eru þeir Andrés Ind- riðason og Þráinn Bertelsson. — Loks er að geta stikluþáttar á ný- ársdag sem Ómar Ragnarsson ann- ast. Nú er það torfbær í Skagafirði sem hann hefur grafið upp; mun hann spjalla við merkilega einsetu- konu sem þar býr. Vonandi lætur hann þó ógert að spyrja hvort hún viti hvað banani er.... . . . af ylvolgu þríggja koma körfubrauðunum frá Samsölubrauðum . Omissandí brauð til morgunverðar — jafnt og í nestispakkann. Hollusta og grófleíki einkenna nýju þríggja koma körfubrauðín. - ■ ■M f*'h. r. £ m, - t * i

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.