Helgarpósturinn - 10.11.1983, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 10.11.1983, Blaðsíða 5
Harpa kvenplötusnúður ☆ Diskótekarar eða plötu- snúðar eru vaxandi stétt manna, enda ekki fáir skemmtistaðir og sam- komuhús sem bjóða ein- vörðungu upp á tónlist af grammófóni til að hafa ofan af fyrir gestum sínum. Undan þessu kvarta tón- listarmenn auðvitaö sár- lega, en unga fólkið lætur sérvel líka. í veitingahúsinu Safari við Skúlagötuna er eitt fullkomnasta diskótek landsins og þar sitja við stjórnvölinn hjónaleysin Ásgeir Bragason, stórdans- ari og fyrrum trommuleikari Purrks Pillnikk, óg unnusta hans Harpa Karlsdóttir. Við á Helgarpóstinum vitum ekki betur en Harpa sé eini kvenplötusnúður á íslandi. Hún hóf diskótekarastörf í Sigtúni fyrir rumu ári, lék síðan fjölbreytta rokktónlist á Borginni um skeið, en leikur nú beljandi fönk og diskó á spegladansgólfinu í Safari. Áður en útsendarar Helgarpóstsins kvöddu Hörpu Karlsdóttur varð hún fúslega við þeirri bón að spila uppáhaldslagið okkar — auðvitað Gráa fiðringinn með Stuðmönnum með til- heyrandi Ijósasjói. ★ ☆ Fer um þig hrollur þegar þú skriður uþþ í ískalt rúm- ið á kvöldin? Gleymirðu að ylja rúmið upp með hita- poka eða flösku eins og gert var í gamla daga? Nú er komið ráð við þessu og það er að finna í versluninni Hof sem að öðru jöfnu sel- ur prjónagarn og stramma. Lausnin er hitalak úr poly- ester. Það er eins konar loð- feldur sem hitnar skömmu eftir að lagst er upp I og heldur Kkamshita alla nótt- ina; þú hefur eins konar hitapoka undir þér. Lakið ku vera einkar gott fyrir gikt- veika. Það fæst í stærðum 70x150 cm og 150x150 cm og kostar 540 kr. og 822 kr.^ ☆ Við sögðum í siðasta HP frá velgegni myndar Lár- usar Ýmis Óskarssonar, - Annar dans, I „sænska ósk- arnum“ Guldbaggen, þar varð hún I þriðja sæti i svonefndu gæðamati yfir myndir síð- asta árs. Nú getum við glaðst yfir þv( að íslending- ur á einnig hlut I þeirri mynd sem varð númer tvö, — heimildarmynd Stefan Jarls.Hefnd náttúrunnar. Það er Einar Bjarnason kvikmyndatökumaður sem lengi starfaði í Sviþjóð en er nú fluttur hingað til lands og tók m.a. kvikmynd- ina Skilaboð til Söndru sem frumsýnd verður fyrir jól. Einar var aöstoðarkvik- myndatökumaður við gerð Hefndar náttúrunnar.... AF URRR > Enn af Janis Carol ☆ Helgarpósturinn hefur verið iðinn við það upp á síðkastið að flytja fréttir af Janis Carol — Carol Niels- son kallar hún sig reyndar núorðið — á leiksviði í Lundúnum. Þar syngur hún þessa dagana aðal- hlutverk i „Song and Dance“, frægum söngleik Andrew Lloyd Webbers, höfundar „Jesus Christ Superstar", „Evitu“ og „Cats“. Dansað er og sungið í Palace Theatre, einu stærsta og þekktasta leik- húsinu í West—End. Til gamans birtum við nú þessa mynd sem okkur barst nýskeð af framhlið leikhússins með nafninu Carol Nielsson skráðu logandi Ijósum. ★ Umsjón: Egill Helgason og Jim Smart Burstafell er flutt í nýtt rúmgott húsnæði að Bíldshöfða 14. Nú erum við í næstu nálægð við öll helstu nýbyggingasvæði Reykjavíkur og með bættri aðstöðu bjóðum við aukna þjónustu og vöruval. Góð aðkeyrsla — Næg bílastæði. Eftir 20 ára veru í Smáíbúðahverfi þökkum við íbúum hverfisins ánægjuleg samskipti á liðnum árum og bjóðum þá velkomna til viðskipta á nýjum stað. BURSTAFELL Byggingavöruverslun Bíldshöföa 14, Símar: Verslun 38840/Skrifstofa 85950 Það er næstum alltaf opið ALLIR BÍLAR TEKNIR INN Opið frá ki. 8—21 — opið í hádeginu — um helgar — laugardaga ki. 9 — 19 — sunnudaga ki. 10—12 og 1—19. Höfum mikið úrval af nýjum og sóluðum hjólbörðum undir flestar gerðir fólksbifreiða. Tölvustýrðar jafnvægisstiHingar. HJOLBARÐA- VERKSTÆÐI SIGURJÓNS HÁTÚNI2A-SÍM115508^ HELGARPÖSTURINN 5

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.