Helgarpósturinn - 10.11.1983, Blaðsíða 26

Helgarpósturinn - 10.11.1983, Blaðsíða 26
HELGARDAGSKRAIN Föstudagur 11. nóvember 1983 20.40 Á döfinni. Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 20.55 Stóri boli Bresk dýralifsmynd tekin i Kenýaum Afrlkuvlsundinn sem veiöimenn telja mesta við- sjálgrip. Þýöandi og þulur Gylfi Pálsson. 21.20 Kastliós Þáttur um innlend og erlend málefni. Umsjónarmenn Einar Sigurösson og Helgi E. Helgason. 22.25 Davið Þýsk blómynd frá 1979. Leikstjóri Peter Lilienthal. Aðal- hlutverk: WalterTaub, IrenaUrklj- an, Eva Mattes, Mario Fischel. Davlö er saga Gyöingadrengs og fjölskyldu hans I Þýskalandi á valdatímum nasista. Myndin lýs- ir vel hvernig Gyöingar brugöust viö atburöum þessa timabils og ofsóknum á hendur þeim. Þýð- andi Jóhanna Þráinsdóttir. Laugardagur 12. nóvember 1983 16.15 Fólk á förnum vegi (People You Meet) 2. Málverkið Enskunám- skeiö i 26 þáttum. 16.30 Iþróttir Umsjónarmaöur Ingólfur Hannesson. 18.30 Innsiglaö meö ástarkossi Annar þáttur. Breskur unglingamynda- flokkur I sex þáttum. Þýöandi Ragna Ragnars. 18.55 Enska knattspyrnan Umsjónar- maöur Bjarni Felixson. 20.35 Ættaróðalið Annar báttur. Bresk- ur gamanmyndaflokkur I sex þáttum. Þýöandi Guöni Kol- beinsson. 21.05 Það eru komnir aestir Steinunn Siguröardóttir teku'r a móti gest- um I sjónvarpssal. Þeir eru hjón- in Margrét Matthiasdóttir og Hjálmtýr Hjálmtýsson og dóttir þeirra Sigrún Hjálmtýsdóttir. Steinunn ræöir við gestina milli þess sem þeir syngja innlend og erlend lög. Vió planóiö er Anna Guöný Guömundsdóttir. Upp- töku stjórnaöi Tage Ammendrup 22.55 Dauðinn á Nil (Death on the Nile) Bresk blómynd frá 1978 gerö eftir sakamálasögu eftir Agöthu Christie. Leikstjóri: John Guiller- min. Aöalhutverk: Peter Ustinov, Bette Davis, David Niven, Mia Farrow og Angela Lansbury. Leynilögreglumaöurinn vlð- kunni.Hercule Poirot er á ferð I Egyptalandl og tekur sér far meó fljótabáti I skoöunarferð á Nll. En ekki llöur á löngu áöur en dular- fullir atburöir gerasj og I Ijós kemur aö moröingi leynist I far- þegahópnum. Þýöandi Dóra Haf- steinsdóttir. Við gefum henni 2 stjörnur. Sunnudagur13. nóvember 1983 16.00 Sunnudagshugvekja Baldur Kristjánsson guöfræöinemi flyt- ur. 16.10 Húslð á sléttunni Nýr flokkur — Fyrsti þáttur. Bandarlskur fram- haldsmyndaflokkur, framhald fyrri þátta um Ingallshjónin I Hnetulundi og börn þeirra. Þýö- andi Óskar Ingimarsson. 17.00 Frumbyggjar Noröur-Ameriku Nýr flokkur 1. Cherokee-lndíánar og 2. Siðmenntuðu kynflokkarnir fimm. Breskur heimildarmynda- flokkur um þjóöfélagsstööu og llf Indiána I Bandarlkjunum nú á tlmum. Jafnframt er vikiö aö sögu þeirra og samskiptum viö hvítamenn fyrrátlmum. Þýöandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. 18.00 Stundin okkar Umsjónarmenn Ása H. Ragnarsdóttir og Þor- steinn Marelsson. I stundinni veröur skoöaö æóarvarp I Akurey, sýndar teiknimyndir um Mytto og Smjattpatta, tann- fræöslan heldur áfram og sagan af Krókópókó, Ása segir frá Kina og klnverskir fjöllistamenn leika listir slnar. Upptöku stjórnaöi Elín Þóra Friðfinnsdóttir. 20.40 Sjónvarp næstu viku. Umsjónar- maður Magnús Bjarnfreðsson. 20.55 Glugginn Þáttur um listir, menn- TngSFWál og fleira. Umsjónar- maöur Sveinbjörn I. Baldvins- son. Upptöku stjórnaði Viöar Vikingsson. 21.45 Wagner Áttundi þáttur. © Föstudagur 11. nóvember 1983 7.00 Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Erlings Sigurðarsonar frá kvöld- inu áöur. 9.05 Morgunstund barnanna: „Leitin að vagnhjóli“ eftir Meindert DeJong Guðrún Jónsdóttir les þýöingu sína (31). 10.35 „Þaö er svo margt að minnast á“ Torfi Jónsson sér um þáttinn. 11.05 Dægradvöl Þáttur um frístundir og tómstundastörf I umsjá Anders Hansen. 11.35 íslenskir tónlistarmenn syngja og leika létt lög. 14.00 Á bókamarkaðinum Andrés Björnsson sér um lestur úr nýj- um bókum. Kynnir: Dóra Ingva- dóttir. 14.30 Miðdegistónleikar 14.45 Nýft undir nálinni Hildur Eiriks- dóttir kynnir nýútkomnar hljóm- plötur. 16.20 Síðdegistónleikar 17.10 Siðdegisvakan 19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Guö- Val Andrésar Björnssonar útvarpsstjóra — Ég hlusta á veðurfregnir kl. 18.45 ogfréttirnar í útvarpinu kl. 19. Ég reyni alltaf að sjá fréttirnar í sjónvarpinu og stundum fylgist ég með auglýs ingunum á eftir til að sjá hvað þar er á ferð. Ef ég lít fyrst á sjónvarpið þá mun eg horfa á Kastljós á föstudagskvöld en það er undir hælinn lagt hvort ég horfi á kvikmyndina. Á laugardag mun ég væntanlega horfa á Ættaróð- alið,Það eru kofnnir gestir og loks kvikmyndina, því ég er mikill aðdáandi Agötu Christie. Á sunnudag mun ég eflaust horfa á Gluggann. Lítum þá á útvarpsdagskrána. Á föstudagskvöld freista KvöldgestirJón- asar mín. Á laugardag langar mig að hlusta á Listalíf, þátt Sigmars B. Haukssonar, og fylgjast með Evrópukeppninni í handknattleik á eftir. Enn á tali hlusta ég á, en tæplega fleira það kvöld. Á sunnudögum hlýði ég alltaf á útvarpsmessuna. laug Marla Bjarnadóttir og Mar- grét Ólafsdóttir. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir 20.40 Kvöldvaka a. Vísnaspjöll Skúli Ben flytur kveöskaparmál. b. „Bruni", smásaga eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Maria Siguröardóttir les. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 21.10 Kórsöngur 22.35 Djassþáttur Umsjónarmaöur: Gérard Chinotti. Kynnir: Jórunn Tómasdóttir. 23.15 Kvöldflestir. Þáttur Jónasar Jonassonar. 01.10 Á næturvaktinni — Ólafur Þóröarson. 03.00 Dagskrárlok. Laugardagur 12. nóvember 1983 7.00 Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 7-25 Leikfimi. Tónleikar 9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Steþhensen kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir). Óskalög sjúklinga, frh. 11.20 Hrimgrund Stjórnandi: Sólveig Halldórsdóttir. J3.50 Listajíf Umsjón: Sigmar B. Tfaúksson. j5.00 EvróDukeppni bikarhafa i hand- knattleik Hermann Gunnarsson lýsir siðari hálfleik KR og Berchem frá Luxemburg í Laug- ardalshöll. 15.50 Tónleikar 16.20 íslenskt mál Ásgeir Blöndal Magnússon sér um þáttinn. 16.30 Nýjustu fréttir af Njálu Umsjón: Einar Karl Haraldsson. 17.00 Siðdegistónleikar 18.00 Af hundasúrum vallarins — Einar Kárason. 19.35 Enn á tali Umsjón: Edda Björg- vinsdóttir og Helga Thorberg. 20.00 Ungir pennar Stjórnandi: Dóm- hildur Siguröardóttir (RÚVAK). 20.10 Útvarpssaga barnanna: „Peyi“ eftir Hans Hansen Vernharöur Linnet lýkur lestri þýöingar sinn- ar (7). 20.40 I leit að sumri Jónas Guðmunds- son rithöfundur rabbar viö hlust- endur. 21.15 Á sveitalínunni Þáttur Hildu Torfadóttur, Laugum I Reykjadal (RÚVAK). 22.00 Úr bókinni „36 ljóð“ eftir Hannes Pétursson Hjalti Rögnvaldsson les. 22.35 Harmonikkuþáttur Umsjón: Högni jónsson 23.00 Kvartett Garry Burtons Á tónleik- um i Gamla blói i maí í vor. Vern- harður Linnet kynnir siöari hluta. 24.00 Listapopp — Þáttur Gunnars Salvarssonar Sunnudagur13. nóvember 1983 10.25 Út og suður, þáttur Friöriks Páls Jónssonar. 11.00 Messa i Háteiaskirkiu á kristni- boðsdegi. 13.30 Vikan sem var I umsjá Rafns Jónssonar. 14.00 Dagskrá i tilefni af 20 ára afmæli Surtseyjargossins, umsjónar- maöur Ari Trausti Guömunds- son. 15.151 dægurlandi þáttur Svavars Gests. 16.20 Um starfsemi Háskóla íslands. - Guðmundur Magnússon há- skólarektor flytur sunnudagser- indi. 18.00 Það var og. Út um hvippinn og hvappinn meö Þráni Bertelssyni. 19.35 Á bökkum Laxár. Jóhanna Stein- grlmsdóttir i Árnesi segir frá. 19.50 Öskrifuö sendibréf. Ljóö eftir Þórunni Magneu. 20.00 Útvarp unga fólksins I umsjá Guörúnar Birgisdóttur. 21.40 Hlutskipti manns eftir André , Malraux. Thor Vilhjálmsson les þýðingu slna. 22.35 Kotra. Þáttur Signýjar Pálsdótt- ur. 23.00 Jass., Sveifluöld 2. þáttur, Jón Múli Árnason rekur sögu jassins. SJONVARP Erlenda eyöublaöiö Burtséð frá myndum um ævi og störf kláðamaura á áströlskum kengúrum og flugmynstur gagahoho-fiðrildisins í Andesfjöllum er kannski ekki mikið af erlendu efni í sjónvarpinu. Samt nægi- lega mikið til að rétt sé að gefa vali þess gaum. Það verður ekki af þeim skafið sem fyrir hönd lista- og skemmtideildar velja þessar tvær til þrjár kvikmyndir sem boðið er upp á í hverri viku, að í seinni tíð hefur þeim í heild tekist ansi vel upp. Stundum er þessum myndum að vísu dálítið undarlega raðað niður. Til dæmis er ástæðulaust að halda Áfram- myndafestíval. Val og niðurröðun erlendra mynda- flokka hefur aftur á móti verið með ein- um of föstu sniði nú í langan tíma. Tökum niðurröðunina fyrst. Hún hefur svo lengi sem elstu menn muna verið: Sunnudagur — stór, menningarleg sería, gjarnan evrópsk ;mánudagur — hálftíma gaman- sería, yfirleitt ensk, og svo mánudags- leikrit héðan og þaðan; þriðjudagur — hasarsería; miðvikudagur — eldhús- róman; föstudagur — til skamms tíma þreyttur dúkkuhúmor á móti poppaug- lýsingum Skonrokks; laugardagur — hálftíma gamansería.' Þótt svona rútína geti verið heimilisleg verður hún til lengdar sljóvgandi og breytir dagskránni í eyðublað, sem ekki þarf að útfyllá. Ánnað mál er svo að hafi sería verið valin einu sinni er engu líkara en það Hacker kerfismálaráðherra og Marlowe einkaspæjari — góðu gæjarnir. jafngildi fastri áskrift. Þannig höfum við nú fengið endurholdgaðar tvær enskar gamansyrpur á laugardagskvöldum sem voru útbrunnar strax í fyrsta lífi sínu á skjánum, — millistéttarrómaninn Til- hugalíf og yfirstéttarrómaninn Ættar- óðalið. Hvorug syrpan hefur núna fersk- leika umfram þá formúlu sem þær byggðu á í upphafi. Og þótt Löður hafi átt einstakt framhaldslíf á þessu sama kvöldi átti sá þáttur ekki að tryggja sömu að- standendum aðgang með vita vonlausa seríu sem hét I blíðu og stríðu. Fyrir utan Löður hefur upp á síðkastið aðeins ein syrpa staðið undir annarri umferð á ís- lenskum skjá, — Já, ráðherra á mánu- dagskvöldum, enda enskur yfirburða- húmor. Ég nenni hins vegar ekki að fussa yfir Dallas. Sé þörf fyrir eldhúsróman þá má fullnægja henni með hverju sem er fyrir mér. Og það er þörf fyrir eldhús- róman. Dallas er lífsnauðsynlegur þáttur fyrir fólk, ef ekki til að njóta, þá til að hneykslast á. Þannig fullnægir þessi þátt- ur tveimur þörfum, sem er meira en hægt er að segja um snobbbelginn Wagn- er. Þar fer dæmi um fyrirfram útspekúl- erað „stórvirki" sem er ekkert annað en fallega filmuð blaðra, full af engu merki- legra en,,listrænu“ lofti! Síðar gefst von- andi tóm til að reifa fleiri möguleika í efnisvali, en nýjasta dæmið um níu líf er- lendra sería er á „hasarkvöldinu", þriðju- dögum. Hvers vegna fær þýska löggan Derrick þriðja sénsinn? Er það til að tryggja að allir hætti að horfa á hann? Derrick er góður fyrir sinn hatt, en Marlowe sýndi og sannaði að það getur borgað sig að prófa fleiri hatta. Marlowe er einhver snaggaralegasti og vandað- asti sjónvarpsþriller sem hér hefur lengi sést, enda vann hann sér inn aukapening með því að selja áskriftir að Hélgarpóst- inum, þökk sé þeim góða þýðanda Éllert Sigurbjörnssyni. Þær kváðu renna út í Suður—Kaliforníu á fjórða áratugnum. UTVARP Rás 2 og fleira Nú fer senn að líða að því, að útvarp hefjist á Rás 2 hjá gamla Gufuradíóinu. Ég er einn þeirra, sem hlakka til. Erlendis hef ég kynnst slíkum útvarpsrásum, sem byggja fyrst og fremst- á léttri tónlist, en þó með þyngra ívafi, og ef rétt er af stað farið ætti þessi nýja dagskrárrás að geta orðið góð. Að minnsta kosti hefur valist vel að mínu viti til deildarstjóra hennar. Mönnum þykir ef til vill að um eintómt bruðl sé að ræða á síðustu og verstu tím- um, en þeir hinir sömu eru beðnir að at- huga, að útvarpið sem slíkt hefur lítið þróast síðast liðinn einn og hálfan áratug. Það hefur að miklu leyti fallið í skuggann af sjónvarpinu og dreifikerfi þess var til skamms tíma í miklum ólestri. Ekki hefur tekist að halda því nógu vel við og lang- bylgjusendirinn á Vatnsenda sendir ekki nema á hluta þeirrar orku, sem hann get- ur gefið frá sér. Það stafar víst af því, að jarðsambandið á Vatnsenda er orðið lé- Þorgeir Ástvaldsson Rás 2 tilhlökkunarefni legt, eða er kannski búið að laga það? En alla vega, Rás 2 er kærkomin nýjung i rekstri útvarpsins. Þar er m.a. ætlunin að hafa leiknar eða framleiddar auglýsingar og er það vel. Þá gefst þeim, sem auglýsa vilja vöru sína aukið svigrúm fyrir ótak- markað hugmyndaflug sitt. Vonandi verður morgunútvarpið fært á þessa rás í framtíðinni og við hin gömlu og íhalds- sömu fáum að hafa þá Jón Múla og Pétur í friði á morgnana. I síðasta spjalli minntist ég á Kotruna hennar Signýjar Pálsdóttur. Enn einn nýr þáttur hefur komið fram á sjónar- eða heyrnarsviðið. Hann er hálfsmánaðar- lega á miðvikudagskvöldum eftir morg- unbæn og heitir Frá útlöndum. Honum er ætlað að gefa innsýn í þann heims- hluta, þaðan sem lítið fréttist og í hverj- um þætti er tekið fyrir eitt einstakt land. Þeir Emil Bóasson, Ragnar Baldursson og Þorsteinn Helgason sjá um þáttinn. Þeim hefur tekist vel upp og fréttir þeirra frá þriðja heiminum eru góðar og um- fram allt eins og fréttir eiga að vera. Þeir gefa manni innsýn í þjóðarsálirnar og flest annað en morð og viðbjóður verður þeim að fréttaefni. Myndi ég hvetja hlust- endur til þess að veita þessum þætti eftir- tekt. Nú hefur verið tekin upp sú nýbreytni að hafa kvöldvökurnar fjórum sinnum í viku, hálftíma í senn. Hefur Helga Ágústsdóttir séð um þær. Lengi vel sá Baldur Pálmason um kvöldvökurnar og gerði það vel. Helga er ekki síðri, hefur áheyrilega og góða útvarpsrödd. Ég held nú samt, að þessi nýbreytni sé mistök. Hætt er við, að undir vorið verði menn búnir að fá nóg af Helgu og vilji breyta til. Ágætt var að hafa kvöldvökuna einu sinni í viku eins og var, en þetta fyrir- komulag gerir dagskrána heldur fá- breytta og tilbreytingarlausa. Má teljast afrek, ef Helga heldur þetta út, nema þá að hún hafi svo mikið efni að moða úr. .26 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.