Helgarpósturinn - 10.11.1983, Síða 8
þingi fyrir flokkinn! Ég efast um
að sagnfræðingar átti sig einu
sinni á því eftir 50 ár hvað það var,
sem gerðist þarna. En það var
stórkostlegt."
Skýringar á skjótum frama
Þorsteins Pálssonar í Sjálfstæðis-
flokknum liggja ekki alveg á
lausu. Sumpart felast þær i eðlis-
eiginleikum hans, en skýringa er
einnig að leita í ferli hans, á stoppi-
stöðvunum á leiðinni Selfoss-
Valhöll.
Ásgeir Hannes Eiríksson var
með Þorsteini í Verslunarskólan-
um. „Hann var mjög geðfelldur og
prúður piltur, en hann hafði önnur
áhugamál en ég. Hann var í stjórn
bindindisfélagsins á sama tíma og
ég lagði það niður. En tími Þor-
stains var ekki kominn í Verslunar-
skólanum. Það var ekki fýrr en í
Háskólanum að hann fór að láta
verulega að sér kveða í stúdenta-
pólitíkinni. Á þessum árum gekk
allur Verslunarskólinn i Heimdall.
Jóhann Briem stóð fyrir því og
skrifaði 90% af mínum bekk inn í
Heimdall. Þessi einlita heim-
dellska er að bera ávöxt núna, í
pólitísku starfi Sjálfstæðisflokks-
ins. Góðir menn frá þessum árum
eru nú að hasla sér völl. Ég kaus
Þorstein bekkjarbróður minn á
landsfundinum. Það er enginn
maður í Sjálfstæðisflokknum bú-
inn fleiri hæfileikum til forystu en
hann, nema Albert, hvers hæfi-
leikar liggja um margt á öðrum
sviðum. Þorsteinn hefur alla eigin-
leika sem skipta máli. Hann hefur
keppt að þessu í mörg ár og búið
sig undir þetta," segir Asgeir
Hannes.
En hverjir eru þessir hæfileikar
Þorsteins Pálssonar? „Þegar á
fyrstu árunum í HÍ fór alit að
stefna í það að hann tæki við á-
byrgðastöðum," segir Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, sem var varafor-
maður Vöku og Orators og rit-
stjóri Vöku-blaðsins og Úlfljóts
þegar Þorsteinn var formaður í
báðum félögunum. „Hann er af-
burða traustur og heilsteyptur
maður og það ríkir friður í kring-
um hann. Hann sér mál yfirleitt í
stærra samhengi en flestir aðrir
og hefur einstakan hæfileika til að
sjá mál til enda. Hann er fljótur að
sjá í gegnum deilumál, lítið hrifinn
af skyndilausnum og ég sæi hann
seint gera afdrifarík mistök. En
hann er líka óhræddur við að taka
ákvarðanir þegar hann hefur trú á
einhverju máli. Hann hefur kraft
til að leggja málin á borðið og
þrautseigju til að fylgja þeim eft-
ir.“
Víglundur Þorsteinsson, for-
maður Félags íslenskra iðnrek-
enda, nefnir fyrst heilindi Þorst-
eins, eins og flestir aðrir viðmæl-
endur HP. „Hann er sérlega heil-
steyptur. Hann er skynsamur
stjórnandi, hefur hæfileika til að
laða menn til samstarfs, og hag-
nýta ráðleggingar samstarfs-
manna með því að veita þeim
svigrúm til sjálfstæðra athafna.
Hann er hugmyndaríkur og kjark-
mikill en um leið strategískur,
hann varðar veginn helst til enda
áður en hann leggur í hann.“
Þeir sem hafa unnið með Þorst-
eini Pálssyni á Morgunbiaðinu,
Vísi eða hjá Vinnuveitendasam-
bandi íslands taka flestir mjög í
sama streng. „Hann var mjög
þægilegur yfirmaður en hélt samt
alltaf ákveðinni fjarlægð," segir
Anders Hansen sem vann sem
blaðamaður á Vísi undir ritstjórn
Þorsteins. „Hann hafði lítil sam-
skipti við okkur nema vegna verk-
efnanna sem lágu fyrir. Hans stíll
var beinhörð stjórn að hans eigin
frumkvæði, en hann tók þó jafnan
vel í okkar tillögur. Helsti styrkur
hans var þessi óvenjulega mikli
hæfileiki til að greina kjarnann frá
hisminu."
Ólafur Ragnarsson, meðritstjóri
Þorsteins á Vísi um rúmlega
þriggja ára skeið, tekur undir
þetta síðasta. „Hann á óvenjulega
auðvelt með að hugsa skýrt og
vega og meta málin af sanngirni
og fordómalaust. Þetta var inn-
takið í þeirri leiðarastefnu sem við
fylgdum. Þorsteinn var alltaf á
því, að taka málefnalega afstöðu
og hún fór ekkert alltaf saman við
markaða stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins.“
Þorsteinn kom inn á Vísi á á-
takaskeiði í sögu blaðsins. Hann
var settur við hlið Jónasar Krist-
jánssonar sem flutti fljótlega út og
stofnaði Dagblaðið. Sú saga verð-
ur ekki rakin hér enda kom Þor -
steinn sjálfur þar lítið við sögu.
„Þorsteinn reyndi hvað hann
gat að vera „óháður og frjáls" rit-
stjóri í grimmri samkeppni við
Dagblaðsóvininn, en tvennt varð
honum til trafala þar,“ segir mað-
ur sem fylgdist grannt með Þor-
steinií ritstjórnartíð hans á Vísi.
Hann var annars vegar of mikill
flokksmaður af sannfæringu og
hins vegar of veikur fyrir frekar
penpíulegum, borgaralegum við-
miðunum í mati á því hvað mátti
birta og hvernig. Hann er góður
íhaldsmaður, en það hentar betur
í Sjálfstæðisflokknum en óháðri
blaðamennsku."
Eitt er það í fari Þorsteins Páls-
sonar sem menn greinir nokkuð á
um. Það er hversu opinn hann er
í samskiptum. Enginn dregur í efa
hreinlyndi Þorsteins, eindrægni
og heiðarleika, en sumum finnst
hann kaldur og ópersónulegur.
„Þorsteinn er lokuð týpa,“ segir
einn fyrrum samstarfsmanna
hans. „Hann er ekki litríkur per-
sónuleiki. Ég veit ekki að hve
miklu leyti hann heldur einkamál-
um^prívatskoðunum viljandi út af
fyrir sig, en þessi lokun háir hon-
um.“ Anders Hansen er nokkuð
sammála þessu: „Hann kom mér
fyrir sjónir sem hlédrægur maður,
allt að því feiminn. Ég er ekki frá
því að þessi óframfærni hafi háð
honum í pólitíkinni. Ég held t.d. að
hann eigi erfitt með að koma sér
á framfæri við kjósendur, bjóða
sjálfan sig til sölu, erfiðara en
margir halda. Það að hann skuli
samt gera þetta og takast vel upp
er sjálfsagt spurning um geysilega
þálfun."
„Hann er feiminn og óframfær-
inn en vinnur að því að koma sér
út úr skelinni," segir náinn sam-
starfsmaður frá fyrri tíð. „Hann á
auðvelt núna með að ná til fólks
en hann hefur þurft að hafa fyrir
því. Hann hefur komið sér upp
stórkostlegri samskiptatækni og
er alltaf mjög meðvitaður um sjálf-
an sig, sína framgöngu. Hann hef-
ur líka hagnast á þessu. I upphafi
VSÍ — tímabilsins var ekki
óalgengt að sjá myndir af honum
i blöðum þar sem hann sat við
skrifborðið á skyrtunni og með
uppbrettar ermar. Hann spáir í
svona hluti. Hann reynir að hafa,
og hefur, ótrúlega stjórn á því
hvernig hann kemur fyrir, hvort
sem það er í sjónvarpi, útvarpi, í
Nú er „sumardagurinn fyrsti" á Kanarí ekki langt undan. Þar ervorhugur
í fólki, og þegar Arnarflug byrjar Kanarleyjaferðir sínar þann fyrsta
nóvember - þá er sumarið komið.
Arnarflugsferðirnar eru glæsilegri en Kanaríeyjaferðir hafa hingað til
verið. Tvennt, fyrir utan sólina, sjóinn og verðlagið á Kanarf, gerir þær
að einstökum ferðamöguleika:
GIÆ8ILEG GISTING
í litlum einbýlishúsum eða íbúðum á Barbacan Sol-nýjum og sérstaklega
fallegum gististað, sem íslenskir Kanaríeyjafarar hafa lengi óskað sér,
en fá nú í fyrsta sinn að njóta. Aðstaðan er stórglæsileg og fjölbreytt
- tvær sundlaugar, golf- og tennisvellir, verslunarmiðstöð, veitingastaðir,
barir, spilasalir og fleira - allt er fyrsta flokks.
AMSItRDAMBVÖL i KUJPBCTI
Einstakt tækifæri til að kynnast heimsborginni Amsterdam. Veisluhöld
í mat og drykk, ótal verslunarmöguleikar og fjörugt næturlffið er
ógleymanlegt í þessari fallegu borg, sem svo rækilega hefur slegið f
gegn meðal Islendinga. Viðburðarík sólarhringsdvöl í upphafi og enda
allra ferða, og möguleikar á framlengingu.
OIÍDUCI
SiMÁR!
TIIK\NARm,i\MLDAR\4RLLLGI
VERDKR.22.686mðað við 4 í 3 herb. íbúð).
Brottför: Alla þriðjudaga. 10, 17 og 24 daga ferðir.
Innifalið: Flug, akstur til og frá flugvelli erlendis, gisting á lúxushótelinu
Pulitzer í Amsterdam og íbúðagisting á Kanaríeyjum ásamt íslenskri,
fararstjórn.
Leitið til söluskrifstofu Arnarflugs
eða ferðaskrifstofanria og fáið litmyndabækling
með ítarlegum upplýsingum.
HAUSTTILBOÐ!
1. Haus 5. Hryggur
2. Svíri 6. Lend
3. Bógur 7. Rifjasteik
4. Hnakkakambur 8. Síöa
9. Slag
10. Höm — Læri
11. Skanki og tær
159. • kr. kg. tilbúið í kistuna
*. Sundurhlulun séð utan Irá
1 Hál* t 6 Þrihymingur II Skankl 16 Kviðslykkl
2 Herðakambur 7 Hali 12 S.ða 17 Slag
3 Framhryggur 8 Háls 13 Klumpur 16 Skanki
4 Þunnasteik 9 Bógur 14 Innanlnnsvoðvi
5 Þykkasleik 10 Bðgur 15 Kviðstykki
Sundurhlutun sðð innan Irá
1 Háls 11 Skankl 17 Slag
2 Herdakambur 12 Siða 18 Skankl
3 Hryggur 13 Klumpur 19 Lundir
6 Þrjhyrmngur 15 Kviðslykki 20 Brmga
7 Hali 16 Kviðstykki 21 InnanlærisvOðvi
129r kr. kg
Flokkur U.N. I
Tilbúiö í frystinn
Ath. Biöjiö um bók Arnar og
Örlygs um nautakjöt og
svínakjöt og margt skemmti-
legt kemur I Ijós.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
Snyrtivörur
fyrir þá sem eiga aðeins það besta skilið.
Lista-Kiljan sf., sími 16310.
8 HELGARPÓSTURINN