Helgarpósturinn - 10.11.1983, Síða 9
blöðum, eða í ræðustól. Hann get-
ur verið léttur, sjarmerandi og
spontant í góðum vinahópi, en við
öll opinber tækifæri máttu vera
viss um að hann hefur undirbúið
sig rækilega. Hann gerir sér grein
fyrir því hvað er í húfi og hagar sér
samkvæmt því. Þetta er skyn-
samlegt og á þennan hátt ávinnur
hann sér traust. Hann hefur allt
sitt á þurru.“ Annar gamall sam-
starfsmaður kemur með þessa
skýringu á Þorsteini: ,,Hann er í
eðli sínu einfari; innhverfur mað
ur, sem tekst á við þetta eðli sitt af
þrjósku og virðist hreinlega sækj-
ast eftir glímu við „ofurmannleg"
verkefni. Þetta stafar frekar af
djúpri þörf til að stæla sjálfan sig
og styrkja inn á við en metorða-
girnd eða eftirsókn eftir vegtyll-
um.“
Allir eru sammála um gífurlega
sjálfsstjórn Þorsteins. „Hann er
stilltur vel," segir Kristján Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri LIÚ.
Og Óli Tynes blaðamaður segir:
„Hann gat verið harður í horn að
taka en hann missti aldrei stjórn á
skapi sínu. Hann þurfti ekki að
hækka röddina ef honum mislík-
aði eitthvað og það var jafnvel
enn verra. Þegar hann reiddist
varð hann hægmæltari, kvað
sterkt að orði og augun gneistuðu,
en stillingunni hélt hann alltaf.
Þetta gat verið mjög óþægilegt.
Þorsteinn er líka góður húmoristi.
Hann segir bæði skemmtilega frá
og eins grípur hann húmor á lofti.
Mér finnst hann ekki eins lokaður
og margir vilja vera láta. Það er
auðvelt að tala við hann og það
tekur ekki langan tíma að kynnast
honurn."
En við spurðum einn viðmæl-
anda okkar, gamlan skólafélaga
Þorsteins, hvort hann kynni ekki
einhverjar skemmtilegar sögur af
honum. „Nei,“ var svarið, „það
eru ekki til neinar slíkar."
Margir viðmælenda okkar
höfðu orð á því að Þorsteinn væri
ekki búinn að ná svona langt ef
ekki hefði verið fyrir glæsilega
frammistöðu í framkvæmda-
stjórastóli VSÍ. „Honum tókst að
snúa ASÍ-VSÍ-taflinu við, og síð-
ustu ár hafa verið róleg á vinnu-
markaðinum. Þarna gerðist eitt-
hvað sérstakt og menn eru að
kjósa hann fyrir það,“ segir gam-
aíl Vísis-félagi. „Ut á við hafði VSÍ
farið með samningamálin sem
einkamál sambandsfélaga, við
höfðum aldrei kynnt málstað okk-
ar. Þorsteinn breytti þessari
ímynd,“ segir Kristján Ragnars-
son. „Hann er afburða snjall i
kynningu út á við en það v'ar þó
maðurinn sjálfur og réttlætis-
kennd hans sem var helsti styrkur
VSÍ. Hann var opinn fyrir sjónar-
miðum mótaðilanna en þó fastur
fyrir. Hann myndar sér skoðun og
stendur við hana. Bæði við og þeir
gátu treyst því og þetta er mjög
mikilvægt."
„Það er gott að vinna með
Þorsteini. Það er í honum
skemmtilegt sambland af ljúf-
mennsku og ákveðni," segir Guð-
laugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari. í samningum var hann
ábyggilegur og traustur, og það
var gott að eiga við hann á örlaga-
stundu. Hann hafði áhrif í þá átt að
breyta gerð samninga til hins
betra."
„Þorsteinn hafði afgerandi áhrif
á starf VSÍ, vegna gáfna sinna,
hugkvæmni og dugnaðar, segir
Davíð Scheving Thorsteinsson.
„Hann er slyngur samningamað-
ur og honum tókst alltaf að finna
leiðir sem báðir aðilar gátu sætt
sig við.“
„Eg held það sé samdóma álit
þeirra manna sem áttu samskipti
við hann innan ASI, að hann hafi
verið harður, en heiðarlegur og
hreinskiptinn andstæðingur. það
sem hann sagði, það stóð. Innan
VSÍ tókust á aðilar sem vildu hörk-
una sex, og svo aðrir sem vildu
fara hófsamari leið. Þorsteinn var,
held ég, í þeim síðari," segir Hauk-
ur Már Haraldsson, fyrrverandi
blaðafulltrúi ASI. Haukur segir að
Þorsteinn hafi átt stærstan þátt í
því að ASÍ tapaði áróðursstríðinu
um 1980.
Þorsteinn Pálsson er giftur ingi-
björgu Rafnar, lögfræðingi og
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins. Þau eiga þrjú börn: Aðalheiði
Ingu, níu ára, Halldór Rafnar, sex
ára og Þórunni fjögurra ára. Vinir
Þorsteins segja jafnræði með
þeim hjónum og að Þorsteinn sé
jafnréttissinnaður. Þorsteinn seg-
ist ekki hafa tíma til klassískra á-
hugamála, „en við reynum alltaf
að gefa okkur góðan tíma saman,
fjölskyldan," segir hann.
Þorsteinn Pálsson nýtur nú víð-
tæks stuðnings í flokki sínum.
Kosning hans á landsfundinum
færði sjálfstæðismönnum heim
sanninn um það, og ræða hans við
sama tækifæri eyddi efasemdum
margra sem ekki höfðu stutt hann
áður.
Sagt er að það hafi tekið Ólaf
Thors 10 ár að ná tökum á Sjálf-
stæðisflokknum. Hlutirnir eru
farnir að gerast hraðar og Þorst-
einn virðist eiga alla möguleika á
því að verða sterkur leiðtogi Sjálf-
stæðisflokksins, ef hann er ekki
þegar orðinn það. Þingflokkurinn
kann að verða Þorsteini erfiður
ljár í þúfu, en „þingflokkurinn
þarf að taka tillit til hans og lærir
það fljótt," eins og einn sjálfstæð-
ismaður komst að orði við HP.
„Landsfundurinn sýndi að þeir
komast ekki upp með neinn upp-
steyt,“ sagði annar.
Morgunblaðið styður við bakið
á Þorsteini, „einu af eggjunum
okkar,“ eins og Matthías Jóhann-
essen komst að orði í útvarpsvið-
tali fyrir landsfundinn. „Við Morg-
unblaðseggin erum stoltir af því
sem við höfum fengið að njóta
undir verndarvængnum," segir
Þorsteinn. „Ég er viss um að allir
sem hafa orðið þess aðnjótandi
telja sér það til mikilla tekna og
mér þykir vænt um að hann skuli
finna til með okkur þegar eggin
eru orðin að ungum og hlaupin úr
hreiðrinu."
LEIKHÚSSQESTIR - ÓPERUQESTIR
Lengið ferðina og eigið ánægjulegri
kvöldstund.
Arnarhóll býður upp á stórkostlegan
matseðil, fyrir eða eftir sýningu.
J Húsiðopnarkl. 18.00.
Borðpantanir í síma: 91 — 18833.
Reyksoðið laxapaté
m/ spínatsósu
Pottsteikt önd
m/ appelsínuhjúp
Vanilluterta
m/ kiwikremi
Þessi stúlka notaði
Molton Browners,
hárrúllurnar fyrir
þurrt hár.
Fæst í eftirtöldum verslunum og hárgreiðslustofum:
Reykjavík:
Hárgreiðslustofan Flgaró,
Laugavegi.
Hárhúsið Adam & Eva,
Skólavörðustlg.
Hársnyrtistofna Papilla,
Laugavegi.
Hár & snyrting,
Hverfisgötu.
Hár Galleri,
Laugavegi.
Iðunnar apótek,
Laugarvegi.
Snyrtivörubúðin,
Laugavegi 76.
Topptískan,
Miðbæjarmarkaðinum.
Verslunin Bonný,
Laugavegi.
Verslunin Dana,
Völvufelli 15, Breiðholti.
Verslunin Oculus,
Austurstræti.
Verslunin Sáðuhúsið,
Laugavegi.
Hafnarfjörður:
Verslunin Disella,
Miðvangi.
Keflavík:
Hársnyrtistofan Edilon,
Túngötu 12.
Snyrtistofna Dana,
Túngötu 12.
□
I 1
Snyrtivörur
fyrir þá sem eiga aðeins það besta skilið.
Lista-Kiljan sf., sími 16310.
HELGARPÓSTURINN 9