Helgarpósturinn - 10.11.1983, Síða 13

Helgarpósturinn - 10.11.1983, Síða 13
YFIRHEYRSLA NAFN: Garöar Valdimarsson FÆDDUR: 19.8 1945 HEIMILI: Flyörugrandi 4, Reykjavík heimilishagir: Giftur Brynhildi Brynjólfsdóttir, 2 börr staða: Skattrannsóknastjóri áhugamáL: Bækur og útivist. NiÖurdrepandi aÖ sjá mál rykfalla eftir Egil Helgason myndir Jim Smart Skattamál bar á góma í fjölmidlum um daginn og ekki í fyrsta sinn. Þá var skýrt frá þvíaö þrjú stór skattsuikamál upp á samtals 22 milljónir vœru búin aö velkjast ikerfinu í3—5 ár án nokkurrar dómsniöurstööu og í einu tilfellinu án þess aö kœra vœri gefin út. Afþessu tilefni bar Garöar Valdimarsson skaitrannsóknastjóri fram haröa gagnrýni á dómskerfiö og sagöi aö skýringin vœri líklega sú að dómskerfiö heföi,,ööru að sinna“. Garöar Valdimarsson er í Yfirheyrslu Helgarpóstsins ídag. — Hvers eölis er embœtti skattrannsókna- stjóra? Við embætti ríkisskattstjóra skal lögum samkvæmt starfa deild sem hefur með hönd- um skattaeftirlit og rannsóknir. Það er skatt- rannsóknastjóri sem stýrir starfsemi deildar- innar. í deildinni starfa nú 18 manns. Auk þess ákveður skattrannsóknastjóri hvort skattamái eru send til meðferðar í ríkis- skattanefnd eða til dómstólanna að lokinni rannsókn. — Hvernig er starfsemi embœttisins hátt- aö? í meginatriðum starfar deildin þannig að við veljum ákveðnar atvinnugreinar til skoðunar í aimennu eftirliti. Úr þessu almenna eftirliti koma mörg mál. Þar að auki fáum við mál frá skattstjórum, frá er- lendum skattayfirvöldum og einstaklingum sem koma hingað með kærur. — Hvernig eru þœr kcerur sem ykkur ber- ast?Erþetta Jón Jónsson á horninu ad klaga nágrannann? Þessar kærur snerta einkum fyrirtæki. Það eru þá menn sem hafa haft viðskipti við þau eða þekkja til á einhvern hátt sem benda á að eitthvað sé ekki í lagi í starfsemi þeirra. það er starfsregla hér að fara varlega í slíkar kærur, en þó er alltaf gerð einhver lág- marksathugun. Við tökum mark á kærum ef þær eru rökstuddar eða studdar gögnum og menn kæra undir nafni, þótt við leynum því í rannsókninni. — Hvers eðlis eru þœr ábendingar sem berast erlendis frá? Ábendingarnar erlendis frá byggjast á samningum sem íslendingar hafa við önnur ríki. Samkvæmt þeim ber skattayfirvöldum að skiptast á upplýsingum um gjaldendur. Þær upplýsingar sem við fáum einkum úr þessari átt snerta innistæður og viðskipti íslenskra gjaldenda eriendis. — Nú kom það nýlega fram í blöðum aö þrjú stór skattsvikamál hafa lónaö í kerfinu í 3—5 ár án þess að dómur sé kveðinn upp. Hverju sœtir það? Þau mál sem rætt hefur verið um að undanförnu voru rannsökuð hér og síðan send rannsóknariögreglunni. Þau fóru síðan til ríkissaksóknara sem tekur ákvörðun um ákæru. Því næst fóru þau tii Sakadóms Reykjavíkur. Það hefur vakið athygli hversu langur tími líður frá því rannsókninni lýkur þar til í fyrsta lagi ákæran er gefin út og í öðru lagi þar ti) dómur fellur. Til viðbótar þessu má kannski nefna að í einu skattsvika- máii sem var vísað til ríkissaksóknara 1972, féll ekki dómur fyrr en tæpum níu árum síð- ar. Það er þessi seinagangur í meðferð skatt- svikamála sem veldur okkur talsverðum áhyggjum. — Hvernig stendur á þessum drœtti hjá saksóknara og dórnsvaldinu? Ég skal ekki fyllyrða um hvers vegna þetta tekur svona langan tíma. Ég held að ein orsökin sé sú að ekki er búið nægiiega vel að þessum stofnunum hvað varðar sérfræðiað,- stoð og mannafia. Fyrir nokkrum árum voru uppi hugmyndir um að bæta þar úr, en ekki veit ég til að það hafi orðið. Hins vegar virð- ist mér að önnur ástæða sé sú að skattsvika- mál veki ekki mikinn áhuga hjá þessum stofnunum. — Það er haft eftir Jónatani Sveinssyni suksóknara I Þjóðviljanum að öllum finnist sín mál merkilegust, líka skattrannsókna- stjóra. Er hann með þessu að gera lítið úr skattamálum? Ég skal ekki segja um það hvað hann á við. Ég veit ekki hvort hjá honum er einhver bið- röð þar sem menn reyna að koma að sínum málum, ég þekki það ekki. — Hvað er helst til úrbóta? Frumforsendan er auðvitað sú að þær stofnanir sem vinna að þessum málum starfi í góðu framhaldi hver aí annarri. Það er dálítið niðurdrepandi að sjá mál rykfalla þegar menn hafa lagt sig alla fram um að upplýsa þau og rannsaka. En það er kannski ekki bara við saksóknara, dómskerfið og okkur að sakast. Það vantar einhvern póli- tískan vilja til að gera átak í þessum málum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skattamálin eru til umræðu, en þessi umræða virðist ekki kveikja á perunni hjá þeim sem fara með vald til að láta til skarar skríða. — Þú segir I Þjóðviljanum um daginn að þið hafið aðeins sent fá, stór og einföld mál I gegnum dómskerfið til að flýta fyrir af- greiðslu. Hvaö verður þá um þau mál sem eru flóknari eð veigaminni? Þau mál sem ekki eru eins ljós hvað varðar refsimeðferð hafa verið afgreidd af ríkis- skattanefnd. Þetta er stjórnsýslunefnd sem starfar í nafnleynd og eftir reglum sem eru mun einfaldari en regiur dómskerfisins. Þar eru þvi ailar forsendur fyrir því að málin gangi hraðar fyrir sig. Ríkisskattanefnd ákveður skattsektir og dæmir í þeim málum þar sem við teljum að ekki sé um fangelsis- sakir að ræða. Þegar þannig ber undir er skylt og rétt að málin fari dómstólaleiðina. — Því er boriö við að mikill skortur sé á sérhœfðum mannafla í skattamálum? Skatta- og bókhaldsmálin eru vettvangur fyrir sérfræðinga og þeir sem hafa starfað við svona mál hjá skattayfirvöldum eru mjög eftirsóttir hjá einkafyrirtækum vegna sinnar reynslu. Eg tel að það skipti höfuð- máli að þannig sé búið að starfskjörum og launamálum að menn laðist að þessum störf- um, því þetta eru mjög flókin, vandasöm og erfið störf. — Vœri ekki full ástœöa til að koma upp sérdómstóli í skattamálum á borð við fíkni- efnadómstólinn, sem hefur skilaó ótvíræð- um árangri? Þetta hefur verið rætt og reyndar kom fram um það tillaga á Alþingi að setja á stofn sérdómstól í skattsvikamálum og skyldum brotum, verðlagsbrotum, gjaldeyrisbrotum og ýmsum hvítflibbabrotum. Miðað við þá reynslu sem við höfum af meðferðinni hjá hinum almennu dómstólum virðist fullkom- lega réttlætanlegt að athuga hvort ekki sé hægt að stofna slíkan dómstól. — Hvernig er þessum málum háttað hjá nágrannaþjóðunum? Hjá nágrannaþjóðunum fara þessi mál fyr- ir almenna dómstóla. En í Danmörku er til dæmis sérstök deild hjá lögreglunni sem fer með skattsvikamál og hvítflibbabrot. Sú deiid hefur náð miklum árangri. Þar að auki er sérstakur saksóknari sem fjallar um þessi mál í Danmörku. Það er víst að þar ganga skattsvikamál miklu hraðar fyrir sig. — Þurfa menn þá nokkuð aö óttast það að svíkja undan skatti? Er ísland kannski para- dís skattsvikarcnna? Þetta er sterkt tekið til orða. Menn þurfa auðvitað að greiða þá skatta sem þeir hafa dregið undan og sú rannsókn sem fer fram hjá okkur og lögreglunni tekur náttúrlega á þá sem í því lenda. Hins vegar vantar þarna betra aðhald með skjótari dómstólameð- ferð. — Hvað eru skattsvik algeng á Islandi? Það er ailtof algengt að það komi upp stór mál. — íhvaða greinum eru skattsvikin algeng- ust? Það er erfitt að taka eina grein fram yfir aðra og auk þess er það misjafnt eftir at- vinnugreinum hvað við fáum góð gögn til að sannreyna framtöl. Söluskattsvikin hafa ver- ið mest áberandi á undanförnum árum og auk þess höfum við fengið ýmsar góðar vís- I bendingar erlendis frá um innflutningsversl- unina. Þar er talsverð hætta á undandrætti eins og dæmin sanna, svokallaðar faktúru- faisanir. Við höfum fyrst og fremst eftirlit með fyrirtækjum og einstaklingar koma yfirleitt fyrir okkur í tengslum við þau. Að öðru leyti ber launþega sárasjaldan upp á borð hjá okkur.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.