Helgarpósturinn - 10.11.1983, Síða 28
s
^^^amhljóða álit þeirra Frið-
riks Sophussonar og Birgis
Isleifs Gunnarssonar mun vera
að fjölmiðlar hafi átt ríkan þátt í
því mikla fylgi sem Þorsteinn-
Pálsson hlaut á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins. Þeir hafi, fyrir
landsfundinn, þrástagast á því að
Þorsteinn hefði meira fylgi en þeir
og því hafi fjölmargir landsfundar-
fulltrúar hugsað sem svo að það
væri þá um að gera að kosning
hans yrði sem glæsilegust. Annars
virðast landsfundarfulltrúar sam-
mála um að kosningaræðurnar
hafi ráðið úrslitum — ræða Þor-
steins hafi hreinlega verið á öðr-
um nótum en ræður þeirra Birgis
Isleifs og Friðriks....
lEnda þótt Þorsteinn Pálsson
lýsti því yfir í viðtölum við fjöl-
miðla að hann myndi ekki sækjast
eftir sæti í ríkisstjórninni að svo
stöddu, er vitað að harður kjarni
stuðningsmanna hans mun ekki
sætta sig við að hann verði án ráð-
herraembættis lengi og er sagt að
þegar sé farið að undirbúa það
bak við tjöldin að Þorsteinn setjist
í ráðherrastól. Er þá helst talað
um að Matthías Bjarnason -
standi upp úr sínum.
A
jr-m manudag var haidinn
fundur í Framsóknarflokknum um
málefni Tímans. Þar gerðu grein
fyrir stöðu biaðsins þeir Hákon
Sigurgrímsson, formaður blað-
stjórnar, og Haukur Ingibergs-
son, framkvæmdastjóri flokksins,
en sem kunnugt er stendur til að
stofna nýtt hlutafélag um rekstur
blaðsins. Það kom fram hjá þeim
félögum, sem reyndar var vitað,
að fjárhagsstaða blaðsins er
vægast sagt slæm, og röktu þeir
ýmsar ástæður þessa. Þeir voru
hins vegar harðlega gagnrýndir á
fundinum fyrir að nefna ekki aðal-
ástæðuna fyrir þessari stöðu, þ.e.
frumkvæði Tímans að samstarfs-
slitum í Blaðaprenti. Nú er svo
komið að sá fjöldi sem vinnur við
prentvinnslu blaðanna þriggja,
Alþýðublaðsins, Tímans og Þjóð-
viljans, er jafnmikill og vann í
Blaðaprenti við vinnslu þeirra og
Vísis, og bar þó Vísir um 40% af
útgáfumagninu. Voru þeir Hákon
og Haukur spurðir út í þetta, en
varð fátt um svör og vakti þetta
athygli fundarmanna...
s
kuli Thoroddsen lögfræð-
ingur Dagsbrúnar sagði upp störf-
um síðsumars vegna ráðningar
Þrastar Ólafssonar sem fram-
kvæmdastjóra félagsins. Sam-
kvæmt samningum á Skúli að
hætta störfum þ. 1. des. Guð-
mundur J. sem dyggilegast stuðl-
aði að ráðningu Þrastar hefur nú
rætt við Skúla um að endurskoða
uppsögn sína og hefur Skúli lýst
sig fúsan til þess ef starfssvið hans
verði ákveðið og tryggi honum
sjálfstæði og sjálfræði undir fram-
kvæmdastjórn Þrastar. Þröstur
hefur að undanförnu unnið að
verkaskiptingu starfsmanna og
hefur Skúli farið fram á að auk lög-
fræðistarfa fyrir Dagsbrún falli
m.a. hafnamál, fiskvinnsla, vinnu-
vernd og öryggismál undir hans
stjórn. Voru kröfur Skúla lagðar
fram á stjórnarfundi sem haldinn
var 31. okt. s.l. og verða væntan-
lega samþykktar á næsta stjórnar-
fundi Dagsbrúnar sem haldinn
verður á næstu dögum...
||
I H eimildir okkar úr lækna-
stétt herma að einhver vinsælasti
skemmtistaður reykvískra góð-
borgara, — heitu pottarnir í laug-
unum —, sé ekki endilega sú
heilsulind sem margir halda. Hafa
læknar nú miklar áhyggjur af
aukningu smitsjúkdóma í nýrum
og þvagfærum, — og kannski
fleiri færum —, og er aukningin
rakin beint til margumræddra
heitra potta...
l ísafjarðarsýslu ríkir talsvert
öngþveiti í löggæslumálum eftir
að fjórir lögregluþjónar „fuku“ á
einu bretti eins og frægt er orðið
af fréttum. Er nú svo komið að
aðeins tveir lögregluþjónar eru á
vakt hverju sinni í allri sýslunni,
en þeir eru sex alls sem eftir eru á
vöktum. Úr þessu rætist nú á
næstunni, því búið er að auglýsa í
stöðurnar sem losnuðu og hefur
mikill fjöldi sótt um. Þykir Pétur
Kr. Hafstein sýslumaður hafa
staðið rösklega að þessu vand-
ræðamáli...
G
uðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Verka-
mannasambands íslands, gaf í
skyn á þingi sambandsins í Vest-
mannaeyjum að hann hygðist
ekki gefa kost á sér til endurkjörs
eftir formennskuna þetta kjör-
tímabil. Er mál manna að Guð-
mundur sé þegar kominn með
augun á eftirmann sinn. Sá heitir •
Þröstur Ólafsson, sem Guð-
mundur réð nýverið sem fram-
kvæmdastjóra hjá sér í Dagsbrún,
en um leið og Þröstur er orðinn
starfsmaður þar hefur hann rétt til
inntöku í sambandið. Færi hann
þá sömu leið inní verkalýðsfor-
ystuna og Ásmundur Stefáns-
son gerði er hann varð fyrst fram-
kvæmdastjóri ASÍ og síðan forseti.
Ekki er vitað hvort þetta mælist
vel fyrir í öllum kimum Verka-
mannasambandsins en þeim
röddum fer hins vegar fjölgandi
sem segja að ekkert dugi lengur í
baráttuna annað en prófessjónal
og vel menntaður verkalýðsrek-
andi....
ir
HHKastljóssþáttur sjónvarps-
ins, sem að mestu var helgaður
landsfundi Sjálfstæðisflokksins,
vakti undrun margra og þótti fólki
sem heldur betur væri verið að
gera úlfalda úr mýflugu. Heyrst
hefur að ýmsir aðilar hafi sent
mótmæli til fréttastofunnar vegna
þessa fréttamats, t.d. Kvenna-
framboðið í Reykjavík sem lítur
svo á að ekki hafi orðið þau kafla-
skipti í sögu landsins með for-
mannskjörinu sem fréttastofan
hafi látið í veðri vaka...
Laugavegi 69, 9.
arena
leikfimiskór
leikfimifatnaður
fimleikafatnaður
jazzballett
&
Áí 1 >
28 HELGARPÓSTURINN