Helgarpósturinn - 03.12.1983, Síða 2
^Jazzvakning hefur ár-
lega yljað blúsaðdáendum
um hjartarætur í skammdeg-
inu með innflutningi ame-
riskra blúshljómsveita sem
tvívegis hefur reyndar verið -
The Missisippi Delta Blues
Band. Eftiráramótin erstefnt
aö því aö önnur amerisk blús-
grúppa sæki okkur heim og
heitir hún The San Fransisco
Blues Band. Þá má geta þess
að vonir standa til að I byrjun
desember leiki hér á vegum
Jazzvakningar trió gítarleik-
ara Miles Davis sem John
Scofield nefnist. Meö hon-
um leika gamall kunningi
okkar frá heimsókn Gary
Burtons bassaleikarinn -
Steve Swallow, og trommar-
inn Adam Nuisbaum...^
T^Við gátum þess ( sfö-
ustu viku að Arnartak, for-
lag Jóhannesar Helga, -
myndi á næstunni senda
frá sér fjölskrúðugt ritverk
eftir dr. Benjamín Eiríks-
son, sem nefnist ÉG ER.
Arnartak
hefur fleira
á prjónun-
um. Þaö
gefur einn-
ig út á-
næstunni
bókina
HEYRT & SÉÐ eftir Jó-
hannes Helga. Það eru
fimmtlu og sjö skrif um
jafn mörg málefni
á árunum 1975-83 og viða
aflað fanga. Þá eru tvær
kasettur væntanlegar frá
Arnartaki: Suðurnesjaljóö
og lög frá liðnum árum
eftir Kristin Reyr, mikið
prógramm, sem níu lista-
menn flytja: tónlistar-
menn, sönvarar, leikarar,
kvæðamenn. Hin kasettan
er Spámaðurinn eftir -
Kahlil Gibran I þýðingu -
Gunnars Dal. Á kassett-
unni eru samnefnd Ijóð
eftir Gibran, sem gefin
hafa verið út I glfurlegum
upplögum vlða um heim. -
Jónína H. Jonsdóttir flytur
Ijóðin, en Kristinn Reyr
flytur inngang...ofc-
ÁRGERÐ 1984 ÁRGERÐ 1984
BÍLASÝNING
laugardag og sunnudag kl. 2-5
í sýningarsalnum Rauðagerði 27
Nissan/Datsun Micra splunku-
nýja súperstjarnan sem farið hef-
ur sigurför um allan heiminn.
Bensineyðsla Micra er svo ótrú-
lega lltil aó blaðamenn hinna
þekktu stórblaöa Motor, Auto
Motor Sport og Bilen motor og
sport höfðu aldrei ekið jafn spar-
neytnum bíl. Tlmaritið Quick seg-
ir bensíneyðslu Micra vera 4,2 I. á
hundraði út á landi og 5,9 I. á
hundraði í bæjarakstri og er þaó
sama niðurstaða og ótal önnur
tlmarit komust að. Vió teljum ekki
ástæðu til þess að segja frá
bensíneyðslu Micra í sparakstri
þvf bensineyðsla í sparakstri og
raunbensíneyðsla er sitt hvað.
Subaru1800 GLF, fjórhjóladrifinnj
hefur selst meira en nokkur annar
bíll á íslandi það sem af er 1983.
Sumum finnst notalegt og öruggt
að sofaápeningunumsínumsvip-
að óg ormar á gulli. Þeir sem ekiö
hafa og átt Subaru eru hins vegar
ekki ( vafa um að peningar þeirra
eru betur geymdir l Subaru GLF,
4WD, þvf Subaru er ekki bara 1.
flokks bfll heldur Ifka 1. flokks fjár-
festing.
Eigum ennþá örfáa f jórhjóladrifna
Subaru 700 High roof delivery van
árg. 1983 á einstaklega hagstæðu
LÆKKUÐU verði. Subaru High
roof erlipurog sparneytin sendi-
bifreiðen þó enginn aukvisi þegar
til átaka kemur. Fjórhjóladrifið og
lággir sjá til þes^ að Subaru High
roof er nánast óstöðvandi f
slæmri færð. Akið ekki út í óviss-
una — akið á fjórhjóladrifnum
Subaru.
' Tökum flestar geröir eldri bíla upp í nýja
Ingvar Helgason H/F
Sýningarsalnum Rauðagerði 27. Sími 33560
H.S.Í. í fjóröflunarherferð
☆ Handknattleikur er trú-
lega vinsælasta keppnis-'
iþróttin á íslandi.Hér eru
12.000 manns virkir kepp-
endur I greininni og leikirnir
yfir keppnistlmabilið, f ís-
landsmótinu og bikarkeppn-
inni (allir aldursflokkar),
samtals 1900. Það gefur
auga leið að svona um-
fangsmikil starfsemi kostar
sitt og nú er H.S.Í. að
hleypa af stokkunum
stærstu fjáröflunarherferð
sem það hefur staðið fyrir.
Að sögn Friðriks Guö-
mundssonar formanns
H.S.Í. verða margar leiðir
farnar f fjáröfluninni, t.d. var
stærsta auglýsingablað
H.S.Í. gefiö út á dögunum í
sambandi við landsleikina
við Tékka og ætlunin er að
gefa út þrjú slík f viðbót fyr-
ir áramót, mikið happdrætti
er að fara f gang þar sem
heildarverðmæti vinninga
er 700 þús.,plakat af lands-
Gunnlaugur við hljóönemann
Músík sem ekki
heyrist oft
■^„Nei.það verður engin sér-
stök tónlistarstefna sem
ræður rfkjum í þættinum.
Hins vegar er þaö stefna
þáttarins að leika músík
sem heyrist ekki oft f öör-
um popptónlistarþáttum
útvarpsins s.s. Listapoppi,
syrpum, óskalagaþáttum
o.s. frv...“, segir Gunnlaugur
Sigfússon um nýjan út-
varpsþátt, Traðir, sem hann
stjórnar og er á dagskrá
annaðhvert föstudagskvöld
kl. 22.35.
— Hlustarðu þá mikið á
þessa þætti til þess að
finna út hvað þú eigir að
spila sjálfur?
„Nei, ég hlusta yfirleitt Ift-
ið á útvarpið, — það er t.d.
ekkert útvarpstæki á mfn-
um vinnustað. En maður
þarf ekki að hlusta mikið á
útvarp til áð vita hvað er
ekki spilaö þar“.
Aðalvinnustaður Gunn- ú
laugs er Búnaðarbanki Is-
lands og eins og lesendur
HP ættu að vita skrifar
hann hljómplötugagnrýni
fyrir blaðið. ★
liðinu verður gefið út og
dreift til sölu um land allt
og svo mun H.S.Í. verða
með bflasýningu í Laugar-
dalshöll. Skuldir H.S.Í. nema
nú um 1400 þús. og er
stefnt að því að greiða þær
upp í vetur. ★
Góð æfing
☆ Guðmundur Haukur
Jónsson erönnum kafinn
maður. Hann kennir fulla
kennslu í 8. og 9. bekk við
Digranesskóla I Kópavogi;
hann er skólastjóri Orgel-
skóla Yamaha, — sem mun
vera einn fjölmennasti tón-
listarskóli landsins með 150
— 200 nemendur; hann rek-
ur eigin bréfaskóla eða öllu
heldur kassettuskóla f
orgelleik; hann starfar í
hljómsveitinni Alfa Beta og
tvö kvöld í viku skemmtir
hann í Skálafelli Hótels
Esju með orgelspili og
söng.
— Þar heimsótti HP hann
um daginn og spurði hvern-
ig væri að vera i „eins-
manns-hijómsveit“...
„Það er ágætt, þá er alla-
vega engan hægt að
skamma nema sjálfan sig.
Þetta er líka góð æfing og
mér finnst gaman að spila
hérna. Það eina sem fer f
taugarnar á mér og gerist á
hverju kvöldi er fólk sem
kemur að tala við mig á
meðan ég er að spila og
syngja og er að biðja um
eitthvert lag eða vill jafnvel
kenna mér lög. Að öðru
leyti er gott að vera hérna
og margir tónlistarmenn
sækjast eftir að komast hér
að“. ★
Þessi gérðist á frétta-
stofu Sjónvarps: Komið
var f gættina hjá Einari Sig-
urössyni, nýjum frétta-
manni erlendra frétta, og
spurt: — Hvað ætlarðu að
hafa I Kastljósi núna?
— íran: írak, segir Einar.
:%•. Þá heyrist sagt hinum
ÚÚV-: megin við þilið:
/:ÚÚÚ: — Og hvernig fór?
í næsta herbergi situr
Bjarni Felixson,
Iþróttafréttamaöur...
2 HELGARPÓSTURINN