Helgarpósturinn - 03.12.1983, Síða 5

Helgarpósturinn - 03.12.1983, Síða 5
Smartmynd _____________ * yi Smartmynd Nýtt smá- sagnasafn eft- ir Steinunni Sigurðardóttur er væntanlegt í jólabókaflóð- inu. Nefnist safniö „Skáld- sögur" og útgefandi er Ið- unn.-.-fr Meðal bóka sem væntan- legar eru á jólamarkaðinn eru æviminn- ingar Guð- laugs Gísla- sonar fyrrver- andi alþingismanns i Vest- mannaeyjum. Guðlaugurvar lengi í forystusveit sjálf- stæðismanna, fyrst í bæjar- málum í Eyjum og siðar sem þingmaður. A þeim tímum sem Guðlaugur var oddviti sjálfstæðismanna í Eyjum var bæjarpólitíkin þar óvenjulega hatröm og mun Guðlaugur segja frá ýmsu skemmtilegu sem upp kom þar, í bók sinni. Að auki er sagt að hann fjalli um átökin sem urðu um for- mennskuna i Sjálfstæðis- flokknum er Geir var kjörinn formaður, en Guðlaugur mun aldrei hafa verið stuðn- ingsmaður hans...^ Býður upp á ótrúlega möguleika í uppröðun KópTvog^®9'4 Sendum um allt land — Góð greiðslukjör simi 73100_____________ Sjónvarpið mitt aðalfag ☆ Einar Sigurðsson heitir nýjasti fréttamaður Sjón- varpsins. Hann er 28 ára gamall Akureyringur og hef- ur m.a. að baki þriggja ára nám í fjölmiðlafræði við Polytechnic of Central London og eins árs nám í stjórnmálafræði við London School of Economics. Einar er ekki alveg óvanur frétta- mennsku; hann var frétta- ritari Útvarpsins á Bretlandi i þrjú ár á meðan hann var í námi og í sumarleyfum vann hann einnig hjá sömu stofnun bæöi sem þulurog á fréttastofunni og þar var hann í eitt ár eftir að hann kom heim frá námi. Þá sótti hann um hjá Sjónvarpinu. HP sló á þráðinn til Einars fyrir skömmu og spurði hvort hann væri kominn i óskastarfið... „Ég veit það ekki“ sagði Einar. „Það er prýðilegt að vera hérna; ég er ráðinn til tveggja ára í fjarveru annars fréttamanns sem er að Ijúka námi, þannig að ég veit ekki hvort ég er sestur hér til frambúðar. Ástæðan fyrir þvl að ég sótti um þetta starf var sú að (fjöl- miðlafræðinni var sjónvarp- ið mitt aðalfag og mig lang- aði að sjá hvernig það nýtt- ist mér. En ég er töluverður nýgræðingur í .þessu ennþá. Jf HÚSGÖGN RÓS 2 r Starfsfólk „Gamla gufuradí- ósins“ við Skúlagötu skoð- aði húsakynni Rásar tvö ( nýja útvarpshúsinu i sið- ustu viku. Þorgeir Ástvalds- son, forstöðumaöur Rásar 2, kynnti því væntanlega starfsemi nýju stöðvarinnar. Starfsfólk Rásar 1 hafði á orði að húsnæðið væri mun rýmra en það sem það hef- ur átt að venjast á Skúla- götu 4. Rás 2 er fyrsta deild Ríkisútvarpsins sem flytur í nýja útvarpshúsið við Hvassaleiti og útsendingar þaðan byrja sfðar I þessum mánuði. Hinar deildirnar þurfa að blða enn um sinn með að flytja I nýja húsið.'Á' Umsón: Páll Pálsson og Jim Smart SKALA- SKILVEGGJUM 86,6 ^7-20,6 ^ 45,6 45,6 Veitum 20% afslátt á meöan byrgöir endast B.M. frá Berklee í Boston ☆ Meðal bókanna sem væntanlegar eru á jóla- markaðinn að þessu sinni erviötalsbók Guðmundar Guðjónssonar blaða- manns á Morgunblaðinu þar sem hann tekur lax- veiðimenn tali og þeir segja frá ævintýrum sín- um á árbökkunum. Sagt er aö engir ýki sögur sínar sem laxveiðimenn, en þó munu allar sögurnar sem veiðimennirnir segja i bók Guömundar vera sannar. Meðal viðmælenda Guð- mundar er Þórarinn Sig- þórsson tannlæknir sem veitt mun hafa fleiri laxa á stöng en nokkur annar ís- lendingur.^ ☆ Stefán S. Stefánsson saxófónleikari er nýkominn heim frá Bandaríkjunum, þar sem hann lauk fjögurra ára námi á þremur (notaði sumrin líka) við Berklee College of Music í Boston. Hann útskrifaðist með B.M. gráðu ( útsetningum, tón- smfðum og hljóðfæraleik, og sá sem afhenti honum skírteinið var ekki minni maður en Quincy Jones. HP hringdi í Stefán og spurði hvað tæki við eftir heimkomuna... „Aðalstarfið þessa stund- ina er kennsla í Tóniistar- skóla F.Í.H. í djassdeildinni því nám mitt var jú mestallt á því sviði. Svo ætla ég að halda konsert 24. nóv. ( Norræna húsinu, sem skipt verður í tvennt: annars veg- ar 10 manna djasshljóm- sveit sem leikur útsetningar og tónsmlðar eftir mig og hins vegar kvintett, sömu- leiðis með útsetningar og tónsmíðar eftir mig. Það er ekkert sérstakt tilefni; mig langar bara til að gera þetta. Svona nokkuð hefur aldrei verið gert áður að ég best veit... Jú, það mætti kannski kalla það heim- komukonsert en ég vonast til að geta farið víðar með þetta prógram. Nú, svo spila ég með Gömmunum og líkar það mjög vel“. — Breytti námið eitthvað tónlistarviðhorfum þinum? „Nei, ekki vil ég meina það, hins vegar breyttust vinnubrögðin og skilningur- inn dýpkaði. Maður kynntist Kka nýjum hlutum, þarna var samankomið fólk úr öll- um heimshornum og það hafði mikil áhrif á mann að kynnast svo ólíkum þanka- gangi og Kfsstd. Og ég held að þau áhrif hafi flest verið til góðs“. ☆ HELGARPÓSTURINN 5

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.