Helgarpósturinn - 03.12.1983, Page 7

Helgarpósturinn - 03.12.1983, Page 7
eftir Hallgrím Thorsteinsson ,,Nú eru allir hassistarnir sem voru á móti spítti og kóki farnir að nota þetta. Það hefur orðið svakaleg aukning á þessu, bara síð- asta ár. Helmingurinn af hassliðinu vildi aldrei nota spítt en nú finnst þessum hópi alveg jafn gott að fá sér í nös“. Þetta segir þrítugur Reykvíking- ur, sem við getum kallað Jón. Hann er nýkominn úr meðferð vegna of- neyslu á amfetamíni. Áður en Jón fór í meðferð hafði hann í tvö ár samfleytt neytt efnisins dagle^a — hann gat ekki án þess verið. „Innst inni vissi ég alltaf að þetta gæti ekki haldið svona áfram. En ég blekkti alltaf sjálfan mig, og alla í kringum mig. Ef ég fékk mér ekki í nös strax á morgnana var ég upp- stökkur, taugaveiklaður og hálf geðklofa af svefnleysi. Þess vegna var fyrsta hugsunin þegar maður vaknaði að fara inn á klósett og fá sér morgunskammtinn. Þá gjör- breyttist allt". Þó að Jón sé nú laus við amfeta- mínneysluna og þau vandamál sem hún olli honum verður það sama ekki sagt um marga félaga hans. „Margir þeirra eru enn verr staddir en ég var. Margir sprauta sig“. Neysla á sterkum fíkniefn- um, öðrum en áfengi og kannabis hefur farið hrað vaxandi hér á landi á allra síðustu árum. Mest virðist aukningin hafa verið á þessu ári og þá einkum í ólöglegum innflutningi og neyslu á amfetamíni, sem neyt- endur nefna „spítt". „Við höfum orðið mun meira var- ir við amfetamín á þessu ári heldur en í fyrra", segir Gísli Björnsson hjá fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykjavík. „í fyrra lögðum við hald á 73,6 grömm af amfetamíni en á þessu ári höfum við þegar náð um 400 grömmum. Það þarf ekki að vera, að neyslan hafi aukist jafn mikið og þessar tölur segja til um en það er ljóst að hún hefur aukist". Gísli segir að neysla á kókaíni hafi haldist nokkuð svipuð hér á landi síðustu árin, og að hún hafi að mestu fylgt sama mynstri og í Dan- mörku: „Kókaín náði fótfestu hér um svipað leyti og þar — svona fyrir 2—3 árum. I fyrra lögðum við hald á 7—8 grömm af kókaíni hér, og í ár er það aðeins meira". Gísli segir að kókaíns sé neytt í frekar þröngum hópi fólks sem hafi rúm fjárráð. Kókaín er dýrt. Eitt gramm af því kostar 6—8000 krónur hér. Gramm- ið af amfetamíni er hins vegar selt á 1500—3000 krónur. Kannabis er hins vegar mun ódýrara. Eitt gramm af hassi eða marihuana („grasi") er selt á 3—500 krónur. Nokkrir þeirra sem HP talaði við vegna þessara mála, vissu til þess að heróín hefði verið flutt til landsins oftar en einu sinni, en þó í litlum mæli. Heróín virðist ekki hafa náð neinni fótfestu hér á landi og í bækl- ingi um neyslu áfengis, tóbaks, fíkniefna og ávanalyfja sem Land- læknisembættið gaf út í fyrra, er fátt talið benda til þess, að öðru jöfnu, að heróínneysla verði verulegt vandamál hér á landi. Neysla annarra fíkniefna er hins vegar orðin verulegt vandamál. í bæklingi Landlæknisembættisins segir m.a. um tóbak og vímuefni al- mennt: „Þrátt fyrir það varnarstarf, sem nú þegar fer fram, bendir fátt til þess að varanlega dragi úr notkun þessara efna. Þarf áreiðanlega enn víðtækari aðgerðir, með nánu sam- starfi fjölmargra aðila, ef betri ár- angur S að nást". Flest ungmenni á Islandi nota fíkniefni. Áfengi er lang útbreiddasta vímu- efnið. Áfengisneysla hefur aukist hér á landi síðustu árin, og kannanir hafa leitt í ljós að tiltölu- lega fleiri unglingar neyta þess nú en áður. Þeir drekka líka oftar og meira í hvert skipti en áður var. Konur eru líka farnar að drekka meira en áður. Til dæmis má taka niðurstöður úr könnun sem var gerð 1980. Þá kom í ljós, að 73% 15 og 17 ára drengja drukku áfengi einu sinni í mánuði eða oftar. Sama hlutfall fyrir 15 og 17 ára stúlkur var 66%. Nú er talið að um 4—5% af heildarfjölda innlagðra sjúklinga hér á landi dvelji á meðferðarstofn- unum fyrir alkóhólista. En undanfarin ár hefur þeim sjúklingum á þessum stofnunum farið ört fjölgandi sem leita þangað vegna ofneyslu á öðrum vímugjöf- um en áfengi, einkum kannabis. „Af þeim sem koma á Silungapoll hafa um 10% neytt kannabisefna daglega í ár eða lengur", segir Þór- arinn Tyrfingsson, yfirlæknir á sjúkrastöð SÁÁ. „Ef fólk undir 35 ára aldri, sem kemur á Silungapoll, er skoðað sérstaklega kemur í ljós að 20% af því hafa notað kannabis vikulega í eitt ár eða lengur, og 30% af 20—30 ára fólki sem leitar sér meðferðar hjá okkur hafa reykt kannabis vikulega í eitt ár eða leng- ur. Það þýðir ekkert að vera sérfræð- ingur í áfengismálum ef maður veit svo ekkert um allt hitt, því að allt að 50% af fólki í meðferð hér neyta' annarra lyfja samhliða áfengi. Þetta eru valíum og mogadon t.d. og svo amfetamín. Það hefur orðið greini- leg aukning á amfetamínneyslu á þessu ári og það varð mikil sveifla í þessu í haust", segir Þórarinn. Þórarinn segir að þessa auknu amfetamínneyslu sé hægt að rekja til kannabisreykinga. „Þetta hangir saman eins og LSD-neyslan tengdist hassinu. Hassneytendur eru farnir að nota önnur ólögleg efni, einkum amfetamín, svona til hátíðabrigða um helgar. Þetta eru kannski dag- legir kannabisneytendur sem drekka líka um helgar, og fara þá að taka „spítt". Með amfetamíni geta þeir drukkið meira og þannig vefur þetta upp á sig hjá þeim". Um 10% þeirra sem koma á Silungapoll hafa notað amfetamín og þar af um helmingur einu sinni til þrisvar í mánuði. Aðeins lítill hluti þeirra hefur neytt amfetamíns einu sinni í viku eða oftar — fáir eru algjörlega háðir efninu, en þeir eru til. Af viðtölum við fíkniefnaneyt- endur, lækna og lögreglu má ráða, að hassneysla síðasta áratugar sé grundvöllur þeirrar vaxandi neyslu á sterkum lyfjum sem nú á sér stað. - Saga Jóns, sem þessi grein hófst á, er mjög í þessum anda: „Ég byrjaði 17—18 ára í hassi. Ég var byrjaður í brennivíni nokkrum árum áður. Fyrst fengum við okkur bara i pípu fyrir bíó og vissar aðrar athafnir en svo jókst þetta. Þegar ég var 19 ára var ég farinn að reykja á hverjum degi. Ég var „stoned" allan daginn — fékk mér alltaf í pípu fyrir hádegi. Ég reykti svona 7—10 grömm á viku í 10—11 ár. Ég er í byggingavinnu og mér leið illa í vinnunni. Mér fannst erfitt að vinna innan um fólk þegar ég var „stoned". Þetta var algjör sálarkvöl. Fyrir fimm árum byrjaði ég að kaupa mér „spítt". Fyrst var þetta til hátíðabrigða, t.d. á gamlárskvöld til að geta drukkið meira, en svo gramm og gramm mánaðarlega. Fyrir tveimur árum kynntist ég svo fólki sem alltaf átti í nös og var á „spítti" á hverjum einasta dejgi. Ég fór að sniffa daglega. Eg var orðinn þreyttur á langvarandi sinnuleysi og leti sem fylgdi hass- inu. Fyrst fann ég ekki fyrir því að sniffa daglega. Engin óþægindi. „Spíttið" hélt manni vakandi og ég var hress í vinnunni, til í hvað sem var. Ég gat unnið meira en áður. Ég þurfti líka á meiri peningum að halda því að ég þurfti tvö grömm á viku til að halda mér gangandi. Ég snú HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.