Helgarpósturinn - 03.12.1983, Side 15

Helgarpósturinn - 03.12.1983, Side 15
Helgarpóstsvidtalið: Þorsteinn Ö. Stephensen Þetta er alltsaman einn allsherjar flottræfiis- háttur. Nú leggur Guðrún Helgadóttir til að bankinn láti hætta vinnu við bygginguna. Kjallarinn á þessu sexhæða húsi getur vel gengið sem tónleikahús. Það er brot á lýðræði hvernig stjórnmálamenn taka sér vald til að gera allt sem þeim sýnist". Hinn almenni maður segir nei — Erþad ekkisvipad virdingarleysi við fólk- id í landinu aö byggja flugstöðvarferlíkiö aö því óspuröu? „Sú ákvörðun er tekin af kjörnum mönnum. Það er samskonar brot gagnvart fólki einsog aö fá ekki þjóðaratkvæði um hvort við eigum að vera i Nató. Þessi undansláttur íslenskra stjórnvalda gegn útlendu hervaldi og gegn alþjóðlegum hringum einsog Alúsviss finnst mér benda til þess að íslenskir stjórnmála- menn séu haldnir minnimáttarkennd gagn- vart útlendingum, í stað þess að koma fram af reisn, einsog þegar Islendingar neituðu Norð- mönnum um Grímsey og gerðu það af myndarskap". — Geta friðarsamtök listamanna komið því inní hausinn á okkur Islendingum að nú sé ekki seinna vœnna að biðja um heimsfrið? ,,Við vitum hvernig er með friðarsamtök hér. Fjöldi fólks virðist halda að hér sé á ferð- inni dulið samráð við Sovétríkin. Er ekki búið að heyja hverja styrjöldina af annarri og al- menningur búinn að láta draga sig einsog sauðfé útá vígvöllinn? Það er tími til kominn að hinn almenni maður segi nei. Þegar friðar- samtökin eru orðin nógu fjölmenn og öflug þá verður að taka upp nýjar aðferðir við fólk. Það verður ekki lengur hægt að skjóta það ef það neitar að fara í stríð. Það er afskaplega lang- vinnur prósess að fá fólk til að hugsa. Ég hef mjög lengi velt því fyrir mér hvernig á því standi að þessir hlutir geta endurtekið sig svona, tortúrinn og fjöldamorðin sem ófriði fylgja. Ég hef einkum á seinni árum hugsað mikið um þetta. En einsog gengur þá er maður einstefnumaður meðan maður er í starfi og hugsar bara um það. Fortakslaus sósíalismi er ekki farsæll á með- an ekki er tekið tillit til þeirrar kröfu í eðli manneskjunnar að hún hafi frjálsræði og frumkvæði að vissu marki. Annar meginþátt- ur í manneðlinu virðist vera græðgin og með- an hún fær óhindrað að njóta sín geta menn og hringar safnað auði. Til að ávaxta pening- ana gefst það best að búa til vopn, og það tákn- ar svo styrjöld þegar nóg þykir komið af þeim. Ef það tekur kynslóðir að breyta heiminum þá yrði að ala börn og unglinga upp í réttu hugar- fari, þar sem ýmsir eiginleikar okkar samtíð- ar, eins og sviksemi og refsháttur, yrðu ekki með. Og umfram allt þyrfti að byggja upp heil- brigt siðgæði. Ég á við, að það þarf að setja löggjöf við klækjum fólks í viðskiptum. Á nógu löngum tíma tækist að breyta, — hætta styrjöldum. Eina ráðið til þess er að fá aimenn- ing til að hugsa og skipta sér af hlutunum. Fyrsta sporið er að auka menntun og menn- ingu allra þjóða. Takmarkið er fjarlægt en mestu varðar að rétt sé stefnt, fara milliveg sósíalisma og kapítalisma". — Ertu ennþá sósíalisti, Þorsteinn? ,,Ég hef aldrei verið beinlínis sósíalisti. Ég hef sympatíserað með þeim af því sósíalismi er það sem næst kemst mínum skoðunum. Engin samtök eða bandalög eru til fyrir mig. Þó hef ég stutt þá framar öðrum. En ég á enga hönk uppí bakið á þeim og þeir ekki á mér“.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.