Helgarpósturinn - 08.12.1983, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 08.12.1983, Blaðsíða 12
Helgarpósturinn hjá leikhópnum fræga: Bukkad uppá hjá hér allskyns matjurtir og ávexti og það nægir öllum. Kostnaður er í lágmarki. Spes kokkar sjá um mat- reiðsluna". Það var sest að borð- um og boðið uppá kampavín og tertu og hvaðeina. Það stóð semsé sérstaklega á; saumakona hóps- ins, mamma Kimets, átti afmæli og glatt á hjalla. Magga talaði kat- alónsku uppá kráft einsog inn- fæddur. Hún sagðist nú hafa lifað í þessum draumi í tvö ár slétt; hefði fyrst komist í kynni við hóp- inn á listahátíðinni 1980 í Reykja- vík. Samlagast honum síðan ári síðar. Djöflar Hópurinn var nýkominn úr frækilegri Frakklandsför, þar sem hann tók þátt í alþjóða leikhús- festívalinu í Avignon og lagði und- ir sig Páfahöllina í gamla bænum við húrrahróp tíu þúsunda. Þau höfðu sett aðstandendum hátíðar- innar það skilyrði að allar þeirra uppákomur yrðu ókeypis og það varð úr. Aðfaranótt hins 7. ágúst sigldu djöflar á upplýstum báti eft- ir ánni Ródano. Þeir otuðu logandi kvíslum og orguðu í kapp við eld- spúandi dreka í helvísku tóna- flóði. Á árbakkanum biðu þeirra uppundir þrjú þúsund manns, sem síðan fylgdu á hæla þeim að Páfa- höllinni. Blys í öllum regnbogans litum lýstu leiðina að torginu framan við höllina þar sem söfn- uðust saman um tíu þúsund manns. Þar átti sér stað söguleg styrjöld með miklum eldglæring- um á milli hinna hvítu máttar- valda og árásarliðs djöflanna. Há- punkti var náð þegar einn djöfull- ínn kunngerói: „Avignon er okk- ar!“ Og svo var. Krítíkerar og leik- húsfólk hvaðanæva að hreifst uppúr skónum á þessari stundu. Els Comediants voru stærri punkt- ur yfir i festívalsins en nokkurn hafði grunað — og ekki má gleyma frönsku eldtæknunum Les Ephémers, sem aðstoðuðu. Hátíð var í bæ. í Canet de Mar Mér fannst ég vera staddur í Tinnabók eða einhverju álíka þeg- ar ég gægðist innum hliðgrindina hjá EIs Comediants undir lok ágústmánaðar. Við augum blasti dýrindis höll, ekki ósvipuð Myllu- setri: Villa Soledad. Ég ýtti á bjöllu og kom innúr löngum og háum trjágöngum í stóra og bjarta sali. Einn íbúanna, kallaður Kimet, heilsaði mér kumpánlega og tók þegar í stað að hrópa „Magga" út- um allar trissur, en ekkert svar. Hann útskýrði að einhver burgeis á átjándu öld hefði byggt þessa höll úr innvolsi þræla. Hún hefði síðan fylgt ættinni uns hún fór til fjandans í lok liðins árs og þau eignuðúst allt heila klabbið fyrir kúk á priki. „Ekki er það amalegt að fara til fjandans", hugsaði ég og gaut hornauga til kartöflugarðs- ins. „Við erum litin hornauga af bæjaryfirvöldum", sagði Kimet. „Þeim býður við að sjá okkur öll hér í einni kássu eins og mý á mykjuskán... og þeir stela frá okk- ur leikhúsinu í fleiri mánuði undir jólaglingurmarkað. Þetta er eina leikhúsið hér í Canet og við leigj- um það svo til viðstöðulaust á meðan yfirvöldin gjamma ekki“. Ekki hafði hann fyrr sleppt orð- inu en hvolpslegur hundur óð á móti okkur með írafári. Skildist mér að þar væri kominn bróðir tíkur er lét líf sitt með torkennileg- um hætti í vor sem leið. Sú tík þótti eftirminnilegur persónuleiki og yndi allra. Veisla Magga Árna stóð við símann. Allt í kring voru comediantar og sumir inní kompu að horfa á vídeó hópsins. Mér var boðið í mat og allir héldu til matskálans úti á túni. Sól skein í heiði en tæpast grillti í himin fyrir limmiklum og laufstór- um trjám. „Við fluttum hingað í maí síðastliðnum og það fylgdi 'garðyrkjumaður með í kaupun- um“, útskýrði Magga. „Við höfum (^unnars Nú cr kornin hljómplata mcö tónlist cftir Gunnar Thorodd- scn, fv. forsætisráðherra. Hljómplatan hcfur að geyma 14 lög í flutningi margra þckktra listamanna. Þcircru: Kristinn Sigmundsson, Sigríður Ella Magnúsdóttir, Einsöngvarakvartelt- inn, Karlakórinn Stcfnir, Dómkórinn, Gunnar Kvaran scllólcikari, Gísli Magn- ússon píanóleikari, Smári Ólason orgel- lcikari, o.fl. Auk þcss lcjkur Gunnar heit- inn sjálfur á píanó 7 stutt lög scm hann kynnir sjálfur á plötunni Á plötuumslagi scgir Ólafur Ragnarsson meðal annars: „Dr. Gunjnar Thoroddsen, fyrrverandi forsætisráðhcrra, kom mönnum oft á óvart á löngum ferli sínum á vcttvangi þjóðmála. Einn þáttur hæfilcika hans fór þó hljótt, cn cr nú kynntur alþjóð. Það cr tónlistargáfan. Viðfangscfni hans á tón- listarsviðinu voru nánast einkamál hans og fjölskyldunnar og stundirnar við píanóið aðallcga notaðar til þcss að öðlast hvíld frá erli dagsins. Rætt hafði vcrið við Gunnar um að gefin yrði út á vcgum Fálkans hljómplata mcð lögum hans. Skömmu fyrir andlát sitt hafði Gunnar í því skyni valið nokkur sýnishorn þeirra tónsmíða, scm hann hafði fengist við um árabil. Undirbúningur útgáfunnar var síðasta vcrkcfnið sem Gunnar vann að, og lagði hann sig allan fram við það vcrk eins og annað scm hann fékkst við um dagana. Hann færði lögin úr huga scr yfir á nótnablöð, vann mcö útsetjurum, valdi flytjcndur og ræddi við þá um túlkun laganna. Gunnar lifði það ekki að sjá þctta verkefni sitt komast í höfn, og cr hljómplatan nú gefin út í minningu hans ...” FÁLKIN N* Suðurlandsbraut 8, Laugavegi 24, Austurveri. nI2 helgarpösturinn

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.