Helgarpósturinn - 08.12.1983, Blaðsíða 13
ALLAR NÝJU
BÆKURNAR
og yfir
4000 aðrir
bókatitlar
MARKAÐSHÚS
BÓKHLÖÐ UNNAR
Laugavegi 39 Sími 16180
OPIÐ ÖLL KVÖLI) TIL KL. 8.
SENDUM í PÓSTKRÖFU UM
ALLT LAND
V-------------X
Hátíöir
Nú eru liðin 12 ár síðan Els Com-
ediants stigu sín fyrstu skref „á
fjölunum". Fyrsta sýning þeirra,
„Non pius plis“, vakti miklar deil-
ur í hinum litla leikhúsheimi
Barcelona. Þau þóttu lítt atvinnu-
mannsleg og kærulaus um drama-
tíska framvindu. Pau voru tilræði
við akademíurnar. Samband við
áhorfendur hefur alltaf skipt þau
miklu og þar kemur til áhugi
þeirra á hinni gömlu katalónsku
götuhátíðahefð. Þessar hátíðir,
bornar uppi af risum, eldspúandi
drekum, flennistórum grímum og
músík, eiga sér reyndar stað um
mestallan Spán en eiga þó hvergi
dýpri rætur en í Katalóníu. Þær
voru grundvöllur fyrir samein-
ingu bæjarbúa og svo hættulegar
„lýðræði" Francos að hann setti á
þær bann. Els Comediants tóku
þessa hátíðahefð uppá sína arma
þegar hún átti yfir höfði sér að
heyra sögunni til, og umbreyttu í
leikhús og það kom í ljós að há-
tíðastemmningin leyndi á sér.
Draumur
götunnar
Magga sagði mér frá ævintýrum
þeirra á Italíu í vetur þar sem þau
komu fram í einum hluta sjón-
varpsmyndar um Don Kíkóta —
þetta var einskonar barokk-Kíkóti
sem kom til Barcelona og upp-
götvaði Miðjarðarhafið. Þessi
þáttaröð var undirstjórn Maurizio
Scaparro, sem hefur m.a. verið
stjórnandi biennals Feneyja. Tök-
ur fóru fram í Róm. Eitt sinn þurfti
að nota þrjátíuogeitthvað statista í
götuatriði. Þetta voru allt óupp-
götvaðir leikarar sem voru á skrá
hjá kvikmyndaverinu — svo loks
þegar tækifærið kom reyndu þeir
allir að líta út einsog Elizabeth
Taylor og troðast að ljósopinu.
I desember síðastliðnum frum-
sýndu Els Comediants sína fyrstu
kvikmynd, „Somni d’un carrer"
(Draumur götunnar), á heimavíg-
stöðvum í Canet, í Barcelona og í
smábænum Tárrega þar sem
myndin var tekin. Hún var gerð í
samvinnu við leikstjórann Joan
Martí og er að öllu leyti hliðstæð
götuuppákomum hópsins —
greinir frá leikhópi sem kemur í
bæinn til að sýna á aðalhátíðinni.
íbúar staðarins reynast þá vera
risahöfðar, „capgrossos”, og ein-
ungis meðlimir leikhópsins sýna
sitt rétta andlit. Myndin er aðeins
35 mínútna löng og er til í enn
styttri útgáfum sem hafa verið
sýndar víða í kvikmyhdahúsum á
undan lengri myndum. Eftir öllum
sólarmerkjum að dæma verður
hún sýnd á næstunni i íslenska
sjónvarpinu og geta af sér organdi
djöfla og baðstrandargesti í öldur
ljósvakans...
Andardráttur
Þau hafa aldeilis ekki setið auð-
um höndum: Nú eru komnar út
bæði bók og hljómplata innblásn-
ar af sýningunni „Sol solet”, sem
íslendingar fengu að kynnast fyrir
þremur árum. Ekki er um endur-
tekningu að ræða, heldur aðeins
spunnið út frá sama tema — leit-
inni að sólinni. Nú eru þau á kafi.í
nýju verkefni sem þau kalla
„ALÉ“ (Andardráttur) og vilja
meina að sé í beinu framhaldi af
„Sol solet”. Rauður þráður er
„maðurinn” í öllum sínum breyti-
leika og öllum sínum dyntum, ó-
háður hverskyns þjóðfélagslegri
hlutdrægni eða áróðri. Ólíkt fyrri
sýningum er þessi í upphafi af-
mörkuð við tiltekna stærð, gengið
út frá tilteknum punkti, og hann
síðan víkkaður útí hið ókunna.
Hin týndu verðmæti eru dregin
fram í dagsljósið í þessu „kómíska
drama mannlegrar nærmyndar”.
Það er spurning um tilfinningu, að
sýna lífslöngun „á tímum þegar
allir tala um kreppu, stríð, dauða,
ótta, eyðileggingu...” Það stendur
til að frumflytja verkið í smábæn-
um Cretil í grennd við París í jan-
úar næstkomandi, þar sem grúpp-
ur einsog Odin Teatret og Grand
Magic Circus hafa brillerað. Síðan
verður haldið í Evróputúr. 1984
verður feitt ár hjá Els Comediants
því auk þeysireiðarinnar með
„Andardrátt” hefur Jreim verið
boðið að taka þátt í Olympíuleik-
unum í Los Angeles. Ekki það að
þau séu svo góð í hástökki eða
kringlukasti, heldur á víst að taka
upp þá nýbreytni á þessum Ól-
ympíuleikum að keppa í kúltúr-
stökki og kúltúrkasti (flest er nú
hægt í Ameríku!).
Höllin
Gamli íverustaður hópsins er
steinsnar frá höllinni, í calle
Ample, og er nú einskonar redd-
ingamiðstöð, skrifstofa... einnig
búa þar ýmsir viðloðandi hópinn.
Ég gisti um nóttina uppi á lofti. í
stigaganginum héngu fornfáleg
trúarleg málverk, sjálfsagt veidd á
hinum gríðarlega flóamarkaði á
Glorias í Barcelona. Daginn eftir
var ég einmitt leiddur í allan sann-,
leika um ágæti Glorias, því þar
hafði komið í net Els Comediants
mörg gersemin; ótölulegur fjöldi
búninga og klæða á svo til engum
prís. Undir búningageymslunni
var verið að dytta að einu dreka-
höfði og einum „capgrosso".
Magga tók mig í útsýnistúr um alla
eignina; við litum yfir kartöflu-
garðinn og það glitti í hafið. Þarna
var jafnvel sundlaug sem var
reyndar engin sundlaug, heldur
uppistöðulón með hárri hrísgirð-
ingu og tveimur litlum drengjum.
Höllin ómaði öll af óperusöng og
píanóspili — Quim var að æfa sig
og ég smellti af honum mynd.
Magga sýndi mér í hvern krók og
kima í Villa Soledad. Það hefur
sjálfsagt verið keppikefli hvers
þræls að verða sement slíkrar
byggingar.
Olafur Engilbertsson
Barcelona
;
SIUND
eZZZ
i Kvosinni býöur þér fleira en
góöan mat og Ijúfar veigar. Glæsi-
legar og sérstakar innréttingar eiga
stóran þátt í aö endurvekja rómantískt and-
rúmsloft aldamótaáranna. Fyrir borðhald gefst tóm
til að setjast viö Rosenberg barinn og hafa það notalegt.
Valinkunnir tónlistar- menn tryggja enn frekar ánægjulegt
kvöld með Ijúfri tónlist. - Kvöldstundin verður ógleymanleg.
Austurstræti 22 (Inn stræti)
Upplýsingar og pantanir i síma 11340
Auglýsingasími
Helgarpóstsins er 81511
HELGARPÓSTURINN 13