Helgarpósturinn - 08.12.1983, Page 14

Helgarpósturinn - 08.12.1983, Page 14
Illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll GRÁSÍÐA * Eg er það sem ég á EÐA ég er það sem ég tók frá öðrum Líf og land, hin alkunnu silki- munna-samtök héldu silki- tungnaþing á Hótel Borg. Fjöl- margar silkitungur tóku þar til máls og þær fjölluðu allar með silkimjúkum orðum um kreppu. Við sem heima sátum yfir krökk- um heyrðum bara um ráðstefn- una í fjörmiklum fréttaauka. Vitnað var í þrjár helstu silki- tungurnar; sjáifan silkiorminn í Seðlabankanum og einhverja tvo aðra sem spunnu þráðinn. Annar var víst prestur, hinn sál- fræðingur. Auðvitað voru orð þeirra nógu meinlaus og mark- lítil til þess að silkiþulan gæti sagt frá þeim í hinu mikla Mezzoforte-útvarpi landsmanna. Sálfræðingurinn deildi á eignarréttinn á hóflega mein- lausan hátt og fór auðvitað með bull. Það er einkennandi fyrir nýgagnrýnina að deila mildum, næstum hjálpræðishersorðum á efnishyggjuna. Orð hennar vekja sama og snerting við hlýjan, þvalan lófa. Og hún er ævinlega sambland af vinstriværð, guð- fræðianda, kaffiboðum og köku- áti, og einhverri ógurlegri mærð sem grípur okkur Islendinga ef við ætlum að vera góðir, sem er hliðstæða þess að við verðum væmnir ætlum við að vera skáldlegir, andlegir eða listrænir. Verst er sálarvellan úr hinum ís- lenska viðriniskarlmanni þegar hann ætlar að sýna skilning, einkum konum. Það sem sálfræðingurinn virð- ist ekki skilja er að maðurinn hefur ævinlega verið það sem hann á. Ef hann er ekki það sem hann ú þá er hann sér- kennalaus, nafnlaus, allslaus. Verr settur en hvolpurinn. Ég á mitt vit og ekkert annað, og ég er vit mitt. Mér er frjálst að beita eign minni og öðrum frjálst að beita sinni gegn minni. Ef fátækur maður eignast hatt með erfiði handa sinna, þá vex hann ekki aðeins í augum sjálfs sín þegar hann setur upp hatt- inn, heldur líka í augum félaga sinna. Þeir stefna allir að því að eignast eins hatt og vaxa jafn mikið í áliti heimsins og maður- inn sem keypti hattinn. Að vera það sem maður á er heilbrigt og engin framvinda væri í heimi huga og handa ef eignin ýtti manninum ekki fram á við. Það er ekkert syndsam- legt við það að eiga, sé heiðar- lega fengið. Hugsuðir verða að geta gert greinarmun á: „Ég er það sem ég á“ og „Ég er það sem ég á og hef tekið frá öðrum". Sálfræð- ingurinn virðist hins vegar ekki hafa verið fær um slíkt. Hann vildi vera svo „góður og mikið á móti eignarréttinum", einmitt í samkundu silkitungnanna, sem eru leynt eða ljóst að mestu leyti afkvæmi eða eigendur eigna annarra. Og af því hafa þeir vaxið til virðingar. Menn mega ekki vera svo góðir að þeir missi vitið og dómgreindina. Nú er það alkunna að minni- háttar hugsuðir á 19. öldinni litu á eignarréttinn sem glæp. Eink- um voru stjórnleysingjar og marxistar seigir við að naga það leður. Marxistum gekk þó heldur betur að skilgreina eðli eignar- réttarins og eignarinnar, því hafa þeir örlítið gert sér grein fyrir að maður sem á ekkert, öreiginn, er um leið ekki neitt. Ef ríkið tekur eignina frá mann- inum, tekur það frá honum þá frjósömu hæfileika að geta séð sig í hlut sem hann hefur eignast af eigin rammleik: það að vera í senn maður sjálfur og hluturinn sem hann skapaði. Við slíkt vex sjálfsvitundin og vitundin um hinn ytri heim. Ást foreldra og barna er byggð á þessu: barnið veit að það á foreldra og foreldr- arnir vita að þeir eiga börn. Skyldan vex við þetta, tilfinning- in fyrir öðrum. Það er mikilfeng- leiki mannsins. Því miður hafa marxistar oft lítið vit á þessu. Og nútíma upp- eldishættir eru þannig að enginn veit hver á. Börn vita ekkert um foreldra sína. Foreldrarnir ekkert um börnin. Margar „menntaðar" konur vilja ekki að börn þeirra viti hver á þau: meyfædd börn án föður. Amóta flónska kemur fram hjá Marx eða þekkingarleysi, þegar hann ræðir um það í Kommún- istaávarpinu að til að losna við þjóðernisrembing sé best að ala börn upp í ýmsum löndum, á „alþjóðlegan hátt". Vissulega vissi Marx lítið um sálarlíf. Engels var miklu mann- legri. Nútímalíf hefur afsannað kenningar Marx um alþjóða- hyggju sprottna af „alþjóðlegu uppeldi"; börn hinna svo nefndu heimsborgara verða ekki alþjóð- leg, heldur er raunin sú að þau verða geðveik. Þau eiga ekkert, nema kannski alþjóðlegan munnvaðal. Höfuðókostur neyslusamfélags auðvaldsins og markaðshyggj- unnar er sá að markaðskerfið ann manninum ekki friðar til að vera það sem hann á, vegna þess að hann þarf endalaust að vera að eignast. Þetta tvennt er gjörólíkt. Þeir sem eru að bögglast við að hugsa hérlendis mega ekki beita hugsun sinni þannig að hún komi við engin kaun en kitli þá hræsni sem býr í okkur öll- um. Og einhver versta tegund af viti er sú sem vefur væmni um sig svo hún nái til silkieyrnanna á „hinu siðaða hægra-fólki". Samt er það heldur skárra en hinn hugvillti dólgamarxisti í nýfrjálshyggjubúningi, Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Kjaft- æði hans minnir á kommakjaft- æðið meðan það var uppi á sitt besta hjá þjóðinni á Þórsgötu eitt, eins og Mogginn kallaði „gáfumennina", þá sem vissu allt á himni og jörð. Verst af öllu er þó alþýða sem enginn leiðir og kann ekki sjálf fótum sínum forráð en vafrar um: með fótunum, með hugsun sinni, sjón og eyrum, í Dægur- landi. MATKRÁKAN Fastið, ó þér „plastfólk í pelli og fjöðrum“ eftir Jóhönnu Sveinsdóttur í þessu samfélagi ofáts og hreyfingarleysis bjóðast mönnum ýmsar leiðir til að bæta fyr- ir sjálfsvanræksluna eða eigum við kannski bara að segja sjáifseyðilegginguna: syntu úr þér streituna og gjöreyddu fílapenslunum í Biáalóninu; teygðu tól og fáðu forskrift að matarkúrum í heilsuræktarstöðvunum og truntusólaðu á þig brúnku í leiðinni: stund- aðu innhverfa íhugun eða „sjálfsstyrkingu" undir leiðsögn sérfræðinga sem eru vanda þínum vaxnir. — En öll þessi „meðul" við of- neyslu og streitu kosta sjúklinginn peninga sem vaxa satt að segja ekki á nöktum trjá- greinum þessa kreppuvetrar. Þar að auki af- salarðu þér sjálfsákvörðunarréttinum, felur þig öðrum á vald. Hvers vegna nú ekki að taka í hnakkadrambið á sjálfum sér, endur- nýja líkama og sál alveg ókeypis með því einfaldlega áð fasta? Fasta skv. Biblíuforskrift Fasta er fastur liður í öllum helstu trúar- brögðum heims; í Biblíunni og Koraninum kemur fram að fólk fastaði forðum tíð í ýms- um tilgangi: til að „hreinsa sig“ innvortis og verða þar með Guði þóknanlegra; til að öðl- ast meiri sálarstyrk og þar með trúarþrek; og síðast en ekki síst í lækningaskyni. Þann- ig fastaði Móse í 40 daga og 40 nætur meðan hann dvaldist með Drottni við að skrifa á töflurnar orð sáttmálans, boðorðin tíu; enda er gott að fasta áður en eða meðan fengist er við andleg þrekvirki. Og Jesús fastaði jafn- lengi úti í óbyggðinni þar sem djöfullinn freistaði hans: Þá var Jesús leiddur af andanum út í ó- byggðina, til þess að hans yrði freistað af djöflinum; og er hann hafði fastað í fjörutíu daga og fjörutíu nætur, tók hann loks að hungra. Og freistarinn kom og sagði við hann: Ef þú ert Guðs sonur, þá bjóð þú, að steinar þessir verði að brauðum. En hann svaraði og sagði: Ritað er: Maðurinn lifir ekki á brauði einu saman, heldur á sérhverju orði, sem fram gengur af Guös munni. (Matt., 4. kapítuli) Það var einmitt eftir þessa löngu föstu að Jesús tók að predika fagnaðarboðskapinn og lækna tunglsjúka menn og lama, endur- nærður og frjór eftir úthreinsunina og haf- andi fengið gott næði til að hugsa. Einmitt þá mælti hann í frægri ræðu á Jórdanbökkum orð sem tunglsjúkir ráðamenn í dag ættu að rifja upp fyrir sér áður en það verður um seinan: „Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs synir kallaðir verða.“ (Matt., 5, 9) Þessa dagana stendur svo yfir svokölluð jólafasta, því hér áður fyrr föstuðu margir síðustu vikurnar fyrir fæðingarhátíð Jesú til að hafa nægilegt hjartarými til að meðtaka boðskap jólanna. En nú er það ekki Kristur sem almennt ríður inn í mannleg hjörtu um jólaleytið heldur Mammon eða eins og segir í einum texta dönsku hljómsveitarinnar Shu-bi-dua: „Jesus blev födt pá anden sai í Magasin du Nord.“ Og Nína Björk Árnadóttir lýsir þessari breytingu svo í bók sinni Svartur hestur í myrkrinu (82) í ljóð- inu Jólafastan þín: Gluggar þar sem ljósormarnir hlykkjast milli plastfólks í pelli og fjöðrum gluggar sem ýta eitursemdum í hug þér á jólaföstu svona er jólafastan þín þó svo þú leitir að jötunni barninu — barninu hlykkjast ljósormar lykjast ljósormar um þig og gluggana En nóg af siðaboðskap í bili. Hér á eftir verður komið á framfæri upplýsingum um föstu fyrir þá sem vilja endurnýja sig öðru hvoru megin við jólin, byrja nýja árið tíefld- ir! Hvers vegna er gott að fasta? Aðtrúarástæðum slepptum er gott að fasta til að hreinsa líkamann, brenna t.a.m. dauð- ar frumur og fitubirgðir sem safnast þar fyrir og hann nær ekki að losa sig við á eðlilegan hátt, ef fæðan inniheldur of mikið af fitu og eggjahvítuefnum (sem hún gerir miðað við algengustu neysluvenjur hér um slóðir). Streita og hreyfingarleysi auka jafnframt á þessa vafasömu „birgðasöfnun" líkamans. Fasta hefur áhrif bæði á líkama og sál. Eftir því sem líður á föstuna verður fólk æ spræk- ara og andríkara og eftir svo sem viku er það sem endurnýjað. Svokölluð nekrohormón sem koma úr dauðu frumunum stuðla nefni- lega að myndun nýrra fruma, þannig að lík- aminn „yngist upp“ í bókstaflegum skiln- ingi. Þetta ferli hefur í för með sér að líkam- inn getur jafnframt læknað sjálfkrafa marga „króníska" sjúkdóma, s.s. gigt, hjarta- og æðasjúkdóma, ákveðna nýrnasjúkdóma, of- fitu, illskýranlegt þreytuástand, höfuðverk, • ofnæmi og vissa maga- og þarmakvilla. Hvenœr og hvar er gott að fasta? Þegar lífsorkan virðist í lágmarki, þegar menn sýnast „dauðir úr öllum æðum," sljóir og óeðlilega þreyttir, getur fasta gert krafta- verk. — En aðstæðurnar skipta miklu máli einkum þegar fastað er í fyrsta skipti. Menn verða að geta tekið lífinu tiltölulega rólega, treyst sér til að skrúfa fyrir hversdagsrifrildi, fjármálaáhyggjur og tilfinningakrísur. Til að auka sálarstyrkinn og úthaldið er t.d. mjög gott að sambýlisfólk eða vinnufélagar fasti saman. Og næg útivera og hreyfing skipta miklu máli! Hvernig á að fasta? Menn missa um hálft kíló á dag meðan á föstu stendur, en þau kíló koma bráðlega aft- ur ef menn breyta ekki lífsvenjum sínum og mataræði talsvert að föstu lokinni. Meðan á föstunni stendur „borða" menn ýmsa drykki með skeið og tyggja rétt eins og venjulega, svo að munnvatn myndist. Það má alls ekki innbyrða neina fasta fæðu, ekki einu sinni grænmeti. Best er að „borða" hvers kyns ó- sæta ávaxta- og grænmetissafa, jurtate og ó- saltan súpukraft, og svo náttúrlega vatn. Alla drykki skal innbyrða líkamsheita og menn þurfa að fá a.m.k. 2 V* 1 af vökva á dag. Áhrifaríkast er að fasta í a.m.k. 8-10 daga í fyrsta skiptið, gjarnan í hálfan mánuð. En þeir sem hafa reynt þetta áður geta flestir haldið út 20-25 daga föstu án óþæginda. Þegar þú hefur ákveðið að byrja föstuna tiltekinn dag er rétt að undirbúa líkamann með léttu mataræði vikuna á undan,.t.a.m. með því að drekka eitthvað þarmaörvandi í rauðabítið, s.s. kamillute, sítrónuvatn eða sveskjusafa; súrmjólk með musli og ferskur ávöxtur er heppilegt til morgunverðar, hrá- salat án dýrafitu til hádegisverðar og t.d. grófur grautur í kvöldmatinn; ávextir eða jurtate milli mála. Uppástunga að föstumatseðli Byrjaðu ævinlega á því að „koma magan- um í gang" t.d. með sveskjusafa eða kröft- ugu jurtatei. KI 8.00 Morgunverdur: 2-3 dl af ávaxta- eða grænmetissafa þynnt með jafnmiklu vatni, hvorutveggja líkamsheitt. Kl. 10.00 Millimál: 2-4 dl jurtate bragð- bætt með hunangslús. Kl. 12.00 Hádegisverður: 2-3 dl ávaxta- eða grænmetissafi þynnt með vatni eins og morgunverðurinn. Um að gera að prófa sem flestar tegundir til að skapa fjölbreytni, s.s. gulrætur, tómata, gúrkur, appelsínur og epli. Kl. 14.00 og 16.00 Millimál: eins og að ofan segir. Kl. 18.00 Kvöldverður: 4-5 d'l grænmet- iskraftur, ósaltur, keyptur eða heimátilbú- inn. T.d. má fá góðan kraft með því að sjóða saman kartöflur, gulrætur, steinselju og e.t.v. sellerí, lauk og kryddjurtir í ríkulegu vatni í 2-3 tíma, sía kraftinn svo frá og borða volgt, e.t.v. bragðbætt með ögn af sojasósu, t.d. Tamari. Kl. 21.00 Kvöldte: 2-4 dl af mildu, róandi jurtatei, t.d. af kamómillu eða melissu. P.S. Ráðrúmsins vegna verð ég því miður að slá botninn í þessa föstukynningu, e.t.v. fjalla ég um unaðssemdir hennar seinna. En hafi þessi orð vakið áhuga einhverra, ættu þeir hinir sömu endilega að ræða þessi mál við einhvern sem til þekkir, s.s. heimilis- lækninn, eða verða sér úti um hentugt iestr- arefni, t.d. í NLF-búðinni. 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.