Helgarpósturinn - 08.12.1983, Qupperneq 15
YFIRHEYRSLA
nafn Magdalena Björgvinsdóttir Schram fædd 11.8.1948. heimili: Sörlaskjól 92, Reykjavík. bíll
Renault 4 árg. ’76.staða: Blaðafulltrúi Jafnréttisráðs, kennari og húsmóðir. heimilishagir í sambýli
með Herði Erlingssyni, 2 dætur og 1 á leiðinni. áhugamál Heimilisfólkið aö Sörlaskjóli 92.
o .
Jafnréttisráð er kvennaráð
efttr Sigmund Erni Rúnarsson myndir Jim Smart
Jafnréttismálin eru alltaf í deiglunni — og hverfa þaðan varla í bráðina þar sem ekki sér
fyrir endann á því misrétti sem ríkt hefur milli karla og kvenna. Janfréttisráð er einn þeirra
aðila sem á að sjá um það að karlmenn gangi ekki á hag kvenna og reyndar öfugt líka. Fiestir
vita af tilveru þessa ráðs, en þeir eru faerri sem gera sér grein fyrir valdsviði þess, áhrifum
og því sem það hefur fengið áorkað. Sumir úr þessum hópi vilja reyndar halda því fram að
Jafnréttisráði haft ekkert orðið ágengt, enda séu völd þess og áhrif hverfandi lítil. Og til eru
þeir sem hundsa algjörlega ályktanir þess og telja þær vafasamar skoðanir, byggðar á kenn-
ingum fámennrar kvenfrelsiselítu. Magdalena Schram blaðafulltrúi Jafnréttisráðs og kven-
réttindakona af lífi og sál, er í yfirheyrslu um þessi mál.
Er Jafnréttisráð ekki bara valdalaust
apparat sem adeins gufar í málum að
nafninu til?
„Það er alls ekki valdalaust. Það beitir sín-
um áhrifum og hefur úrskurðarvald í þeim
málum sem berast inn á borð þess. Því er
samt ekki að leyna að ráðið er gert valda- og
áhrifaminna en það ætti að vera samkvæmt
lögum, með skertum fjárveitingum og starfs-
mannahallæri í -kjölfar þess. Fjárveitinga-
valdinu er þannig í lófa lágið að gera ráðið
að aigjörlega máttlausri stofnun."
Og ekki er miklum peningum til að
dreifa hjá þvi opinbera í dag. Er þetta
því ekki dálítið máttlaus kóntórismi hjá
ykkur, eda hvada meiriháttar ákvarð-
anir eðá stefnubreytingar eru á ykkar
hendi?
„Sjáðu til, samkvæmt lögum á Jafnréttis-
ráð að annast framkvæmd jafnréttislag-
anna. Hvernig það tekst til, fer alveg eftir því
hvernig að ráðinu er búið. Hvað svo sem því
líður, miðar allt starf þess að því að uppfylla
þessar lagaskyldur, og ég geri því ráð fyrir
að það fari alveg eftir áliti fólks á sjálfum
jafnréttislögunum hvaða nöfnum það kýs að
nefna þessi störf okkar."
En er eitthvert mark tekið á áliti ráðs-
ins, þó svo það hafi haganlega orðaðan
lagabálk á bak við sig. Er það ekki bara
hundsað þó svo upp komi veigamikil
vafaatriði í jafnréttismálunum?
„Það er vissulega mjög misjafnt hvernig
menn taka áliti ráðsins eða úrskurðum þess,
og líka hvort þeir taka eitthvert tillit til
þeirra. Tilfellið er líka að margir hika við að
kæra til ráðsins, þora þaö ekki og liggja til
þess margar ástæður. Meðal annars sú að
sumir vita varla af tilveru þess eða verksviði.
Því er við að bæta að ráðinu er ætlað að
vera ráðgefandi gagnvart stjórnvöldum og
fleiri aðilum í kjaramálum svo dæmi sé tek-
ið, en þessir aðiiar nýta sér hinsvegar ráð-
gjöf þess allt of lítið og sjaldan. Svo eru ef-
laust þeir til sem hundsa okkar álit einfald-
lega vegna þess að þeir vilja ekkert jafnrétti.
Við þessu er lítið annað að gera en efla starf-
semi ráðsins út á við, til dæmis með aukinni
fjárveitingu."
Er Jafnréttisráð karla- eða kvennaráð,
þ.e.a.s. hvernig er það skipað meö tilliti
til kynja?
„Ráðið er skipað fimm mönnum, þar af
fjórum konum. Þetta eru aðilar frá ASÍ, VSÍ
BSRB, Hæstarétti og einn er skipaður af fé-
lagsmálaráðuneytinu."
Kvenmenn sem sagt í miklum meiri-
hluta. Og í ofanálag eru allir starfsmenn
á skrifstofu ráðsins kvenkyns. Skýtur
þetta ekki nokkuð skökku við nafngift
ráðsins?
„Kynjaskiptingin í Jafnréttisráði er algjör-
lega undir þeim komin sem skipa fulltrúa í
ráðið, þ.e.a.s. ofangreindum aðilum. Per-
sónulega finnst mér það hvorki undariegt né
óeðlilegt að konur séu hér í meirihluta
vegna þess einfaldlega að konur hafa meiri
áhuga á að sinna þessum málum en karl-
menn hafa sýnt hingað til. Enda er hagur
kvennanna sjálfra í húfi!“
Jafnréttisráð er þá kvennaráð?
„Já, finnst þér ekki ánægjulegt að það
skuli vera til ein stofnun á vegum ríkisins
sem konur ráða?!"
Er þá ekkert fjallað um karlamál í
Jafnréttisráði, hafa til dæmis engar
kærur borist ykkur frá karlmönnum
sem telja sig vera misrétti beittir vegna
síns kyns?
„Það hafa komið hingað kærur frá karl-
mönnum og það hefur reyndar aukist upp á
síðkastið. Hinsvegar hefur ráðið komist að
þeim niðurstöðum í öllum þessum tilvikum
að meint misrétti hefur ekki verið kynbund-
ið, heldur hefur það þá stafað af einhverju
öðru. Ráðið hefur ekki enn fundið misrétti
sem karlmenn hafa mátt þola vegna þess
eins að þeir eru karlmenn."
Þannig að ef marka má störf ráðsins
þá finnst ekki sá karlmaður sem hefur
mátt líða fyrir kyn sitt. En getur ekki
verið að kynjamisrétti sem karlmenn
eru hugsanlega beittir leyni meira á sér
en það sem kvenmenn mega þota? Ég á
til dæmis við tilfinningalegt misrétti.
„Ég hef aldrei orðið vör við það að karl-
mönnum væri mismunað venga kynferðis
síns, nema síður væri. Og telji þeir sjálfir að
svo sé, hafa þeir einfaldlega allt í hendi sér
tii að kippa því í lag. Þeirra eru völdin.
En fyrst þú ert að tala um tilfinningalegt
kynjamisrétti — og nú er ég farin að svara
sem kvenfrelsiskona en ekki málsvari Jafn-
réttisráðs — þá hugsa ég að kvennahreyfing-
in hafi einmitt orðið til þess að opna augu
karlmanna fyrir því misrétti sem þar ríkir að
vissu marki. Hreyfingin hefur gert karlmenn
æ meðvitaðri um að hin hefðbundna karl-
ímynd þarf ekki endilega að vera rétt eða
æskileg. Þannig hafa karlmenn líka notið
góðs af starfi kvennahreyfingarinnar, ekki
síður en konur, og fyrir það mega þeir vera
þakklátir. Að minnsta kosti sumir þeirra."
Þú nefnir kvennahreyfinguna. Við
skulum víkja aö henni frá Jafnréttisrádi.
Sumum — jafnt körlum sem konum —
sýnist vera kominn upp ákveðinn hópur
kvenna í þjóðfélaginu sem telur sig sjálf-
valinn til að vera málsvari allra kvenna
I landinu, án þess þó að nokkur hafi val-
ið þær til þess hlutverks. Hvaö viltu
segja um þessa gagnrýni á ykkur kven-
réttindakonur?
„Ég veit ekki almennilega hvað þessir
gagnrýnendur eiga við með þessum mein-
ingum sínum. Konur sem taka sig saman,
hvort sem þær stofna samtök eða smærri
hópa, gera það vegna þess að einhver sam-
eiginleg baráttumál reka þær til þess,! okkar
tilviki kvenfrelsisbaráttan. Við, sem störfum
í kvennahreyfingunni hljótum að vita það
best sjálfar hvort orð okkar og athafnir fá
hljómgrunn og hvort þeir hlutir njóta al-
menningshylli, rétt eins og forsvarsmenn
stjórnmálaflokka vita það best sjálfir hvort
þeirra markmið eiga einhvern stuðning.
Annars erum við vanar gagnrýni af þessu
tagi. Það virðist vera og hafa verið fastur lið-
ur í jafnréttisbaráttu kvenna allt frá upphafi
að stimpla þær á einn eða annan hátt, og ég
held að þetta sem þú nefndir í spurningunni,
sé sá stimpil! sem hvað vinsælastur er í
augnablikinu."
Engu að síður sjá menn fyrir sér nokk-
urn hóp kvenna sem telur sig vera og
hegðar sér eins og hann sé málsvari
allra kvenna í landinu. Er þetta ekki
kvennaelítan sem vill ráða öllu um þær
leiðir sem kynsysturnar eiga og fara til
bættrar stöðu í þjóðfélaginu?
,;Sjá hvaða menn? spyr ég nú.
Eg vil algjörlega neita þvi að það sé komin
upp einhver elíta i kvenfrelsismálum þjóðar-
innar. Sá hópur sem starfar að útrýmingu
kynjamisréttisins er ákaflega breiður, virkur
og stór hópur. Það hefur ekki verið kosið í
neinar valdastöður, þvert á móti er hreyfing-
in — og allir hópar innan hennar — skipu-
lögð þannig að það getur ekki komið upp
nein valdaklíka innan hennar sem hefur öll
tromp á hendi. í reyndinni er kvennahreyf-
ingin brautryðjandi í láréttu skipulagi sem er
í eðli sínu svo lýðræðislegt að mörgum reyn-
ist erfitt að skiija hvað i því felst!"
Telurðu að þessi nokkur hundruð
manna hópur virkra kvenréttinda-
kvenna gefi rétta mynd af skoðunum
hinnar hefðbundnu húsmóður í land-
inu?
Nei, nei, það er ekkert á hreinu. Kvenna-
hreyfingin sver sig náttúrlega í ætt við aðra
pólitíska hópa í landinu, að því leyti að
markmið hennar eða baráttuleiðir þurfa
ekkert endilega að vera rétt. Hún starfar
fyrst og fremst af sinni sannfæringu, eins og
aðrir baráttuhópar gera. Og það verður ald-
rei dæmt um sannfæringu manna, hvort hún
sé rétt eða röng."
Þannig að það er allt eins til stór hópur
kvenna sem vill status quo?
„Ég á nú óskaplega erfitt með að ímynda
mér það. En það er auðvitað mjög misjafnt
hversu virkt fólk er og hversu mikið misrétti
kynjanna brennur á því. Og einnig er að
sjálfsögðu mjög misjafnt hvað fólk hefur
mikinn tíma og aðstöðu til að gefa sig að fé-
lagsmálum. Það að kona er ekki virk eða á-
berandi kvenréttindakona, þarf því ekki að
benda tii þess að hún sé ánægð með stöðu
kvenna í þjóðfélaginu..."
Þar meö er hún vansæl með sitt hlut-
skipti, eða hvað?
„Neinei, sjáðu til. Meðvitund um stöðu
kvenna og hamingjusamt hlutskipti í lífinu
getur aiveg farið saman. Mér finnst það
reyndar mjög broslegt hvað margir halda að
kvenréttindakonur séu vansælar heima fyr-
ir eða með líf sitt almennt, vegna þess að
þær eru sífellt að krefjast jafnréttis. Það er
nú öðru nær. Þessar konur sem ég hef
kynnst i gegnum kvenfrelsisbaráttuna eru
yfirleitt allar mjög hamingjusamar í sínu
einkalífi. Enda er það eiginlega forsenda
þess að maður geti verið að þessu sprikli, að
maður eigi sér góðan félaga heima fyrir."
En svona í lokin. Ertu farin að baka til
jólanna eins og aðrar góðar eiginkonur?
„Ekki ennþá, en ég bregð mér í baksturinn
eftir helgina með mömmu minni og systrum.
Og ég hlakka til þess..."