Helgarpósturinn - 08.12.1983, Side 32
ráðsmanna, hafi heitið kollega sín-
um á þingi Valgeirssyni stuðningi.
Heimildir úr bankaheiminum
herma því að nú sé allt jafn óljóst
um lyktir í þessu litla banka-
drama....
u
Ifar Þormodsson lætur ekki
deigan síga þótt á honum dynji mið-
aldadómar fyrir klám og guðlast.
Nú hefur hann skrifað handrit að
bók sem nefnist „Bréf til Þórðar
frænda rníns." Þórður er að sjálf-
sögðu Þórpur Björnsson saksóknari
ríkisins. í handritinu er fjallað á
léttan hátt um ýmis mál sem týnst
hafa lögreglu og saksóknara. Mál og
menning hefur haft handritið til
skoðunar með hugsanlega útgáfu í
huga en hefur nú synjað handritinu'
á þeim forsendum að það sé ekki
söluvænlegt. Úlfar hyggst þó ekki
gefast upp, heldur hugleiðir að gefa
út bókina — sem telur um 6 arkir —
á eigin vegum...
Ingólfs Jónssonar á Hellu er að
koma út nú fyrir jólin, en það er Páll
Líndal sem skráir. Ingólfur þykir
maður öruggur með sig og hafa oft-
ast efni á því. f því sambandi heyrð-
um við litla sögu úr samstarfi þeirra
Páls við ritun bókarinnar: Á einum
punkti í samtölum þeirra Páls og
Ingólfs tekur sá síðarnefndi sig til og
þylur utanbókar tölur um úrslit al-
þingiskosninga í Rangárþingi allt
Írá aldamótum og fram til kjör-
dæmabreytingarinnar 1959. Þetta
skráir Páll samviskusamlega niður,
en þykir samt rétt að skreppa síðan
á Hagstofuna og ganga úr skugga
um að allar tölurnar séu réttar.
Samkvæmt gögnum Hagstofunnar
voru tvær smávægilegar villur í frá-
sögn Ingólfs. Á næsta fundi þeirra
Páls og Ingólfs segir Páll að tclum
hans og tölum Hagstofu íslands hafi
ekki borið saman. Þá kemur undr-
unarsvipur á Ingólf og hann svarar
að bragði: ,,Já, það er merkilegt að
þeir skuli ekki vera með réttar upp-
lýsingar á Hagstofu íslands!“...
eilur eru nú meðal fulltrúa í
borgarráði og -stjórn Reykjavíkur
vegna leigu á Skíðaskálanum í
Hveradölum. Borgin hefur leigt út
skálann undanfarið ár og mun ekki
vera góð reynsla af því. Júlíus Haf-
stein, formaður íþróttaráðs, mun
því hafa beitt sér fyrir því að skálinn
væri nú boðinn út með kaupleigu-
kjörum. Hafa a.m. k. þrír aðilar lýst
formlega áhuga sínum á að fá Skíða-
skálann í Hveradölum, en það
munu vera Veislumidstödin við
Lindargötu, Gerdur Pálmadóttir, -
kaupmaður í Flónni, og Magnús
Jónasson sem rekið hefur skálann
undanfarið. Og nú er deilt meðal
borgarfulltrúa um hver skuli
hreppa þetta hnoss og með hvaða
kjörum...
A
borði skipulagsnefndar
Reykjavíkurborgar liggur nú tillaga
sem vafalaust á eftir að standa í
mörgum. Samt er hún ef grannt er
skoðað í reynd aðeins opinber stað-
festing á raunveruleikanum. Málið
er að undanfarið hafa tveir arkítekt-
ar, Dagný Helgadóttir og Gudni
Pálsson, unnið fyrir Dauíð Oddsson
borgarstjóra að nýju skipulagi fyrír
það svæði í gamla miðbænum sem
kallað er Kvosin. Nú stendur skipu-
lagsnefnd frammi fyrir eftirfarandi
tillögu arkítektanna: Að gera Morg-
unblaðshöllina að ráðhúsi! Og fyrir
framan hið nýja ráðhús á vitaskuld
að vera stórt torg, -reykvískt
Raadhusplads-, og á að ná yfir Hall-
ærisplan og Steindórsplan. Talið er
að þessi hugmynd fái misjafnar und-
irtektir, þótt ekki virðist þurfa mikl-
ar tilfæringar til að koma henni í
framkvæmd, — nánast bara að
skipta um skilti á húsinu; mann-
skapurinn yrði í reynd sá sami...
fyrstu merki þessi að kynslóðaskipti
hafi orðið í forystu Sjálfstæðis-
flokksins. Inga Jóna Þóröardóttir, -
sem verið hefur framkvæmdastjóri
útbreiðslu- og fræðslusviðs flokks-
ins er að fara í alllangt leyfi frá störf-
um. Við hennar starfi á meðan tek-
ur maður sem jafnframt verður
framkvæmdastjóri þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins. Því starfi hefur um
árabil gegnt Þorvaldur Gardar
Kristjánsson alþingismaður og þeg-
ið væn laun fyrir, ofaná þingmanns-
launin. Nú hefur unga tvíeykið á
toppnum, Þorsteinn Pálsson og -
Friðrik Sophusson, fengið því fram-
gengt að Þorvaldur lætur af þessu
starfi og við tekur nýr maður. Ekki
mun afráðið hver hann verður en
talið líklegt að hann verði úr röðum
ungra sjálfstæðismanna...
V
ið sögðum í HP frá nokkrum
jólamyndum bíóanna í Reykjavík
um daginn. Nú getur HP bætt við
tveimur: Jólamynd Austurbæjar-
bíós verður Superman III og Laug-
arásbíó kemur með eins konar
framhald af snilldarþriller Hitch-
cocks Psycho, sem auðvitað heitir -
Psycho II...
kaliað Búnaðarbankamál, en eins
og fram hefur komið í HP og fleiri
fjölmiðlum hafa þrír menn stefnt að
bankastórastóli Þórhalls Tryggva-
sonar, — bankamaðurinn Stefán
Pálsson, bankamaðurinn og fram-
sóknarmaðurinn Hannes Pálsson -
og alþingismaðurinn og framsókn-
armaðurinn Stefán Valgeirsson. -
Hefur þetta mál valdið hinum
verstu vandræðum í þessum góðu
stofnunum, Búnaðarbankanum og
Framsóknarflokknum. Nú síðast
var talið að allir bankaráðsmenn-
irnir, að frátöldum staðgengli
Stefáns Valgeirssonar, formanns
ráðsins, myndu styðja Stefán Páls-
son. Síðan mun hafa komið babb í
bátinn því sagt er að á daginn hafi
komið að Friöjón Þórðarson, einn
Frá og með 10. desember gilda VlSA-kortín
JAFTNTINNANLANDS SEM UTAN!
Klð
f[ 6 fðnaöarbanki ísiands hf )
1 y/SA
iandsbanki islands
Nú verða VISA-kortin gild í
innlendum viðskiptum.
Eitt og sama kortið verður
gjaldgengt hjá 4 milljónum
verslunfir- og þjónustu-
fyrirtækja um allan heim.
Úttektir í reiðufé
Unnt verður, gegn framvísun
VISA-kortsins, að fá sérprentað
tékkaeyðublað til úttektar á
reiðufé af tékkareikningi
korthafa í öllum VISA-bönkum
og spcirisjóðum hér innanlands.
Úttektartímabil
VISA er frá 18. hvers mánaðar
til 17. næsta mánaðar,
með eindaga 15 dögum síðar,
þ.e. 2. hvers mánaðar.
Fyrsta úttektartímabilið
verdur þó viku lengra,
eda frá 10. desember
til 17. janúar,
með greiðslufresti til
2. febrúar 1984 !
VERIÐ VELKOMIN IVISA-VIÐSKIPTI
Alþýðubankinn hf.
Búnaðarbanki íslands
Iðnaðarbanki íslands hf.
Landsbanki (slands
Samvinnubanki íslands hf.
Eyrasparisjóður, Patreksfirði
Sparisjóður Bolungarvfkur
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Sparisjóðurinn í Keflavík
Sparisjóður Kópavogs
Sparisjóður Mýrasýslu
Sparisjóður Norðfjarðar
Sparisjóður Ólafsfjarðar
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
Sparisjóður Siglufjarðar
Sparisjóður Svarfdæla
Sparisjóður Vestmannaeyja
Sparisjóður V-Húnavatnssýslu
- Eitt kort um allan heim.