Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 3
Fannamaður
útivistar
* Kristján M. Baldursson
heitir framkvæmdastjóri
Útivistar. Hann barðist
gegnum fárviðrið á dögun-
um, upp á ritstjórn til okkar,
og sýndi í reynd hversu
nauðsynlegt það er að vera
í góðri alhliða þjálfun. Er-
indið var að koma árbók
Útivistar á framfæri en hana
fá menn gegn 380 króna ár-
gjaldi. í því gjaldi felst að
sjálfsögðu afsláttur á allar
ferðir félagsins og önnur
hlunnindi. Félagar Útivistar
eru nú um 1900, tjáði Krist-
ján okkur áður en hann
kvaddi og braust fagmann-
lega út ( hríðina að nýju. ★
Smartmynd
Ahorfendur bregðast misjafnlega við svívirðingunum — sumir
bíta á jaxlinn, aðrir brosa, enn aðrir skella hurðum.
Limlestingar og þakleki
* „Nei, þetta hefur ekki ver-
ið skakkafallalaust hjá okk-
ur, langt því frá,“ sögðu
þessar tvær leiksystur, sem
voru að dreifa áróðri fyrir
sýningu Stúdentaleikhúss-
ins á Svívirtum áhorfend-
um, f vikunni. Þær heita
Halla Helgadóttir, ein
saumakvenna og búninga-
hönnuða, og Soffía Karls-
dóttir, ein fjögurra leikenda.
„Á síðustu sýningu brák-
aði Stebbi (einn leikarinn) á
sér tá og lék sárkvalinn það
sem eftir var kvöldsins,"
sagði Soffía. „Það er
kannski engin furða þótt
fólk limlesti síg i öllum
hamaganginum. Svo urðum
við náttúrlega að aflýsa sfð-
ustu sýningu þvi að ekki var
hægt að láta Stebba leika
með staf.“
„Annarri sýningu urðum
við að aflýsa eftir óveðrið
um daginn," bætir Halla við.
„Og það var ekki bara vegna
ófærðarinnar, heldur steypt-
ist yfir okkur heilt synda-
flóð inní húsinu. Það flæddi
innum öll gólf og veggi og
meira að segja inná raf-
magnstöflur."
Svivirtir áhorfendur. Ligg-
ur þá ekki beint við að
spyrja hvernig áhorfendur
taki svívirðingunum? Soffía
og Halla:
„Það er nú á ýmsa vegu.
Sumir eru alveg viðþols-
lausir og fussa og sveia,
ganga jafnvel út og skella á
eftir sér hurðum. Aðrir sitja
hvítþvegnir og brosandi
undir svívirðingunum og
mega vart vatni halda eftir
sýningu ...“
Þrjár sýningar á Svívirtum
áhorfendum, væntanlega
þær síðustu, verða að öllu
skakkafallalausu í Tjarnar-
bíói á fimmtudag, föstudag
og sunnudag. ★
rsJORCiES HANK
AUKIN KÓNUSIA
Alþýðubankinn hefur opnað gjaldeyrisafgreiðslu, sem annast al-
menna þjónustu á sviði erlendra viðskipta. Við bjóðum velkomna
ferðamenn, námsmenn og aðra þá sem vilja kaupa eða selja
erlendan gjaldeyri, eða stofna innlendan gjaldeyrisreikning
VISA greiðslukort
til notkunar innanlands
og erlendis
Vid gerum vel vió okkar fólk
Alþýöubankinn hf.
Laugavegi31 sími 28700 Útibú Suðurlandsbraut 30 sími 82911
*
Hvaða kynórar
eru þetta?
„Kynórar er nafn á einu af tveimur stuttum leikritum
sem Alþýðuleikhúsið er að taka til sýninga frá og með
fösitudegi I næstu viku. Hitt nefnist Tilbrigði við önd.
Á frummálinu bera þau heitin Sexual Perversity in
Chicago og Duck variation. Þetta eru amerísk nútíma-
verk eftir ungan og upprennandi höfund, David Mamep
að nafni, sem þykir líklegur til sömu vinsælda og Sam
Shepard naut á sínum tíma. Þessa uppsetningu á leik-
ritum Mameps gefum við svo samheitið Andardráttur
sem fólk má skilja á hvaða veg sem er.“
— Á hvaða málum taka þessi leikrit?
„Kynórar fjalla um náttúruna sem hluta af manninum
en þessu eröfugt farið meðTilbrigði viö önd sem tekur
á manninum sem hluta af náttúrunni. Þetta eru þannig
mjög náttúruleg verk ef svo má segja, og segja frá alls-
konar náttúrum.“
— Klámfengin kannski?
„Nja... Leikritin eru mjög berorð og hreinskiptin skul-
um við segja. Þaðerekki veriðað veltasérupp úr klámi,
hvorki af höfundar hálfu né okkar sem setjum verkin
upp. En það er gengið beint að hlutunum, þráðbeint!"
— Eru þetta broslegir hlutir?
„Já, ég ætla að vona að það verði hægt að brosa að
þessari uppsetningu okkar, og helst hlæja á stöku
staö.“
— Hvað geturðu sagt mér meira af höfundi þessa
Andardrátts ykkar?
„Hann fæddist í Chicago árið 1948 og stendur því á
hálffertugu. Hann skrifaði sitt fyrsta leikrit aðeins 23
ára gamall sem reyndar er annaö þeirra verka sem við
erum með í Andardrættinum, Duck variation. Þessi
frumraun hans hlaut frábærar viðtökur, var verðlaunuð
margsinnis og hlaut einróma lof gagnrýnenda. Sem
stendur á hann að baki nokkuð á annan tug leikrita og
er þaö sammerkt með öllum þeirra að þau eru stutt,
hnitmiðuð og skýrlega framsett. Það er hans stíll.“
— Alþýðuleikhúsið hefur átt i óttalegu húnæðis-
basli síðustu leikár og nú bregður svo við að þið sýnið
í ráðstefnusal Hótels Loftleiða. Hvernig má það vera?
„Ja, Flugleiðamenn voru nú einfaldlega svo elskulegir
við okkur að bjóða þessa aðstöðu I húsnæðishallær-
inu, og kunnum við þeim auðvitaö bestu þakkir fyrir.
Við erum búin að innrétta ráðstefnusal hótelsins að
okkarþörfum og mérfinnst hann veraorðinn mjög kósf.
Ég efast ekki um að þarna verður hægt að reka skemm-
tilegt leikhús. Þetta á að geta orðið okkar framtiðar-
húsnæði..."
— Það er þá engin örvæntingartónn í ykkur Alþýðu-
leikhúsfólki?
„Nei, biddu fyrir þér. Að vfsu hefur húsnæðisbaslið
leikið okkur talsvert illa, en meðan okkur býðst heill
ráðstefnusalur undir starfsemina og einhverjir mæta á
sýningar okkar, þá er ekki yfir neinu að kvarta. Að Al-
þýðuleikhúsinu stendur stór hópur af kraftmiklu fólki
sem á ekki orðið „uppgjöf" til I sínum orðaforða.“
— Segðu mér Svanhildur. Er leikhús alltaf skemm-
tilegt?
„Mér finnst leikhúsvinna alltaf skemmtileg, þótt við-
fangsefnin geti hins vegar verið misjafnlega áhuga-
verð. Það hefur verið algjört dúndur að setja upp Andar-
dráttinn, bæði er að verkin eru áhugaverð og fólkið frá-
bært í samstarfi sem vinnur með mér I þessu. Ég vona
að þessi vinnugleði komi fram í sýningunum.“
- SER.
Svanhildur Jóhannesdóttir leikstjóri vinnur um þessar
mundir með Alþýðuleikhúsinu að uppsetningu tveggja
leikrita eftir Bandaríkjamanninn Davia Mamep, en þau
heita Kynórar og Tilbrigði við önd. Svanhildur útskrifaðist
með fyrsta órgangnum úr Leiklistarskóla Islands órið 1976
og var um nokkurra óra skeið fastróðinn leikari hjó Leik-
félagi Akureyrar. Sem leikari hefur hún einnig komið við í
Iðnó og Þjóðleikhúsinu en síðustu ór hefur hún einkum ein-
beitt sér að leikstjórn.
HELGARPOSTURINN 3