Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 12
GRÁSÍÐA Við pylsuvagninn: Þær þverpólutísku Helgi Seljan og Sverrir Her- mannsson áttu leið fram hjá pyisuvagninum og sáu hóp al- þingiskvenna standa þar við pyisuát. Það var ekki annað að sjá en þær væru aldar upp við pyisuna. Samt bitu þær afar meyjarlega í þær, og þá sagði Sverrir Hermannsson: Hér standið þið þær þverpólu- tísku. Við eigum eftir að athuga það, sagði Sigríður Dúna. Mér finnst sumar konur vera miklu heldur skápólutískar, sagði Ragnhildur Helgadóttir. Það er það helsta, sagði Jó- hanna Sigurðardóttir. Hér, þar sem er hundrað og áttatíu gráðu karlmannaveldi. Sigríður Dúna hló opnu blóma- brosi og sagði: Enda er veldið hringavitlaust. Hvað viljið þið eiginlega, ágætu konur? spurði Helgi Seljan af þeirri áköfu einurð sem einkennir hann. Sigríður Dúna fór þá strax í upptalningarnar, og hún sagði: Við í Kvennaframboðinu viljum, talið í réttri röð: 1.) Að móðurhlutverkið verði metið sem starf. 2. ) Að hjónabandið verði metið sem starf. 3. ) Að það að vera kona sé met- ið sem starf. 4. ) Að það að starfa verði metið til kaups. 5. ) Að heimilið verði talið vera vinnustaður. Þegar hér var komið í upptaln- ingunni og Sigríður Dúna var komin að sundurliðun í a), b) og c) þá bar Steingrím Hermanns- son að og hann hafði heyrt á tal Sigríðar og sagði: Er hægt að meta heimilisstörf og hvatir manna til fjár? Við Hvatarkonur teljum að svo verði hægt eftir að heimilið fer inn á heimilistölvuna, sagði Ragnhildur Helgadóttir. Gott, sagði Sigríður Dúna. Það er staðreynd að konan vinnur tvöfaldan vinnudag: á vinnustað og á heimilinu. Hún stimplar sig út á þeim fyrr nefnda til að fara inn í þann síðar nefnda í eftir- og næturvinnu. Konan á heimt- ingu á heimiliskaupi. Verður hún þá ekki að stimpla sig inn á heimilið? spurði Helgi Seljan. Auðvitað, svaraði Jóhanna. Og hún stimplar sig inn í eld- húsið? spurði Sverrir. Að sjálfsögðu, sagði Sigríður. Stimplar hún sig þá líka inn, þegar hún fer upp í rúmið með manninum sínum? spurði Stein- grímur. Ef einhver vinna fer þar fram af hennar hálfu, svaraði Sigríð- ur. Hvað þá með eiginmanninn? spurði Steingrímur. Eigi sér stað samstarf þá stimpla bæði sig inn er þau ganga til sængur með athöfn í huga og reynd, sagði Sigríður Dúna. Mér finnst það ekki nema sjálf- sagt, sagði Steingrímur. Beiti þau hvort annað jafnrétti í bólinu, sagði Helgi Seljan. En hvernig með kaupið? Eins og við marxistar spyrjum gjarna. Eftir samstarf borga þau hvort öðru, sagði Sigríður Dúna. Verða samfarir þá líka metnar sem starf? spurði pylsusalinn. Konan hefur ævinlega þurft að taka þær á sig sem kvöð án þess nokkuð kaup komi fyrir, sagði Sigríður Dúna. Nú kinkuðu allir karlmennirnir kolli. En konurnar brostu þver- pólutísku brosi. Síðan litu al- þingismennirnir til lofts, en konurnar litu til jarðar. Þá sagði Steingrímur: Með leyfi að spyrja, er þá ekki verið að gera heimilið að eins- konar duibúnu vændishúsi? Eða samblandi af því og verksmiðju? Það hefur heimilið og hjóna- bandið verið ævinlega séð frá marxiskum sjónarhóli, sagði Helgi Seljan. Marx sagði: Hjóna- band er hórdómur. Gift kona hóra eiginmannsins. Mér finnst það sannast að kon- ur séu það ef Sigríður Dúna fær sínu framgengt, sagði Steingrím- ur. Þá sanna konur það fúslega sem karlrembumenn hafa reynt að klína á þær um aldaraðir en mistekist jafnan, að minnsta kosti í augum hvers ærlegs manns. Álit karlmanna koma okkur ekki við ef konan verður frjáls og fær sitt kaup, sagði Sigríður Dúna. Mér er sama þótt konur verði að ganga með skeiðklukku og stimpilklukku. Þær verða það lögum samkvæmt ef frumvarp mitt nær fram að ganga. Vegna þess, laust upp talið í aðal- og undirliðum, samkvæmt nýja um- bótakerfinu, að: A-liður sem tengist síðan C-liði og er með gildistöluna 6.. MATKRAKAN Gæfurík þorskaugu Gleðilegt ár, þið sem nú hoppið yfir hest- háa skafla inn í nýja árið með skuldabagga á herðum. Þegar þessi orð eru rituð er allt útlit fyrir að símsenda verði þennan pistil, því ég hef verið veðurteppt heima hjá mér í fleiri daga, ef að líkum lætur, því erfitt er að greina mun dags og nætur í gjörningaveðri, einkanlega ef maður hefur, að hátíðasið, snúið sólarhringnum um 270 gráður (samt ekki á Celsius). Eg veðurteppt við skrifborð- ið og nýársmaturinn úti á svölum, fastir liðir eins og venjulega. Eftir kjötát jólanna dreymir mig í svefni sem vöku um nýjan þorsk, sem ég hef árang- urslaust reynt að afla í gæftaleysinu. Ég þrái ferskmeti og þorskaugun mest: hvít, fljót- andi í súpu: hamingjuboðar. Eða starandi dreymin undan krydduðum brauðmylsnu- augnlokum hlakkandi til fundarins við kavíarkartöflur í munni mínum, löðrandi í sýrðum rjóma. I trausti þess að þorskurinn stígi úr draumnum yfir í vökuna á næstu dögum, að geislar gæfuríkra augna hans nái að bræða ísinn á víkum milii svívirtra vina, koma hér á eftir einfaldar þorskuppskriftir, m.a.s. sára- einfaldar og ódýrar. (I framhaldi af því og af gefnu tilefni vil ég ítreka að ég er fyrst og fremst naglasúpukokkur en ekki lúxussæl- keri, en sú staðreynd virðist hafa farið fram hjá sumum...) En fyrst ég næ hvorki í haus né sporð á þorskinum í veðurteppunni, fjölyrði ég ekki þar um, heldur reyti í ykkur nokkur af nýárs- boðorðum Matkrákunnar fyrir árið 1984. 1. Gjörnýttu allt matarkyns nema hið þunna af þorskkinnfisknum, því sá sem það ger- ir verður iyginn. 2. Búðu til sósur úr bældum tilfinningum í stað þess að kasta skyri. 3. Elskaðu íslensku kartöflurnar í allri sinni ófrýnd, eins og sjálfan þig. 4. Hóglega, hæglega, skaltu afhýða iaukinn og saxa, því hann er ofurviðkvæmur eins og aðrir Pétrar Gautar þrátt fyrir sterkj- una. 5. Reyndu að semja eggjakökurnar í E-moll, því þær eru mjúkar og rakar að innan, hörundsbjartar að utan. 6. Hafðu til marks: þegar skeggin ganga í bland við kryddin er fiskisúpan til, ekki fyrr. En varðandi matseld og manneldi er þó mikilvægast að hafa í huga eftirfarandi orð Megasar: Ekkert er ómögulegt allt getur mögulega skeð á móti geði er sett geð sem veð á móti ógeði ógeð. Ofnbakaöur heill fiskur (handa 4) U.þ.b. 1 'A kg heill fiskur (hvers kyns, en ég mæli með ómaklega iítilsvirtum þorsknum) salt steinselja, dill eða sneiddur laukur u.þ.b. 2 msk sítrónusafi. 1. Biðjið fisksalann að taka gellurnar úr höfði fisksins án þess að fjarlægja það. Skemmtilegt er að bera fiskinn fram heil- an og höfuðið er bragðgott. 2. Hreinsið fiskinn og skolið undir rennandi vatni. Hreyfið ekki við bakugganum, því gott er að nota hann sem mælikvarða um hvenær fiskurinn er tilbúinn. (Þegar hægt er að draga uggann auðveldlega af beininu er fiskurinn yfirleitt hæfilega soð- inn.) 3. Fyllið fiskinn annað hvort með kryddjurt- um eða lauksneiðum, saltið hann bæði að utan og innan og leggið í smurt, eldfast fat, dreypið sítrónusafa yfiróg þekið með álpappír. 4. Bakið fiskinn í 200 gr. heitum ofni þar til fiskholdið er orðið hvítt inn að beini. Skerið í fiskinn til að athuga hvort hann losnar auðveldlega frá beinunum. Úr fisk- inum kemur góður kraftur sem annað hvort má neyta eins og hann kemur fyrir eðánota í sósu. Þorskur sem er 1V4 kg að þyngd bakast á þennan hátt á u.þ.b. 45 mín. 5. Þorskinn má bera fram með söxuðu harðsoðnu eggi (eggjum) hrærðu saman við kraftinn sem kemur af fiskinum eða piparrótarsósu, ásamt soðnu grænmeti eða hrásalati, eða ofnbökuðum kartöfl- um með kavíar og sýrðum rjóma. Piparrótarsósa/- smjör Piparrótin (Horseradish) er seld þurrkuð í glösum en einnig rifin í litlum pökkum, og stundum fæst hún heil hér í verslunum. Rifin piparrót heldur bragði sínu mun betur en sú þurrkaða og er því sjálfsagt að nota hana. 1 dl rjómi, stífþeyttur u.þ.b. 2 msk sítrónusafi 2 msk rifin, ný piparrót, e.t.v. ögn meira af pakkaðri Hrærið sítrónusafanum saman við rjóm- ann, litlu í einu, og bragðbætið með salti og piparrót eftir smekk. Bera má sósuna fram i skál og strá ögn af paprikudufti yfir, eða hella henni í lítið álform og frysta og bera hana fram frysta í sneiðum. Fylltur þorskur (handa 4) 1 þorskur með höfðinu, u.þ.b. 1 'A kg salt, sítrónusafi, basil Fylling: 1 stór laukur, saxaður 6 ansjósuflök eða u.þ.b. 6 sardínur, í bit- um u.þ.b. 20 g smjör/ smjörlíki 1 steinseljuvöndur, saxaður, eða nokkr- ar msk af þurrkaðri steinselju Penslun: hveiti, egg, raspur, pipar 1. Hreinsið fiskinn og núið að utan og innan með salti, sítrónusafa og basil. 2. Hrærið saman söxuðum lauk, ansjósum eða sardínum sem olían hefur verið látin drjúpa vel af, smjöri og saxaðri steinselju og setjið inn í fiskinn. Nælið þunnildin saman með tannstönglum eða litlum, ryðfríum kjötpinnum, svo fyllingin hald- ist á sínum stað. 3. Leggið fiskinn í smurt, eldfast fat og stráið svo hveiti yfir hann, malið pipar yfir. Penslið því næst með hrærðu eggi og stráið fínni brauðmylsnu eða tilbúnum raspi yfir. Leggið nokkrar smjör- eða smjörlíkisklípur yfir fiskinn og bakið við 200 gr. í u.þ.b. 45 mín. 4. Berið fram t.d. með soðnum hrísgrjón- um, blönduðum saxaðri búlgarskri papriku (niðursoðinni) og leggið hrís- grjónin gjarnan á fiskfatið, svo að þau drekki í sig soðið. Auk þess má bera fram blaðsalat og/eða kavíarfylltu kartöflurn- ar sem uppskrift fer að hér á eftir. Bakaðar kartöflur meö kavíar 4 stórar kartöflur 1 'h dl sýrður rjómi u.þ.b. 75 g grásleppuhrogn (kavíar) e.t.v. ögn af nýmöluðum svörtum pipar og svo sem 1 tsk af koníaki. Burstið kartöflurnar og þvoið vel, leggið á rist og bakið við 250 gr. í u.þ.b. 50 mín. Takið þær út, skerið af þeim ,,lok“, fjarlægið svo sem 2-3 tsk innan úr þeim og hrærið því sam- an við sýrða rjómann. Jafnið síðan blönd- unni yfir kartöflurnar og deilið grásleppu- hrognunum yfir. Mjög gott er að bragðbæta hrognin með agnarögn af koníaki og ný- möluðum svörtum pipar. Ef þið bakið kartöflurnar um leið og fisk við 200 gr. má sjóða þær fyrst í 10 mín. og baka síðan í ofninum í 30-40 mín. (eftir stærð). 12 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.