Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 15
VAR Það sem náttúrlega stendur upp úr í friðar- málunum er baráttan í Mið-Evrópu, einkum og sérílagi barátta unga fólksins í Þýska- landi. Það má með sanni segja að þar eigi í baráttu heil kynslóð sem hefur verið svipt þeim rétti að horfast í augu við jafnaldra sína í næstu löndum, og það vegna verka sem forfeður þeirra unnu. Þetta unga fólk stend- ur andspænis þeirri staðreynd að það er miðpunktur kjarnorkustyrjaldar sem háð yrði á meginlandi Evrópu. Það kom nýverið fram í skoðanakönnun í Þýskalandi að meirihluti ungs fólks á aldrinum 16 til 23 ára hafði enga trú á framtíðinni. Atvinnuleysið veldur auðvitað nokkru þarna um og aðrir erfiðleikar sem þessi heimshluti á við að stríða. NÚ, þetta blasir við alls staðar, við ráðum ekki við þéssa hröðu tækniþróun, tæknin er góð, tæknin er þægileg — en við verðum líka að gæta þess að maðurinn haldi fullum sóma og fullri reisn. Það er ekkert sem skerðir þetta hvort tveggja meira en at- vinnuleysi. Ef við göngum aðeins lengra og minnumst þess að það skuli vera til heil kyn- slóð í Vestur-Evrópu, Þýskalandi, Frakk- landi og jafnvel Danmörku, sem aldrei hefur haft atvinnu, þá erum við komnir út í sálma sem eiga eftir að verða stórkostlegasta vandamál áranna um 2000, krafan um að fjármununum sé beint í einhverja uppbyggi- legri hluti en hergagnaframleiðslu verður æ háværari. — Það er ekki laust við að maður merki á tali þínu, Árni, að þú ert stjórnmálamaður, alþingismaður. Hvernig varð þér við það að detta út af þingi? Ég fer ekkert í felur með það að mér þótti mjög súrt í broti að detta út af þingi. Ég sagði fyrir kosningarnar að ég ætlaði að slást eins og hundur, svo líklega er réttast að ég taki þessu eins og hverju öðru hundsbiti. Eg get kannski að nokkru leyti sjálfum mér um kennt, ég var kominn að þeirri niðurstöðu að ég ætlaði að hætta þingmennsku og var búinn að segja mínu fólki fyrir norðan frá því. Svo snerist mér hugur eins og gengur og gerist, og þá má vera að við höfum verið full örugg með okkur þarna í Norðuriandi eystra. Við álitum víst ekki að ég væri í um- talsverðri hættu. En ég er staðráðinn í að reyna að vinna þau aftur atkvæðin fjörutíu og tvö sem mig vantaði til að komast inn, ég er harður á því. Það sem mér fannst einna lærdómsríkast við að detta út af þingi var að kynnast því hve staða þingmanna er í raun og veru erfið. Þegar maður er kominn á minn aldur, yfir fertugt, er maður ekki alveg eins útgengileg- ur á hinum almenna vinnumarkaði og yngri menn, nema maður komist þá kannski á launaskrá ríkisins á einn hátt eða annan . . . Það sem ég rak mig líka hark.alegast á var að þeir menn sem vildu fá mig í vinnu, vildu ekki gera það upp á þau být i að hafa enga tryggingu fyrir því að ég hlypist ekki á brott undireins og stjórnmálin kölluðu. Þannig að þegar upp var staðið átti ég engra annarra úrkosta völ en að skapa mér mína eigin at- vinnu og mitt eigið fyrirtæki. Það hefur gengið ágætlega og ég hef ekki undan neinu að kvarta. En ég held að það sé mesti mis- skilningur að halda því fram að þingmanns- starfið sé eitthvert bílífi. Það er kannski ljótt að segja þetta þegar til er fólk í landinu sem ekki nær 15 þúsund króna mánaðarlaunum, en þetta er dýrt starf og ég í minni þing- mannstíð safnaði hreinlega skuldum vegna kostnaðar við starfið. Ef þingmannsstarfið er ekki metið að verðleikum getur það líka ver- ið hættulegt fyrir þjóðfélagið — að til þing- mennsku veljist eingöngu menn sem hafa sín eigin fyrirtæki eða eru vel efnaðir af ein- hverjum öðrum ástæðum. — Þú ert enn í talsverðum tengslum við Alþingi, sem varaþingmaður, og auk þess hefurðu fengið það hlutverk að gera úttekt á störfum og aðstöðu íslenska þingsins og bera það saman við erlend þjóðþing. Hverj- ar eru niðurstöðurnar? I stórum dráttum held ég að óhætt sé að fullyrða að íslenska þingið vinnur vel meðan það er við störf. Þingtíminn er hinsvegar alltof stuttur og enn miðaður við gamla bændasamfélagið, þegar menn gátu verið hvort tveggja þingmenn og starfandi bænd- ur. Svo held ég að það sé mikilvægt að gera þegar í stað gangskör að því að fækka lögum og gera lögin einfaldari, fella úr gildi laga- bálka sem ekki þjóna neinum tilgangi leng- ur. Þetta er orðinn mikill frumskógur. Við þurfum líka að gera þingið mikilvirkara í því að framfylgja þeim lögum sem það setur — þingið setur lög, hendir þeim síðan út í þjóð- félagið, en fylgist sama og ekkert með því hvernig þeim er framfylgt. — Eg minnist þess að hér í eina tíð talaðir þú um það að œskilegt vœri að íslenskir jafn- aðarmenn sameinuðust í einn flokk? Ertu enn þeirrar skoðunar að hugsanlegt sé að sameina miðju- og vinstra fólk á íslandi und- ir eitt merki? Þetta hefur verið reynt, þess er skemmst að minnast þegar Alþýðuflokkurinn og Sam- tök frjálslyndra og vinstri manna gerðu heið- arlega og ærlega tilraun til að ganga í eina sæng. Þá voru meira að segja skrifuð lög fyr- ir Jafnaðarmannaflokk íslands. Ég á mér þann draum og hef aldrei farið dult með hann að við getum sest niður fólk í mörgum flokkum, sem höfum áhuga á sósíal-demó- kratisma og jafnaðarstefnu og náð sam- komulagi um nýjan flokk eða einhvers kon- ar samtök. Það var kannski ætlun Vilmund- ar vinar míns að Bandalag jafnaðarmanna yrði slík samtök — en í stöðunni eins og hún er núna held ég að það sé viturlegast að reyna að sameina Alþýðuflokkinn og Bandalagið. Þarna er bara um að ræða tvístring á sama fólkinu, fólki sem á hug- sjónalega nánast algjöra samstöðu. Nú, kon- urnar, ég sé ekki betur en að mjög margt sem frá þeim kemur komi algjörlega heim og saman við stefnu Alþýðuflokksins og Sambands alþýðuflokkskvenna. Ég á líka í stökustu erfiðleikum með að sjá þörfina á sérstöku kvennaframboði, þótt vissulega hafi þær vakið upp mikla og merkilega um- ræðu hér. Ég held líka að í öðrum flokkum, líka Sjálfstæðisflokki, sé fólk sem er í raun og veru ekkert annað en jafnaðarmenn og á hvergi annars staðar betur heima en í öflug- um jafnaðarmannaflokki. í framhaldi af þessu er sú skoðun mín að hér eigi að vera tveggja flokka kerfi. Við höfum ekki nokk- urn skapaðan hlut að gera við þessa sex flokka sem hér eru. Þeim mun fleiri sem flokkarnir eru, þeim mun meiri líkur eru á upplausn, á erfiðleikum við stjórnarmynd- anir og á því að raunverulegum valkostum kjósendanna fækki — meðal annars vegna þess að kjósandinn á kannski samleið með öllum þessum flokkum í einu, en enginn þeirra nær að hafa sitt fram vegna klofnings- ins. — Tveggja flokka kerfi? Hvernig flokka? Annars vegar íhaldsflokk, alvöru íhalds- flokk, og hins vegar jafnaðarmannaflokk, verkalýðsflokk. Ég fæ ekki séð að þriggja flokka kerfið í Bretlandi hafi til dæmis reynst neitt verr en fjölflokkakerfið í Danmörku eða tugaflokkakerfið á Ítalíu og svo fram- vegis. I tveggja flokka kerfi hefur fólk þó allt- af þann möguleika að hafna öðrum hvorum aðilanum og þarf heldur ekki að eiga það á hættu að kjósa yfir sig ríkisstjórn sem það hefur ekki hugmynd um livernig lítur út þeg- ar upp er staðið. Ég veit til dæmis ekki hversu margir af þeim sem kusu Sjálfstæðis- flokkinn í síðustu kosningum ætluðust til þess að Steingrímur Hermannsson yrði for- sætisráðherra... Hér slítum við talinu, enda orðin nokkur röskun á högum okkar þegar systurnar, dœtur Árna, koma galvaskar inn í stofuna, nokkuð misstórar þó — önnur tvítug og stúd- ent, en hin rétt í burðarliðnum, aðeins sex vikna. Það er sumsé ýmislegt í deiglunnií lífi Arna Gunnarssonar fyrir utan stjórnmálin, útvarpsauglýsingarnar og álarœktina . . .

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.