Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 27

Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 27
vegna skipunar fulltrúa sjálfstæðis- manna í flugráð. Sem varamaður í stað Alberts Gudmundssonar fjármálaráðherra var skipaður Birgir ísl. Gunnarsson alþingis- maður, en vegna breytts meirihluta opnaðist annað sæti í ráðinu fyrir flokkinn og varð um það nokkur barátta. Margir beittu sér fyrir því að sætið fengi Agnar Friðriksson, forstjóri Arnarflugs, og m.a. fór Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins,- á fund Matthíasar Bjarnasonar sam- gönguráðherra og hvatti hann til að skipa Agnar. Matthías valdi hins vegar dr. Þorgeir Pálsson, flug- vélaverkfræðing og prófessor við HÍ,sem unnið hefur að hönnun nýs flugstjórnarkerfis fyrir Norður- Atlantshafið ... v W erkalýðshreyfingin hefur verið að Ieita að glufu í þeim múr sem ríkisvaldið hefur reist gegn nýj- um kaupkröfum (sjá Innlenda yfir- sýn í dag). Nú telur hún sig hafa fundið Akkilesar-hælinn, þar sem er Alverid í Straumsvík. Þar er að vænta núna harðrar baráttu fyrir bættum kjörum starfsmanna, sem helgast af tvennu fyrst og fremst: Það árar allvel hjá ISAL um þessar mundir og það er ekki í Vinnuveit- endasambandinu (þótt Ragnar Halldórsson forstjóri þess hafi set- ið í stjórn VSI fyrir hönd rafgeyma- verksmiðjunnar Póla!). \ þessum vettvangi á að sækja fram, og síðan er herfræðin sú að þær hækkanir sem þar nást breiðist út — fyrst til ríkisverksmiðjanna þar sem launa- kjör hjá álverinu hafa verið viðmið- un og svo áfram út í þjóðfélagið ... A fundi utgerðarráðs BUR á miðvikudag var frestað um viku að taka ákvörðun um ráðningu í stöðu fjármálastjóra Bæjarútgerðarinnar. Samkvæmt hinu nýja skipulagi fyrirtækisins sem ruddi burt for- stjórunum tveimur og setti í staðinn einn framkvæmdastjóra eiga að heyra undir hann fjórir deildarstjór- ar. Samstaða náðist í ráðinu um þrjá af fjórum og eru það menn sem til þessa hafa stjórnað sambærilegum sviðum hjá BÚR. Fulltrúar minni- hlutans vildu hins vegar ekki at- hugunarlaust fallast á tillögu Brynjólfs Bjarnasonar fram- kvæmdastjóra um að Vigfús Aðal- steinsson, sem verið hefur skrif- stofustjóri,verði ráðinn fyrir fjár- máladeildina. Hefur ákvörðun ver- ið frestað um viku, en það sem eink- um stendur í minnihlutanum er aðild skrifstofustjórans að óheimil- um yfirvinnugreiðslum til starfs- manna sem á sínum tíma urðu blaðamál. Búist er við að hann verði engu að síður ráðinn að lokum, því hann mun þykja ágætur starfsmað ur .. . Tölur yfir tap á útgerð Edd- unnar í fyrrasumar fara hækkandi eftir því sem betur er farið ofaní fjár- málin. Samkvæmt traustum heim- ildum Helgarpóstsins er tapið nú talið nema 1,5 milljónum dollara eða 50—60 milljónum króna. Aftur- ámóti eru Farskipsmenn enn í samningaviðræðum víða um lönd til að fá þessar tölur lækkaðar, en stærstur hluti skuldanna er við Pól- verjana sem eiga skipið og vegna olíukaupa . . . ■ W ú mun sem næst frágengið að tvö af tímaritum Frjáls framtaks, Frjáls verslun og Sjávarfréttir, fái nýjan ritstjóra. Er það Sighvatur Blöndal, sem verið hefur blaða- maður á Morgunblaðinu. Annan nýjan blaðamann sækir Frjálst framtak líka til Morgunbiaðsins, og heitir sá Olafur Jóhannsson . . . A ^^T^f öðrum tilfærslum í blaða- heiminum má nefna að Þráinn Hallgrímsson, sem lengst af var blaðamaður á Alþýðublaðinu og nú á Tímanum, tekur um miðjan næsta mánuð við starfi fræðslufulltrúa Menningar- og fræðslusambands al- þýðu. Því hefur gegnt Lárus Guö- jónsson en hann hefur ráðist til Verkamannasambands íslands . . . B ftamt' ágborið efnahagsástand, skammdegi og hefðbundin veisiu- höld yfir hátíðirnar hafa skapað ófremdarástand í sálartetrum ís- lendinga. Að sögn geðlækna hefur ásókn á geðdeildir slegið öll fyrri met, og sálfræðingar og geðlæknar sjá ekki framúr verkefnum. Ekki liggja fyrir neinar nákvæmar niður- stöður um aldur, kyn eða stéttir þeirra sem brotna undan álaginu þessa dagana, en þeir aðilar sem HP hefur rætt við segja að lítið sé um láglaunafólk sem leitar aðstoðar við sálræn vandamál, heldur sé hér frekar um að ræða efnað fólk sem skyndilega mætir nú erfiðari kjör- um... I~í appdrætti Hájkólans heldur upp á 50 ára afmæli með glæsilegri vinningaskrá. Vinnings- upphæðin er tvöfalt hærri en á liðnu ári, og mögu- leiki er á 9 milljón króna vinningi á eitt númer. Ævintýralegt. En það eru líka 5000 aukavinningar á 15.000 krónurhver, auk fjöldaannarra vinninga. HHÍ heldur enn hæsta vinningshlutfalli í heimi, 7/10 „kökunnar“ kemur í hlut ykkar, sem spilið með og hljótið vinning. Líttuinnhjáumboðsmanninum. Þar færðu miða - og möguleika á vinningi. VINNINGASKRÁ 9 @ 1.000.000 9.000.000 9 - 200.000 1.800.000 207 - 100.000 20.700.000 2.682 — 20.000 53.640.000 21.735 — 4.000 86.940.000 109.908 - 2.500 274.770.000 134.550 446.850.000 450 aukav. 15.000 6.750.000 135.000 453.600.000 HELGARPÖSTURINN 27

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.