Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 24
inblöðun morgu1 jákv aeði Hjá morgunfólki rásanna eftir Sigmund Erni Rúnarsson myndir Einar Gunnar Einhverra hluta vegna kann ég illa við það að hefja vinnudag klukkan hálfsex að morgni. Og ég er örugglega ekki einn um það. Það sést best á því að naumt liðið á sjöunda tímann er varla einn einasti bílskrjóður á götum borgarinnar nema sá sem við Einar Ijósmyndari ökum í áleiðis að útvárpshúsinu við Skúlagötu. Jú annars, þarna er einn borgarstarfsmaður að brjóta gler- ung ofan af göturæsi með stóreflis járngaur að vopni, iíklega vaknaður að því er best verður séð af fram- göngu hans við verkið. Við vinkum til hans og bjóðum góðan dag í hljóði, um leið ög við skrensum inn á bílastæðin við Ríkisútvarpið Skúlagötu. Svakalegir morgnar Dyrnar að stofnuninni eru eðli- lega læstar svo árla morguns. Þess vegna bregðum við á það ráð að hringja dyrasímabjöllu útvarpsins sem gerir það að verkum að við erum staddir í pínulítilli skrifstofu uppi á fimmtu hæð hússins fimm mínútum síðar. Þar situr Stefán Jökulsson og beitir skærum á morgunblöðin. Hann segist vera að leita jákvæðra og svolítið fyndinna frétta í blöðunum til þess að Iesa í morgunútvarpinu, en bætir við að þessi leit hans sé jafnan uppskeru- lítil. Kolbrún Halldórsdóttirereinn- ig mætt til vinnu sinnar ög ef að raða upp plötum í rétta röð, hljóm- skífum sem gripið verður ofan í í þættinum. „Veistu ekkert um könnuna?", segir Stefán og lítur spurnaraugum á Kolbrúnu. Hún svarar neitandi en segist jafnframt vera alveg að drep- ast úr koffeinleysi. „Þetta gengur aldrei upp ef við finnum ekki bann- setta könnuna. Við verðum að geta drukkið úr okkur stírurnar áður en útsendingin hefst“, segir Stefán og byrjar að leita könnunnar. Þórir Steingrímsson tæknimaður kemur aðvífandi í þessu með signar augabrúnir: „Þetta eru svakalegir morgnar, þessir þegar maður þarf að mæta í morgunútvarpið. Maður er hreinlega að vakna fram eftir öll- um degi“, segir hann og strýkur um órakaða kjálkana og sest að því búnu við tækniborðið sitt í regíinu. Hann byrjar að taka til bönd og kassettur með efni sem tekið hefur verið upp í þáttinn daginn áður. „Svakalegir morgnar", segir hann aftur. Það er af Stefáni að frétta að hann hefur fundið kaffikönnuna og er tekinn til við að hella upp á. „Það ber að hella upp á með alveg sér- stöku hugarfari", segir hann og vísar til ummæla Jóns Múla um þessa iðju. „Menn verða að vera jákvæðir en umfram allt yfirvegað- ir“, og svo vökvar hann malað kaff- ið með sjóðandi vatni. „Að öðrum kosti verður kaffið ógeðslegt". Krossfeid, kjú og nagli Þeir sem maettir eru þennan morgun utan Stefáns, þ.e.a.s. blaða- menn, Kolbrún, Þórir tæknimaður og lærlingurinn hans hann Halli, hafa myndað svolitla þyrpingu í kringum uppáhellarann. Eftirvænt- ingin er mikil. „En hvernig er það, eruði ekki þrjú með þáttinn?" spyr ég Kol- brúnu. Hún segir svo vera. „En Kristín Jónsdóttir hefur svefnfrið þennanmorgun einsogviðorðum það. Við skiptumst nefnilega á um að mæta svona snemma. Annars kemur hún núna á eftir, klukkan hálfníu." Þegar vellíðunartónn fyrsta kaffi- sopans hefur borist af allra vörum setjast umsjónarmenn morgunþátt- arins inn í stúdíó með tæknimannin- um og fara yfir nákvæmt handrit að þættinum. Blaðamenn iíta forviða hvor á annan þegar þeir heyra orð- in sem fara á milli þremenning- anna: „Eigum við ekki að kross- feida hérna, kjúa þar á undan og enda svo á nagla? Mundu samt eftir intróinu fyrst." Þetta er þá tækni- mál útvarpsmanna. Við þykjumst skilja það allt og kinkutn kolii þegar okkur finnst eiga við. Að þessu búnu er sest inn í regí og þess beðíð að þulur bjóði lands- mönnum góðan dag. íar með verð- ur klukkan sjö fimmtán og fyrsti eyrna, morgunbæn. „Jæja Kolla, þú mátt byrja þáttinn í dag,“ segir Stefán og með það labbar hún inn í stúdíó, ræskir sig, sest við hljóðnemann, rýnir í hand- ritið fyrir framan sig og þylur upp nokkrar fyrstu setningarnar í hljóði. Stefán grínast handan glersins og vill með því fá hana í gott skap. Hann styður á takka í tækniborðinu sem gefur hljóð inn í stúdíóið og spyr Kollu: „Ertu ekki í stuði, Ijúf- an?“ Hún skellir upp úr og missir næstum við það heddfóninn af höfðinu, en þá um leið veifar Þórir tæknimaður hendi. Upphafsstefið á, það slokknar á brosi Kolbrúnar, Stefán kveikir sér í sígarettu. „A virkum degi“ er hafið einn ganginn enn. Blótaö handan glersins „Hvernig var ég, var röddin ekki svolítið rám,“ spyr Kolbrún þegar hún kemur inn í regíið eftir fyrsta atriði þáttarins. Henni er svarað með neii. Þau skiptast svo á að vera inni í stúdíóinu og tala til þjóðarinnar í svefnrofunum, eins hress og hugs- ast getur.Þess á millisetur Halli lær an og þaðan úr dægurheiminum. Gamli prakkarinn kemur upp í manni þegar augun rekast í plötuna sem snýr tónlistina inn í eyru út- varpshlustenda. Svolítið freistandi finnst manni að reka óvart puttann í fóninn og trufla þetta allt saman. En sú hugsun líður hjá. Kristín Jónsdóttir mætir með tvo viðmælendur í beina útsendingu klukkan hálfníu. Stefán og Kolla spyrja hana hvernig hún hafi sofið dagskrarliöur berst þægilega til lingur plötur á fóninn, létt lög héð- Aðeins aiit I pamk... ; 2. kl. 9.59: stetnu og Rás 2. slnum „Það sem gefur þessum þætti okkar líf öðru fremur er hvað við höfum náð góðu sambandi við hlustandann, þennan margum- talaða meðaljón úti í bæ. Manni er sífellt að koma á óvart hvað fólk er persónulegt og gefur mikið af sjálfu sér f beinum útsendingum, þó vissulega gæti feimni hjá sum- um. Við erum orðín almennings- eign hvað röddina varðar og ég heyri á sumu fólki að því firmst það þekkja okkur. Sennilega ér það af þeim sökum sem það segir okkur meira af sínum högum en ella.“ Hún á eina af þeim þremur röddum sem veita morgunútvarpi Rásar 1 forstöðu. Heitir Kristín og er Jónsdóttir og heldur áfram: „Þessir þættir okkar eiga að fjalla um daglegt líf fólks, svona stuttar áminningar til þess að gleyma ekki vettlingunum sínum áður en það heldur út í hragland- ann til vinnu sinnar að morgni. Þegar talmálinu sleppir leikum við músík, hressa tónlist og freist- um þess með henni að koma fólki í gott skap strax í morgunsárið." Þau tóku við umsjón þáttarins fyrsta mánudaginn í október á síð- asta án, Er starfið þá kannski strax orðíð rútíneraö? „Mér finnst það ekki. Við erum vissulega orðin æfð í útsendingu og spenningurinn við að tala beint til þjóðarinnar er að mestu leyti horfinn. Hinsvegar er efnisöflunin mjög fjölbreytt og tekur nýja stefnu hvern dag. Hún verður vonandi aldrei rútíneruð, enda væri þá stutt í leiðindin og áhuga- leysið. Við reynum því að brjóta okkur út úr forminu strax og okk- ur finnst eitthvað slíkt vera að ná fótfestu í þáttunum." Ríkisútvarpið hefur verið kallað þyngslaleg stofnun. Verðiði vör við þessi þyngsli við ykkar vinnu? „Það er helst að þau komi fram í skrifræðinu sem hér ríkir. Þaö getur tekið langan tíma að fá sam- þykki fyrir einföldum hlut í fram- kvæmd. Og þegar löks er hægt að framkvæma hann tekur alltaf töluvcrðan tirna að gefa skýrslu um hann, sem verður undantekn- ingalaust að gera hversu smár sem hann kann annars að vera. Annars er prýðilegt að vinna hérna og stofnunin er langt frá því að vera ómanneskjuleg. Fó|k kynnist hér mjög fljótt og vel, og kemur það kannski ekki til af góðu, þar sem þrengslin beinlínis þjajipa starfsmönnunum saman. Eg get nefnt sem dæmi i þessu sambandi að við hjá morgunút- varpinu deilum þriggja fermetra skrifstofu með tveimur umsjónar- mönnum síödegisvökunnar. Það er ekki fermetri á mann að afla efnis í þessa þætti. Skrifstofunni svipar til meðaistórs hjónarúms að stærð, enda kemur okkur ágætlega saman öllum fimm! Þetta stendur þó til bóta. Við hjá rnörgunútvarpihú komum til með að fá litla klósettrúllugeymslu hérna innaf stúdíóinu til afnota í bráðina. Það altént breyting til batnaðar." Umsjónarmenn morgunútvarps á Rás 1, þau Stefán, Kolbrún og Kristín könnuðust nákvæmlega ekkert hvert við annað áður en þau hófu þetta samstarf „Á virk- um degi.“ „Kunningsskapurinn var í núlli," segir Kristin og telur það hafa hjálpað þeim mikið viö að gera út þennan þátt. „Viö komum sitt úr hverri áttinni að heita má, höfum ólík áhugamál og eigum mismunandi menntun að baki. Þetta styrkir þáttinn óneitanlega.” Ólíkt Stefáni, höfðu Kolbrún og Kristín ekki komið nærri út- varpsþáttagerð fyrr en „Á virkum degi" kom til sögunnar. Hvað finnst Kristínu um þennan miðil? „Hann er mjög spennandi og gefur mikla möguleika á lifandi efni, svo sem að fjalla um þá hluti sem eru að gerast í sömu andrá og þeim er varpað á öldur Ijósvak- ans. Þar er helsta sjarma útvarps- ins að finna." 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.