Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 13
nýlega gert stóran viðskipta- samning við aðila í Svíþjóð um sölu á 60-70 þúsund páskaeggjum á þessu ári. Opal h/f hefur einnig gert tilraunir með útflutning en í minni skala. Flestar sælgætisgerðir standa á gömlum merg. Freyja, Nói, Síríus, Opal,Linda: allt eru þetta fyrirtæki sem stofnuð voru fyrir og um síð- ari heimsstyrjöld. Þau hafa því langa og drjúga reynslu af fram- leiðslunni. Mörg fyrirtækjanna treysta hreint og beint á smekk og bragðlauka elstu starfsmanna. Eða eins og Kristinn Björnsson segir: ,,Þetta eru gömul reseft. Elstu starfsmenn okkar vita upp á hár hvernig blöndurnar eiga að vera. Það liggur við að segja megi að þeir dýfi puttanum í blönduna, smakki á eins og úrvalskokkar og segi af eða á.“ Gósenland Litum aftur á tölur Hagstofunn- ar. Samanlögð innlend fram- leiðsla á sælgæti og innflutningur nam 3086 tonnum árið 1982. Sömu tölur fyrir árið 1981 hljóða samanlagðar upp á 2774 tonn. Og tölur frá árunum á undan sýna einnig aukningu. Tölurnar fyrir árið 1983 eru enn ekki komnar en með sömu vaxtartíðni má ætla að heildarneyslan í fyrra hafi verið á bilinu 3300-3500 tonn. En taka skal þeirri tölu með fyrirvara. Sundurliðaðar tölur eru til. Þannig sýnir árið 1982 okkur að mest hafi verið framleitt af súkkulaði í stöngum og plötum eða 576 tonn. Lakkrísinn er einnig vinsæll en á sama ári spýttu vélarnar úr sér 234 tonnum af hinni svörtu munn- sælu. Árið 1982 framleiddu ís- lendingar 144 tonn af brjóstsykri, 190 tonn af karamellum, 176 tonn af súkkulaðikexi, 144 tonn af lin- um töflum, 104 tonn af páskaeggj- um og 84 tonn af konfekti. Á þessu sama ári fluttum við inn 308 tonn af fylltu súkkulaði og öðru súkku- laði, 266 tonn af páskaeggjum og öðrum súkkulaðivörum, 385 tonn af súkkulaðikexi, 183 tonn af brjóstsykri, 61 tonn af lakkris og 91 tonn af tyggigúmmíi, svo dæmi séu tekin. En þrátt fyrir fjöruga sælgætis- verslun eru margir framleiðendur hvekktir á vörugjaldinu sem nú er 31%. „Þetta er enginn smápen- ingur sem við verðum að punga út,“ segir Eyþór Tómasson. í tíð ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen var þetta enn verra en þá var vörugjaldið 39%. Hins vegar hafði ég vonað að Albert myndi laga þetta mál en ekki hefur hann nú gert það.“ Vörugjald eða ekki: Við úðum í okkur sælgæti og gerum það af frjálsum vilja. Buff, súkkulaði- molar, lakkrísrör, prinspóló, ópal, tópas, karamellur, konga, malta, bounty, rís, staurar og konfektbit- ar velta bruddir og tuggnir niður vélindað og safnast fyrir í mag- anum. Namm, namm. Jafnvel sælgætisframleiðend- urnir velta fyrir sér ósköpunum. Sigurður Marínósson í Mónu segir: „Erum við íslendingar ekki alltaf stærstir og bestir? Eg held að það skipti bara engu máli hvaða tölum við sláum upp í Hagstofnunni. Það ber sennilega allt að sama brunni: Við erum eitt gósenlandanna sem neyta vörunnar i botn hver sem hún svo er. Við erum veiðimanna- þjóðfélag sem vill vera best og stærst." Eflaust má finna flóknar sál- fræðiskýringar á þessu sætindaáti okkar: við erum mörg okkar á „oral — stiginu” ennþá — þeas. fáum öryggiskennd við að sjúga ímyndað móðurbrjóst — og sæt- indin fylla okkur sælukennd. Nær- ingarfræðingar hafa sennilega einnig sínar skýringar: fábreytt ís- lenskt fæði kallar á sykurþörf, mikil sætindaneysla eykur aftur á móti þessa þörf og þar fram eftir götunum. Og félagsfræðingar eru án efa með tiltækar ábendingar: Streita, óreglulegir matartímar og hraði leiðir af sér skyndibitastaði og sjoppur, þar sem sætindi eru einkum á boðstólum. Foreldrar hafa ekki tíma fyrir börn sin og kaupa sér friðþægingu með gott- eríi. Og svo framvegis og svo framvegis. En hverjar sem skýr- ingarnar eru má þó segja eitt með sanni: íslenskt sælgæti er gott, betra en flest erlent, alla vega mjólkursúkkulaði og aðrar sæl- gætistegundir. Um þetta eru allir sælgætisframleiðendur sammála sem HP ræddi við og allir neyt- endur reyndar líka. Úrvalið er ennfremur mikið: Við vöðum hreinlega í sælgæti og við njótum þess og neytum þess. Ópal frá Súdan Einar Ólafsson, framkvæmda- stjóri Opals h/f, segir við HP að framleiðsla síðasta árs hafi verið um 225 tonn. „Við framleiðum mestmegnis brjóstsykur og opal- töflur," segir Einar. „Öll hráefni eru flutt inn erlendis frá.“ Opal- töflurnar eru kunnar öllum ís- lendingum, en hefurðu nokkurn tímann hugleitt hvað er í þeim? Einar getur svarað því: „Aðal- uppistaðan í töflunum er gúmmí- hlaup sem bindur bragðefni og önnur efni í töflunum. Þetta gúmmíhlaup er nefnt „gummi- bich" og er reyndar flutt hingað frá Súdan gegnum umboðsaðila í Hamborg.” Við súkkulaðigerð er allt hrá- efni flutt erlendis frá nema mjólk- in eða mjólkurduftið. Hér er um að ræða kakóbaunir, kakósmjör eða kakómassa svonefndan. Er það kannski íslenska mjólkin sem gerir íslenskt átsúkkulaði (og reyndar suðusúkkulaði einnig) svona bragðgott og vinsælt? Úrvals hráefni „Við erum með fyrsta klassa hráefni," segir Eyþór Tómasson, forstjóri Lindu á Akureyri. Og Ey- þór á að vita hvað hann talar um, því hann hefur verið starfandi við verksmiðjuna allt frá upphafi eða árið 1948. „Við erum eina verk- smiðjan á landinu sem vinnur súkkulaði úr hreinum baunum í stað kakómassa," segir Eyþór. „Við brennum baunirnar og full- vinnum þær hérlendis. Þar að auki fáum við erlenda sérfræð- inga til Islands á hverju ári sem dveljast hér hálfan mánuð í senn og fylgjast með framleiðslunni jafnframt því að þeir koma með nýjar uppskriftir og aðrar nýjung- ar í sælgætisgerð. Við höfum haft sérfræðinga frá Englandi, Hol- landi og Þýskalandi." Kristinn Björnsson, fram- kvæmdastjóri Nóa-Síríus, tekur undir gæði íslenska súkkulaðsins: „Það eru notuð dýr og vönduð hráefni í sælgætisgerðina. Hjá okkar fyrirtæki notum við t.a.m. aldrei harðfeiti eins og margir framleiðendur gera, heldur ekta kakósmjör. Við höfum fengið margar fyrirspurnir erlendis frá, og innanlands reyndar líka, um Ónefndur íslendingur heldur á ársneyslu sinni af sælgæti: 13 kllóum. Við étum 3000 tonn af sælgæti árlega! eftir Ingólf Margeirsson mynd Jim Smart Namm, namm! Gosi varö aö asna vegna sœtindaáts. Hans og Gréta lentu nœstum því í grautar- potti nornarinnar afsömu ástœðu. Og Karíus og Baktus geröu stráknum lífiö leitt vegna þess aö hann hámaöi í sig gotterí og gleymdi aö bursta tennurnar. Iœvintýr- um og sögum er reynt að vara börnin viö sœlgœtissukki en þaö gengur treglega. Alla vega á íslandi þar sem blessuö börnin eru reyndar ekki einu sökudólgarnir, síður en svo. Trúiö mér eöur ei: Viö étum rúmlega 3000 tonn af sœlgceti árlega. Já, þú last rétt. Þrjú þúsund tonn rúm. Þaö gera um 13 kíló árlega á hvert manns- barn í landinu. Tölur Hagstofunnar fyrir áriö 1982 segja eftirfarandi: Innlend sœlgœtisfram- leiösla er alls 1734 tonn en heildarmagn innflutts sœlgœtis nemur alls 1352þúsund tonnum. Samanlagt hljóöar því sœlgœtisneyslan upp á 3086 tonn fyrir áriö 1982. Og þörfin er reyndar meiri, því samkvœmt upplýsingum framleiöenda sœlgœtis á íslandi annar framboöiö ekki eftirspurninni. Namm, namm! það hvernig súkkulaðivörur okk- ar séu unnar. „I sama streng tekur Sigurður Marínósson, forstjóri sælgætisgerðarinnar Mónu: „Við værum dauðir ef við notuðum ekki úrvalshráefni og ynnum vöruna á vandaðan hátt. Fram- leiðsla okkar gefur bestu sæl- gætisframleiðslu erlendri ekkert eftir.!' 70 þús. páskaegg til Svíþjóðar íslenskt sælgæti er sem sagt í háum gæðaflokki. Erum við þá ekki með príma útflutningsvöru í höndunum? „Án efa,“ segir Kristinn Björns- son. „Vandamálið er þó, að enn sem komið er önnum við ekki inn- lendri eftirspurn. Útlöndin hafa því setið á hakanum. Nói-Síríus hefur nú keypt vélasamstæðu til landsins sem verið er að setja upp. I síðari hluta þessa mánaðar verða vélarnar tilbúnar og munum við steypa 3'Æ tonn af súkkulaði á 7 tímum. Þá getum við farið að sinna erlendum mörkuðum að einhverju rnarki." Aðrir sælgætisframleiðendur hafa einnig flutt út íslenskt sæl- gæti. Nói-Síríus hefur flutt út vörur í litlum mæli, m.a. Tópas til Fær- eyja og einnig til annarra Norður- landa. Sömu sögu er að segja um aðra sælgætisframleiðendur. Linda flutti út sælgætisvörur til Bandaríkjanna, Kanada og víðar en hætti öllum útflutningi fyrir fjórum árum. í bígerð er þó að flytja út að nýju. Móna h/f hefur HELGARPÓSTURINN 13

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.