Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 28
syg ■ ú spá margir í það hver verði eftirmaður Þorsteins Gísla- sonar sem var forstjóri Coldwater í Bandaríkjunum og sagði upp vegna ágreinings við forráðamenn Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna um verðstefnu. Þetta starf þykir ein- hver feitasti biti sem í boði er á ís- lenskum vinnumarkaði, og þykir víst að margir hyggi gott til glóðar- innar. HP heyrir að öfl innan SH hafi augastað á Sigfúsi Erlings- syni, núverandi yfirmanni mark- aðssviðs hjá Flugleiðum, en hann var áður þeirra maður í Bandaríkj- unum og reif upp markaðinn þar. Þykir hann líklegur til að gera svip- að í fiski sem hann áður gerði í flugi. Einnig heyrist að Guðmundur H. Garðarsson, blaðafulltrúi SH,hafi hug á þessari stöðu . .. JkM ■ úverandi ríkisstjórn skip- aði á síðasta ári nefnd sem marka átti opinbera stefnu í áfengismálum. Nefnd þessi hefur setið að störfum í haust og skilaði áliti fyrir jól til heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyt- isins. í tillögum og ályktunum nefndarinnar kemur margt merki- legt fram, m.a. sú hugmynd að skattleggja umboðsmannakerfið eða leggja það jafnvel alveg niður. Ákveðnum prósentum af hugsan- legum skatti yrði varið til áfengis- varna hérlendis. Allir voru sam- mála umþessa hugmyndInema Jón Kjartansson, forstjóri ÁTVR, sem beitti sér eindregið gegn því að við umboðsmannakerfinu yrði hreyft. Jón Kjartansson var skipaður af hálfu fjármálaráðuneytisins í nefnd- ina og var hann mjög tregur að veita nefndinni upplýsingar um um- boðsmenn og einstakar innfluttar víntegundir. Það var fyrst eftir að Árni Gunnarsson alþingismaður hafði látið gera tvær harðorðar bókanir á fundum nefndarinnar um brot á starfsháttum opinbers starfs- manns að Jón lagði alla umboðs- mannalistana á borðið. Jón Kjart- ansson var hins vegar það ósam- mála niðurstöðum nefndarinnar að hann neitaði að samþykkja ályktun- ina, en skilaði séráliti til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og sendi afrit af áliti sínu til fjármála- ráðherra þ. 11. nóv. sl. Fjármálaráð- herra sendi síðan þ. 25. desember sl. harðort bréf til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins þar sem hann sagði að ráðuneyti sitt væri andsnúið tillögum nefndarinn- ar með tilliti til sérálits forstjóra ÁTVR. Ljóst er því að umboðs- mannakerfið verður látið óáreitt. Nú blöskrar mörgum hin einarðlega afstaða Jóns Kjartanssonar, ekki síst með tilliti til þess að fjármála- ráðuneytið skipaði hann í umrædda nefnd og fjármálaráðherra heitir jú Albert Guðmundsson, hvers fyr- irtæki flytur inn mikið magn af áfengi og víni og hefur góðan um- boðsmannahagnað af. . . T alið er að Ellert B. Schram sé nú endanlega ákveðinn í að gefa pólitík upp á bátinn og muni til- kynna þingflokki Sjálfstæðisflokks- ins það þegar þing kemur saman að nýju að hann afsali sér þingsætinu. Mun Ellert telja frama- vonir í flokknum næsta litlar eftir úrslit í formannskjöri og varafor- mannskjöri á síðasta landsfundi. . . Síríus rjómasúldailaói Þegar Síríus rjómasúfikuladið kemur út úr súkkuladivélinni niðri á Barónstíg er búið að skipta því í 28 jafna bita. Hver biti er sérstaklega stimplaður með merki Síríus, svona rétt til þess að trgggja gœðin. Það er þess virði að bíta í Stríus. GOTT FOLK V/SA EITT KORT INNANLANDS OG UTAN BÚNAÐARBANKINN 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.