Helgarpósturinn - 12.01.1984, Síða 4
Alveg einstakt félag fyrir
einstæðinga
Viö Helgarpóstsmenn
treystum okkur ekki til aö
fullyrða að við höfum vakið
upp mikla hreyfingu, já,
stofnað til vakningar, með
greininni um hinn örvænt-
ingarfulla piparsvein hér
skömmu fyrir jólin. Altént
vitum við að hér í bænum
vinna ónefndir menn leynt
og Ijóst að því að stofna
nýtt félag, alveg einstakt fé-
lag. Já, þetta heitir félagið,
að minnsta kosti nú meðan
málið er á frumstigi —
Alveg einstakt félag. Hvata-
menn að stofnuninni eru
nokkrir ungir piparsveinar
og fráskildir, sem eru orðnir
þreyttir á hörðu einlífinu og
því smánarlega hlutverki
sem þjóðfélagið ætlar slíku
fólki. Félagið á að vera til
ánægju, til yndisauka með
skemmtanahaldi og sam-
komum, en þó fyrst og
fremst til gagns með sókn
fyrir bættum kjörum og
auknum réttindum einlifis-
manna. Af nógu er að taka,
segja hvatamennirnir, en við
bíðum í ofvæni eftir að geta
skýrt frá því hver hin aðkall-
andi baráttumál eru. Þegar
þar að kemur er því lofað að
fjölmiðlarnir muni ekki fara
varhluta af starfseminni. Og
— það skal tekið fram til að
forða öllum misskilningi:
Þetta einstaka félag er ekki
hjónabandsmiðlun, nei,
nema síður sé ...
Piparsveinn Helgarpóstsins
úttaugaður og örvæntingar-
fullur. Bókin kom að engu
haldi — en ætli sé von i hinu
nýja félagi?
Sýnd kl. 9.
Skilaboð
til Söndru
eftir skáldsögu Jökuls Jakobssonar
BLAÐAUMMÆLI:
Tvímælalaust merkasta jólamyndln í
ár.
FRI — Tíminn.
Skemmtileg kvikmynd, full af nota-
legri kímni og segir okkar jafnframt
þó nokkuð um okkur sjálf og þjóö-
félagið sem viö búum i.
IH — Þjóöviljinn.
Skemmtileg og oft bráöfalleg mynd.
GB — DV.
Heldur áhorfanda spenntum og flyt-
ur honum á lúmskan en hljóðlátan
hátt erindl sem margsinnls hefur ver-
ið brýnt fyrir okkar gráu skoilaeyr-
um, ekki ósjaldan af höfundi sog-
unnar sem filman er sótt i, Jökli
Jakobssyni.
PBB — Helgarpósturínn.
Bessi vinnur leiksigur í sínu fyrsta
stóra kvikmyndahlutverki.
HK — DV.
Getur Bessi Bjarnason ekki leyft sér
ýmislegt sem við hin þorum ekkl
einu sinni aö stinga uppá i einrúmi?
ÓMJ — Morgunblaðið.
Þríraf núverandi og fyrrverandi forkólfum Happdrættis Háskóla islands
rifjaupp gamladaga — sr. Sigurbjörn Einarsson, fyrrum biskup íslands,
Þórir Kr. Þóröarson og Guðmundur Magnússon, rektor. Smartmynd
Líf og fjör í lotteríinu
„Það er óneitanlega
óvenjulegt i heiminum að
háskóli sé byggður upp og
rekinn að verulegu leyti fyrir
happdrættisfé. En á Islandi
getur það varla talist
óvenjulegt, því hér er þjóð-
félagið meira og minna rek-
ið sem eitt stórt happ-
drætti." Á þessa leið mælt-
ist Guðmundi Magnússyni
háskólarektor í árlegu hófi
Happdrættis Háskóla ís-
lands í vikunni, en happ-
drættið verður fimmtugt 10.
mars næstkomandi.
Það er gróska í HHÍ á
afmælisárinu og stóri vinn-
ingurinn aftur orðinn veru-
lega stór, eða einbýlishúss-
verð, eins og hann var löng-
um áður, en vinningshlut-
fallið er þar hærra en þekk-
ist annars staðar eða 70%.
Og í ár eiga menn séns á
að fá mest 9.000.000 auk þess
sem Háskólinn er styrktur í
leiðinni.
Það var létt yfir mönnum
í hófinu og eftirfarandi há-
skólasögu sagði dr. Ármann
Snævarr, fyrrum rektor og
stjórnarformaður happ-
drættisins: Stúdent nokkur
hafði verið i sex ár við nám
i háskólanum i Kiev —
formlega séð. Hann hafði
mest sinnt lystisemdum,
látið bækurnar sitja á hak-
anum og alveg sleppt því
að taka próf í liffræði. Þar
kemur, eftir sex ár, að deild-
arforseti tekur pilt á hval-
beinið og segir að sam-
kvæmt skýrslu um námsfer-
ilinn sé árangurinn eitt
stórt núll og nú dugi ekkert
annað en að gangast undir
líffræöiprófiö eftir þrjár vik-
ur. Stúdentinn druslast í
prófið og í munnlegu prófi
er fyrsta spurningin: Hvað
geturðu sagt mér um
Darwin? Eftir nokkra um-
hugsun svarar stúdentinn
lífsglaði: Ég get sagt mikið
um Georgiuvín, dálítið um
Rínarvfn, en Darvín hef ég
aldrei drukkið!"
Tveir guöfræðiprófessorar gantast — Þórir Kr. Þórðarson og Björn
Björnsson
STRAUM
LOKUR
Cut out
LANDSINS BESTA ÚRVAL
STRAUMLOKUR OG SPENNUSTILLAR
í nær allar geröir bifreiða og vinnutækja
á mjög hagstæðu verði
HABERG h£
Skeifunni 5a. sími 84788.
m ■' I O
!j. i Q)
,5» f|l te ->
§ ■/v> =
m —- »
Geysir
Borgartúni 24 — 105
Reykjavík lceland —
Tel. 11015
Leigjum út nýja Opel
Kadett, Mazda 323 og
Daihatsu-bíla.
Sækjum og sendum.
Símsvari allan sólar-
hringinn.
EUROCARD
kreditkortaþjónusta
Nú getur þú fengið
HELGARPÓSTINN
í áskrift:
Inn um bréfalúguna
á föstudagsmorgni
Áskriftarsími 81511
4 HELGARPÓSTURINN