Helgarpósturinn - 12.01.1984, Blaðsíða 5
Smartmynd
Smartmynd
Einfaldleikinn segir alltaf mest
* Tímaritið Storð er nú komið
út f þriðja sinni, en þetta er
eitthvert merkilegasta rit
sinnar tegundar á íslandi
vegna vandaðs frágangs og
uppbyggingar. Það sem vek-
ur þó hvað mesta athygli
við skoðun þess, eru
skemmtilegar Ijósmyndir
Páls Stefánssonar sem sett
hafa huggulegan svip á útlit
tímaritsins frá upphafi.
Páll á að baki stuttan en
laggóðan feril í fagi sínu,
segist sjálfur ekki hafa byrj-
að að taka Ijósmyndir fyrr
en fyrirfimm árum. Þessi
stutti ferill hans í Ijósmynd-
uninni er óvenjulegur að því
leyti að nær allir aðrir
blaðaljósmyndarar á íslandi
hafa gengið með Ijós-
myndabakteríuna frá barn-
æsku.
Páll segist hinsvegar aldrei
hafa fengið neina dellu fyrir
Ijósmyndun. „Ég má þakka
þetta starf mitt uppgjöri
sem ég stóð i við sjálfan
mig fyrir hálfum áratug. Ég
var þá á krossgötum, vissi
eiginlega ekki hvaða stefnu
ég ætti að taka i lífinu. Það
var svo að vinur minn benti
mér á Ijósmyndaskóla í
Gautaborg og spurði mig
jafnframt hvort ég gæti ekki
hugsað mér Ijósmyndun
sem ævistarf eins og eitt-
hvað annað. Ég svaraði ját-
andi i hálfkæringi. Og ári
síðar var ég floginn til Sví-
þjóðar".
Þar var Páll I námi næstu
þrjú ár, að hann kom aftur
heim og hóf störf hjá lce-
land Review og síðar
Storð. Hann er spurður
hvaða mótfv hann hafi mest
gaman af að fást við.
„Þó undarlegt megi virðast
á ég mér engin sérstök
mótív að uppáhaldi. Ég
geng að hverju verki með
sama hugarfari, sem er að
Fjölgun verður á stöðvar-
stjórum Flugleiða erlendis
eftir áramótin. Þá verður að
nýju sérstakur stöðvarstjóri
í Glasgow, en skrifstofan
þar var lögð niður fyrir
nokkrum árum. Veruleg
aukning hefur orðið á flutn-
ingum á leiðinni Keflavlk —
Glasgow — Kaupmanna-
höfn, og verður ferðum á
henni fjölgað um eina á
viku í mars. í tengslum við
þessa aukningu verður svo
opnuð á ný skrifstofa f
Glasgow og verður stöðvar-
stjóri þar Þorgils Krist-
mannsson sem veriö hefur
á Heathrow. Það er nýr
framkvæmdastjóri markaðs-
sviðs Flugleiöa Sigfús Er-
lingsson sem vinnur að
þessum breytingum og
fleirum og þykir hann taka
málið föstum tökum ...
standa mig i mínu stykki.
Og þó, ætli fólk sé ekki
öðru fremur það'skemmti-
legasta að fást við I þessu
starfi. Það þarf nefnilega
svo heillandi sálfræði til að
taka góðar myndir af því“.
Það er ekki aðeins starf
Páls að taka Ijósmyndir,
heldur einnig áhugamál:
„Já, ég hef óskaplega gam-
an af því að fara eitthvað út
( ósnortna náttúruna í mín-
um frltíma og festa hana á
filmu. Það er svo þægilegt
og umfram allt róandi að
sitja einn á þúfu undir fjalli
og bíða eftir réttum Ijós-
brigðum umhverfisins til að
smella af. Einu sinni beið
ég f fimm tfma eftir belju til
þess að ná henni sem
gleggstri og sköpulegastri
á mynd“.
Hvernig finnst þér annars
að góð mynd eigi að vera?
„Hún á fyrst og fremst að
vera eins einföld og hægt
er, og tjá það raunverulega
sem sést í gegnum ramma
Ijósmyndavélarinnar. Enga
bölvaða effekta eða stæla.
Einfaldleikinn er nefnilega
alltaf bestur og segir mest“. ★
I • X *!■ IIV
Leiöur
misskilningur
leiðréttur
☆ Þær voru ekki beint hýrar í
bragði, nei, öskusjóðandi-
bandvitlausar, stöllurnar
Henríetta og Rósamunda
þegar þær höfðu samband
við HelgarpóStinn um dag-
inn og sögðu að vitlaus
mynd hefði birst af þeim f
síðasta blaði! Á myndinni
hefðu verið einhverjar
ókunnugar konur útf bæ og
önnur meira að segja reykj-
andi pípu!!! Þær báðu okk-
ur f gvuuuðanna bænum að
leiðrétta þennan misskiln-
ing ...
Þennan sama eftirmiðdag
hringdu á Helgarpóstinn
Helga Thorberg og Edda
Björgvinsdóttir og voru
heldur óhressar með mynd
sem hafði birst af þeim f
síðasta blaði með mynda-
textanum: „Henríettaog
Rósamunda — einkar góðat
en lauslátar í viðkynningu."
í fyrsta lagi hétu þær hvorki
Henrfetta né Rósamunda, f
öðru lagi væru þær ekki
lauslátar (þótt þær langaði
kannski soldið að vera það),
þótt satt væri og rétt að
þær væru góðar.
Helgarpósturinn vill ekki
eiga á hættu að eiga þessa
fjóra kvenvarga á fæti og
leiðréttir hér með þennan
leiða myndarugling ... ★
Umsjón:
Egill Helgason
. Jim Smart
Nú getur þú notað
eitt oa sama VISA kortið
hér neima og erlendis.
" r-r,
Breyuarreglurum VISAgreiðslukort V|SA kort eru afgreidd á
veitaþernuheimildtilaðnotakortiði 51
verslunumog þjónustustöðum hér 40 clfgrSIÖSlUStOOUm
heima.
VISA kortið gildir einnig víðast hvar
annarsstaðar í heiminum.
Landsbankans víðsvegar
um landið.
LANDSBANKINN
Banki allra landsmanna
■¥•*-¥■•¥■*•¥•■¥■•*■*■¥■
HELGARPÓSTURINN 5
ARGU5«S>