Helgarpósturinn - 12.01.1984, Síða 8
'fXffJfff
„Smám saman varð
ég skeptískari á það sem ég sá að
var að gerast þarna, ég varð utan-
veltu og einmana. Þeir lögðu hart
að mér að neyta efnisins en ég
vildi standa upprétt og ekki gefa
mig. Mig tók um leið sárt að horfa
upp á Papagayo, sem nú neytti
heróínsins meira og minna alla
daga.
Heróínið byrjar sem fikt og
menn halda að þeir séu ekki í
hættu um að ánetjast þegar þeir
gera ekki annað en að taka það í
nös, en þetta er blekking. Fólk
langar alltaf aftur í efnið og ánetj-
ast eftir 2—3 skipti. Þegar lítið er
til af efninu er síðan gripið til
sprautunnar, því að þá nýtist það
betur. Það að sprauta sig verður
þá aðal ,,kikkið“.
En svo kom að því. í einu partí-
inu bað bróðir Papagayos mig að
biðja um efni handa sér, því Papa-
gayo var tregur á að láta bróður
sinn hafa efni.“ Adda fór fram og
bað um að fá einn skammt. Papa-
gayo tók hana fagnandi á orðinu
og tilkynnti partíinu um leið að
hún ætlaði nú að prófa. Heilmikil
félagsleg pressa var lögð á hana
og hún lét undan.
,,Eg tók í nös og varð æðislega
veik. Eg kastaði upp aftur og aftur.
Þetta eru fyrstu áhrifin: Ofboðsleg
vanlíðan. Svo leið vika þangað til
ég tók það aftur. Ég var mjög langt
niðri vegna ástandsins í heild og
nú bættist við samviskubitið yfir
því að hafa gefist upp. Skyndilega
var ég komin inn í þessa hringiðu.
Það var engin lógík til lengur, ein-
hvern veginn. Eftir fyrsta skiptið
var ég ákveðin í að gera þetta
aldrei aftur. Aldrei. En svo kom
bara næsta helgi og allir voru í
þessu. Allir vinir mínir — allir sem
ég reiddi mig á. Það var enginn af
þeim í víni, sem fram að þessu var
minn vímugjafi, en með því að
taka heróín var ég þó með. Þetta
var í lok nóvember, tveimur
mánuðum eftir að ég kom aftur út.
Heróíni fylgir þung-
lyndi og vonleysi. Allt hættir að
skipta máli nema efnið. Mér
fannst ekkert eftirsóknarvert
lengur eftir að það náði tökum á
mér; ekki kynlíf, ekki persónuleg
sambönd, ekkert. Það er erfitt að
greina á milli áhrifa efnisins sjálfs
og annarra almennra vonbrigða í
lífinu þegar maður er að reyna að
gera sér grein fyrir líðaninni á
þessum tíma, svona eftir á, en af-
staðan var þessi: Þetta er það eina
sem skiptir máli, víman svíkur
ekki né veldur manni vonbrigð-
um. Enda lifði maður fyrir hana.
Sprautunin varð að nánast kirkju-
legri athöfn og jafnvel erótískri
um leið. Andlegar þarfir jafnt sern,
veraldlegar, eins og þörfin fyrir
kynlíf, þær leystust alveg upp.
Óhugnaður athafnarinnar leystist
upp í alsælu.
En svo á milli skammta sökk
maður niður í dýpra og dýpra
þunglyndi og vonleysi. Þetta er
skjótvirkasta efni sem ég veit um
til að breyta viðhorfi fólks til lífs-
ins. Jafnvel skynsamasta fólk
breytist, það varpar öllu frá sér
fyrir þetta — allt gildismat þess á
því hvað sé eftirsóknarvert í lífinu
breytist."
Adda segir að sjálfsagt sé hægt
að tína til alls kyns skýringar á
heróínneyslunni, sem nú á sér
stað, jafnvel ekki síst meðal barna
efnaðra foreldra. Heróínneysla
forréttindahópa hefur farið hrað-
vaxandi síðustu tvö ár í Evrópu og
í Bandaríkjunum. Rætt er um
vaxandi vonleysi ungu kynslóðar-
innar vegna vaxandi atvinnuleys-
is og vegna hættunnar á gjöreyð-
ingarstríði. En fleira kemur vafa-
laust til.
,,Ég held að sumt af þessu séu
eftirköst vegna byltingarinnar
1974,“ segir Adda. „Portúgalir
höfðu lengi verið í eins konar
sigurvímu vegna þeirra breytinga
og réttinda sem þar áttu að hafa
náðst fram. Upp úr 1980 fór síðan
að bera á vonleysi og vonbrigðum
Norræna húsið
Starf forstjóra
Norræna hússins í
Reykjavík
Hér með er auglýst laust til umsóknar starf for-
stjóra Norræna hússins í Reykjavík, og verður
staðan veitt frá 1. nóvember 1984 til fjögurra
ára.
Forstjórinn á að skipuleggja og veita forstöðu
daglegri starfsemi Norræna hússins, en hlut-
verk þess er að stuðla að menningartengslum
milli íslands og annarra Norðurlanda með þvi
að efla og glæða áhuga íslendinga á norrænum
málefnum og einnig að beina islenskum menn-
ingarstraumum til norrænu bræðraþjóðanna.
Ríkisstarfsmenn eiga rétt á allt að fjögurra
ára leyfi frá störfum til að taka að sér stöður við
norrænar stofnanir og geta talið sér starfs-
tímann til jafns við starf unnið i heimalandinu.
Laun og önnur kjör ákvarðast eftir nánara sam-
komulagi. Fritt húsnæði.
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðlaugur
Þorvaldsson, stjórnarformaður NH (s.25644) og
Ann Sandelin, Norræna húsinu (s. 17030).
Umsóknir stílaðar til stjórnar Norræna hússins
sendist:
Nordiska Ministerrádet,
Kultursekretariatet,
Snaregade 10,
DK—1205 Kobenhavn K.
Skulu þær hafa borist eigi síðar en 15. febr. 1984.
Norræna húsiö er ein meöal 40 samnorrænna fastastofnana og
framkvæmda, sem fé er veitt til á hinni sameiginlegu norrænu
menningarfjárhagsáætlun. Ráðnerranefnd Noröurlanda, þar sem
menningar- og menntamálaráðherrarnir eiga sæti, fer meö æðsta
ákvörðunarvald I hinni norrænu samvinnu um menningarmál. Fram-
kvæmdir annast Menningarmálaskrifstofa ráðherranefndarinnar I
Kaupmannahöfn.
hjá fólki vegna þess að voða lítið
hafði í rauninni breyst. Þetta var
eins og svikin bylting.
Aðstæður ungs fólks þarna eru
gjöróiíkar okkar. Það sem við álít-
um eðlileg samskipti kynjanna
fyrir giftingu til dæmis er ekki til.
Ungir menn leita til gleðikvenna
eða hver til annars. Framtíðin er
engan veginn glæsileg fyrir ungan
mann. Venjuleg vinna gefur lítið í
aðra hönd, menn eiga fyrir kaffi
og sígarettum ef þeir komast í
sæmilegt skrifstofudjobb. Mér
finnst svona eftir á, að ef ég hefði
alist upp í millistéttarfjölskyldu
þarna, þá væri ég annað hvort
mella eða „díler". En það eru
engin einhlít svör.“
Adda ákvað þegar
líða tók að jólum að fara heim. Þá
var hún búin að taka heróín 5—6
sinnum. Lögreglan var að gera
rassíu á fíkniefnamarkaðnum og
fólk var stressað og niðurdregið.
„Ég var flutt út frá fjölskyldu
Papagayos og á hótel þarna rétt
hjá, en borðaði þó alltaf með fjöl-
skyldunni. Það hafði kólnað á
milli okkar Papagayos. Ég hafði
farið og náð í peningana mína á
heimili hans og stungið af frá hon-
um og vinum hans. Hann varð
óður og barði mig. Veldi þeirra á
hassmarkaðnum í Lissabon hafði
farið hnignandi og þeir höfðu far-
ið til Spánar til að sækja nokkur
hundruð kíló af hassi. Ég fór með
í þá ferð og var ósátt við það
hvernig þeir fóru með einn
gæjann í ferðinni. Hann hefði óaf-
vitandi setið uppi með alla sökina
hefði komist upp um smyglið.
Þessi gæi var síðar drepinn fyrir
að kjafta frá viðskiptum, hann var
sprengdur í loft upp í bílnum sín-
um. Ég vildi komast burt úr þess-
um dýragarði.
Papagayo bað mig að bíða í tvo
daga, sagðist ætla að koma með
mér. Net lögreglunnar var að
þrengjast að honum og hann
þurfti að kæla sig. Hann keypti sér
vetrarklæðnað og við fórum heim
til íslands.
Hann labbaði í gegnum tollinn á
Keflavíkurflugvelli með 100
grömm af hassi og líklega 10—15
grömm af heróíni, en hann
laumaðist ekki í gegn. í hliðinu var
gerð athugasemd við það að hann
hefði aðeins flugmiða aðra leiðina
en þá trylltist hann af suðrænum
skaphita og gerði sig eins áber-
andi og hann gat. Taktíkin virkaði
og hann komst óáreittur í gegn.
Við fórum aftur út eftir mánuð.
Þá fórum við niður til Algarve, þar
sem Papagayo þekkti mann,
Canario að nafni, sem rak tísku-
fyrirtæki með tveimur fyrirsæt-
um, Manúelu og Selestu. Manúela
var á heróíni. Canario bauð mér
vinnu við tískufyrirtækið. Hann
ferðaðist með úrval sitt af fatnaði
milli 5 stjörnu hótela í Portúgal pg
módelin sýndu klæðnaðinn. Ég
var í því að taka á móti kúnnum.
Manúela var í því auk módelstarfa
að selja sig til að drýgja tekjurnar.
Ég var í íbúð á Algarve með
Manúelu og helgarnar fóru þar í
heróínneyslu og þegar farið var til
Lissabon var sniffað eða sprautað
á hverjum degi. Þannig gekk þetta
frá febrúar og fram í endaðan júlí.
Ég var orðin langt leidd af neysl-
unni. Allt annað var hismi, allur
baráttuvilji var horfinn, tíminn fór
allur í heróín núna.
Úr fjarlægð fylgdist
ég með hvernig afköst, áhrif og
fjármagn Papagayo í Lissabon
fóru dvínandi. Papagayo og
Manúela ákváðu ásamt þriðja
aðila að kaupa heróín af Paki-
stana, sem komið hafi á fölskum
afgönskum flóttamannapassa í
gegnum Holland til Portúgal.
Þeim tókst að ná saman um tveim-
ur milljónum króna og „díllinn"
var settur upp. Ætlunin var að
setja síðan upp bein viðskiptasam-
bönd við Afghanistan og Pakistan
þegar markaðurinn yrði tilbúinn.
Gengið var frá samkomulaginu í
smábæ utan við Lissabon, í
Cascais. Heróínið átti síðan að
sækja í íbúð Pakistanans í Lissa-
bon. Manúela var send inn í íbúð-
ina á meðan við Papagayo biðum
úti í bíl. Biðin varð löng. Við viss-
um ekki að lögreglan var inni í
íbúðinni. Pakistaninn var ekki
heima en konan hans var þar og
féll saman í höndum lögreglunn-
ar, sem gerði mörg kíló af heróíni
upptæk þarna. Rétt áður en við
Papagayo ætluðum að stinga af
settist óeinkennisklædd lögga upp
í bílinn til okkar og leikurinn var
tapaður. I bílnum var taska
Manúelu með fjórum grömmum
af heróíni, sýnishornum sending-
arinnar. „Keyrðu niður á stöð,“
sagði löggan. Og Papagayo ók
niðureftir, sallarólegur, eins og
hann væri að keyra ömmu sína
heim úr boði. Hann og Manúela
sátu í yfirheyrslum í fleiri klukku-
stundir en ég slapp alveg. Þeim
bar saman um það að ég hefði
staðið utan við þetta allt. Tvær
löggur keyrðu mig svo út í íbúðina
í Cascais. Þar tókst mér að skola
niður öllu sprautudótinu án þess
að þeir tækju eftir því — þeir voru
að skoða myndaalbúmið mitt á
meðan. En tveir kaupendur komu
þarna og löggan náði öðrum
þeirra.
Ég flutti heim til Papagayo en
hann fór í fangelsi. Nú hafði ég
ekkert efni lengur og leið ijla, en á
sama tíma var þarna komið tæki-
færi til að hætta. Við höfðum áður
reynt að hætta, tvisvar eða þrisv-
ar sinnum, án árangurs. Fjöl-
skylda Papagayos færði honum
mat í fangelsið og annað sem
hann þurfti. Þau gerðu allt fyrir
hann. Það var eins og hann væri
bara á spítala. Pabbi hans reddaði
honum besta lögfræðingnum í
bænum og hann var keyptur út —
látinn laus gegn tryggingu eftir
nokkrar vikur. Þarna er ekki verið
að spyrja um það hvort þú sért
sekur heldur aðeins hvern þú
þekkir. Pabbinn þekkti líka einn
virtasta dómarann í Lissabon.
Ekki tókst að sanna viðskiptin á
Papagayo og Manúelu. Pakistan-
inn náðist en þagði um allt. Konan
hans var með ruglaðan framburð
sem stangaðist á við það sem
Papagayo og Manúela héldu fram.
Það var mín gæfa að lenda ekki
inni. Utlendingar verða ekki
keyptir út.
Éftir að Papagayo losnaði, byrj-
aði hann strax að ,,díla“ aftur og
hann hélt áfram í heróíninu. Ég
þraukaði. Það bjargaði mér
kannski að horfa á hann fara
fjandans til í heróíninu.
Ég fór heim. Allir peningar
höfðu að vísu horfið í dílnum en
Papagayo tókst að redda handa
mér pening með því að selja sig
portúgölskum aðalsmanni, Car-
los, sem var afar hrifinn af honum.
Þegar ég kom heim
leitaði ég fljótlega til geðlæknis,
sem setti mig strax á dúndursterk
geðlyf eftir einn viðtalstíma um
æsku mína og uppvöxt! Síðan
reikaði ég um í reiðileysi og missti
hálfan mánuð úr lífi mínu. Ég
vaknaði upp á lögreglustöðinni
einn daginn. Skömmu síðar hitti
ég sálfræðing fyrir utan Óðal sem
tókst að blása einhverjum votti af
lífsanda í mig á ný. Hann trappaði
mig niður og tók mig af þessum
sterku lyfjum. Þetta var í ágúst
’82.
Stuttu síðar fór ég út á land, til
æskustöðvanna, og þar vann ég á
fullu, borðaði góðan mat og
byggði mig aftur upp líkamlega,
raðaði saman nokkrum brotum.
Ég hef bætt við mig 12 kílóum síð-
an ég kom heim.
Síðan hef ég notað alkóhól mjög
mikið, meira en áður, en aldrei
þannig að ég hafi viljað kasta mér
út í það.
Ég hef misst trúna á lífið að
miklu leyti. Ég hangi núna á blá-
þræði, fer varlega í alla hluti, tek
enga áhættu í tilfinningasam-
böndum. Ég þori ekki ennþá að
fara til útlanda. Ég verð þunglynd
alltaf öðru hverju, en ég var aldrei
þannig áður. I raun finnst mér
hallærislegt að vera á bömmer og
berst gegn því markvisst og með-
vitað.
Ég er persónulega á móti þess-
um draug sem ég er orðin. Núna
sækist ég því eftir félagsskap við
þá sem ekki eru á því að gefast
upp. Ég get ómögulega verið í ná-
vist fólks sem er á bömmer.”
Það síðasta sem heyrðist frá
Lissabon var það, að Papagayo
hafði farið í meðferð sl. sumar og
náð sér. Hann selur nú bara hass
og stundar iðju sína einn. „Aðal-
atriðið er að vera einn í þessu,“
segir hann.
En José, vinur hans í Torre-
molinos, sem alla tíð vann bakvið
tjöldin, er kominn á toppinn.
Hann hefur náð því takmarki sem
hann setti sér sem strákur í fá-
tækrahverfum Lissabon: Að
verða vellauðugur. Hann lenti í
fangelsi fyrir fíkniefnamisferli í
sumar. Þá snaraði hann út sem
svarar 400.000 krónum. Hann er
nú annar aðaleigenda Pipers,
stærstu fíkniefnadreifingarmið-
stöðvar í Suður-Evrópu. Og
Manúela selur sig enn.
EXCELLENT
Teygjulök
tvær
stærðir
Mikið
úrval
— Sængurlín
cinavöí hé.
Sími: 27755
8 HELGARPDSTUP' MN