Helgarpósturinn - 16.02.1984, Page 10

Helgarpósturinn - 16.02.1984, Page 10
HP HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Árni Þórarinsson og Ingólfur Margeirsson Ritstjórnarf ulltrúi: Hallqrlmur Thorsteinsson Blaðamenn: Egill Helgason og Sigmundur Ernir Rúnarsson Útlit: Björgvin Ólafsson Ljósmyndir: Jim Smart Handrit og prófarkir: Hildur Finnsdóttir Útgefandi: Goðgá h/f. Framkvæmdastjóri: Guðmundur H. Jóhannesson Auglýsingar: Áslaug G. Nielsen Skrifstofustjóri: Ingvar Halldórsson Innheimta: Jóhanna Hilmarsdóttir Afgreiðsla: Þóra Nielsen Lausasöluverð kr. 30. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík, simi 8-15-11. Afgreiðsla og skrif- stofa eru að Ármúla 36. Simi 8-15-11. Setning og umbrot: Alprent hf. Prentun: Blaðaprent hf. Bankastjóra- mál Helgarpósturínn oirtir bankastjóratal I blaðinu í dag. Tilgangurinn með bankastjóratalinu er meðal annars sá að sýna fram á hina pólitisku skiptareglu sem gilt hefur við úthlutun á stöðum bankastjóra hér á landi. Skiptareglan á við rík- isbankana, sem lúta stjórn þingkjörinna bankaráða. Að nafninu til eru bankaráðs- menn ríkisbankanna fulltrú- ar fólksins í gegnum umboð frá flokkum sínum á þingi. En eru þeir fulltrúar fólks- ins eða þröngra flokkssjón- armiða? Stærsta hlutverk hinna þingkjörnu bankaráða hefur verið að velja banka- stjóra. Það talarslnu máli um hina pólitísku skiptareglu, að hjá ríkisbönkunum eru bankastjórarnir þrír. Einn er jafnan sjálfstæðismaður, annar fyrir Framsóknarflokk- inn og sá þriðji fyrir hina flokkana, oftast Alþýðuflokk- inn. Það gerist æ oftar að bankaráðsmenn greiði at- kvæði gegn flokkslinunni þegar velja á bankastjóra. Tvö síðustu dæmin úr Bún- aðarbankanum eru nærtæk- ust ( þessu sambandi. Vald fólksins yfir eigin bönkum er hverfandi i gegn- um þetta pólitíkska fulltrúa- kerfi. Ríkisbankarnir eru ekk- ert frekar bankar fólksins en hinir bankarnir. Þetta vita all- ir. Það sjónarmið hefur átt vaxandi fylgi að fagna að rfk- isbankarnir séu, vegna fast- mótaðra pólitiskra afskipta af stjórnum þeirra, fremur flokkslegar skömmtunar- stöðvar fjármagns í landinu. Þessi breytta afstaða al- mennings kemur nú fram í því að bankaráðsmenn virð- ast vera farnir að hafna til- nefningarrétti flokkanna í bankastjórastöður. Grund- völlur gömlu skiptareglunn- ar er þó enn til staðar og hann verður það meðan ekki finnst annað form á hags- munavörslu fólksins innan ríkisbankanna en I gegnum stjórnmálaflokkana. Hitt er annað mál, að þeir bankastjórar sem nú ráðast til starfa virðast ópólitískari en margir fyrirrennarar þeirra. Pólitík virðist ekki skipta þá höföumáli, heldur fagleg sjónarmið. Þessi þró- un er góðs viti og bendir til þess að bankarnir verði sí- fellt óháðari þeirri spilltu flokkspólitik sem viðgengist hefur í landinu síðan við munum eftir okkur. BREF TIL RITSTJORNAR Skipafélögin og veröstefnan Greininni Navigare necesse — etcetera er í ýmsu ábótavant. Of lítil vinna er lögð í hana, aðeins dregin upp sú mynd af flutninga- bransanum, sem forstjórar skipa- félaganna vilja halda að neytend- um. Tökum dæmi: 1. Verðsamkeppni. „Samkeppni skipafélaganna hefur harðnað geysilega síð- ustu árin, bæði í þjónustu, verði og vörumeðferð." Nú vill svo til, að skipafélög- in þrjú hafa komið sér upp (óformlega) sérstakri nefnd, til að samræma aðgerðir sínar í taxtamálum gegn neytendum. Slíkt kallast ekki samkeppni um neytendur, heldur sam- blástur gegn neytendum. Á máli skipafélaganna heitir þetta auðvitað ekki samblást- ur gegn neytendum, heldur, að.... ekki(sé)veriðaðrugla með verð, sem ekki standast." í raun þýðir það, að íslenskir neytendur greiða 300% hærra verð fyrir fraktir en nokkur annar þjóðflokkur í veröld- inni. Sérkennileg samkeppni það. En er þetta ekki brot á lögum um verðlag, sam- keppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti? Nei, aldeilis rekstri dagblaðsins Tímans tekur við starfi framkvæmdastjóra Sig- urður Skagfjörð Sigurðsson, sem verið hefur í sama hlutverki hjá Félagsstofnun stúdenta. Stjórn Félagsstofnunar hefur verið að leita að eftirmanni og heyrir HP að fyrir valinu verði Skúli Thoroddsen sem undanfarið hefur verið hag- fræðingur verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Skúli er ekki alveg ókunnugur framkvæmdastjóra- stólnum í Félagsstofnun, því hann vermdi hann áður en Sigurður Skagfjörð tók við . . . v arðandi Skula Thorodd- sen: Lengi höfðu verið samvinnu- örðugleikar milli hans og Þrastar Ólafssonar, varaformanns Dags- ekki. 1 21. gr. segir: „Samning- ar, samþykktir og annað sam- ráð milli fyrirtækja um verð og álagningu er óheimilt, þegar verðlagning er frjáls." Nú heyrir verðlagning skipafélag- anna — og olíufélaganna — undir Verðlagsstofnun, vænt- anlega til verndar neytendum. Afleiðing þessa ófrelsis í verð- lagningu var að skipafélögin — og olíufélögin — voru meðal örfárra atvinnugreina, sem græddu verulega harðindaár- ið 1983. Það er gott að eiga skjól hjá Verðlagsstofnun. 2. Vöruhús. „Það er gífurlegt fjármagn sem liggur í húsunum og arð- semin er lítil," segir Hafskip. Reykjavíkurborg á sjálf Faxa- skála og leigir Hafskip hann, svo ekki ber Hafskip þann fjár- magnskostnað, sem á Reykja- víkurborg fellur. Fjármagnskostnaðurinn af vöruhúsunum er hinsvegar ekki aðalatriðið í þessu sam- bandi, heldur sú einokunar- aðstaða, sem aðgangur að hafnarbökkum og vöruhúsum veitir. Guðmundur Ásgeirsson hjá Nesskip lýsti þessu einmitt vel í viðtali í Mbl. í fyrra mán- uði. Sá, sem ekki hefur aðgang að vöruhúsi á hafnarbakka, getur ekki keppt við skipafé- lögin þrjú. Erlendis þekkist það óvíða, brúnar. Eins og menn muna var Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, aðalhvata- maður þess að Þröstur var ráðinn á sínum tíma. Við ráðningu Þrastar minnkaði valdsvið Skúla og lyktaði þeirri ljósu og leyndu rimmu með því að Skúla var bolað í burtu eftir að Þröstur vildi ekki samþykkja samning hafnarverkamanna þess eðlis að þeir réðu sjálfir hvern þeir kysu sem sinn erindreka gagnvart atvinnurekendum. Beindu hafnar- verkamenn þeim tilmælum til for- ystumanna Dagsbrúnar að Skúli yrði þeirra talsmaður. Þetta vildu hvorki Guðmundur J. né Þröstur skrifa undir og endaði rimman með uppsögn Skúla í desember. Hefur verið ráðinn annar maður til að annast lögfræðilega ráðgjöf til Dagsbrúnar og er sá Atli Gíslason. Mun hann koma mun minna við sögu en Skúli og vinna aðeins tvo daga í viku, tvo tíma í senn. Brottför Skúla styrkir stöðu Þrastar Ólafs- sonar og mæna nú margir á hann sem arftaka Guðmundar J. sem for- manns Verkamannasambandsins og væntanlegan þingkandídat en líklegt þykir að Guðmundur J. dragi sig senn í hlé .. . ii ■ ■ arkan sex hefur nú færst í bílaauglýsingar. Eru þeir Fiat-salar þar mest áberandi og leggja sig fram um að lasta aðrar bílategundir um leið og þeir hrósa Fiat. Hefur þetta gengið svo langt að Neyt- endasamtökin hafa að eigin frum- kvæði séð ástæðu til þess að skerast í leikinn. Þykir sýnt að auglýsingar Fiat-salanna samræmist ekki sam- keppnisreglum. Það sem mestu fjaðrafoki veldur er listi yfir „bestu bíla ársins" sem birst hefur i aug- lýsingum þeirra Fiat-manna. „Besti bíll ársins" er valinn af 15 Evrópu- þjóðum og sýnist vist hverjum sinn fugl fagur. Atkvæðamagni er mjög misskipt á milli þjóða. Þannig hafa fjögur lönd meirihluta og eitt land, t.d. Italía, hefur meira atkvæða-' magn heldur en öll Norðurlöndin. Þau fjögur lönd sem meirihluta hafa, sem eru Ítalía, Frakkland, England og Þýskaland, nota at- kvæðamagn sitt óspart til að veita bílum sínum brautargengi í keppn- inni. Keyrði svo um þverbak að einn ensku dómendanna sagði af sér og mótmælti vinnubrögðum keppninnar. Mjög athyglisvert er líka að tveir stærstu bílaframleið- endur í heimi hafa ekki fulltrúa í dómarasætum, enda komast bílar að skipafélögum sé veitt slíkt kverkatak. Þvert á móti leigja/selja borgaryfirvöld, sem hvort eð er fjármagna sjálf h’afnaraðstöðuna, öðrum fyrir- tækjum en skipafélögum vöru- húsin, svo skilyrði skapist fyrir raunverulega samkeppni og lækkað verð í skipaflutning- um. Sú er a.m.k. reynslan er- lendis. Davíð borgarstjóri gerði bet- ur í að auka samkeppni með því að leggja fjármagn í slíkan atvinnurekstur, en að kaupa hlut í Isfilm, fáum til gagns. Það er auðvitað ekki ástæða til að fylla hið annars ágæta blað, Helgarpóstinn, af athugasemdum um þessa einu grein. En það er ýmislegt gagnrýnisvert í starfsemi skipafélaganna, einkum þessi grimmdarlega verðstefna þeirra, sem full ástæða er til að vekja at- hygli á, þegar heilli síðu er eytt á skipafélögin. Virðingarfyllst, Sigurður Guðmundsson P.S. Lausnin á spilaþrautinni í blaðinu var ekki rétt. Helgarpósturinn þakkar gott bréf og þarfa ábendingu. — Ritstj. frá þessum löndum sjaldnast á lista og þá oftast mjög neðarlega. Er nú að bíða og sjá hvort Neytendasam- tökin verða þess megnug að gera bílaauglýsingar kurteislegri eða hvort enn meiri harka færist í leik- inn . . . D ■^^eykvíkingar hafa eignast nýtt tívqlí (hér er ekki átt við hluta- félagið ísfilm), það fer ekkert á milli mála, og það sem meira er — tívolí á hjólum. Blákaldur raunveruleik- inn er að vísu svolítið öðruvísi; í augum fullorðna fólksins er tívolíið ekkert annað en ofurvenjulegur strætisvagn, frábrugðinn öðrum strætisvögnum að því leyti að hann er lengri og samsettur úr tveimur hlutum. En börnin ráða sér ekki fyr- ir kæti og fjölmenna í þennan ævin- týralega farkost sem í munni þeirra heitir ,,harmónikkustrætó.“ Orð- hagir menn hafa líka tekið við sér og hafa klambrað saman nafni á vagninn: Ormurinn langi í höf- uðið á frægu víkingaskipi. Ymsar hugmyndir og bollaleggingar eru í gangi um nýja strætisvagninn: ein er sú að SVR komi sér upp „pakka- ferðum" að hætti ýmissa einkafyrir- tækja. Ferðamönnum verði þá seld ferð af Lækjartorgi og upp að félags- miðstöðinni Gerðubergi í Breið- holti. Þar verði framin sönglist (væntanlega af söngelskum strætó- bílstjórum) og borið fram kaffi og rjómapönnukökur. Klukkutíma síð- ar verði svo aftur haldið niðrí sið- menninguna. Hæfilegt verð á pakk- anum væri svona hundrað krónur. Líst mönnum þetta hinn besti ferða- valkostur í kreppunni. . . I# H^^.reditkortastríðið hefurekki farið framhjá neinum. I þessum við- skiptum er vafalaust margt að var- ast. Það sannreyndi einn af við- skiptavinum Visa um daginn. Hann fékk yfirlit yfir mánaðarúttektir sínar og kannaðist ekki við helm- inginn! Þegar farið var að kanna málið kom á daginn að gefin höfðu verið út tvö kort á sama númer . . . ~ ▼ --------------------- Gaukur á Stöng veitingahús, Tryggvagötu 22, sínni 11556 10 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.