Helgarpósturinn - 16.02.1984, Side 27

Helgarpósturinn - 16.02.1984, Side 27
Y ■ msir spá því að Sjálfstæðis- flokkurinn muni slíta stjórnarsam- starfi við Framsóknarflokkinn og ganga til kosninga í sumar. Astæð- urnar eru margar. í fyrsta lagi hafa áhrif kjaraskerðingarinnar enn ekki ýft öldur launafólks, sem sættir sig við krappari kjör gegn minnkandi verðbólgu, en óvíst er hvort sú aí- staða almennings helst út árið. í öðru lagi þykir líklegt að aukinn loðnukvóti þýði auknar þjóðartekj- ur, sem komi Sjálfstæðisflokknum til góða. Auk þess benda óopinber- ar rannsóknir Hafrannsóknastofn- unarinnar og annarra sambæri- legra aðila til þess að þorskveiðin verði með mesta móti í ár. Kuld- arnir við Grænland munu að öllum líkindum hrekja þorsk og annan nytjafisk á fslandsmið. í þriðja lagi er Þorsteinn Pálsson enn óskrifað blað og flokksmenn hans telja að ekki megi una öllu lengur við það að formaðurinn sé embættislaus og að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki forsætisráðherraembættið. Að öll- um þessum ástæðum samanlögð- um, og nokkrum í viðbót, ætla margir að sumarið sé einmitt rétti tíminn fyrir Sjálfstæðisflokkinn til að ganga til þingkosninga og að miklir möguleikar séu á hreinum meirihlutasigri þeirra. Alla vega þykja mikil og tíð fundahöld sjálf- stæðismanna á undanförnum vik- um benda til kosningaskjálfta innan flokksins .. . U r veitingabransanum berast þær fregnir að eigendur skemmtistaðarins Safari hafi ný- verið keypt yfir til sín kjallarameist- arann á Broadway, Jón Hildiberg að nafni. Munu forráðamenn Broadway vera afar svekktir þessa dagana yfir mannamissinum en Jón hefur verið manna iðnastur á þeim stað við að brydda upp á alls kyns nýjungum. Aftur á móti hyggst Safari nú sigla inn í hatramma sam- keppni við skemmtanaveldi Ólafs Laufdals og kó, meðal annars bjóða í auknum mæli upp á lifandi músik og ýmsar nýjungar í þjónustu og skemmtun. Eigandi Safari er Jóhannes Lárusson, fyrrum rekstrarstjóri borgarinnar.en hann keypti Safari einmitt af Óla Laufdal á sínum tíma ... LAUiSN Á SPILAÞRAUT Ef norður á engan spaða, þá læt- trompar þú lauf. Spilar síðan ur þú ás og kóng í laufi. Svo hjarta spaða. Andstæðingarnir fá því að- kóng og í hann kastar þú laufi. Þá eins einn slag á spaða. Samvinnubankinn á Selfossi mun frá og með fimmtudeginum 16. febrúar nk. auka við þjónustusvið sitt og sjá um kaup og sölu á ferða- og námsmannagjaldeyri. Þar verður einnig hægt að kaupa innlenda gjaldeyrisreikninga auk þess sem útibúið veitir alla þjónustu varðandi VISA-greiðslukort. Skíðaskálinn í Bláfjöllum, FJflLLnuEmnsðR sf. sími 78400 Bjóöum einnig aöstööu fyrir nestisfólk A skíðum skemmti ég mér í Bláfjöllum — fer svo í og fæ mér eitthvað gott í gogginn Viö hjá Fjallaveit- ingum höfum kappkostaö aö bjóöa skíða- mönnum góöa þjónustu og munum gera þaö áfram. Skíöaleiga Hjá okkur getur þú fengiö leigð skíöi, stafi og skíöaskó. Heitir og kaldir réttir eru aö sjálfsögöu á boðstólum s.s. margs- konar súpur, heitar sam- lokur og kaldar, ham- borgarar, franskar, heitt kakó og gosdrykkir. HELGARPÓSTURINN 27’

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.