Helgarpósturinn - 23.02.1984, Síða 7

Helgarpósturinn - 23.02.1984, Síða 7
MUNDIRÐU KAUPA NOTAÐAN BÍL AF ÞESSUM MANNI? HP oní saumum bíla- * brasksins á Islandi eftir Sigmund Erni Rúnarsson myndir Jim Smart Prartg og allskonar brask er íslendingum engin ný- lunda. Adur fyrr uar til fjölmenn stétt manna sem prangaði með hesta, og þeir hinir bestu þar í hópi gátu auðveldlega selt staurblinda, draghalta og jafnuel há- aldraða klára sem vœru þeir stólpa gœðingar. Nú hef- ur bíllinn tekið uið af hestinum sem þarfasti þjónn landsmanna. Og braskið færstyfir á járnbykkjurnar. Prangið er engu minna en áður, munurinn er sá einn að nú er sparkað í dekk í stað þess að kíkja upp í klára. Bílaviðskipti á íslandi hafa þótt lífleg um áraraðir, eða allt frá þuí bíllinn áuann sér fastan sess á íslensku malarvegunum um og eftir 1950. I hugum marguís- legra manna, heiðarlegra sem óheiðarlegra, hefur þessi bísness þótt kjörinn gróöauegur, enda hefur jafn- an mátt deila lengi um það huað einn bíll eigi að kosta í endursölu. Þar er um algjört matsatriði að rœða og um leið gríðarlega möguleika fyrir útsjónarsama menn sem búa yfir þeim hœfileika að ýkja stórkost- lega á þann hátt sem er trúueröugastur hverju sinni. Sala á notuðum bílum og bílabrask þuísamfara hef- ur fengið á sig óorð á Islandi, sem sést best á þuí að orðið ,,brask“ hefur alla tíð frá þuí það uar tengt uið bíla þótt vera neikvœtt. Menn hafa þóstgeta séð suika- merki í huerjum þeim sem lagt hefur út í þessi uið- skipti, stofnað bílasölu eða hafið bílauiðskipti á eigin vegum, og það er kannski ekki að ástœðulausu. Reynslan hefur sýnt mönnum fram á þá staðreynd að í bílauiðskiptum hafa þrifist og þrífast siðlausir menn sem hafa að engu hag viðskiptavina sinna. Þar nœgir að nefna til dóma sem fallið hafa á nokkra bílasala, svo og flótta allmargra úr þeirri stétt til útlanda sem ekki hefur orðið vœrt fyrir ágengni dómstóla og sárra manna sem hafa allt að því tapað aleigunni í uiðskipt- um uið þá. Verst þykir þeim sem staðið hafa og standa í bíla- uiðskiptum og stunda heiðarleg viðskipti, að þessi alrœmdi stimpill á bílasala virðist ná yfir alla þá sem standa í þessum uiðskiptum. Eins og jafnan skemma hinir slœmu í hópnum fyrir öllum, koma óorði á alla stéttina, og suo hefur verið í bíla- sölu sem í annarri atvinnustarf- semi. Vissulega, og sem betur fer má segja, eru vandaðir bílasalar alla jafna í meirihluta þeirra sem stunda viðskipti af þessu tagi. Halldór Snorrason hjá elstu starf- andi bílasölunni í Reykjavík, Aðal- bílasölunni, segir um það óorð sem stétt hans hefur fengið á sig: „Verslun með notaða bíla er ákaflega hentugur vettvangur fyr- ir óvandaða menn, því þessi við- skipti gefa mjög mikla möguleika á lagalegum hliðarsporum. Við höfum því alltaf setið uppi með vafasama menn í þessari stétt og svo verður örugglega áfram ef ekki verður gerð gangskör að þvi að herða eftirlit með bílaviðskipt- um og þeirri reglu sinnt að leyfa ekki hvaða glæframönnum sem er að stofna sína verslun með bif- reiðar." Og Halldór heldur áfram: „Þess eru alltof mörg dæmi að bílasalar haldi ekki nóg utan um viðskipti sín, að þeir gæti ekki hagsmuna viðskiptavina sinna til hlítar og leyfi jafnvel slæmum mönnum að féfletta fólk fyrir sína milligöngu." Fyrrum bílasali, sem snúið hefur sér að öðrum viðskiptum fyrir all- löngu, tekur í sama streng og Hall- dór. Hann vill ekki láta nafns síns getið, en segir: „Það má náttúr- lega búast við öllu hinu versta í bílasölu þegar sú staðreynd er höfð til hliðsjónar að hvaða mað- ur sem er getur anað út í þessa starfsemi án minnstu menntunar. Og þegar við bætist að mjög auð- velt er að spila á flónsku fólks í bílaviðskiptum, má það heita sjálf- sögð afleiðing að almenningur geti farið illa út úr þessu happ- drætti sem það er í raun og veru að fara með bílinn sinn í endur- sölu til næsta bílasala." Bílasölur munu vera um fimmtán talsins í Reykjavík um þessar mundir, og má líklega bæta öðru eins við þá tölu ef bílasölur í nágrannabyggðum og úti á lands- byggðinni eru taldar með. Við þetta bætast bílasölur sem nokkur bílaumboð hafa stofnsett á síðustu árum, en þær eru orðnar sex að minnsta kosti. í ofanálag koma svo bílabraskarar, en ógerningur er að kasta nokkurri tölu á fjölda þeirra frá einum tírna til annars, þar er bæði um að ræða áhuga- menn sem stunda kaup og sölu bíla í frístundum sínum og at- vinnumenn sem hafa braskið að lifibrauði. Viðskipti með notaða bíla hafa dregist allverulega saman á síð- ustu árum frá því þau voru hvað líflegust um og eftir 1970. Einkum hefur stétt braskaranna dregið saman seglin og þekkjast varla fleiri en fjórir, fimm atvinnumenn á því sviði í Reykjavík á þessum síðustu dögum þorra. Orkukrepp- an um miðjan síðasta áratug sem leiddi til samdráttar í bílainnflutn- ingi, svo og talsverð uppsveifla á efnahagssviðinu, leiddi til þess að mikil eftirspurn var eftir notuðum bílum. Með ónógu framboði á not- uðum bílum var verð þeirra hátt, og þegar þess er einnig gætt að menn þurftu að þreyja biðlista eft- ir nýjum bilum erlendis frá, and- stætt því sem nú tíðkast, þá ætti skýringin á líflegu braski um miðj- an síðasta áratug að vera gefin. Braskarar sem HP ræddi við fyli- ast eftirsjá er þeir rifja upp þessi ár, enda mátti þá auðveldlega græða kaupverð einbýlishúss á hálfu ári með útsjónarsemi í bíla- viðskiptunum. Menn keyptu bíl í sæmilegu standi, löppuðu upp á hann í hvelli, og seldu helst dag- inn eftir á allt að þriðjungi hærra verði en þeir keyptu hann, og þannig gekk það fyrir sig í vikur og mánuði, enda eftirspurnin gíf- urleg og endursöluverð með hæsta móti. Bílasölur voru á þess- um árum við annað hvert götu- horn „svona næstum því, og menn kepptust við að næla sér í góðar sölutýpur, eftirsóttar ár- gerðir, enda var vonin vís að sá bíll seldist með det samme, og þar með var engin bið eftir sölulaun- unum," en þessi orð mælir gamal- gróinn bílasali frá miðjum áttunda áratugnum. En margt hefur breyst í þessum efnum. Verð á notuðum bílum hefur fallið jafnt og sígandi á allra síðustu árum í kjölfar gífur- legrar aukningar á innflutningi nýrra bíla til landsins. Svo notuð séu orð eins bílasalans fá umboðin nú orðið „nýja bíla í haugum til landsins", því mjög mikill sam- dráttur hefur orðið í nýbílasölu erlendis, sem leitt hefur til offram- boðs á þeim sem aftur hefur leitt til þess að nýir bílar eru nú hlut- fallslega mikl.u ódýrari en geröist hér á árum áður þegar biðlistar umboðsmanna voru þéttskrifaðir. Þessi verðlækkun á nýjum bílum hefur gert það að verkum að æ færri kaupa sér notaða bíla, þar sem verðmunurinn á þeim og nýj- ustu módelunum er sífellt að minnka." Og eftir standa bílasalar og bíla- braskarar og muna sinn fífil fegri. í kjölfar þessa samdráttar í sölu notaðra bíla hefur allt vafasamt brask og svindl í bílaviðskiptum minnkað að sögn heimildamanna HP. „Glæframennirnir fara ekki eins geyst og áður og það er ekki eins eftirsóknarvert að vera í þess- um bransa. Bílar eru orðnir miklu ódýrari vara í dag en þeir voru fyrrum og því er ekki eins mikil gróðavon í hverjum bíl. Þessar standardtýpur hafa í auknum mæli farið inn á markaðinn, týpur sem allir vita hvað gangverðið er á, ekki eru lengur fyrir hendi módel sem seljast eins og skot, pottþéttir sölubílar á ég við. Þetta HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.