Helgarpósturinn - 23.02.1984, Qupperneq 9
NOTAÐAN BÍL
þessi skipti með því að borga
kaupandanum tíu prósent á milli.
Með rómaðar hugmyndir um
ásigkomulag bílsins gengur selj-
andinn að þessum viðskiptum.
Viðskiptin eru undirrituð af kaup-
andanum annarsvegar og bílasal-
anum hinsvegar í umboði seljand-
ans utan af landi. Með því móti
getur bílasalinn hagað skiptunum
þannig að báðir borgi tíu prósent
á milli. Þar með græðir bílasalinn
tíu prósent af söluverði beggja bíl-
anna, plús tvisvar sinnum tvö pró-
sent í umboðslaun.
Nokkrum sinnum hafa bílasalar
verið dæmdir fyrir auðgunarbrot
af þessu tagi, þegar svo illa hefur
tekist til að kaupandinn og selj-
andinn hafa hist af tilviljun og far-
ið að ræða bílaskipti sín og þrátta
um þessi tíu prósent sem hvor
borgaði á milli.
Auóveldlega mætti
halda áfram frásögnum af óheið-
arlegum viðskiptaháttum á bíla-
sölum, enda eru möguleikarnir
óþrjótandi á þessu sviði svo sem
fyrr segir. I endann á þessari upp-
talningu má bæta því við að oft-
lega gerast bílasalar óþolinmóðir
eftir því að bílar seljist hjá sér og
grípa þá til miður heiðarlegra upp-
átækja, svo sem að fegra ásig-
komulag söluvörunnar eða skrúfa
niður kílómetramælinn til þess að
gera hann eftirsóknarverðari, og
um leið flýta fyrir sölulaununum í
eigin vasa. Mjög auðvelt er fyrir
vana menn að skrúfa niður
keyrslumælinn, en það er gert
með því að aftengja mælinn frá
mælaborðinu og tengja hjólið í
honum við borvél sem síðan sér
um að snúa honum til baka. Til
þessa ráðs er oftar gripið en áður
vegna þess hve keyrsla notaðra
bíla vegur þungt í útreikningi af-
falla af vörunni.
Hér á undan hafa verið tíundað-
ir nokkrir vafasamir viðskipta-
hættir sem ýmsir óvandaðir bíla-
salar hafa lagt út í og hagnast á.
Enn eru prettir sölumanna bíla-
umboðanna ónefndir, en um þau
viðskipti má segja að mjög óhag-
kvæmt getur reynst að selja þeim
notaða bíla vegna þess að umboð-
in fylgja sjaldnast þeirri reglu um
gangverð bifreiða sem bílasölurn-
ar taka að jafnaði tillit til við verð-
lagningu. Flest þau bílaumboð
sem standa á annað borð í kaup-
um og sölu notaðra bíla, greiða
seljendum talsvert lægra verð fyr-
ir bífana en gengur og gerist á hin-
um almenna markaði, og er það
jafnt haft eftir þeim sem reynt
hafa viðskipti við umboðin og
þeim sem gerst þekkja til bíla-
brasksins. Umboðin virðast óspart
nota sér þá aðstöðu viðskiptavina
sinna að þeir eru með sölu notuðu
bilanna sinna að afla sér fjár til
kaupa á nýjustu bílagerðinni frá
þeim. Þessvegna þurfa þeir fjár-
muni fljótt og eru því auðveld
bráð fyrir klóka sölumenn sem
vilja gera góð kaup. Þessir notuðu
bílar eru hinsvegar seldir undan-
tekningalaust á gangverði út úr
umboðunum aftur og mun gróði
bílaumboðanna vera talsverður
fyrir vikið. Atvinnumenn í bíla-
braskinu eru einnig þekktir fyrir
þessa gróðaleið, en þeir eru gjarn-
ir á það að leita uppi bílaeigendur
sem sakir fjárskorts þurfa að losna
við bifreiðar hið skjótasta.
Miöaö við það sem á undan
hefur farið er við hæfi að enda
þessa grein um bílaviðskipti á
samtali sem HP átti við einn kunn-
asta atvinnumanninn í bílabraski
á árum áður. Það er Benedikt Ara-
son sem nú rekur bílaleiguna AS.
Milli áranna 1974 og 1980, á
blómaskeiði brasksins á íslandi,
lifði hann einvörðungu á kaupum
og sölu notaðra bíla og segir sagan
að hann hafi hagnast vel á þeim
viðskiptum, eða flutt úr litilli ibúð
á Kleppsveginum og hafið bygg-
ingu fjögurhundruð fermetra ein-
býlishúss á Arnarnesi með sund-
laug í kjallaranum . . .!
,,Ég neita því ekki að ég hafði
mjög gaman af þessum bransa. Ég
hef alltaf verið skotinn í fallegum
bílum og bísnessinn í kringum þá
var — hvað skal segja — ákaflega
spennandi."
— Það hefur vafalítið mátt hafa
vel upp úr þessum bransa?
„Þetta var oft gloppótt, stund-
um mjög góð þénusta og stundum
talsvert tap.“
— Gerðirðu ekki oft kjarakaup?
„Stundum jú, enda reyndi ég
alltaf að stíla upp á staðgreiðslu í
bílakaupunum og gat þannig feng-
ið þá á lágu verði, stundum . . .“
— Hvað heldurðu að margir
bílar hafi farið um þínar hendur á
ári þegar best lét?
„Ég man það hreinlega ekki, en
þeir skiptu örugglega oft nokkr-
um tugum.“
— Hvað mest á mánuði?
,,Ég vil ekkert vera að nefna þá
tölu . .
— Hversvegna ekki?
„Hún er mitt prívat."
— Hversvegna heldurðu að þú
hafir fengið viðurnefnið Benni
glæpur á þessum árum?
— Ætli menn hafi ekki hrein-
lega öfundað mig fyrir það hvað
mér gekk vel í þessum bíssness,
og því viljað koma óorði á mig.
Hvað sem því líður er ábyggilegt
að ég var alltaf hreinn og klár í
mínum viðskiptum. Það fór aldrei
neinn illa út úr þvi að skipta við
mig.“
— En þetta var sem sagt allt
gaman?
,,Já, og spennandi, stund-
um . .
NÝTT SÍMANÚMER f NÝjU HÚSNÆÐI Á NÝ)U ÁRI
L <fö| * - ■' —■ ^ 687700
V»6fluttumokkurumset HHB f nýtt glæsilegt húsnæði, J/ e&a yfir portið láttu sjá |mr ÍLkAl
Velkomin.
NOACK
FYRIR ALLA BÍLA OG TÆKI
Sænsku bilalramleiöendurnir VOLVO. SAAB oq SCANIA
nota NOACK ralgeyma vegna kosta þeirra.
jfflmnausl: h.t
Siöumula 7 9. Sirr.i 82722
MALLORKA
einmitt það sem þig dreymir um?
TILBOÐSVERÐ um páskana!
2 vikur, 18. apríl — 2. maí.
Dæmi: 4 manna fjölskylda, hjón meö tvö
börn, 5 og 10 ára
Verð frá kr. 14.925.-
Mallorka er vöknuö af vetrardvalanum líf og fjör, sólskin og
sjör. Páskaferðin er tilvaliö tækifæri til aö taka forskot á
sumarið, páskarnir eru einnig mjög heppilegur tími því
aöeins fáir vinnudagar fara í fríiö, þú átt því mestallt
sumarfríiö enn eftir.
Komið og leitiö nánari upplýsinga.
mdivm
Ferðaskrifstofa, lönaöarhúsinu Hallveigarstíg 1. Símar 28388-28580.
HELGARPÓSTURINN 9