Helgarpósturinn - 23.02.1984, Page 13
nafn Asmundur Stefánsson fæddur: 21.3.1945 i Reykjavík staða Forseti ASÍ
heimili Njörvasund 38, R. heimilishagir: Kvæntur Guðrúnu Guðmundsdóttur, 2 börn
bifreið: Datsun Cherry 79 áhugamál Les þegar tími gefst til mánaðarlaun 42.455 kr. m/eftirvinnu
Aðstöðusamn in gar nir 1984
eftir Hallgrfm Thorsteinsson myndir Jim Smort
Þad hefur væntanlega ekki farid framhjá neinum að nýr kjarasamn-
ingur ASÍ og VSÍ var undirritadur á þriðjudaginn. Samningurinn
gildir til 15. apríl 1985 ogfelur medal annars í sér 13% kauphækkun
á næstu 10 mánuðum. Ríkisstjórnin lofar ad beita sér fyrir sérstök-
um tilfærslum til ad rétta hlut hinna allra verst settu. Dagsbrún, með
Guðmund J. Guðmundsson í broddi fylkingar, hefur klofið sig frá ASÍ
í þessum samningum og unir þeim ekki. Asmundur Stefánsson, for-
seti ASÍ er í yfirheyrslu í dag, þar sem hann er m.a. spurður út í þessa
sérstöðu Dagsbrúnar.
— AHt síöasta ár var hrópað hátt um
nauðsyn þess að ná til baka þeirri miklu
kjaraskerdingu sem samningsbannid
hafdi í för með sér. Nú, þegar samning-
urinn hefur verið gerður, er þessi kjara-
skerðing negld niður, segja gagnrýn-
endur samningsins. Hverju svarar þú?
„Samningurinn felur t sér að kjaraskerð-
ingin er stöðvuð. Sá kaupmáttur sern við
stefnum að með þessurn samningi er sá
kaupmáttur sem við bjuggum við á síðasta
ársfjórðungi liðins árs. Við sækjum ekki
langt fram á við, við lyftumst nokkuð frá því
sem kaupmátturinn er nú í febrúar upp í það
sem hann var á fjórða ársfjórðungi á sl. ári.
Hann felur jafnframt í sér sérstaka hækkun
á lágmarkstekjum, 15,5% á þeim tekjum
sem lægstar eru, og auk þess höfum við fyr-
irheit stjórnvalda um það að þau beiti sér
fyrir þeim tillögum sem við lögðum fram um
tilfærslur frá því opinbera til lágtekjufólks
með framfærslubyrði."
— Eru þessi fyrirheit stjórnvalda í
hættu vegna stöðunnar gagnvart Dags-
brún, þ.e. ef Dagsbrún fer af stað með
aðgerðir, þá stefni það félag félagsmála-
pakka ríkisstjórnarinnar « hættu?
„Ég verð að treysta því að svo sé ekki. Það
er ljóst að þessi félagsmálapakki er háður
lagabreytingum að verulegu leyti og þess
vegna þarf Alþingi að fjalla um hann. Eg hlýt
að treysta því að ríkisstjórnin beiti sér fyrir
samþykkt hans. Hún hefur það stóran meiri-
hluta á Alþingi, að því hiýtur að mega
treysta að hennar vilji fari fram."
— Engu að síður hefur f ormaður Sjálf-
stæðisflokksins allt að því hótað því að
félagsmálapakkinn verði ekki ,;greidd-
ur út“ nema öll félög innan ASI og þar
með Dagsbrún haldi sig innan rainmans
sem settur var með samningnum?
„Formanni Sjálfstæðisflokksins, eins og
forsætisráðherra, hlýtur að vera það full-
ljóst, að af okkar hálfu eru þessar opinberu
tilfærslur ein af grundvaliarforsendum þess
að við mælum með samningnum. Ég hlýt
því að treysta því að þessar tilfærslur íari
fram."
— Það hefur verið haft eftir þér að
skynsamiegra hafi verið að gera þennan
samning í stöðunni heldur en að stefna
í átök. Hvers vegna hefðu aðgérðir
iaunafóiks í stöðunni verið óskynsam-
legar?
„Ég er ekki að halda því fram að aðgerðir
hefðu verið óskynsamlegar. Það er fullkom-
in ástæða til að grípa til aðgerða og berja þar
fram aðra niðurstöðu en þá sem við stönd-
um frammi fyrir. Ég hef lagt áherslu á það að
ég tel ekki að þessi niðurstaða sé skynsam-
legt mat á réttlátri skiptingu þjóðartekna og
hafi komið hiutföllum launafólks og atvinnu-
rekenda í sanngjarnt horf. Ég hef hins vegar
sagt að ég telji að þessi samningsniðurstaða
sé skynsamlegt mat á þeirri samningsstöðu
sem við höfum, þeirri aðstöðu sem við höf-
um til að ganga til aðgerða."
— En felst þá ekki í þessu að það sé
óskynsamlegt ad fara út I aðgeröir? Að
samningurinn sé betri kostur?
„Við höfum metið stöðuna þannig núna,
að þessir samningar séu betri kostur en að
efna til átaka og þá lítum við ekki síst til
þeirrar aðstöðu sem við sjáum við sjávarsíð-
una vítt og breitt um landið, sem mörkuð er
af misjöfnu atvinnuástandi, aflatakmörkun-
um o.s.frv. og þessar aðstæður hljóta óhjá-
kvæmilega að marka okkur bás. Verkalýðs-
félögin úti um landið eiga erfitt með að beita
sér í átökum núna."
-— Ertu að segja að verkalýðsfélög úti
á landi hafi staðið í vegi fyrir því að farið
væri í aðgerðir?
„Það eru engin ákveðin félög eða einstak-
lingar sem standa í vegi fyrir því að farið sé
í aðgerðir í aðstöðu sem þessari. Athugum
aðeins hvernig þessi mál bar að. Við héldum
fund með formönnum félaga í desember.
Þar var rætt hvernig ætti að standa að mál-
um. Ég hafði viðrað þær hugmyndir að
verkalýðsfélögin tækju samningsgerðina til
sín vegna þess að ég var þeirrar skoðunar að
staða þeirra væri misjöfn og að sum þeirra
gætu kannski farið fyrr af stað með aðgerðir
en önnur. Ég var einnig þeirrar skoðunar að
það væri líklegra til að vinna upp baráttu-
stöðu að félögin sjálf færu með málin og
fyndu þar með til þeirrar ábyrgðar sem
samningaviðræðunum og samningsgerð-
inni fylgir. Ég taldi líka að þar með væri
kominn þrýstingur á hina ýmsu atvinnurek-
endur sem standa að Vinnuveitendasam-
bandinu þannig að þeir fyndu til ábyrgðar
gagnvart því að samningur næðist. For-
mannahópurinn taldi ráðlegra að ASI hefði
forgöngu um samningaviðræðurnar."
— Þannig aö þitt sjónarmid varð
þarna undir?
„Mitt sjónarmið varð þar undir, það er
rétt, og viðræðum var haldið áfram á vett-
vangi heildarsamtakanna í desember og jan-
úar. Nú um miðjan febrúar þóttumst við vera
búnir að greina hvert hægt væri að komast
í samningi án átaka."
— Var þetta ekki löngu vitað? Var
ekki verið aö ræða samskonar samning
og nú var undirritaður fyrir mánuði?
Eftir hverju var beðið?
„Það var beðið eftir samkomulagi. Það er
ósköp einíalt mál. Það hafði verið rætt um
atriðin í samningnum fram og til baka allan
tímann en það höfðu engin tilboð gengið á
milli, engar niðurstöður fengist fyrr en núna.
—• Var verið að bíða eftir Dagsbrún,
reyna að fá félagið með » þetta samflot?
„Auðvitað skiptir það miklu máli að Dags-
brún sé með, en ég held að staðan í því efni
hafi kannski ekkert breyst á þessum tíma.
Dagsbrún hefur ýmisskonar sérstöðu. Við
sem fyrir viðræðunum stóðum þóttumst sjá
hvert væri hægt að komast án aðgerða og
ákváðum þess vegna að kalla saman for-
mannafund aftur. Sá fundur var haldinn á
sunnudaginn var. Þar lögðum við fyrir þá
einföldu spurningu hvort væri réttara: Að
halda áfram og stefna í samninga án átaka
eða henda því frá okkur og undirbúa átök.
Niðurstaða formannafundarins á sunnudag-
inn var eindregið sú að freista samnings og
það mat formannanna var augljóslega mat
þeirra á aðstöðu sinni hver á sínum stað til
þess að fara í aðgerðir og þá aðstöðu báru
þeir saman við það sem þeir töldu sig geta
fengið út úr þeim samningi sem var í sigti.
Formennirnir koma úr ólíkum áttum og
st'arfa fiestir úti á vinnustöðunum með sínu
fólki. Afstaða þeirra á formannafundi mark-
ast ekki af persónulegum óskum þeirra eða
baráttugleði, heldur mati þeirra á því hvaða
ávinning félagsmennirnir hafa af samnings-'
gerðinni og hver afstaðan er til átaka á fé-
lagssvæðinu."
— Eindreginn vilji á formannafundin-
um á sunnudaginn segir þú. Ekki var
eindrægnin samt meiri en svo, að þegar
samningurinn var óformlega borinn
undir atkvæði, þá sat fjórðungur for-
mannanna hjá og fimm voru á móti?
„Ég held nú að það sé ekki rétt. Það var yf-
irgnæfandi fjöldi sem greiddi samningnum
atkvæði. Hvorki atkvæði né hjásetur voru
taldar þannig að ég er ekki í aðstöðu til að
fullyrða um neina ákveðna tölu í þessu sam-
bandi en ég leyfi mér að fullyrða að því fari
fjarri að fjórðungur hafi setið hjá.“
— Þú segir að þessir samningar end-
urspegli ekki réttlátt mat á hlut launa-
fólks í þjóðartekjunum. En er ekki
verkalýðsbarátta rétti vettvangurinn til
að rétta þennan hlut?
„Að sjálfsögðu."
— Hvers vegna hefur þessi hlutur
ekki náð að réttast í undangengnum
samningum nú um árabil?
„Ég held nú að sú túlkun að allt sé að fara
til hins verra í hverjum samningnum á fætur
öðrum, sé ekki rétt söguleg lýsing. Miðað við
þá söguskýringu hlýtur þetta að hafa verið
geysigott í fyrndinni."
— Ég á ekki við að þetta hafi versnað,
heldur að ástandið hafi verið óbreytt.
„Ég veit ekki heldur hvort þú hefur rétt
fyrir þér í því. Það er óhætt að segja það, að
síðan ég byrjaði í þessum málum 1974, hafa
verið mjög miklar sveiflur í kjörum og bar-
áttuaðstöðu.
— Þannig að það v*rður betra að taka
á einhvern tíma seiitwia?
„Við hljótum aðsækjfi fram. Þetta eru ekki
síðustu samningarnir 4 okkar vettvangi og
auðvitað treystum vift því að þeir næstu
verði betri.“
— Sá áhersla sem var lögð á tillögur
ASÍ um tilfærslur til handa afmörkuðum
hópum með mikla framfærslubyrði,
minnkaði hún ekki pressuna á atvinnu-
rekendur?
„Ég held að þær tillögur hafi ekki í sjálfu
sér úrslitaáhrif á pressuna gagnvart atvinnu-
rekendum. Það sem gerir það að verkum að
atvinnurekendur taka undir þessar tillögur
er að þeim er ljóst að það er forsenda fyrir
okkur til að geta mælt með samningum við
það ástand sem við búum við í dag, að þessar
tilfærslur nái fram að ganga."
— Er þessi sérleið Dagsbrúnar núna
ekki í samræmi við þína skoðun á því
hvað hefði verið heppilegasta leiðin fyr-
ir hvert og eitt félag í samningunum?
„Hún er það ekki í aðstöðunni, eins og við
búum við hana í dag. Ég held að fyrst að
ákvörðun var tekin um það í desember að
ASÍ skyldi hafa forgöngu um samningavið-
ræðurnar, þá sé nær óhjákvæmilegt að
halda sig við þau vinnubrögð. Ég held að
það hefði ekki verið skynsamlegt í þessari
aðstöðu að fara að stokka málin upp núna
og vísa því út til félaganna án niðurstöðu. En
við erum ekki með neitt samningsforræði yf-
ir einstökum félögum. Dagsbrún hefur auð-
vitað fulla og ótakmarkaða aðstöðu til að
beita sér á þann hátt sem félagið kýs að
gera."