Helgarpósturinn - 22.03.1984, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 22.03.1984, Blaðsíða 3
Enn um einangrun ☆Grein Helgarpóstsins um ; gæsluvarðhald sem birtist í ; síðasta tölublaði vakti mikla ’ athygli, ekki síst vegn opin- i skárra lýsinga þeirra Einars ; Bollasonar og Magnúsar ; Leópoldssonar á sálrænum ; áhrifum einangrunar í ; varðhaldi. Gæslgvarðhald ; hefurmjögveriðtilumræðuá ; hinum Norðurlöndunum upp ; á síðkastið, deilt hefur verið ; um réttmæti þess og beitingu i þar, sem mun þó vera vægari ; en tiðkast hérlendis. í téðri ; grein HP var vitnað í i niðurstöðurdanskrar i könnunarááhrifum i einangrunargæsluvarð- i haldsfanga sem gerð var þar i nýlega. Ekki gafst rúm til að ; birta nema helstu atriðin þar i að lútandi, en hér verður ; gerð bót á og greint frá þeim ; áhrifum sem flestir í úrtaki ; könnunarinnar máttu þola: 1. Strax á fyrstu dögum ; einangrunarinnar minnkar ; hæfileikinn til að einbeita sér ; mjög verulega. Til dæmis ; verður ógerlegt að halda sig ! að lestri. 2. Erfitt verður um svefn, ; og þegar um einhvern svefn er aö ræða viil hann verða óreglulegur og/eða draumfarir slæmar. 3. Forvitnin um framgang sakamálsins verður óbæri- leg og sú spurning hversu lengi einangrunin vari gerist æ áleitnari og kvalafyllri. 4. Matarlystin minnkar mjög ellegar hverfur alveg um tíma. 5. Skjálfti í höndum og svitaköst eru tíð. 6. Minnisleysisferað gæta, atburðir úr liðinni tíð falla í gleymsku. 7. Dómgreind minnkar verulega, enda skýr hugsun ; erfið. 8. Oftlega finnst mönnum ; höfuðið vera að springa. Að ; ; geta ekki hugsað skýrt jafn- ; ; framt því að fá aldrei að tjá ; sig við aðra svo nokkru nemi, ; ; kallar á efasemdir um eigið ; geðslag. 9. Árásargirni gerir vart við ; ; sig, menn berja í veggi og ; reyna sumir að meiða sig ; með einhverju móti, en með ; ; því er freistað að komast um ; ; stund úr prísundinni á ; spítala. ... ........... j 1Ö. Menn fara að skipta snarlegaumskapánþessþó ; að gera sér grein fyrir því, enda engin svörun til staðar ; átilfinningalega líðan. 11. Eftir mánuð í einangrun fer fólk að verða tilbúið ; til að gera hvað sem er til að ; sleppa úreinangruninni, ! jafnvel játa á sig brot sem ; það hefur þó aldrei framið. 12. Sjálfstraustið hverfur. 13. Alls konar hugmyndir ; um dómarann og vonsku ; hans fara að gera vart við ;; sig. 14. Einnig alls konar hug- S myndirumsjálfansig, jafnvel ;j að maður eigi allt hið versta ;j skilið. 15. Eftir þriggja mánaða j; einangrun ersljóleikinn jj orðinnslíkuraðeiginörlög ;j skipta engu máli lengur. 16. Eftiraðúreinangruner j; komiðerafaralgengtað j; einangrunarfangarfái svo- j; nefnt ,,feed-back“, | einangrunartíminn í öllum jj sínum ömurleika leiti stíft á jj hugsanir þeirra, í tíma og j;j ótíma, það sem eftir er.* Seljið ekki ofan af ykkur eignaskipti eru öruggari! LEITARÞJONUSTA ÁN ALLRA SKULDBINDINGA AF ÞINNI HÁLFU. Símar 38877, 687520 og 39424 OPIÐ: mánud. — föstud. kl. 9—18. Um helgina kl:13—17. Ertu endanlega að gefast upp á bransanum? „Nei, ekki endanlega. Að vísu var ég að loka hljóm- plötuversluninni minni, en ég verð engu að síður með hljómplötuútgáfu í gangi. Það hefur aldrei hvarflað að mér að segja skilið við útgáfu, þó svo óneitanlega hafi hallað undan fæti í þessari grein á síðustu árum.“ - Fer ekki að verða vonlaust að standa í hljóm- plötuútgáfu á íslandi? „Ég vil ekki taka svo djúpt í árinni. En það er mikið rétt, að hljómplötuútgáfa er í mikilli lægð hjá öllum sem sinna þessum geira hérlendis. En það á sínar skýringar." - Hvaða skýringar? „Fyrst og fremst breyttir þjóðfélagshættir. Fólk nýtir orðið frítíma sinn á annan máta en að hlusta á hljómplöt- ur.“ - Hafa SG-hljómplötur í bígerð einhverjar breyt- ingar á útgáfustarfseminni með þessum breyttu þjóðfélagsháttum? „Nei, ég er nú búinn að standa í þessari útgáfu í tuttugu ár og fer varla að gera stórvægilegar breytingar á starf- seminni úr þessu. Eg býst ekki viö öðru en þetta verði allt með sama hætti hjá mér eftirleiðis sem hingað til. Það verður bara að reyna á það hvað selst og hvað ekki, og eftir því einu verða menn að haga útgáfunni." - Er þá orðið vonlaust að breyta nokkru svo hljóm- platan vinni sér aftur sama sess og hún var í áður? „Ég held það sé alveg útilokað að ætla sér að lyfta henni upp á gamla stallinn. Hljómplötusala er minni en áður og það eru alls engin teikn á lofti um að einhverjar breytingar verði þar til batnaðar. Þó verður að vona að góðar og vandaðar plötur seljist vel áfram eins og þær hafa gert hingað til. Þar kemur hinsvegar á móti að útgefnir titlar á íslenskum hljómplötum hafa verið svo gríðarlega margir á síðustu árum að næsta vonlaust hefur verið að ná upp góðri sölu á einum titli. Það segir sig raunar sjálft þegar haft er í huga að liðlega hundrað nýir titlar bætast í hóp íslenskra hljómplatna á ári, en markaðurinn þolir aftur á móti ekki meira en þrjátíu.‘‘ - Þú varst fremstur í flokki íslenskra dansiball- spilara á árum áður. Saknarðu ekkert stöðu lifandi tónlistar í landinu frá þeim árum? „Ég sæki ekkert skemmtistaði þannig að þessi lægð í flutningi lifandi tónlistar hefur haft mjög óveruleg áhrif á mig.“ - En þú finnur væntanlega til með bransanum? „Auðvitað er mér mjög hlýtt til íslenskra hljóðfæraleik- ara, enda var ég formaður þeirra í rúmlega áratug. Hins- vegar er enginn kominn til með að ákveða það að kann- ski hundrað manns eigi að lifa af því að leika fyrir dansi. Þar verður einfaldlega að taka mið af breyttum lífshátt- um íslendinga." - í síðasta tölublaði HP kom fram sú hugmynd í útvarpsgagnrýni blaðsins að þú yrðir fenginn til að skrá sögu íslenskrar dægurtónlistar frá upphafi, vegna þekkingar þinnar á efninu. Værirðu til í þenn- an starfa Svavar? „Já, svo sannarlega, ef einhver útgefandi finnst sem á peninga.“ Hljómplötuverslunin sem SG-hljómplötur ráku til nokkurra ára í Ármúla var að leggja upp laupana. Eiganda firmans, Svavar Gests, þarf ekki að kynna, svo þekktur er hann af hljómsveitarstjórn sinni forðum daga og útvarpsþáttum hin síðari ár. HELGARPÓSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.