Helgarpósturinn - 22.03.1984, Blaðsíða 25

Helgarpósturinn - 22.03.1984, Blaðsíða 25
ugasti stuðningur stjómvaida er sá að hin opinbera innkaupastefna sé í lagi, að það sér verslað við okk- ur,“ segir Leifur Steinn. ,JVleginlínan er sú, að öll tilboð eru skoðuð mjög ítarlega," segir Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Inn- kaupastofnunar ríkisins, „en það liggur ekki fyrir nein skilgreining á því hvað telja beri íslenska fram- leiðslu í þessum efnum." „Við erum að leita að tölvubún- aði, vélbúnaði og hugbúnaði sem virkar,“ segir Jóhann P. Malmquist, deildarverkfræðingur hjá Fjárlaga og hagsýslustofnun. Hann hefur nú um árabil stjómað heildarverkefni um tölvuvæðingu stofnana og fyr- irtækja hjá ríkinu, og mótað stefnu ríkisins í kaupum á einkatölvum í Scimvinnu við þessa aðila. Lykilat- riði í þessari stefnumótun er ákvörðun um að velja a.m.k. 100 tölvur með tvenns konar vinnslu- getu. 1 stóra útboðinu, sem opnað verður hjá Innkaupastofnun í lok þessa mánaðar, er anncirs vegar beðið um litla einkatölvu með al- gengustu vinnslugetu fyrir ýmis af- mörkuð verkefni og hins vegar stærri tölvu og fullkomnciri sem geta tengst, eða „talað við“ algeng- ustu móðurtölvur sem fyrir em í ríkiskerfinu, svo sem hjá Skýrslu- vélum ríkisins og Reykjavíkur- borgar, Rafmcignsveitum ríkisins, Vegagerðinni og fleiri stofnunum. í útboðinu er faríð fram á að stærri tölvurnar byggi áihinum óopinbera IBM-PC staðli, sem sífellt fleiri tölvuframleiðendur hcifa einmitt tekið mið af. Lögð er áhersla á að hugbúnaður tölvíinna pcissi fyrir þessa tegund tölva, IBM PC einka- tölvuna, eða eftirlíkingar henncir sem eru orðnar fjölmcirgcir, og þar á meðal er hin íslenska Atlantis. „Þótt farið sé fram á þennan staðal er ekki verið að útiloka nema örfáa seljendur, og það er viðurkennd staðreynd að flestir framleiðendur eru nú famir að framleiða hugbún- að í þessum staðli," segir Jóhann Malmquist. Hvað næst verðið langt niður með útboðum af þessu tagi? Um það er erfitt að slá neinu föstu en gera má ráð fyrir að þegar margar tölvur eru keyptar í einu geti verð- ið farið niður í 60% af útsöluverði. Hagkvæmni slíkra innkaupa virðist því ótvíræð. Gert er ráð fyrir að komið verði á fót sérstakri ráð- gjafaþjónustu ríkisstofnana og kennslu á vél- og hugbúnað þeirra tölva sem ríkið kaupir. Þar sem kaup á hugbúnaði og þjálfun starfsfólks er oft ekki minni kostn- aðarliður í tölvukaupum en kaupin á sjálfri vélinni, er reiknað með enn frekari hagkvæmni með þessu fyr- irkomulagi, heldur en ef hver ríkis- stofnun keypti tölvu upp á sitt ein- dæmi. Tölvuseljendur keppast nú við að semja tilboð sín fyrir Innkaupa- stofnun. ,,Samkeppnin er mjög hörð. Það tíðkast undirboð og bak- tjaldamakk í þessum bransa," segir tölvuráðgjafi sem þekkir vel til þessara mála. ,Atlcintis-menn hcifa t.d. talað við alla ráðherrana.“ Hann segir dæmi þess að fjársterk fyrir- tæki eins og IBM lækki sig um helming til að ná viðskiptum af þessu tagi til sín. Talsmenn IBM neita þessuog segjcist háðir mjög ákveðnum verðlínum frá IBM er- lendis sem ekki sé hægt að hrófla við. „Eina svigrúmið sem við höf- um í verðlagningu er okkar álcign- ing,“ segir Erling Ásgeirsson, „og menn reyna að fara eins langt nið- ur og þeir geta. En menn geta líka yfirkeyrt sig á því ef þeir gæta ekki að sér. Ef verðið er pressað öf mik- ið niður getur það komið niður á þjónustu. Það er landlæg hugsun hér að hægt sé að fá hugbúnað með tölvunum fyrir nánast ekki neitt. Það er hins vegar eðii góðs hugbúnaðar að hann kostar pen- inga.“ „Hér á landi hefur, til skamms tíma að minnsta kosti, gilt .sinnum tveir reglan “ svokcdlaða í álagn- ingu á tölvubúnaði og -þjónustu," segir einn heimildarmanna HP, tölvuráðgjafi. „Þessi regla hefur einfaldlega gengið út á 100% álagningu , verðið er tvöfald- að. Eftir að tollur og söluskattur fóru af tölvunum á þessu ári hefur þetta þó verið að breytast. Nú geta menn borið saman verðið hér og verð sem birtist í erlendum tölvu- blöðum. Markaðurinn er að breyt- ast.“ Fáir vildu spá því hver myndi fá ríkistölvuviðskiptin. Margir veðj- uðu á IBM og DEC-Digital tölvum- ar en margir nefndu einnig að At- lantis ætti góða möguleika á að minnsta kosti hluta viðskiptanna. Ýmsar aðrar tegundir voru jafn- frcunt nefndar; Wang, Apple, Kienzle o.fl. Digital tölvur eru nú þegar talsvert algengar hjá ríkis- fyrirtækjum, t.d. í orkugeiranum, en sterklega er veðjað á tölvuna sem sett hefur standardinn í einka- tölvum síðustu misserin: IBM-PC. Ýmsum þykir súrt í broti að IBM- risinn yfirtaki einkatölvumarkað- inn en aðrir yppa öxlum og segja eins og einn viðmælandi HP: ,JJim- inninn er blár. IBM selur tölvur. Maður breytir hvomgu."

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.