Helgarpósturinn - 22.03.1984, Side 18

Helgarpósturinn - 22.03.1984, Side 18
MYNDLIST Helgiblœr Allt sem er einfalt í sniðum hefur yfir sér helgiblæ ef það er unnið ai einlægni. Á sama hátt og vísindin hafa beint athygli sinni og rannsóknum að hinu einfalda og Ieynda hefur listin líka horfið frá flúri að hinum heilaga einfaldleika sem hefur yfir sér helgi- blæ. Allar sýningarncir sem nú eru að Kjarvals- stöðum hafa yfir sér blæ sem dásamar sköpunarverkið. Þær eru einslags inn- gangsorð. Og ef áhorfandinn þekkir inn- gangsorðið þá kemst hann ekki aðeins að list þessa fólks: Sæmundar Valdimarssonar, ívars Valgarðssonar, Rúrí, Rúnu Þorvalds- dóttur, Þórs Vigfússonar, heldur inn í Para- dís og aldingarðinn Eden. Listaverkin eru leikmenn aldingarðsins: Þarna eru dýr, þarna eru töflur, þarna er hafið, þarna er hið glerkennda regn sem er líka gagnsær skógur, og þarna er hafið og ræturnar sem hafið skolar á land. Og þama eru guðirnir úr tré: maðurinn og konan, eftir Sæmund Valdiméirsson. Og bæði kynin eru handleggjalaus, Iíka ungbömin, svo þau geti ekki gert neitt illt af sér. Þar með er tryggt að ekkert ódæðisverk verði unnið. Að þessu leyti er Sæmundur æðri guði, eða handverk mannsins æðri verkum skapar- ans, að hann sviptir manninn höfuðtæki sínu: höndunum. Höggmyndirnar skortir því það sem Sæmundur hefur í ríkustum mæli: hendur. í undirmeðvitund allra lista- manna er löngun til að svipta listaverkið þeim hæfileikum sem em ríkastir hjá lista- manninum, til þess að listaverkið geti ekki farið frá skapara sínum þótt aðrir umgang- ist það. Enginn listamaður lætur listaverk sitt fúslega af hendi: hann vill bæði halda og sleppa. Þeir listamenn sem em fremur gæddir eðlilegum og óbrotnum listvilja en skólaðir í að nýta huga og hæfileika og listaarf, em varnarlausir gagnvart dulvitund sinni. Þeir taka ekki einu sinni eftir hvað þeir em að tjá. Og lærðari listamenn mættu líka vera gleymnari en þeir em á tilgang verka sinna. Ahorfandinn verður að fá að segja síðasta orðið og hafa vit á hlutunum. Þótt lista- maðurinn hugsi með sjálfum sér: Samt snýst það; öðmvísi. En Sæmundur er ekki aðeins slyngur við að koma dulvitund sinni á framfæri, hann leyfir efninu líka að ráða hæfilega mikið för handarinnar, lætur það ekki lúta handverkinu algerlega. Við vitum alltaf að manneskjumar em, eins og Askur og Embla, úr rekaviði. Það þekkist cif hárinu tákni kraiftsins. Sæmundur er afar sjálfstæð- ur Iistamaður og fer hæfilega nálægt goð- sögum. Þær óma þó frá verkum hans, með- vitaðar, ómeðvitaðar: germcinskar, kristnar, föniskar, grískar. Sem dæmi um táknheim er nær einbrjósta kona og maðurinn með ýsuroð fyrir skýlu. Og rákin látin sjást, farið eftir skítuga nögl skrattans sem ætlaði að hremma fiskinn (eða það sem er undir skýl- unni). En það er samt ekki ætlun mín að kunngera hið ómeðvitaða í hinum skomu líkneskjum. Þó langar mig að segja að ís- lenskur myndlistaráhugi síðustu áratuga er falinn í þeim: flett hefur verjð mörgum bók- Myndirfimmmenn- inganna að Kjarvals- stöðum - náma fyrir þann sem stundar samanburðar- listfræði. eftir Guðberg Bergsson um og myndir þeirra setið eftir með ýmsum hætti í huganum. Allt er ummótað á afar handlistarlegan máta, persónulega. Því miður njóta myndirnar sín ekki vel sökum þess hve þröngt er um þær. En þær eru náma fyrir þann sem stundar saman- burðarlistfræði eða vill forvitncist um upp- runalega myndvitund eða athuga stunleik brúðu og líkneskju, eða leiðina frá brúðunni til höggmyndarinnar. I Du mythe au roman (Frá goðsögunni til skáldsögunnar) fjallar Dumezil um íslendingasögumar og þróun þeirra og gerð. Eflaust þarf einhvem útlend- ing til að láta listvini hér reka augun í það sem hér er gert að homreku á gangi. Og úr því ég minntist á Frakka, mundi Segalen eflaust ekki hafa haft á móti því að skoða Stele (segjum það þýði bautasteinn) ívars Valgarðssonar og þær töflur sem hanga örlítið ritflúraðar á veggjum. Takið eftir að hér verður efnið að lúta viljanum, það er svipt uppruna sínum og lögun, en þó eins og til bráðabirgða: tíminn mun leysa steinana upp og láta þá hverfa aftur til efnis síns. En ég segi eins og Segalen: ce n’est point dans ta peau de pierre, ég ætla ekki að grafa hugann gegnum steinhömnd þessara listaverka eða baða hann í tíma og gler- vatni. Listin sem hangir nú að Kjarvals- stöðum er ekki skrifuð fomsögum, eins og stendur í Egils sögu, samt er hvarvetna rit- list í henni. Þar er hæfilegt samræmi ritlist- ar og myndlistar. En mest um vert er stærð hennar. Ekki er lengur miðað við hinar smáu íslensku stofur. Það er ekkert verið að biðla til þeirra, í von um að eitthvað slæðist inn. Listin er ætluð almenningi. Hún er komin út. En hvar em söfnin? Hvar er stórhugur þeirra? Mig gmncir að söfnin ætli að kúra áfram í kraðakinu í íslensku stofunum. Það er alveg sama hver kemst í safnráð; íhalds- maður, kommúnisti, framúrstefnumaður, landslagsmálciri. Þeir kcifna allir í kaffinu og kremkexinu frá Frón, og segja eins og Albert: Það er ekkert til í kassanum. í rauninni er ekkert til í höfðinu, enginn vilji til neins nema vera nógu lítill og mjúk- máll og tala þvert um hug sér - sem þó er kannski enginn - en rjúka upp með hávaða og ofstopa á köflum og hcdda að ofstæki sé merki þess að einhver hafi ákveðna skoðun. BOKMENNTIR Þykjustuleikir og alvörudraumar Vigdís Grimsdóttir: Tíu Myndir úr lífi þínu - sögur um þykjustu- leiki og alvörudrauma. Smásögur, 91 bls. Svart á hvítu 1983. Þetta er ein af eftirtektarverðari bókum sem út komu fyrir seinustu jól. Hún hefur að geyma 10 sögur sem tengdar em með stutt- um ljóðum. Auk þess hefst bókin og endar á ávcirpi til lesandans sem myndar eins konar ramma um sögurnar. Sögurncir fjalla allar um konur á ýmsum cildri og við ólíkar kringumstæður. Hér er lítið lagt upp úr atburðarás og Scimtölum en til lesandans tala ólíkcir raddir sem bregða upp myndum af aðstæðum og sálarlífi sögupersóncmna. Stundum er þar um innri eintöl að ræða, stundum er talað við ein- hvem sem er f jarstaddur einsog þegar kona tcilar til manns sem hún sér út um gluggann sinn standa hinum megin götunnar. Sú fjar- lægð sem þannig er á milli mælanda og viðmæltmda minnir á bilið milli ég-s text- ans og lesandans sem reynt er að brúa í ávarpinu til lesandans í upphafi og lok bók- arinnar. Lesandinn skynjar fljótlega að þessar raddir eru misjafnlega trúverðugar. Rödd konunnar sem lýsir fyrirmyndar hjónabandi sínu og er fullkomlega sátt við tilveru sína á bls. 19 þegar hún sest í ljósbrúna leðursóf- ann í stofunni, andvarpar og teygir úr löng- um fallega löguðum fótleggjunum er t.d. ekki ýkja sannfærandi. Og enda þótt við fáum ekki að glugga í ljóðin og sögumar, sem hún viðurkennir að hafa samið á bls. 20 en sýnir engum „því fólk kynni að halda að ég væri ósátt við tilveruna", gmnar okkur að þar birtist aJIt önnur mynd cif henni sjálfri. Einhvers staðar þar sem vikið er að einni karlpersónu sem kemur við sögu er talað um „öll orðin sem hann segir, öll orðin sem hann notar til að forðast viðkvæmu augna- blikin, sem hann er alltaf svo hræddur við...“ (62). Hér er oftlega beinlínis og óbeinlínis vísað til þeirrar kreppu í mann- legum samskiptum sem slíkar orðræður bera vitni. Það er eftirtektarvert að í sumum sögunum segja orð bama okkur meira um heim hinna eldri en orð fullorðinna sjálfra. Á hliðstæðan hátt, og ekki er allt sem sýn- ist í sambandi við raddimar í sögunum, leyn- ast iðulega á bakvið þolandahlutverk kven- persóncmna alvörudraumar og stór áform. Úr djúpum sálarlífsins brjótast frcim ofbeldi og óhugnaður, sjálfsmorðshugleiðingcir og áætlanir um eiturmorð. Þá er gjaman vísað til ævintýra, þessara cddagömlu táknmynda dulvitundarinnar, sem birtast í óvæntu ljósi. Þymirós, Oskubuska, Rauðhetta og Mjallhvít em leiddar fram á sjónarsviðið. I einni sögunni reynir kona að skýra fyrir karlmanni að draumurinn um riddarann á hvíta hestinum sé sprottinn úr erfiðum kringumstæðum og skorti á möguleikum. ,pú heldur sjálfsagt að ég öfundi þig af velheppnaðri stöðu þinni og gefur mér bága einkunn fyrir bragðið, vegna þess að í þín- eftir Árna Óskarsson um augum er gæfa sérhvers rrumns einfald- lega bundin því lífi sem hann velur sér sjálf- ur... En haldirðu þetta ennþá skilurðu held- ur ekki kvölina sem fylgir því að vrikna upp einn daginn og sjá að maður getur ekki valið en er samt sjálfum sér til upplyftingar að bíða eftir einhverju óvæntu sem ef til vill kemur í staðinn...." (66) í annarri sögu er fjallað um gamla konu sem er neydd til að flytja úr íbúð sinni á háaloftinu þar sem hún hefur dvcdist stærstan hluta ævinnar. Það vefst hins veg- ar fyrir vandamönnum að skilja að þessi íverustaður er órjúfcmlega tengdur draum- um hennar og endurminningum. Jafnframt verður nýja íbúðin með fullkomnari þæg- indum ákall til hennar um að afmá fortíð sína og „tæma hugann". Ég má einnig til með að geta síðustu sög- unnar í bókinni. Þcir er á mjög sláandi hátt teflt Sciman tveimur sjónarhomum, annars vegar konu í bankastjórastöðu og hins veg- ar skúringakonu sem þrífur skrifstofu henn- ar. Vigdís Grímsdóttir rekur í þessari bók brýn erindi og sýnir kunnáttusamleg og óvenjuleg efnistök. 18 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.