Helgarpósturinn - 22.03.1984, Síða 24
BARÁTTAN
RÍKISTÖLVURNAR
Ríkið hefur boðið út kaup sín á einkatölvum fyrir
framhaldsskóla og ráðuneyti og stofnanir sínar. Nú
slást tölvuseljendur um þessi viðskipti og
samkeppnin er harðari en nokkru sinni fyrr.
Á næstunni verður gengið frá
einhverjum umfangsmestu tölvu-
kaupum sem gerð hafa verið hér á
landi. Kaupandinn er ríkið. Þessi
kaup voru nýlega boðin út í tveim-
ur áföngum á vegum Innkaupa-
stofnunar ríkisins. I fyrri áfangan-
um er verið að fara yfir þau 18 til-
boð sem bárust, en í seinni áfemg-
ann eru enn að berst tilboð frá hin-
um fjölmörgu seljendum tölvu-
búnaðar sem berjast um þessi við-
skipti. Síðara útboðið er stærsta
útboð ríkisins á tölvubúnaði til
þessa.
Bciráttcm er hörð um þessa
samninga, og skal engan undra;
þessi viðskipti gætu numið tugum
milljóna króna á næstu árum. í
fyrsta lagi hyggst ríkið kaupa tölv-
ur fyrir framhaldsskólana og tilboð
í þær voru opnuð hjá Innkaupa-
stofnun í síðasta mánuði. Síðara
útboðið snýst um tölvur fyrir ráðu-
neyti og stofnanir ríkisins. Þau til-
boð verða opnuð 30. mars.
Gert er ráð fyrir að hér á landi
séu starfandi um 40 fyrirtæki sem
versla með tölvur og tölvubúnað.
Fyrirtækin eru af ýmsum stærðum,
allt frá IBM, hinu alþjóðlega tölvu-
trölli sem ræður lögum og lofum á
heimsmarkaðinum, niður í eina
innlenda tölvuframleiðandann, At-
lantis hf., sem hefur selt 25 tölvur
síðan fyrirtækið hóf starfsemi sína
í janúar á þessu ári.
Utboð Innkaupastofnunar ríkis-
ins á tölvum handa framhaldsskól-
um hljóðaði upp á 40, 80 eða 120
litlar tölvur. Engin ákvörðun hefur
enn verið tekin um: það hve marg-
ar tölvur verða endanlega keyptar
fyrir framhaldsskólana. Sumir
þeirra hafa verið að kaupa sér
tölvubúnað af ýmsu tagi að undan-
förnu, en með útboðinu nú er
meiningin að skapa samræmi í
þessum búnaði um leið og ríkið
vonast til að ná verðinu niður. Með
því að kaupa sams konar vélar má
einnig spara í menntun þeirra
kennara sem koma til með að
kenna framhaldsskólanemum á
tölvurnar. Útboðslýsingin fyrir
þessi tölvukaup framhcildsskól-
anna var samin að höfðu samráði
við helstu framhaldsskóla lcmdsins
og búist er við að minni einkatölv-
ur verði fyrir valinu, tölvur sem
kosta um 40-60.000 krónur út úr
búð.
Enn sem komið er hafa kaup á
tölvum fyrir grunnskólastigið ekki
verið á dagskrá. Komi slíkt ein-
hvem tíma til, þykir nokkuð ljóst
að þá verði um að ræða kaup á
tölvum í þúsundatali. Tölvurnar
em til, segja seljendur, en skólam-
ir em ekki reiðubúnir. Kennara-
menntunin hefur verið veiki hlekk-
urinn. Hingað til hcifa kennarar
hlotið takmarkaða menntun í
tölvumálum í Kennaraháskóla ís-
lands og það sem hefur einkum
háð tölvukennslunni þar er skort-
ur á tölvubúnaði. Fjárveitingar til
kaupa á búnaðinum vom skomar
niður ár eftir ár. Nýlega vænkaðist
hagur skólans í þessum efnum
vemlega en þó ekki fyrir tilstilli
eftir Hallgrím Thorsteinsson
fjárveitingavaldsins. Það var tölvu-
risinn sjáífur, IBM, sem tók sig til
og gaf Kennaraháskólanum 5 IBM-
PC-tölvur. Þessi tölvutegund hefur
farið sigurför um heiminn síðasta
ár og með henni tók IBM ótvíræða
forystu á einkatölvumarkaðinum á
skömmum tíma; sams konar for-
ystu og fyrirtækið hefur alla tíð
haft á sviði stærri tölva. IBM segir
engar kvaðir eða skyldur fylgja
þessari gjöf, en þeir sem fylgjast
með íslenska tölvumarkaðinum
em sammála um að gjöfin geri
samkeppnisaðstöðu IBM í tölvum
fyrir menntakerfið síður en svo
lakari en ella hefði verið.
Maður sem hefur starfað um
margra ára skeið í tölvubransanum
hér á landi segir að átök milli ein-
staklinga og iýrirtækja sem selja
tölvubúnað hérlendis hafi nú
magnast svo mjög að „menn svífist
einskis". Hann segir að jafnvel
megi tala um iðnaðamjósnir í
þessu sambandi. Þessi maður, sem
ekki vill láta nafns síns getið, bend-
ir í þessu sambandi á bréf, sem Jón
Hjaltalín Magnússon, ráðgjafi og
fyrmrn hluthafi og stjómarmeð-
limur í Atlantis hf., sendi skóla-
stjómm og kennurum um miðjcui
síðasta mánuð. í bréfinu býður Jón
ráðgjöf við val á heppilegum tölvu-
búnaði fyrir skóla og ráðgjöf við
heppilega fjármögnun kaupanna.
,J>að skýtur skökku við,“ segir
heimildamaður okkar, ,,að ráð-
gjafi skuli bjóða aðstoð sina við val
á tölvubúnaði í menntakerfinu á
sama tíma og hann er að reyna að
selja búnað sjálfur til sömu aðila.“
Meðal tilboðanna sem opnuð vom
í síðasta mánuði í tölvukaup freim-
haldsskólanna var einmitt eitt frá
nýju fyrirtæki Jóns og tveggja ann-
arra einstaklinga.
Tilboðið snerist um tölvur sem
settar yrðu saman hér á landi en
Jón Hjaltalín segir að ekkert sam-
band sé milli þessa tilboðs og ráð-
gjafarinnar sem hann hefur boðið
skólastjómm og kennurum. ,Jtáð-
gjöfin í skólunum var hafin löngu
áður en ég vissi af þessu útboði,"
segir hann. .J-Iugmyndin með út-
boðinu var fyrst og fremst sú að
vekja menn til umhugsunar um
það að við höfum alla burði til þess
hér á Iandi að setja saman okkar
eigin tölvur. Við höfum til þess
tækniþekkinguna og menntunina."
Jón vill að við framleiðum tölvur
hér eftir erlendum framleiðsluleyf-
um. Þannig sleppum við við allan
hönnunarkostnað á tölvunum.
Skiptar skoðcmir em um inn-
lenda framleiðslu á samskonar
tölvum og fjöldaframleiddar em
erlendis., J>að er ekki verið að selja
íslenskt hugvit með þessu,“ segir
Erling Ásgeirsson, sem selur IBM
tölvur hjá Gísla J. Johnsen hf.
„Hlutimir í Atlantis-tölvuna em all-
ir fluttir inn, og bara settir saman
hér. Það væri nær að við einbeitt-
umokkurað framleiðslu á tölvu-
búnaði þar sem innlent hugvit
nýttist okkur í útflutningi, t.d. á
sviði frystiiðnaðar og sjávarút-
vegs.“
Álmennt er viðurkennt að ís-
lenskur rafeindaiðnaður sýni nú
ótvíræð hraustleikamerki, sérstak-
lega á síðæstnefndu sviðunum.
Gert er ráð fyrir að framleiðslu-
verðmæti í þessum iðnaði nemi
um 150 milljónum króna í ár. Aukn-
ingin frá því í fýrra er gífurleg, en
þá var framleitt fyrir um 50 milljón-
ir króna og 1982 var framleiðslu-
verðmætið aðeins rúmlega 20
milljónir.
Framleiðendur Atlantis tölvunn-
ar em hvergi smeykir í samkeppn-
inni. „Við stöndum allvel að vígi,“
segir Leifur Steinn Elísson mark-
aðsstjóri. „Við teljum framleiðslu
okkar þjóðhagslega hagkvæma en
við viljum ekki bara keppa á þeim
gmndvelli. Við viljum keppa í gæð-
um, í verði og í þjónustu. Við höf-
um lagt mikla áherslu á hugbúnað
fyrir Atlantis-tölvuna og hún hefur
reynst vel. Við höfum ekki endilega
úr miklu kapitali að spila og ætlum
ekki að undirbjóða. Það em dæmi
um það úr bransanum hér að
menn hafi jarðað sjálfa sig á því. En
við teljum okkur ekki vera neina
eftirbáta annarra og það lýsir ein-
faldlega hreinum fordómum að
segja að ekki sé hægt að framleiða
einkatölvur hér á landi. Við fömm
ekki fram á opinbera styrki; verð-
24 HELGARPÓSTURINN