Helgarpósturinn - 22.03.1984, Qupperneq 26
HELGARDAGSKRAIN
Föstudagur 23. mars
ft I 19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
1 't 20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá.
I 20.40 Á döfinni.
I 20.55 Skonrokk.
lí 21.25 Kastljós.
22.30 Sjá heillum horfiðer það land...
(III Fares the Land). Bresk sjón-
varpsmynd frá 1982. Sankti Kilda
er óbyggður eyjaklasi undan
vesturströnd Skotlands. Síðustu
36 íbúarnir voru fluttir þaðan árið
1930, og liðu þar með undir lok
lífshættir sem verið höfðu litt
breyttir um aldir. í myndinni er
rakin aðdragandi þess að Sankti
Kilda lagðist i eyði og hvernig
eyjarskeggjum reiddi af.
00.15 Fréttir i dagskrárlok.
Laugardagur 24. mars
16.15 Fólk á vörnum vegi. 19.
16.30 (þróttir.
18.30 Háspennugengið. Lokaþáttur.
18.55 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttirátáknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
j 20.25 Auglýsingar og dagskrá.
? 20.35 Við feðginin. Sjötti þáttur.
21.05 Stórstjörnukvöld. Skemmtiþátt-
ur frá vestur-þýska sjónvarpinu.
22.35 Kona ársins. (Woman of the
Year). Bandarísk biómynd frá
1942. Leikstjóri George Stevens.
Aðalhlutverk: Spencer Tracy og
Katharine Hepburn. íþróttafrétta-
ritari og blaðakona, sem skrifar
um erlend málefni, rugla saman
reytum sínum en ólik áhugamál
valda ýmsum árekstrum í sam-
búðinni. Ekki missa af þessari
klassísku gamanmynd með því
óviðjafnanlega pari Hepburn og
Tracy. 3 stjörnur.
00.30 Dagskrárlok.
Sunnudagur 25. mars.
13.15 Enska knattspyrnan.
13.25 Everton - Liverpool. Úrslitaleik-
urinn um Mjólkurbikarinn. Bein
útsending frá Wembley
15.30 Hlé.
18.00 Sunnudagshugvekja.
18.10 Stundin okkar. Umsjónarmenn:
Ása H. Ragnarsdóttir og Þor-
steinn Marelsson.
19.05 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttirog veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku.
20.50 Tökum lagið. Þriðji þáttur. Kór
Langholtskirkju ásamt húsfylli
gesta i Gamla bíói syngur undir
stjórn Jóns Stefánssonar.
21.30 Jack Nickleby. Nýr flokkur -
Fyrsti þáttur. Leikrit í níu þáttum
gert eftir samnefndri sögu Charl-
es Dickens. Leikritið var tekið
upp fyrir sjónvarp I Old Vic
leikhúsinu í Lundúnum þar
sem Shakespeare-leikflokkurinn
sýndi verkið þrjú leikár samfleytt.
Leikstjóri Trevor Nunn. Leikend-
ur: Roger Rees, Emily Richard,
Jane Downs, John Woodwine,
Edward Petherbridge, Rose Hill,
Alun Armstrong, Lila Kaye, David
Threlfall o.fl.
Nikulás Nickleby ereitt þekktasta
verk Charles Dickens. Það gerist
í Lundúnum og víðar upp úr 1830
og segir frá æskuárum Nikulásar
Nicklebys og ýmsum þrengingum
sem hann verður að þola ásamt
móður sinni og systur áður en
gæfan brosir loks víð þeim.
22.25 Þar sem Jesús lifði og dó. Þýsk
heimildamynd um fornleifarann-
soknir í israel sem varpa nokkru
Ijósi á ýmsa þætti varðandi líf og
dauða Jesú Krists.
23.15 Dagskrárlok.
wmmmmmm
0
Föstudagur 23. mars
14.00 „Eplin i Eden“ eftir Óskar
Aðalstein.
14.30 Miðdegistónleikar.
14.45 Nýtt undir nálinni.
16.00 Fréttir.
16.20 Kristófer Kólumbus.
16.40 Síðdegistónleikar.
17.30 Síðdegisvakan.
j18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
ytl8.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
|§ 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn.
20.00 Lög unga fólksins.
20.40 Kvöldvaka.
21.10 Hljómskáiamúsík.
21.40 Störf kvenna við Eyjafjörð. 1.
þáttur af fjórum. Komið við á Dal-
vík og Ólafsfirði.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins.
Lestur Passíusálma (29).
22.40 Traðir. Umsjón Gunnlaugur
Yngvi Sigfússon.
23.20 Kvöldgestir - þáttur Jónasar
Jónassonar.
00.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2 hefst
með veðurfregnum kl. 01.00 og
lýkurkl. 03.00.
Val Lárusar Ingólfssonar
,3jónvarps- og útvarpsdagskráin um helgina hentar mér mjög vel því
ef hún væri eitthvað betri yrði ég bundnari yfir henni og ég hef ekki tíma
til þess að horfa og hlusta á ríkisfjölmiðlana allan daginn," segir Lárus
Ingólfsson kennari. „Ég reyni cilltaf þegar ég get að fylgjzist með fréttum í
sjónvarpi og á föstudag er einnig ómissandi þáttur þ.e. Skonrokk og svo
reyni ég að sjá fyrri bíómyndina. Á iaugardag er hinn stórgóði gaman-
myndaflokkur Við feðginin og þýskur skemmtiþáttur. Á sunnudaginn er
nýr framhaldsflokkur að byrja sem ekki er hægt að dæma fyrirfram. Á
föstudag hlusta ég á fréttir í útvarpinu en annars er ég að vinna þann
dag þar til sjónvarpsdagskráin byrjar kl. 20. Á laugardag eftir hádegi
hlusta ég á miðdegisdagskrána með öðru eyranu við vinnuna. Um
helgar horfi ég mest á sjónvarp og reyni að taíca út minn skammt fyrir
vikuna."
Laugardagur 24. mars.
14.00 Listalif. Umsjón Sigmar B.
Hauksson.
: 15.10 Listapopp.
16.00 Fréttir.
16.20 (slenskt mál. Guðrún Kvaran sér
um þáttinn.
16.30 Nýjustu fréttir af Njálu. Umsjón
Einar Karl Haraldsson.
17.00 Frá tónlistarhátiðinni i Schw-
etzingen i fyrravor.
18.00 Ungir pennar. Stjórnandi Dóm-
hildur Sigurðardóttir (RÚVAK).
J8.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
* 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 „Köld stendur sólin“. Franz
Gíslason talar um Wolfgang
Schiffer og les þýðingar sinar á
Ijóðum hans ásamt Sigrúnu Val-
bergsdóttur.
20.20 Útvarpssaga barnanna: „Benni
og ég“ eftri Robert Lawson.
20.40 Fyrir minnihlutann. Umsjón:]
Árni Björnsson.
21.15 Á sveitalínunni.
22.00 „Skóarinn litli frá Villefranche-
Sur-Mer“. Klemenz Jónsson les
smásögu eftir Davíð Þorvalds-
son.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.40 Harmonikuþáttur. Umsjón:
Högni Jónsson.
A
23.10 Létt sígild tónlist.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
03.00.
Sunnudagur 25. mars
10.25 Út og suður.
11.00 Messa í Dómkirkjunni.
Hádegistonleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.30 Vikan sem var.
14.10 Utangarðsskáldin -
15.15 í dagurlandi.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Um visindi og fræði.
17.00 Siðdegistónleikar.
18.00 Um fiska og fugla, hunda og
ketti og fleiri jslendinga.
j18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
ii 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
‘ 19.35 Bókvit.
19.50 „Þú sem hlustar".
20.00 Útvarp unga fólksins.
20.45 Úrslitakeppni 1. deildar karla í
handknattleik.
21.10 Hljómplöturabb
21.40 „Syndin er lævis og lipur“ eftir
Jónas Árnason.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Úrslitakeppni 1. deildar karla í
handknattleik.
23.05 Djassþáttur. Jón Múli Árnason.
m
Föstudagur 23. mars.
10.00-12.00 Morgunþáttur. Stjórnend-
ur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir
Tómasson og Jón Ólafsson.
14.00-16.00 Pósthólfið. Stjórnendur:
Hróbjartur Jónatansson og Val-
dís Gunnarsdóttir.
16.00-17.00
17.00-18.00
23.15-03.00 Næturvakt á Rás 2.
Stjórnandi Ólafur Þórðarson.
Laugardagur 24. mars.
24.00-00.50 Listapopp (endurtekinn
þáttur frá Rás 1). Stjórnandi
Gunnar Salvarsson.
00.50-03.00 Á næturvaktinni.
SJONVARP
Fíknarefni
Senn líður að því að yfirstandandi
hryðju Dallas-þátta tekur að slota, og
eins og vænta mátti leita þeir forföllnu á
náðir Velvakanda í Morgunblaðinu og
heimta að fá áfram sinn vikulega skammt
af sálardópinu.
Sérstaklega fróðlegt andvarp leið frá
Dallatssólgnu brjósti í Velvakanda síðast-
liðinn laugcu'dag. Ástæður sínar til að
kveina á meira DaJlas setti bréfritari fram
á þessa leið:
„Ég er orðin fullorðin kona og kemst
lítið út, og hef ég mjög gaman af þessum
þætti. Það er auðvitað margt gott í sjón-
J.R. Ewing - gælt við erfðasyndina.
varpinu en mér finnst Dallas svo heim-
ilislegur og skemmtilegur þáttur, sem
sýnir manni ýmsar hliðar á mannlífinu -
það má segja að þar sé svo margt eins og
gengur og gerist á heimilum."
Við ýmsu má búast af þeim sem hafa
Velvakanda fyrir skriftaföður, en myndin
af gömlu konunni, þar sem hún situr
með bamabömin í kringum sig og beinir
þeim með vel völdum athugasemdum,
en ekki alltof áberandi, á braut heimilis-
hátta eins og þeir gerast hjá Ewing-fjöl-
skyidunni, hún er á svo háu stigi fárán-
leika að mann sundlar.
Formúluþættir, þar sem nægir að
horfa á tvær fyrstu mínútumar til að vita
fyrir söguþráðinn tæpan klukkutíma út í
gegn, eru mér óþolandi, svo hér er frekar
rætt um Dallas cif afspum en nánum
kynnum. En aðdráttarafl Ewing-hyskis-
ins vitnar um að höfundcir hcifa komist í
sambcmd við gildan þátt í því sem Jung
kallaði sameiginlega dulvitund.
Mér varð þetta ljóst eftir að vinur minn
einn skýrði frá því, að af og til legði hann
það á sig að horfa á obbann af Dallas-
þætti, og eftir þá raun liði sér ævinlega
eins og skvett hefði verið framan í sig úr
skolpfötu. Hér á í hlut hreinhjcirtaður
maður, sem hefur alla tíð búið að sinni
barnatrú.
Reynslan hans færir mér heim sann-
inn um að máttur Dallas-höfunda er í því
fólginn, að þeir hafa komist upp á lag
með að gera gælur við erfðasyndina á
þann hátt sem skírskotar til duldra eðlis-
þátta.
Þurfi frekar vitna við er nóg að kanna í
kunningjahóp sínum, hversu margfalt
fleiri konur en karlar eru forfallnir
Dallas-neytendur. Skyldi það vera þrátt
fyrir það, eða einmitt vegna þess, að
meðal Ewinga er konum jafnan skipað í
svipað hlutverk og konan gegnir í þriðja
kafla Fyrstu Mósebókar?
UTVARP
Slæmt málfar
Að undanfömu hafa orðið nokkrar
umræður vegna málfars í útvarpinu og
þá hefur Rás 2 sérstaklega verið tekin til
bæna. Ég hef eitthvað vikið að þessu
áður, en langar nú að leggja áðeins fleiri
orð til viðbótar í þann mikla belg.
Það virðist ekki vera sama, hver fer
með slæmt mál í útvarpi. Þulir eru
skammaðir fyrir að leiðrétta hcindrit
fréttamanna og breyta jafnvel orðcilagi
þeirra. Staðreyndin er sú, að orðfærið
hjá þeim ágætu mönnum er stundum
svo lélegt, að undrum sætir, hvemig þeir
geta látið annað eins út úr sér. Sennilega
er skýringin sú, að tímaleysi verður þess
valdandi, að fréttamennimir geta hrein-
lega ekki leiðrétt handrit sín og gert þau
Jón Múli - smekkmaður á íslenskt mál.
úr garði eins vel og unnt er. Svo er vafa-
laust um einhverja Vcinkunnáttu í ís-
lensku máli að ræða. Hana er hægt að
bæta með góðum vilja.
Útvarpsráð blandaðist inn í þessa um-
ræðu á dögunum, þegar það gerði at-
hugasemd við það háttcdag þulcinna að
leiðrétta handrit fréttamanna. Mér þykir
útvarpsráð heldur dómhart í þessum
sökum og ekki er það í fyrsta sinn, sem
það hreytir ónotum í þulina. Muna má,
þegar ráðið gerði athugasemd við morg-
unrabb þeirra Jóns Múla og Péturs Pét-
urssonar, þegar þeir vom að lýsa veðr-
inu á sinn sérstaica og persónulega hátt,
sem áreiðanlega fáum er lagið. Hvað þá
félaga snertir, þá held ég, að flestir séu
sammála um að þeir séu smekkmenn á
íslenskt mál, og að Pétri ólöstuðum ber
þó sérstaklega að nefna Jón Múla. Kynn-
ingar hans em ofur eðlilegar og engu
orði ofaukið. Hann er einn þeirra mcinna,
sem hafa haft hvað víðtækust áhrif á
framkomu útvarpsmanna við hljóðnem-
ann.
En fleiri koma við sögu, þegar rætt er
um málfar í útvcirpi. Hafið þið hlustað á
þær tvær framhaldssögur, sem nú er ver-
ið að lesa í útvarpið? Aðra les og þýðir
Haukur Sigurðsson kennari og gerir það
ágætlega. Hina .JCönnuður í 5 heimsálf-
um“ les og þýðir séra Gísli Kolbeins. Ég
hef hlustað stöku sinnum á þá sögu og
þykir efnið áhugavert. Hins vegar mætti
lesturinn vera miklu betri. Ræskingar,
nokkuð sem ekki ætti að heyrast í út-
varpi, em nokkuð ábercindi, og svo virð-
ist Gísli ekki hafa vandað til þýðingar
sinnar sem skyldi. Er það miður, þegar
svo ágætir menn sem séra Gísli Kolbeins
spilla fyrir sér með lélegu verki. Sjálfsagt
væri hægt að tína miklu fleira til um
slæmt málfar í útvarpinu, en það virðist
tíska að hafa einungis fréttamenn og
starfsfólk á Rás 2 sem skotspæni í þess-
um efnum.
26 HELGARPÓSTURINN