Helgarpósturinn - 28.06.1984, Síða 25
Z'/r~ ■
HELGARPOSTURINN mun í
þessu blaði hefja kynningu á land-
inu okkar og ferðamöguleikum ís-
lendinga í eigin landi. Venjunni
trúir brjótum við allar hefðir -
byrjum á Norðurlandi en ekki
Reykjavík eins og venjan mun vera
í ferðabœklingum ogpésum. Ferð-
in í þessu blaði hefst í Hrútafjarðar-
botni og lýkur austur á Möðrudals-
öraefum.
Á nœstunni verða öðrum lands-
hlutum gerð svipuð skil og í þessu
blaði.
Greinilegt er að Islendingar
munu ferðast meira um eigið land í
sumar en nokkru sinni fyrr. Mögu-
leikarnir eru margir, hvort heldur
menn ferðast á eigin farartœkjum,
bílaleigubílum, hópferðabílum
eða áœtlunarbílum, siglandi eða í
lofti. Gistingin geturorðið á einu af
fjölmörgum tjaldstœðum, í svefn-
pokaplássi, farfuglaheimili eða
dýrindis hóteli, allt eftir efnahag.
Og svo er að sjá sem víða um land
sé farið að bjóða alls konar stuttar
ferðir um nágrenni bœja og kaup-
túna. Mikil gróska virðist vera að
fœrast í ferðamennskuna sem sér-
stakan atvinnuveg og er það vel.
í þessu blaði œtti að vera hœgt
að kynnast ýmsu afþví sem á boð-
stólum verður.
Mottó innlenda ferðamannsins í
sumar œtti að vera vandleg skoð-
un á ferðamannaslóðum á þessu
sólríka(?) sumri, ekki kappakstur í
rykkófi milli skyndibitastaðanna,
enda þótt þeir eigi allt gott skilið.
Kaupfélögin eru sjálfstæð félög, lýðræðisleg og öllum opin.
Um 40 kaupfélög um land allt eru grundvöllur samvinnu-
hreyfingarinnar. Verslun, þjónusta og fjölþætt framleiðslu-
störf eru í verkahring þeirra, en félagsmenn á hverjum stað
ákveða sjálfir starfsvettvanginn. Saga kaupfélaganna í
rúma öld er nátengd baráttu þjóð.arinnar fyrir bættum lífs-
kjörom og hvers kyns framförum. Kaupfélögin skapa
atvinnu og bæta þannig lífskjör landsmanna.