Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 4
LÓÐAÐ Á ORMINN - rætt viö Þórunni hótelstjóra í Hússtjórn „Lagarfljótsormurinn er afskap- lega afskiptalítill.svo ekki sé meira sagt,“ sagði Þórunn Hálfdánardótt- ir í sumarhótelinu í Hússtjórnar- skólanum á Hallormsstað. ,£g er ekkert tilbúin að segja að hann sé ekki þama, en greinilega er þetta hin spakasta skepna. I fyrra voru símamenn úr Reykjavík að leggja símastreng yfir fljótið. Þegar þeir voru að taka dýpið kom fram greinileg lóðning á 100 metra dýpi, en fljótið er þama 112 metra djúpt. Auðvitað var þeim sagt að þama hafi verið lóðað á Orminn!" Þómnn sagði að ferðamanna- straumurinn hefði byrjað snemma árið, enda veður með ein- dæmum gott, flesta daga sólskin og þetta 20 stiga hiti. Um daginn vom menn éif Stuðlaætt úr Reyðar- firði með geysimikið ættarmót í Hallormsstaðaskógi, eitthvað um 500 manns og bæði hótelin full, í hússtjómarskólanum og Eddunni, auk þess sem þröngt var tjaldað í Atlavík. Þá var fyrir skömmu minnst 100 ára ártíðar Guttorms Pálssoncir sem var skógarvörður á Hallormsstað. Framundan er venjubundin ferðamannaártíð í skóginum, mikl- ar annir, og auk þess Atlavíkur- hátíðin um verslunarmannahelgi, en þá er unga fólkið við völdin í skóginum og í víkinni. Þómnn sagði að ferðamenn fæm gjarnan í langar skógargöng- ur, en óvíða upplifa menn alvöru skógarferðir hér á landi eins og á þessum stað. Þá er Fljótsdalurinn vinsæl ferðamannaleið, og margir aka í átt að Snæfelli, og ganga síðan að fjallinu. Þeir sem em með smáböm með í ferðinni gista gjaman á hótelun- um. Verð á tveggja manna herbergi er 1000 krónur fyrir nóttina. En sem sagt, Hallormsstaður og Atlavík em hinn ákjósanlegasti upphafsstaður til ferðalaga um Austurland, hvort heldur farið er á firðina eða um næsta nágrenni. Frá gamalli tíð: ÓHUGNANLEG VÍG ÞEGAR SPÁNVERJAR HUGÐUSTHEFNA SVIKINNA TÍKARKAUPA Ógnvekjandi atburðir áttu sér stað á öldum áður skammt frá Norðfirði, nánar til tekið í skarðinu sem liggur á milli Viðfjarðar í Norðfirði og Vaðlavíkur sem er yst í Reyðarfirði, eigi fjarri Gerpi, aust- asta tanga landsins. Á þessum stað munu fótgangéindi ferðíimenn sjá allmikla dys, sem ýmist er kölluð Spánskadys eða Viðfjcirðcirdys. Haugur þessi er einir 50 metrar í ummál og líklega allt að 2,50 metr- ar á hæð, nær því kringlóttur. Svo bar til sumar eitt að spönsk dugga kom inn á Breiðuvík í Reyð- arfirði, en þar hafði þá lengi verið verslunarstaður. Áttu skipverjar einhver kaup við landsmenn og þóttu fremur viðsjálir í viðskiptum. Eitt af því sem þeir vildu kaupa var hvolpafull tík, því þeir vildu gjam- an koma sér upp íslensku hunda- kyni. Meðal þeirra sem reru út í skút- una voru þeir Jón og Bjami í Hellis- firði, synir Magnúsar hins sterka, sem þá var gamall maður orðinn, en hafði á yngri árum drepið blá- mann í áflogum, drepið bjamdýr og ljón auk cinncUTa afreksverka. 4 HELGARPÓSTURINN Höfðu þeir bræður meðferðis tík eina út í dugguna. Hafði hún lapið mikið af soði og bar því bagga. Sögðu sumir að þetta hefði verið með vilja gert til að pretta Spán- verjana. Héldu þeir tíkina hvolpa- fulla og föluðust eftir henni. Kaupin vom nú gerð og þeir Magnússynir héldu aftur til síns heima. Af tíkinni er það að frétta að hún ælir brátt á þilfarið af offyllinni og sáu Spánverjar þá hver sann- leikurinn var og bmgðust við æfa- reiðir. Hétu þeir því að hefna þessa grimmilega. Héldu þeir til Breiðuvíkur, en ekki komu þeir fram neinum hefndum að sinni, en hétu því að koma að ári og hefna grimmilega, og vom Spánverjar þess tíma kunnir að ýmsu misjöfnu í þeim efnum. Næsta ár komu þeir enn og þá aðeins í því skyni að hefna fyrir tíkarkaupin. Gengu þeir á land í Vaðlavík og hófu þaðan för sína til Norðfjarðar, 17 Sciman, búnir byss- um og lagvopnum. Á leiðinni hittu þeir systkini, sem vom í smadaferð, börn bóndans í Vaðlavík. Nauðg- uðu þeir stúlkunni og misþyrmdu þar til hún lést. Piltinn kúguðu þeir til fýlgdar, við sig yfir til Hellisfjarð- ar. Leiddi piltur þá í torfærur og króka og varð þeim spönsku ómótt af göngunni, enda búnir þungum stígvélum og fatnaði. fægar komið var í Almannaskarð vom þeir syfj- aðir, lúnir og hungraðir. Var áð þar og etinn dagverður, en síðan lögð- ust þeir til svefns eins og suðræn- um mönnum er tamt að lokinni máltíð. Lögðu tveir þeirra dreng- inn á milli sín og kræktu saman höndunum yfir hann. Um síðir tókst pilti að losna úr prísundinni án þess að verðir hans brygðu blundi. Tók hann byssur mannanna og kom þeim fyrir þar sem blautt var. Tók hann síðan á rás norður um Vindháls og komst í Hellisfjörð og sagði tíðindin. Bmgðu þeir við synir Magnúsar sterka, gripu barefli báðir tveir og hlupu af stað og linntu ekki hlaup- unum fyrr en þeir komu í Almanna- skarð. Spánverjarnir vom þá búnir að finna byssumar, en þær komu ekki að gagni, svo vatnsósa vom þær. Varð þarna bardagi mikill, en Spánverjamir vopnlausir að kalla. Aðrar sagnir segja að Þórhallur bóndi í Vaðlavík, faðir bamanna. hcifi þá verið kominn á staðinn og bcU"ist við Spánverjana með ás ein- um miklum, sem hann veifaði kringum sig þannig að ekki varð að honum sótt. Drengurinn, sonur hans, hafði verið lokaður inni í Hellisfirði, en slapp sem fyrr úr prísundinni og hljóp af stað á vett- vang. Einnig fór Magnús hinn sterki af stað. Tóku Spánverjar að

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.