Helgarpósturinn - 16.08.1984, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 16.08.1984, Blaðsíða 2
GLERH) SF HYRJARHÖFÐA 6. SÍMI: 86510 GLER SLÍPUN SKURÐUR ÍSETNING KÝLGÚMMÍ BORÐAR SPEGILGLER O.FL. VERKSTJÖRI: JÚHANNES ODDSSON. GLERÍÐSF HYRJARHÖFÐA 6. SlMI:686510 VERSLUNARMIÐSTÖÐ VESTURBÆJARIN ATV£ r«» /£S\V-£_G^ AUar %\ W vörur Jimti 2 z j ^ á markaðsverði. 2 p OE £ RAFTÆKJADEILD II. HÆÐ Raftæki - Rafljós og rafbúnaður JL-GRILLIÐ Grillréttir allan daginn MUNIÐ OKKAR HAGSTÆÐU GREIÐSLUSKILMÁLA Innkaupin eru þægileg hjá okkur Svo geturðu líka slappað af í Kaffiteríunni OPIÐ: Mánud.-fimmtud. 9-19. Föstud. 9-20. AAA AAA *■ v |H|H l-jcl; jDdaij — __. u> j| jon Lottsson ht ^mSEEEEEEnl Hringbraut 121 Sími 10600 FRETTAPOSTUR r — — — — — — — _______ Jan Mayen deilan Möguleiki er á loðnustríði við Jan Mayen. Dönsk og fær- . eysk skip hafa haldið þar uppi veiðum og segjast Danir veiða I innan danskrar 200 mílna lögsögu frá Grænlandi. Norð- menn telja að miðlína skuli gilda á hafsvæðinu en sú deila I hefur ekki verið til lykta leidd. íslendingar hafa krafist þess * að Norðmenn hafi eftirlit með þessu umdeilda svæði og gæti > þannig hagsmuna íslendinga og Norðmanna en ella beri að ■ draga fiskveiðar þessara þjóða frá kvóta Norðmanna. . Dauðaslys á öræfum t Hörmuleg slys erlendra ferðamanna hafa orðið í óbyggð- j um landsins. 9. ágúst urðu 2 konur frá Austurríki fyrir grjóthruni í hlíðum Herðuhreiðar og slösuðust mikið. Önn- ur þeirra lést á Borgarspítalanum s.l. þriðjudag. 3 japansk- ir jarðfræðingar fórust í Rjúpnahrekkukvísl föstudaginn I 10. ágúst er jeppahifreið þeirra hvolfdi i ána og sunnudag- ■ inn 12. drukknaði skoskur ferðamaður í Skógá. . Alvarlegt ástand á fiskmörkuðum Miklar hirgðir hafa safnast upp á fiskmarkaði íslendinga í Bandaríkjunum og aðrar þjóðir láta þar stöðugt meira að sér kveða. Kanadamenn hafa stóraukið þorskafla sinn og er það talið geta leitt til verðstriðs á öllum hefðhundnum fisk- mörkuðum íslands. I Kafiaskil hjá ríkisstjórninni . Nýr stjórnarsáttmáli er í hurðarliðnum og hafa forystu- • menn lýst því yfir að viðræður um hann megi ekki taka langan tíma. Áfram situr Albert Þótt mannahreytingar verði í stjórninni mun Albert Guð- mundsson væntanlega sitja áfram í stól fjármálaráðherra þar sem hann hefur lýst þvi yfir að hann hafi ekki fengið það staðfest að hlutfall erlendra skulda sé komið yfir 60% | þjóðarframleiðslu en fyrr hefur hann sagst munu yfirgefa * stjórnina ef málin þróuðust á þann veg. Seðlabankinn hefur • reiknað út að hlutfall skuldanna stefni í 62% þjóðarfram- I leiðslu. Vaxtafrelsi bankanna Vextir á flestum inn- og útlánum hafa verið gefnir frjálsir | að nokkru leyti þar sem Seðlabankinn getur ákvarðað til- tekið hámark á þá. Viðskiptabankarnir 7 birtu í upphafi I vikunnar vaxtatilboð sín og er talið að samkeppni þeirra um * sparifé landsmanna muni aukast til muna við þessa ráðstöf- ■ un. I Staða ríkisfjármálanna Albert Guðmundsson fjármálaráðherra boðaði stjórnar- . andstöðuþingmenn á sinn fund 10. ágúst til að kynna þeim I stöðu ríkissjóðs. Á fyrstu 6 mán. ársins hefur tekjuaukning ríkissjóðs orðið 49% og smækkar fjárlagagatið kunna, þótt i enn vanti 1,2 milljarða uppá. Launakostnaður hefur hækk- I að um 25% á sama tímabili. „Hagnaður af lágu kaupgjaldi og hærri skattar,“ segja stjórnarandstöðuþingmenn. íþróttir | íslensku Ólympíufararnir komu heim að morgni s.l. þriðjudags og var haldin móttökuathöfn á flugvellinum þar I sem menntamálaráðherra flutti stutt ávarp. * Ensku meistararnir í Liverpool-knattspyrnuliðinu, sem > unnið hafa Englandsmeistaratitilinn, Evrópumeistaratitil- I inn og Mjólkurbikarmeistaratitilinn á þessu ári, spiluðu við ■ KR í Beykjavík s.l. sunnudag. Lauk leiknum með jafntefli, I 2—2. Staöa þriggja efstu liða á íslandsmótinu í knattspyrnu s.l. | þriðjudagskvöld er þannig að Akranes hefur 31 stig, Kefla- vík 24 og Valur 20. I Fréttamolar i Kvennaathvarf hefur verið opnað á Akureyri. í sumar 1 hefur ásókn í kvennaathvarfið í Reykjavík aukist talsvert. j Stjórnskipuð nefnd um mörkun opinberrar stefnu í I áfengismálum hefur birt bráðabirgðatillögur sínar um . hvernig vænlegast sé að draga úr áfengisneyslu. Er yfirleitt | lagt til að reglur verði stórlega hertar. Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur ákveðið að veita I ekki víxillán til námsmanna á fyrsta námsári í vetur. Varnarliðið hefur ásamt íslenskum aðilum staðið að I könnun og mælingum á Vestf jörðum með tilliti til hugsan- I legrar staðsetningar radarstöðvar þar. Mun einnig eiga að . setja slíka stöð upp á Langanesi og er hugsanlegt að Islend- | ingar manni þá allar 4 radarstöðvarnar hér á landi, aö sögn utanríkisráðherra. I Flugleiðir hafa nýtt sér forkaupsrétt sinn til kaupa á nýju hlutafé fyrir 16 millj. kr. í Arnarflugi. > Stööuveitingar . Jakob Jakobsson fiskifræðingur hefur verið skipaður • forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar til næstu 5 ára, og . Hallgrímur Snorrason hagfræðingur, hagstofustjóri frá | fyrsta jan. ‘85. Afmæli Gísli Halldórsson, húsameistari og formaður Ólympíu- nefndar íslands, varð sjötugur 12. ágúst og hélt upp á þau tímamót í Los Angeles þegar verið var að slíta Ólympíuleik- I unum. ■ 60 ára varð Páll Bergþórsson veðurfræðingur hinn 13. > ágúst s.l. og sama dag varð Guðmundur Benediktsson, | ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, einnig sextugur að . aldri. Andlát Hinn 5. ágústlést Jón Sigurður Ólafsson, skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu, 64 ára að aldri.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.