Helgarpósturinn - 16.08.1984, Blaðsíða 25

Helgarpósturinn - 16.08.1984, Blaðsíða 25
 um reynslu íslendinga af dulrænum fyrirbrigðum. Á tölvuöld reika framliðnir enn á meðal okkar, draumarnir eru stöðugar vís- bendingar sem ber að ráða og óútskýranlegir atburðir eiga sér stað á nóttu sem um hábjartan dag. Helgarpósturinn leitaði til sex nafnkunnra íslendinga og bað þá að segja frá dulrænni reynslu sinni og afskiptum af fyrirbær- um handan þessa efnisheims. Lífið er rafmagns- impúlsar segir Guðmunda Elíasdóttir söngkona og hlær dátt Guðmunda Elíasdóttirsöng- kona kvaðst aðallega geta sagt frá draumum, vitrunum í draumum,en það væri kannski lítið dulrænt við að vera ber- dreyminn. Hún ákvað samt að láta á það reyna og sagði frá eftirfarandi draumi: „íslensk farþegaþota og ame- rísk herþota rákust næstum á í lofti vestan við Vestmannaeyjar fyrir um það bil ári. Sonur minn vinnur í Líbýu og þegar hann kemur heim fer yfirleitt einhver úr fjölskyldunni að taka á móti honum á flug- vellinum. Nóttina áður en ég fór að taka á móti honum dreymdi mig að ég væri stödd í byrgi. öll hlið þess var úr gleri og ég horfði út á hrjúft malbik. Ég vissi að ég væri að taka á móti syni mínum og ég heyrði að það hefði orðið slys. Ég hugsaði strax til hans sem átti að koma eftir fáar mínútur. Fyrir utan gluggann stóð náinn vinur minn sem er dáinn og sagði: „Vertu ró- leg, hans tími er ekki kominn." Á leiðinni til Keflavíkur daginn eftir var ég mjög óróleg en taldi hann komast af, hvað svo sem kæmi fyrir hitt fólkið. Þegar ég kom í út- sýnisturninn í Keflavík sá ég sama malbikið og í draumnum og ég hugsaði með mér að nú yrði slys. En í þetta skiptið skall hurð nærri hælum og það var aðeins snarræði íslenska flugmannsins að þakka að ekki varð slys. Það er spurning hvaðan svona fréttir koma. Hvort maður kemst á einhvern hátt í samband við himinhvolfið þegar maður sofnar. Ég hef oft hugsað um þetta. Einu sinni dreymdi mig að maður kom til mín og sagði: „Veistu það Mumma (ég er kölluð það), lífið er rafmagnsinnpúlsar". Ég hló mikið að þessu og geri enn Varð kristinn á einum morgni segir Jón Sigurðsson skólastjóri á Bifröst Það er spurning hvaö kallast dulræn reynsla, eða svo þótti Jóni Sigurðssyni skólastjóra á Bifröst að minnsta kosti. „Teljast draumar til dulrænn- ar reynslu?" — Ja, hví ekki? „Ég er vanur draumum. í skóla dreymdi mig eitt sinn einkunnirnar mínar. Það stóðst þegar ég fékk þær. Mig hefur margsinnis dreymt atburði næstu daga og vikna, menn sem ég síðan er tilbúinn að hitta og hitti. Þessir draumar hafa oft orðið mér mikil hjálp. Ég hef vitað að eitthvað myndi gerast og en það er kannski ekkert hlægilegt. Annars á ég systur sem eru mjög berdreymnar og skyggnar. Árið 1971 átti ég afmæli. Systir mín í Keflavík hringdi og sagðist ætla að koma til mín í gleðskapinn. Um klukkan ellefu um kvöldið bankar hún svo upp á og er stutt í spuna við mig. Þegar ég spyr hvort eitthvað sé að segir hún mér að þegar hún hafi verið að ganga upp að húsinu hafi hún séð mig inn um svefnherbergisgluggann, ég hafi brosað og í fleng dregið glugga- tjaldið fyrir. Henni þóttu þetta kuldalegar móttökur en við sem í stofunni vorum vitum að ég sat þar við borð og gat ekki hafa verið í svefnherberginu. Vinkona mín ein sagðist líka hafa séð þessa konu í glugganum um ári síðar þar sem hún dró tjaldið fyrir á sama hátt og í fyrra skiptið og var eins klædd og fyrr. Vinkona mín sá hana bara klukkan fjögur að degi til í stað ellefu að kvöldi til áður." verið undir það búinn. Eitt sinn sá ég, milli draums og vöku, hús sem stóð í Ijósum log- um. Þegar það gerðist var ég í mjólkurbfl á leið að Draghálsi. Ég var níu ára gutti þá, hnippti í bfl- stjórann og sagði honum að nú myndi eitthvert hús brenna, við skyldum flýta okkur að Draghálsi. Um það bil ári síðar brann íbúðar- húsið þar. Svo er náttúrlega frá því að segja að ég varð kristinn á einum morgni. Ég var að vinna í sláturhúsi í Svíþjóð þegar talað var til mín í spænsku veikinni Gréta Sigfúsdóttir rithöfundur segir frá „Ég skal segja frá því undar- legasta sem ég hef nokkru sinni lifað," sagði Gréta Sig- fúsdóttir rithöfundur, „en hvort það er einhver dulræn mjög greinilega einn morguninn, rétt yfir öxlina á mér jafn Ijóslifandi og við tölum saman núna. Ég var að velta fyrir mér spurningum um tilveruna, hvort við mennirnir værum villidýr eða eitthvað annað. Ég reyndi að rekja uppruna lífsins og undirstöðu þess. Það er stór spurning hver talaði til mín, kona góð. Ég held að það hafi verið Guð. Hann benti mér á að ég hefði ekki rétt svar við spurningum mín- um. Þetta skipti að sjálfsögðu sköpum í lífi mínu. Lífsviðhorf mín breyttust og öll lífsstefna. Svo hef ég dulræna reynslu að því leytinu til að við hjónin höfum þekkt fólk sem hefur verið skyggnt eða ófreskt. Kona nokkur sem er kunningi okkar hefur til dæmis tvisvar með tíu ára millibili séð fyrir næstu ár okkar. Hún var búin að segja okkur að við myndum flytj- ast í sveit og fara að starfa í skóla áður en við vissum það sjálf. En þegar ég hætti í þáverandi vinnu minni vissi ég af þessu og var undir það búinn að gerast skólastjóri að Bifröst þótt ég vissi ekki að ég myndi einmitt gerast skólastjóri þar fyrr en að því kom. Þetta hefur allt saman haft mikil áhrif á mig þótt ég líti á til dæmis drauma sem hversdagslegan hlut. Ég veit nefnilega ef það býr eitt- hvað að baki þeim og eins veit ég að þeir geta oft verið bull." reynsla skal ég ekkert segja um. Þetta gerðist í spænsku veik- inni, um 1918. Ég var þá um það bil 8 ára gömul. Á heimilinu var stúlka og við vorum nokkuð samrýndar. Hún tók mig með sér einn daginn í heimsókn til kunningjakonu sinn- ar sem bjó á loftinu hjá Sigurði Thoroddsen föður Gunnars Thor- oddsen heitins á Fríkirkjuvegi. Á leið þangað gengum við framhjá Miðbæjarskólanum en leið okkar lá í húsið við hliðina. Það var vetur, dimmt úti og snjór yfir öllu. Ég man ennþá brattar tröppurnar upp á loftið en stúlkan sem þar bjó hafði lampaljós í herberginu sínu. Þegar við fórum, fylgdi hún okkur út á tröppurnar fyrir utan. En þegar út var komið, sáum við ekkert nema hvíta slæðu fyrir augunum. Snjór- inn reis upp eins og veggur gegn okkur og það stirndi á hann. Við æddum fram og til baka og vissum hvorki í þennan heim né annan. Við rönkuðum ekki við okkur fyrr en í brekkunni fyrir ofan Miðbæjar- skólann. Mér fannst sem óratími hlyti að hafa liðið meðan þetta gerðist en það voru víst ekki nema nokkrar mínútur. Fyrst núna dettur mér í hug að þetta hafi getað verið snjóblinda en mér er þetta mjög minnisstætt. Mamma taldi þetta hafa verið áhrif frá deyjandi fólki í skólanum en hann hafði verið tek- inn undir sjúkrahús þar sem ekkert slíkt var fyrir hendi. Þetta var und- arlegur atburður og ég notaði hann eitt sinn í skáldsögu. Það sýnir kannski að rithöfundar fá oft eitt- hvað lánað úr sínu eigin lífi." HELGARPÓSTURINN 25

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.