Helgarpósturinn - 16.08.1984, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 16.08.1984, Blaðsíða 5
„Eggin eru tíu prósent betri vara en áður" ☆Flokkunar- og dreifingarstöð Sambands eggjaframleiðenda er nú að komast í fullan gang. Þessi stöð hefur verið nokkurt deilumál eins og lesendur sjálf- sagt muna en aðstandendur hennar fullyrða að hún komi ekki til með að breyta vöru- verði til neytenda þótt þeir fái með henni mjög bætta þjónustu. „Það hefur verið áætlað að dreifingarkostnaður eggja- bænda hafi verið um tíu pró- sent af heildsöluverði," sagði Eyþór Elíasson, framkvæmda- stjóri Iseggs, en það er nafnið sem stöðin selur undir. Ef við tökum bara lauslega tölu þá má segja að um hundrað bændur hafi keyrt framleiðslu sína til Reykjavíkur einusinni eða tvisvar í viku og dreift henni í verslanir. Nú er sú breyting orðin á að við sækjum eggin til þeirra og miðað við þúsund tonna framleiðslu á ári reiknast okkur til að dreifingarkostnað- urinn fari niður í 8,9 prósent. Ef framleiðslan verður 1500 tonn á ári fer dreifingarkostnaður niður í 6,8 prósent. Það eru bændurnir sjálfir sem greiða þennan kostnað. Með því að eggin fara í gegnum stöðina hjá okkur telj- um við okkur vera að bjóða átta til tíu prósent betri vöru en áður hefur verið á markaði hér og það verður á markaðsverði hverju sinni, neytendur verða ekki látnir greiða aukalega fyrir þessa þjónustu. Það sem við bjóðum uppá er að eggin verða stærðarflokkuð i þrjá aðal söluflokka sem sam- anstanda af sex stærðarflokk- um. Við flokkum eggin í lítil, meðalstór og stór. i hverri pakkningu verður aðeins fimm gramma mismunur á eggjunum. Öll egg verða gæðaskoðuð með gegnumlýsingu og tínd frá öll gölluð egg, svosem sprung- in, skítug og blóðegg. Hvers- konar ytri og innri gallar sjást við gegnumlýsinguna. Gæða- flokkuð og stærðarflokkuð egg eru tíu prósent betri vara en hingaðtil hefur verið á markað- inum því það er ekki hætta á að neytendur fái skemmd eða gölluð egg, eins og annars get- ur komið fyrir. Stöðin tryggir að eggin verða ný á markaðin- um og stimpluð með síðasta söludegi og pökkunardegi. Ef birgðir fara að safnast upp í stöðinni og eggin að verða of gömul þá verða þau tekin, brot- in upp og fryst og svo seld í öðru formi t.d. sem geril- sneyddur eggjamassi. Það er verið að vinna að undirbúningi á vinnslu þeirra eggja sem ekki standast gæða- kröfur til að fara á almennan markað, og Jón Óttar Ragnars- son, matvælafræðingur, sem er ráðgjafi stöðvarinnar vinnur nú að þeim þætti. Meðal annars er stefnt að því að bjóða upp á gerilsneyddan eggjamassa fyrir bakarí og jafnvel selja í neyt- endaumbúðum í ýmsu formi." „Það er í raun furðulegt," sagði Eyþór Elíasson, „að ekki skuli fyrr vera búið að bjóða neytendum upp á stærðarflokk- uð og gæðaskoðuð egg. Við erum þar langt á eftir öllum ná- grannalöndum okkar. Við telj- um að þessi þjónusta, sem er Eyþór Elíasson framkvæmdastjóri í nýju stöðinni. HP mynd-Kristján Ingi. neytendum að kostnaðarlausu, sé mjög til hagsbóta fyrir alla aðila." Þess má geta að þrjú stærstu eggjabú á landinu eru ekki aðilar að Sambandi eggja- framleiðenda heldur hyggja á eigin samtök og verður því samkeppni á markaðinum eftir sem áður.^ KELGARPUSTURINN Deigur sígur Það sést ekki að elgurinn sjatni, að sunnlenska veðráttan batni. Hún verðskuldar níð þessi nágúrkutíð með 97% vatni. Niðri vaxtakiör Með tilvísun til tilkynningar Seðlabanka íslands um vexti og verðtryggingu sparifjár og lánsfjár o.fl. dags. 2. ágúst 1984, hefur Iðnaðarbankinn ákveðið vexti og verðbótaþátt af inn- og útlánum. Vextir alls eru samansettir af grunnvöxtum, sem eru mismunandi eftir inn- og útlánsformum og verðbótaþætti, sem er í öllum tilvikum 12,0% p.a. Vextirnir eru breytilegirsamkvæmtákvörðun bankaráðs Iðnaðarbanka Islands hf. Frá og meö 13. ágúst veröa vaxtakjör okkar meö eftirfarandi hætti: limlán: Vextirp.a fyrir breytingu Nýjirvextir p.afrá 13. ág. '84 Dæmi um árs- ávöxtun 1. Sparisjóðsbækur1 15,0% 17,0% 2. Sparisj.reikn. með 3ja mán. uppsögn2 . 17,0% 20,0% 3. Sparisj.reikn. með 6 mán. uppsögn2 ... 19,0% 23,0% 4. SPARISJ.REIKN MEÐ 6 MÁN. UPPSÖGN 0G 1.5% BÓNUS3 2 20,5% 24,5% 26,0°/ 5. Verðtr.reikn með 3ja mán. uppsögn ... 00,0% 00,0% 6. Verðtr.reikn með 6 mán. uppsögn .... 2,5% 4,5% 7. Verðtr.reiknmeð6mán. uppsögn og1,5%bónus32 4,0% 6,0% 8. IB-reikningar4 . 17-19,0% 20-23,0% 9. Innlendir gjaldeyrisreikningar a) idollurum 9,5% 9,5% b) í sterlingspundum 9,5% 9,5% c) í v - þýskum mörkum 4.0% 4,0% d) i dönskum krónum 9,5% 9,5% 10. ÁVÍSANA- OG HLAUPAREIKNINGAR8 . . . . 5,0% 12,0% 11. Sérstakar verðbætur af verðtr. reikn.5 1,0% 1,0% úttm: 1. FCRVEXTIR VlXlA 18,5% 22,5% 2. Yfirdráttarlán á hlaupareikn.6 18.0% 22,0% 3. Afurðalán, endurseljanleg' 18,0% 18,0% 4. NÝ SKULDABRÉF9 25,0% 29,1° 5. Eldri skuldabréf’ 21,0% 21,0% 6. Nýverðtryggðlánalltað21/2ár 9,0% 7. Eldri verðtryggð lán allt að 21/2 ár’ ... 4,0% 4,0% 8. Ný verðtryggð lán lengri en 21/2 ár ... 10,0% 9. Eldriverðtryggðlánlengrien21/2ár' . 5,0% 5,0% 10. Vanskilavextir17 2,5% 2,75% 1) Samkvæmt ákvörðun Seðlabanka islands. 2) Vextlr reiknast tvisvar á ári. 3) Bónus greiðist til viðbótar vöxtum á alla 6 mán. reikninga sem ekki er tekið út af þegar innistæða er laus og reiknast bónusinn tvisvar á ári, i júli og janúar. 4) Vextirverða 20% p.a. á IB-reikningum við 3ja-5 mánaða spamað, en 23,0% p.a. ef um lengri spamað er að ræða. 5) Sérstakarverðbætureru1%ámánuði. 6) Crunnvextir eru 10% p.a. og reiknast af heimild mánaðarlega fyrirfram en verðbótaþáttur er 12,0% p.a., reiknast af skuld mánaðarlega eftir á. 7) Gildirfrá1.september1984. 8) Vextir reiknast af lægstu stööu á hverjum 10 dögum. 9) Avöxtun 6 mánaða skuldabréfs með tveimur greiðslum á 3ja mánaða fresti. Lántökugjald 0,8%. Iðnaðailiankinn Fer eigin leiðir - fyrir sparendur. HELGARPÓSTURINN 5

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.