Helgarpósturinn - 16.08.1984, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 16.08.1984, Blaðsíða 28
s ^^^teingrimur Hermannsson forsætisráöherra er kominn frá Los Angeles og heldur fund með Þor- steini Pálssyni, formanni Sjálf- stæðisflokksins, í dag, fimmtudag, með nýjan stjórnarsáttmála í huga. Steingrímur mun vera með margar nýjar og ferskar hugmyndir og til- lögur í tösku sinni en sú róttækasta mun vera um nýtt sjóðakerfi. Stein- grímur fól litlum hópi ungra manna fyrr á árinu að gera mikla úttekt á sjóðakerfi landsins, ásamt tillögum um breytingar og aukið hagræði fyrir þjóðarbúið í heild. Hópurinn komst að þeirri niðurstöðu að ieggja ætti niður alla sjóði, en þeir eru á annan tug, og taka í stað þeirra upp þrjá sjóði, einn fyrir hverja atvinnugrein — landbúnað, iðnað og sjávarútveg. Sjóðirnir þrír eiga samkvæmt tillögum þessum að vera sjálfstæðir og eiga atvinnuveg- irnir að stjórna þeim sjálfir. Ekkert fé af fjárlögum skal renna til sjóð- anna þriggja. Er búist við talsverðu fjaðrafoki í röðum stjórnarflokk- anna þegar Steingrímur dregur þessar tillögur upp úr pússi sínu, því hið nýja sjóðakerfi þýðir að sjálf- sögðu snarminnkandi afskipti hins pólitíska valds af lánum til atvinnu- veganna. Breytingin þýddi enn- fremur mikla byltingu á Fram- kvæmdastofnun, þar eð fram- kvæmdasjóður yrði lagður niður. . . ^PÍ^ðrar nýjugar í möppu Stein- gríms er tillaga um að stórefla ný- iðngreinar í landinu, og þá með útflutning fyirr augum. Einkum mun vera lögð áhersla á lífefna- og rafeindaidnað og gæti jafnvel svo farið að fjórði atvinnugreinasjóður- inn yrði stofnaður með það í huga að byggja upp hinar nýju iðngrein- ar.. . u M lutafjáraukning Arnarflugs hefur mikið verið í fréttum. Eins og fram hefur komið ætla starfsmenn Arnarflugs, sem eru hluthafar, að nýta sér forkaupsrétt hlutabréfa. Það hefur hins vegar ekki komið fram að forráðamenn Arnarflugs hafa á undanförnum vikum gengið á eftir starfsmönnum að þeir nýttu sér forkaupsréttinn af ótta við að Flugleiðir eða sambandsfélögin nýttu sinn forkaupsrétt til að kaupa hlutabréfaaukningu starfsmanna og ná þar með undirtökum í Arnar- flugi. A forysta Arnarflugs að hafa annast lánafyrirgreiðslu fyrir starfs- menn sína til að auðvelda þeim kaupin á nýju hlutabréfunum. . . E HHplid fellur sjaldan langt fra eik- inni, er stundum sagt. Það á líka ágætlega við í þessu tilfelli. Hver man ekki eftir Islenskum eðalvögn- um hf. og innflutningi þess fyrirtæk- is, Rolls Rojsunum tveimur, á fyrri hluta ársins? Eins og menn muna var annar bíllinn seldur úr landi en hinn notaður til leigu. Af því máli er lítið nýtt títt en talsmaður^ Eðal- vagna var maður að nafni Ólafur Arnarson. Sá kom ætíð fram í fjöl- miðlum fyrir hönd fyrirtækisins. En það sem fæstir vita er hverjir stóðu í raun á bak við ævintýrið. Áður- nefndur Olafur er sonur Arnar nokkurs Clausen, að sagt er, og voru tveir aðrir synir hans, bræður Ólafs, með í fyrirtækinu. Auk þeirra tveggja var svo sonur Davíðs Scheving Thorsteinsson iðju- höldar, að nafni Jón Scheving Thorsteinsson, með ásamt fleir- um — allir tilheyra þeir stétt pen-v ingamanna í landinu, að því er sagan segir. . . II_________________________ urborg hafa mikið og gott samstarf að því er virðist. Á undanförnum ár- um hafa borgarstjórnarfulltrúar þessara tveggja borga boðið hver öðrum í ferðir til sinna landa í því skyni að efla félagsleg og menning- arleg tengsl. Fyrir nokkrum árum var sendinefnd borgarfulltrúa Moskvu stödd í Reykjavík í boði borgarinnar og var mikið skálað og mörg böndin treyst. Nú er komið að Rússum að endurgjalda boðið og hefur fararlisti borgarstjórn- ar Reykjavíkur verið valinn. Þar á meðal eru Davíd Oddsson í farar- broddi, Markús Örn Antonsson, Kristján Benediktsson, Sigurjón Pétursson og Jón G. Tómasson. Haldið verður af stað sunnudaginn 27. ágúst. Heyrst hefur í ýmsum öðrum borgarstjórnarfulltrúum að reisur af þessu tagi þjóni engum til- gangi og séu hreinar skemmtiferðir. Hins vegar mun Moskvuförin þykja eftirsóknarverð, þótt hún skili ef til vill ekki ríkum árangri, því einn ferðamannanna, Kristján Bene- diktsson, borgarfulltrúi Framsókn- ar, mun þessa dagana vera staddur með fjölskyldu sinni á Ítalíu og hef- ur pantað sér beint flugfar frá Róm til Moskvu til að taka þátt í gagnleg- um viðræðum um sameiginlega hagsmuni borganna tveggja og treysta vináttuböndin við Moskvumenn. .. Með vísan til tilkynningar Seðlabankans um vexti og verðtryggingu láns- og sparifjár frá 2. ágúst sl., hefur Alþýðubankinn ákveðið að frá og með 13. ágúst 1984 verði vaxtakjör bankans sem hér segir: Nafnvextir Nafnvextir Ársávöxtun INNLÁN: áður nú nú 1. Almennar sparisjóðsbækur 15,0% 17,0% 17,0% 2. 3ja mán. sparireikn. m. uppsögn 17,0% 19,0% 19,9% 3. 12 mán. sparireikn. m. uppsögn ... 19,0% 23,5% 24,9% 4. 3ja mán. verðtr. reikningar 0,0% 2,0% 5. 6 mán. verðtr. reikningar 2,5% 4,5% 6. Innlánsskírteini m. 6 mán. uppsögn 21,0% 23,0% 24,3% 7. Stjörnureikningar 5,0% 5,0% 8. Ávisanareikningar 5,0% 15,0% 9. Hlaupareikningar 5,0% 7,0% 10. Innlendir gjaldeyrisreikningar: - innstæður í Bandaríkjadollurum . 9,0% 9,5% - innstæður í Sterlingspundum ... 7,0% 9,5% - innstæður í Vestur-þýskum mörkum 4,0% 4,0% - innstæður í dönskum krónum ... 9,0% 9,5% ÚTLÁN: 1. Víxlar (forvextir) 18,5% 22,0% 2. Hlaupareikningslán 18,0% 22,0% 3. Skuldabréfalán 21,0% 24,5% 26,0% 4. Verðtryggð skuldabréfalán: - lánstími allt að 3 ár 4,0% 7,5% - lánstími minnst 3 ár . 5,0% 9,0% 5. Endurseljanleg lán 18,0% 18,0% 19,25% 6. Dráttarvextir* 2,5% 2,75% 'Gildir frá 1. september nk. Ath. Vextir eru breytilegir skv. ákvörðun bankaráðs Alþýðubankans hf., en vextir á eldri lánum breytast ekki. Við gerum vel við okkar fólk Alþýðubankinn hf. ALLAR STÓRU DÍTLAPLÖTURNAR 14 stk. í einum kasso Önnur söfn: Jimi Hendrix 13 stk. Eric Clapton 13 stk. Cream 7 stk. Bee Gees 17 stk. Rolling Stones 12 stk. Mjög góðir greiðsluskilmálar Upplýsingar í síma 687545 Kvöld- og helgarsími 72965 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.