Helgarpósturinn - 16.08.1984, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 16.08.1984, Blaðsíða 21
MATKRÁKAN Jörmunefld í föstulok eftir Jóhönnu Sveinsdóttur Liggaliggalá! Fastan mín yfirstaðin með glæsibrag: ég laus við 4 kíló af dauðum frum- um, eitruðum úrgangsefnum og fitubirgðum og skynja heiminn í nýjum víddum (mis- þægilegum að vísu, ég játa það!). Eftir að ég kom út á meðal manna eftir meira og minna þriggja vikna einangrun, varð reikað niður á Gauk sem aldrei skyldi verið hafa, voru við- brögð fólks býsna ólík: einn sagði að ég væri eins og ótamin hryssa, annar eins og særð hind; skástu viðbrögðin voru frá Hildi Finns, handrita- og prófarkalesara HP, rómuðum mannþekkjara, sem sagði að ég væri eins og Trópíkanaauglýsing, óeðlilega skýr, með brjálaðan hárvöxt og hryllilega eggjahvítu í augunum. Og sjö árum yngri en þegar hún hitti mig síðast. Big deal! Nú, þetta skilja aðeins þeir er lásu síðasta pistii sem fjallaði um kosti þess að fasta, föstuundirbúning og hentugar föstuaðstæð- ur. Og nú held ég áfram að vera óþolandi og útmála föstuna sjálfa og föstubrot. Uppástunga aó föstumatseöli Þegar þið hafið undirbúið líkamann í svo sem viku með léttu og skipulögðu mataræði og rutt áhyggjunum í burtu, hefst sjálf fastan, og meðan á henni stendur má einungis inn- by'rða ósykraða og ósaltaða ávaxta- og grænmetissafa, svo og ávaxta- og jurtate, að ógleymdu vatni; allir drykkirnir skulu vera líkamsheitir og menn þurfa að innbyrða a.m.k. 2Vi 1 af vökva á dag. Dagsmatseðil- inn má t.d. setja saman á eftirfarandi hátt: Byrjaðu ævinlega á því að „koma magan- um í gang“, t.d. með sveskjusafa eða kröft- ugu jurtatei, t.d. kamillutei. Kl. 8.00 Morgunverdur: 2—3 d! af ávaxta- eða grænmetissafa þynnt með jafn- miklu vatni, hvorutveggja líkamsheitt. KI. 10.00 Millimál: 2—3 dl jurta- eða ávaxtate, e.t.v. bragðbætt með hunangslús. Kl. 12.00 Hádegisverður: 2—3 dl ávaxta-eða grænmetissafi þynntur með vatni eins og morgunverðurinn. Um að gera að prófa sem flestar tegundir til að skapa fjöl- breytni, s.s. gulrætur, gúrkur, melónur, greipaldin o.s.frv, Kl. 14.00 og 16.00 Millimál: eins og kl. 10.00. Kl. 18.00 Kvöldverður: 4—5 dl grænmet- iskraftur, ósaltur, keyptur eða heimatilbú- inn. T.d. má fá góðan kraft með því að sjóða saman kartöfiur, gulrætur, steinselju og e.t.v. sellerí, lauk og kryddjurtir í ríkulegu vatni í 2—3 tíma, sía kraftinn svo frá og borða volgan, e.t.v. bragðbættan með ögn af góðri sojasósu, s.s. Tamari. Kl. 21.00 Kvöidte: 2—4 dl af mildu, ró- andi jurtatei, t.d. kamillu- eða melissute. Hugsanlegar aukaverkanir Sumir eru jörmunhressir alla föstuna, fá alls engar aukaverkanir. Aðrir finna til tals- verðra óþæginda, einkum 2—3 fyrstu dagana, á borð við yfirþyrmandi þreytu, ógleði, óróleika eða pirring og hungurverki. Þeir fá höfuðverk og e.t.v. einkenni kvilla sem einhvern tíma hafa hrjáð þá. En þó það hljómi kannski sem fjarstæða, þá sýnir reynslan að sá sem finnur til mestra óþæginda þarfnast föstunnar (úthreinsunar- innar) mest! Því er um að gera að halda út fyrstu dagana, því síðan fer líðanin stórbatn- andi dag frá degi. Fólk sem er gripið mikilli vanlíðan bara við það að sleppa tveimur, þremur máltíðum er svo fullt af efnaskipta- eiturefnum að líkaminn notar fyrsta tæki- færið til að hleypa þeim út í blóðið og lætur nýrun síðan um að skilja þau út. Eftir fyrstu dagana eiga þessi óþægindi að hverfa að mestu, en hugsanlegt er þó að við- komandi finni til nokkurs stirðleika og eigi e.t.v. erfitt um svefn. Þessi knappa næring hefur þau áhrif á líkamann að hann kemst af með minni svefn en endranær. Margir sofa líka léttar. Stirðleikinn stafar líka af „elds- neytisskorti", varmamyndunin minnkar og menn verða dálítið stirðir og útlimakaldir (hitastig líkamans lækkar, m.ö.o.). Góö ráö Næg hreyfing skiptir miklu máli meðan fastað er, og útivera. Farið gjarnan í langa gönguferð á hverjum degi, hvernig sem viðrar, og berjið ykkur á brjóst. Og ekki er verra að hafa uppbyggilegan göngufélaga (þó ekki of fyndinn. . .).Ef þið eruð vön að stunda líkamsæfingar í einhverri mynd, þá haldið þeim endilega áfram. Svo er um að gera að hafa tiltæka næga af- þreyingu: bækur, vídeóspólur, piötur, prjónadót, eða annað það sem hugur ykkar stendur til. Og síðast en ekki síst: gott úrval af jurta- og ávaxtatei. Hvernig er líöanin eftir föstuna? Stórkostleg, að flestra dómi. Maður finnur til léttis, bæði andlega og iíkamlega, er skarpari í hugsun, hreinn og ferskur utan jafnt sem innan. Breyti maður síðan matar- æði sínu til hins betra að föstu lokinni, mun áhrifa hennar gæta býsna lengi. Og hitt hef ég harðsvíraða reykingamenn sem tókst að hætta að reykja meðan þeir föstuðu. Hvað sjálfri mér viðkemur þá fann ég varla til nokkurra óþæginda meðan á föst- unni stóð. Ég var dálítið þreytt fyrstu þrjá daga föstuundirbúningsins, vann á 45 snún- inga hraða í stað 78, en ég held að það hafi fyrst og fremst stafað af kaffileysinu. Ég fékk aldrei sultartilfinningu og féll aldrei í freistni varðandi mat, jafnvel þótt ég þyrfti nokkr- um sinnum að elda ofan í aðra. Að vísu talaði ég mikið um mat, stundum heilu og hálfu dagana. . . Eg hvíldist betur en endranær, svaf lengri og dýpri svefni, gagnstætt við marga aðra „fastara", og stundaði mína venjulegu leik- fimi án erfiðleika. En eftir að vera byrjuð að borða fasta fæðu á nýjan leik, — sem er undursamlegt — og fara meira út á meðal fólks, finnst mér skýr- leikinn í kollinum gera mig létt ofsóknar- brjálaða (paranoid). Eða mér finnst öllu heldur að kringum mig sé mjög ákveðinn radíus eða ára sem annað fólk megi ekki stíga inn fyrir. Þessi ára er mjög áþreifanleg og mér er sárt um hana.. . . Aö brjóta föstuna rétt Að brjóta föstuna rétt er jafn mikilvægt og föstuundirbúningurinn, að venja líkamann hægt og bítandi aftur við fasta fæðu. Menn verða að borða samkvæmt mjög spartönsk- um matseðli a.m.k. þrjá fyrstu dagana. Þeim mun lengur sem menn treysta sér til að halda sér frá hefðbundnu áti, því betra. Helst eiga menn að borða varlega jafnlengi og þeir hafa fastað, þ.e. 8 daga fasta + 8 daga varfærni í mataræði. Brjótið föstuna t.d. á eftirfarandi máta: Viðbót við hádegisverð: 1 soðin.stöpp- ■ uð kartafla. Viðbót við kvöldverð: Vá afhýtt epli og 1 dl súrmjólk. Annar dagur: Viðbót við hádegisverð: 1 afhýddur tómatur, söxuð steinseljugrein og hálfur skammtur af kartöflustöppu. Kvöld- verður: bætið dálitlu söxuðu, soðnu græn- meti út í seyðið og e.t.v. niðursneiddri kartöflu. Borðið banana og súrmjólk í eftirrétt. Þridji dagur: Bætið dálitlu soðnu græn- meti út í seyðið í hádeginu og gjarnan nokkr- um matskeiðum af soðnum (hýðis)hrísgrjónum. Til kvöldverðar er loksins við hæfi að útbúa létt grænmetissalat og sjóða ögn af fiski og borða ferskan ávöxt og súrmjólk í eftirrétt. Gætið þess aðeins að tyggja mjög vel þegar þið byrjið á föstu fæðunni á nýjan leik, svo maginn geri ekki uppreisn. í nafni sanngirninnar skal ég játa að um kvöldmatarleytið á öðrum degi í föstubroti, stóðst ég ekki mátið og fékk mér tvær trefja- brauðsneiðar og morguninn eftir súrmjólk og musl og það gerðist nákvæmlega ekki neitt! En líkast til eru ekki allir með jafn sterkan maga, svo allur er varinn góður. Og nú ættu allir að vera einhvers vísari um kosti föstunnar og vonandi langar einhverja til að prófa sjálfir. Ótamin hryssa eða Trópí- kanaauglýsing, paranoid eða með fínpúss- aða áru? Sjö árum yngri? Því get ég ekki svarað sjálf. En mér finnst ég vera hreinni, sterkari og í betra jafnvægi en ég var fyrir mánuði ; og dýrmætri reynslu ríkari. Semsé: Big deal! Við sem heima sitjum Þessi syngja: Anna Flosadóttir Pálmi Gunnarsson, Bergþóra Árnadóttir Ólöf Halla Bjarnadóttir Þuríður Sigurðardóttir Lög eftir Bjarna Hjartarson Útsetningar eftir Gunnar Þórðarson sen óe/fl- sWn Þessi frábæra hljómplata fæst í næstu hljómplötuverslun HELGA! ’ÓSTURINN 21

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.